Leita í fréttum mbl.is

Hrunsráðherrar með tugmilljóna kosningastyrki á bakinu

Johanna-og-Gudlaugur-Thor_1091123689Það er ekki nema von að Per Sanderup hafi ekki litist á blikuna þegar hann sá hve forhertir Íslendingar eru, að senda hrunsráðherra með tugmiljóna kosningastyrki á bakinu eins og Guðlaug Þór og Össur Skarphéðinsson á ráðherrafund EFTA. Og þegar þessir þokkapiltar fóru svo að steyta görn í ofanálag á umræddum fundi, hafa Per karlanganum auðvitað fallist hendur því hann er áreiðanlega ekki vanur því að óknyttadrengir, sem staðnir hafa verið að peningalegum og stjórnfarslegum saurlifnaði, sendi honum tóninn. Og varla þarf að taka fram, að Per hefur, vægast sagt, þótt það verulega sérkennileg sjónarmið af hálfu Íslendinga, að senda jafn óskammfeilna gripi og Guðlaug Þór og Össur Sckarp á ráðherrafund EFTA.
mbl.is Afstaða EFTA til Icesave áhyggjuefni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tvær pöddur rotaðar í sama höggi

esbHelvíti lýst mér þokkalega á munnsöfnuðinn gagnvart Íslendingum í þessum íhaldpjakki, Kamerún, eða hvað ann heitir. Miðað við að hann kveðst ætla að beita sér fyrir að Íslendingar fái ekki aðild að ESB, nema þeir borgi Icesavereikninginn, þá er borðliggjandi að ríkisstjórn Íslands svari að bragði með því að draga ESB-umsóknina til baka og segi Bretum að éta sjálfir sitt Icesavedrullumall. Þar með væru rotaðar í einu höggi tvær illþefjandi pöddur úr svikabúri Jóhönnu sig og Steingríms J. 

Almenningur á Íslandi stofnaði ekki til Icesavegjörningsins og ekki vill þessi sami almenningur neitt með innlimun Íslands í ESB hafa. Það er þessvegna best að vísa þessum ófreskjum í verri staðinn og spara þjóðinni með því óteljandi milljarða. 


mbl.is Beiti ESB í Icesave-deilunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Krataeðlið er áskapað þessum kratageitum

IMG000001Ef menntamálaráðherra og ríkisstjórnin hafa raunverulegan áhuga á sparnaði í skólakerfinu ætti að vera hendi næst fyrir þau að klippa algjörlega á peningaausturinn í ,,einkareknu" pungaprófsháskólana. Ef auðvaldið vill reka einkaskóla þá skal það gera það með sínum eigin peningum í stað þess að laumast í ríkissjóð til að halda þessum fáránlegu sínum uppi.

En það er auðvitað borin von að auðvaldslepparnir í núverandi ríkisstjórn hafi áhuga á að styggja peningahyggjustóðið í einu eða neinu, enda á umrætt stóð heldur betur hauka í horni þar sem Steingrímur J., Katrín Jakobs, Jóhanna Sig og Árni Páll eru. Enda hafa slíkar kratageitur æfinlega verið styrkustu hækjur kapítalismans, það gerir krataeðlið sem þessum greyjum er áskapað.

Piff. 


mbl.is Aukið samstarf og verkaskipting háskóla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Griðkona Gnarr og fundarstjóri

Það átti þá fyrir skörungnum Hönnu Birnu að liggja að gerast griðkona Jóns Gnarr og fundarstjóri hans. Það er ekki á hverjum degi sem hinn illræmdi Sjálfstæðisflokkur er niðurlægður á jafn afgerandi, hastarlegan hátt. Og ekki minnkar skemmtanagildi þessarar niðurstöðu, að undanfarnar vikur hafa ýmsir sjálfstæðismenn haft hátt um að Hanna Birna, nú fundarstjóri hjá Jóni Gnarr, ætti að gerast formaður Sjálfstæðisflokksins á næsta landsfundi og ef ekki formaður, þá varaformaður. En skjótt skipast veður í lofti og enginn veit sína ævina fyrr en öll er og allt í einu er frami Hönnu Birnu orðinn að þjónustuhlutverki við Jón Gnarr og Samfylkinguna.

Þó má vera að það sé huggun harmi gegn fyrir Hönnu Birnu og sjálfstæðismennina, að hún fær sér til liðveislu við fundarstjórna þann margrómaða kosningasigurvegara, frú Sóleyju Tomm, höfuðdjásn hins kvensama flokkseigendafélags VG.

En að öllu samanlögðu, þá er ekki annað hægt en fyllast heilbrigðri þórðargleði við að horfa uppá hrikalega brotlendingu Hönnu Birnu og Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Fyrr má nú vera meira helvítis gnarrið, sem þetta pena fólk hefur álpast útí eins og blindar mýs í búrskáp.


mbl.is Hanna Birna kjörin forseti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sko minn kall Three Horses

gamblerSko minn kall, búinn að forða oss frá þjóðargjaldþroti, með því að endurreisa Björgólf Thor og Sjóvá, einkavæða bankana, sækja um ESB-aðild og hliðra sér hjá að taka á kvótakerfinu, svo fátt eitt sé nefnt, og láta venjulegt launafólk standa straum af björgunaraðgerðum ríkisstjórnarinnar í þágu auðvaldsins.

Já, sko minn kall er mikill sósíalist og auðvaldshrellir ... svona í anda Péturs þríhross, framkvæmdastjóra í Sviðinsvík.


mbl.is „Verkefnið er að takast“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ólíðandi trassakapur illskárstu flokkanna

xd1Það er sama hvað brjóstumkennanlegir vindhanar eins og Bjarni Ben og Sigmundur Davíð reyna að gera sig gildandi í augum almennings, þá er staðreyndin samt sú, að Íslendingar eru svo hörmulega illa staddir, að núverandi ríkisstjórn, sem er sannarlega vond stjórn, er illskársti kosturinn í stöðunni þegar kemur að því að meta hvaða flokkar komast næst því að vera nothæfir í ríkisstjórn nú um stundir. Allrasíst þurfum við alræmd samtök á borð við Sjálfstæðisflokk og Framsóknarflokk við stjórnvölinn.

Eins og öllum er í fersku minni skipaði Alþingi sérstaka rannsóknarnefnd til að kanna aðdraganda efnahagshrunsins, sem skilaði af sér skýrslu í níu bindum. Hinsvegar hefur löggjafanum láðst að skipa rannsóknarnefnd til að rannsaka starfsemi Sjálfstæðisflokksins síðastliðin 30 ár, eða svo. Ef samviskusöm, óhlutdræg og öflug nefnd myndi kanna umsvif Sjálfstæðisflokksins (já og Framsóknarflokksins) er borðliggjandi að niðurstaðan myndi leiða til þess að ekki yrði undan því vikist að banna Sjálfstæðisflokkinn með lögum. Trassaskapur meirihlutaflokkanna á Alþingi hvað þetta alvarlega mál varðar, er með öllu ólíðanlegur og óskiljanlegur.


mbl.is Verkleysi, svik og vantraust
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Pólitískt áhlaup Jóhönnu gegn Jóni Bjarnasyni

Það þarf enginn að efast um að Jóhanna Sigurðardóttir viti ekki allt sem vita þarf um pólitísk áhlaup. Hún hefur nú um margra mánaða skeið staðið að pólitísku áhlaupi að Jóni Bjarnasyni, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, án þess að hafa erindi sem erfiði enn sem komið er. Meginástæða hins pólitíska áhlaups Jóhönnu á Jón, er hvernig þeim síðarnefnda hefur tekist að snúa á ESB-attaníossana hvað eftir annað og skilja þá eftir eins og viðundur með sína ESB umsókn eins og smásveina með buxurnar á hælunum.

Þá ætti flestum að vera í fersku minni pólitíska áhlaupið hennar Jóhönnu gegn Ögmundi Jónassyni, sem lauk með því að Ögmundur sagði upp vistinni við ríkisstjórnarnáhirð Jóhönnu og Steingríms. Og ekki er heldur vert að gleyma því þegar forsætisráðherrann beislaði áhlaupaklár sinn og réðist í að smala köttum fyrir Steingrím sinn. 


mbl.is „Pólitískt áhlaup á mig"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Pólitísk geðvilla

Björgólfur Thor Björgólfsson fjárglæframaður var einn af helstu gerendum í íslenska bankahruninu. Fyrir fáeinum árum afhenti öfgafrjálshyggjuríkisstjórn, er þá var við völd, þessum manni heilan banka, sem var í eigu þjóðarinnar, á silfurfati fyrir ekkert. Fjárglæframaðurinn þakkað fyrir sig með Icesave og öðrum hundakúnstum, sem áttu stóran þátt í Ísland glataði sjálfstæði sínu í hendur AGS og rambar nú á barmi gjaldþrots.

Nú skildi maður ætla, að Björgólfur Thor og aðrir af sama kalíberi ættu ekki afturkvæmt, eftir það sem á undan er gengið, til nokkurra umsvifa á Íslandi. Liður í að setja þessa karla af til frambúðar var svokölluð búsáhaldabylting, sem skilaði VG og Samfylkingunni hreinum meirihluta á Alþingi.

Nú launa ,,vinstrflokkarnir" VG og Samfylking fólkinu sem kaus þá fyrir rúmu ári með því að endurreisa Björgólf Thor til áframhaldandi umsvifa á Íslandi í gegnum Verne Holdings ehf til að byggja og reka gagnaver í Reykjanesbæ. Hvað er þessi andskotans ófénaður, sem smokraði sér til valda í skjóli búsáhaldabyltingarinnar og vinstrimennsku, að meina með svona tilfæringum? Flögrar ekki að neinum í ríkisstjórnarflokknunum, að með því að endurreisa útrásardólga sé ríkisstjórnin að sýna alþýðu manna sem studdi hana til valda ómælda fyrirlitningu? Það er ekki nema von að lendsmenn séu komnir með ógeð á stjórnmálamönnum og athöfnum þeirra.

Það er ljóst að stjórnmálaelítan á Íslandi er haldin ólæknandi pólitískri geðvillu og er þar af leiðandi ekki á vetur setjandi. Þessu drasli verður alþýða landsins að koma úr húsi með góðu eða illu og taka völdin í sínar eigin hendur.  


mbl.is Lög um gagnaver samþykkt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Veggurinn milli Sóleyjar og þjóðarinnar

flokkseigendur_786424.jpgÍ morgun varð ég þeirrar ánægju aðnjótandi, að hlusta á fyrripartinn af viðtali við eðalstjörnufémínístann Sóleyju Tomm á Rás 2. Eftir þessu viðtali að dæma, skilur frú Sóley ekki þjóð sína og því síður virðist þjóðin skilja Sóleyju Tómasdóttur. Á milli þessara tveggja aðila virðist hafa risið gríðarlegur rammgerður veggur, svo breiður og hár að þar yfir kemst ekki einusinni fuglinn fljúgandi. Þennan dékotans vegg íhugar Sóley Tomm, ef marka má orð hennar, að sprengja í loft upp með málaferlum á hendur þeim sem gert hafa athugasemdir við hennar týpu af fémínísma, sem sumum finnst löðra af efri-millistéttarhyggju og almennum fjandskap í garð karlmanna og þar með lítt uppbyggilegur í samræðu alþýðunnar um þennan málaflokk. 

 


mbl.is Kannar réttarstöðu sína
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Leiðinlegasti maður Norðurlanda

Það er ekki ofsögum sagt um Má Guðmundsson, að hann sé einhver leiðinlegasti maður sem nú er uppi á Norðurlöndum; hann er svo hrottalega leiðinlegur, að Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra, sem seint verður sökuð um skemmtilegheit, datt ekki til hugar að svara tölvupóstinum frá Má, hver innihélt leiðindavæl hans um eigin launakröfu.

En hvernig í ósköpunum Jóhönnu og Steingrími létu sér til hugar koma að ráða svo stórkostlegan leiðindadurg í stöðu seðlabankastjóra og Má þennan Guðmundsson, er hverjum manni algjörlega hulin ráðgáta. Það má svo sem vera að spilltu hugarfari forsætis- og fjármálaráðherra sé um að kenna hver varð fyrir valinu þá seðlabankastjóri var ráðinn, en líklegra er þó, að þeim hafi þótt affarasælast að ráða persónu til starfans, sem væri á svipaðri leiðindagráðu og þau sjálf, til að halda uppi listrænu samræmi milli þeirra sem fara með æðstu fjármálaembætti ríkisins. 

Ekki þarf að taka fram, að Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra fellur óaðfinnanlega inní leiðindasymfóníu Jóhönnu og Steingríms.  


mbl.is Ræddi ekki beint við Jóhönnu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband