Leita í fréttum mbl.is

Hvenær dettur hesti í hug að sjúga kú?

beljaEf svo er að kúamjólk sé einungis holl kálfum, er einboðið að mannfólk hætti algjörlega að éta þessa afurð frá löggiltum eigendum, það er að segja kálfunum, og snúi sér að annarri, nærtækari og hollari fæðu. Í fljóti bragði sé ég ekkert sem komið gæti í stað kúamjólkur en mjólk úr kvenmönnum, sem hingað til hefur nær eingöngu verið nytjuð ofaní hvítvoðunga.

Í annari útgáfu Þátta frá árinu 1977 eftir Halldór Laxnes segir Karl Einfer á þá leið, að hámark óeðlis sé að neyta mjólkur úr öðrum dýrum og spyr í áframhaldinu: ,,Hvenær dettur hesti í hug að sjúga kú? Og þegar Karl Einfer er spurður hvað eigi að gera, svarar hann samstundis, að það eigi ,,að taka kellíngar og ala þær á búgörðum uppí sveit og mjólka þær." Karl Einfer hafði einnig í hótunum við þetta tækifæri, að fá mann frá Amríku sem hann þekkti til að stofna trúfélag á móti því að éta mjólk úr öðrum skepnum.

Því miður virðist hafa farist fyrir hjá Karli Einfer að stofna áminnst trúfélag, en máske er nú loks aftur kominn grundvöllur fyrir almennilegum, heilögum trúarsöfnuði á móti áti manna á mjólk úr öðrum dýrategundum. 


mbl.is Kúamjólk bara fyrir kálfa?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gamansamir og gráðugir kvótaperrar hóta innrás í ráðuneyti

perr.jpgMikið ósköp geta þessir svokölluðu ,,útgerðarmenn" verið gamansamir þegar vel liggur á þeim. Í frétt mbl.is af frjálsum veiðum á úthafsrækju, segja þessir spaugarar, að markmið Jóns Bjarnasonar sjávarútvegsráðherra sé að grafa smátt og smátt undan kvótakerfinu með því að setja ákveðnar tegundir í sóknarstýringu. Fyrst hafi hann fleygt skötusel í andlitið á þeim, nú úthafsrækju.

Í dag ætla hinir gráðugu kvótaperrar að ryðjast inní Sjávarútvegsráðuneytið til að freista þess að öskra Jón Bjarnason frá því að taka af þeim úthafsrækjukvótann, sem þeir hafa notað til að braska með í stað þess að veiða.

Og fyrst að Jón Bjarnason er búinn að fleygja skötusel og úthafsrækju í andlitið á kvótaperrunum ætti honum ekki að verða skotaskuld úr að fleygja þessum hvimleiðu yfirgangshundum á dyr í Sjávarútvegsráðuneytinu, ef þeir gera alvöru úr gamni og vaða inní ráðuneytið í dag.

Nú er mála sannast, að LÍÚ, ásamt fleiri sambærilegum félögum, eru illkynja meinvörp útfrá hinum helsjúka Sjálfstæðisflokki og flokkast þar af leiðandi undir óásættanlegan óþrifnað á þjóðarlíkamanum. Þennan óþrifnað er að sjálfsögðu hægt að losa íslensku þjóðina við með einfaldri lagasetningu. Það er full ástæða til að hvetja stjórnvöld til að gefa út dánarvottorð á Sjálfstæðisflokkinn og öll hans illþefjandi meinvörp og æxli.


mbl.is Gagnrýna frjálsar rækjuveiðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Óbetranleg trunta í Gásum

guÁ sínum yngri árum stundaði frú Ingveldur, sem á dögunum var rekin úr Sjálfstæðisflokknum, fimleika hjá fimleikafélaginu Gásum, sem var undanfari fimleikaélagsins Gerplu. Í Gásum fékk stúlkan Ingveldur, sem síðar varð frú Ingveldur, það orð á sig að hún væri óbetranleg trunta í fimleikum, einkum á slánni og bogahestinum. Hefði verið búið að finna súludansfimleikinn upp í þá daga hefði henni umsvifalaust verið beint inná þá braut þar eð tilfæringar hennar á slánni og bogahestinum vóru þess eðlis.

Um síðir gafst þjálfari Gása uppá Ingveldi og tilkynnti henni einn góðan veðurdag, að hún vildi sjá klúrar stúlkur innan vébanda fimleikafélagsins Gása, en Ingveldur svaraði að bragði með því að kasta stól í andlitið á þjálfaranum.

 


mbl.is Í fimleikaferð um Ísland
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fnykur hefur leitt fleiri á sporið en kínverska tollara

lyktJá, það var einmitt fnykurinn sem leiddi Arinbjörn Arinbjörnsson á sporið þegar hann var að leita að eiginkonu sinni á sunnudegi í apríl í hitteðfyrra. Hann gekk á lyktina og stóð kerlinguna að verki með alræmdum flagara. ,,Mín kona dylst mér aldrei buxnalaus innan 5 kílómetra radíuss" sagði Arinbjörn kampakátur á kaffistofunni við vinnufélaga sína daginn eftir.  
mbl.is Fnykurinn leiddi þá á sporið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hugsið ykkur 100 tonn af hagfræðingum

fall2.jpgSvo segja fróðir menn, að ráðlegt sé að hafa í hakk hagfræðinga og skítapakk, en útúr þessháttar iðnaði ku verða til einhver ógeðslegasti kattarláfujafningur sem um er vitað á byggðu bóli. Hugsið ykkur 100 tonn af hagfræðingum í einni allsherjarkássu og þá yfirvofandi vá sem af slíkum ósköpum kann að stafa ef ekki yrði kippt rösklega í taumana.

Með gríðarlegan fjöld hagfræðinga, viðskiptafræðinga, auk annarra péníngafræðinga, í fararbroddi, hlupu íslensku frjálshyggjufólin óskeikulu fyrir björg kapítalismans og veltast nú um í þeirri efnahagsurð fyrir neðan hengiflugið sem þeir eiga fyllilega skilið að geyspa golunni í. En því miður verður það víst hlutskipti alþýðunnar að halda lífi í frjálshyggjuhræjunum í boði fyrstu ,,hreinu vinstristjórnarinnar" sem upp hefir risið á Íslandi. 


mbl.is Skynsamlegt og vitlaust
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eldsvoða afstýrt með rananum

piss5Fyrir þrem fjórum árum kviknaði í sæng Kolbeins Kolbeinssonar út frá vindlingi sem hann hafði sofnað frá. Þegar Kolbeinn varð eldsins var stökk hann framúr og hrópaði: ,,sá er eldurinn heitastur sem á manni sjálfum brennur," um leið og hann slökkti logana með því að draga fram rana sinn og kasta af sér vatni. Þegar eldsvoðanum var afstýrt skreið Kolbeinn aftur undir sængina og sofnaði, því hann var rottimbraður og ekki búið að opna ríkið.
mbl.is Slökkvistarf enn í gangi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þekkið ykkar vitjunartíma - stundin er runnin upp

xv8Á meðan alþýðan mótmælti við Seðlabankann í hádeginu, stóð Steingrímur nokkur J. Sigfússon eins og vofa við gluggann á efstu hæð fjármálaráðuneytisins, Hafnarhváli, og fylgdist með. Sennilega hefur hann verið stjarfur af hræðslu því þegar nokkrir mótmælendur veifuðu til hans í kveðjuskyni hreyfði hann hvorki legg né lið, hvað þá hann veifaði á móti  eða færi útá strætið til móts við alþýðuna sem var að mótmæla, eins og góðum sósíalistaforingja sæmdi.

En, neiónei, Steingrímur formaður VG lét sér nægja að standa freðin af skelfingu við glugga á efstu hæð fjármálaráðuneytisins og stara á alþýðuna mótmæla aðförum hins kapítalíska kerfis, þar til hann leystist upp með eldglæringum og neistaflugi eins og illa þokkaðir draugar gerðu fyrr á öldum þegar þeir mættu augum réttlætisins.

En þó skömm framsóknarmannsins í sósíalísku felulitunum sé mikil, þá verða þeir sem eru raunverulegir sósíalistar að þekkja sinn vitjunartíma. Efist þið enn um að stundin sé runnin upp Ögmundur Jónasson, Lilja Mósesdóttir, Guðfríður Lilja, Ásmundur Einar og Jón Bjarnason? Varla er ykkar pólitíska erindi ekki meira en að verja eina kapítalíska ríkisstjórn falli?, eða fresta því að stjórnmálaflokkur, sem byggður var uppá fölskum forsendum þegar allt kemur til alls, klofni formlega? Er ekki best að sorgarsögu og dauðastríði Vinstrhreyfingarinnar græns framboðs ljúki sem fyrst? Jörðin heldur áfram að snúast þó Steingrímur, Álfheiður, Katrín og Svandís missi ráðherrastóla undan rössum sínum.

Við verðum að þekkja okkar vitjunartíma - eða hvað.


mbl.is Æsir upp í manni réttlætiskenndina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er ekki komið að leiðarlokum Ögmundur og Lilja?

Hafi Ögmundur Jónasson og Lilja Mósesdóttir einhverntímann átt raunverulega samleið  með Svavarsfjölskyldunni, Steingrími J., Álfheiði Ingadóttur og Árna Þór, sem ég efast reyndar um að þau hafi átt, eru dagar þeirrar samleiðar endanlega taldir. Úr því sem komið er, er lang heiðarlegast í stöðunni að leiðir hægri og vinstri arma VG skilji með formlegum hætti. Að reyna að halda úti klofnum stjórnmálaflokki, þar sem jafn langt er milli fylkinga í smáu sem stóru, er fullkomlega óheilbrigt og skemmandi fyrir alla þá er að koma. Það er best að hægri armur VG, svavarsistarnir, dekur- og undanrennuliðið og búrtíkurnar, fái að deyja hægt og hljótt, án utanaðkomandi aðstoðar, inní samtryggingarkerfi kapítalismans þar sem hann á svo sannarlega heima. Þeir sem vilja ekki hljóta slíkan háðungardauðdaga á líknardeild auðvaldsins verða að gera upp við sig hvort þeir ætla að skríða uppá bakkann eða eða fljóta með AGS, ESB, NATO, Icesave, kvótakerfinu, Björgólfi Thor, Sjóvá og gamla Íslandi á enda veraldar. Það er ljóst að Steingrímur og hans úrvalssveit ætlar ekki uppá bakkann.  
mbl.is Draumsýn að flokkurinn lifi af
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Framsóknarvilluljósið í vinstrimannagærunni

auðvaldJú, Steingrími J. hefur tekist í alltof langan tíma fela sinn svavarsvædda framsóknarkapítalisma undir sauðargæru rótækrar vinstrimennsku, sósíalisma. Það er reyndar nokkuð langt síðan ég þóttist sjá að þessi þistilfjarðarframmari væri ekki allur þar sem hann væri séður, það væri eitthvað meir en lítið bogið við gripinn. Það var t.d. dálítið eftirtektarvert í aðdraganda stofnunar VG hvað Steingrími virtist umhugað að draga að sér óánægða framsóknarmenn, auk þess að gera bandalag við kvennalistakvinnur sem þá höfðu nýlokið við að gjöreyða Kvennalistanum sáluga. En þegar þessi sérkennilegi flokksformaður tók til við, með dyggri aðstoð gömlu flokkseigendanna úr Alþýðubandalaginu ásamt dekurdýrum af undanrennukynslóðinni og búrtíkum eins og Árna Þór, að flæma verkalýðssinnuðu sósíalistana í útlegð í flokknum, hefðu öll ljós átt að kvikna hjá almennum flokksmönnum. En því miður hafa alltof margir elt framsóknarvilluljós Steingríms, Svavar og Álfheiðar alltof lengi og til stórskaða fyrir raunverulega vinstrihreyfingu á Íslandi. Það þýðir ekkert fyrir Steingrím J. að æpa, framaní flokksráð VG og þjóðina: - Sjáið hvað ég er sterkur! þegar fyrir liggur að hann einkum notað sína merkilegu krafta til að viðhalda samtryggingu stjórnmálaflokkanna og auðvaldsins í landinu.

Karl MarxÞað er ljóst að vinstri armurinn í VG verður að taka til sinna ráða, ef ekki á verr að fara, að segja skilið við gamla flokkseigendafélagið úr Alþýðubandalaginu, framsóknarvillingana, dekurdýrin, búrtíkurnar og undanrennuskoffínin og stofna alvöru vinstriflokk, flokk sem byggir á sósíalisma, verkalýðsbaráttu, þjóðfrelsi; flokk sem meinar það sem hann segir og liggur ekki uppíloft í samtryggingarsvaði kapítalismans eins og meðvitundarlaus hundur. 


mbl.is „Já það tókst“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tvö dæmi um einbeittan óheiðarleika formanna

flokkseigendur_786424.jpgÍ við tali við vefritið Pressan.is kannast Steingrímur J. formaður VG hvorki við armaskiptingu eða klofning í VG, sem leiðir hugann að því hvort Steingrímur þessi J. sé svona illa upplýstur um gang mála í sínum eigin flokki, eða einfaldlega óheiðarlegur og hallur undir skrök þegar hann svarar spurningum blaða- og fréttamanna.

Það er svo sem hægt að upplýsa þennan sérkennilega formann ,,Vinstrihreyfingarinnar" að flokkurinn sem hann veitir forstöðu er klofin niður í rót og sá sem á einna drýgstan þátt í þeim klofningi heitir Steingrímur J. Sigfússon. Því er nefnilega þannig varið, að þessi sérkennilegi formaður hefur nánast frá stofnun VG einungis verið formaður hluta flokksins, það er svarsvædda hægri armsins þar sem þungamiðjan er gamla flokkseigendafélagið úr Alþýðubandalaginu sáluga. 

Og ekki má gleyma ræfils garminum honum Katli. Á mbl.is er sagt frá því að Katrín Jakobsdóttir,varaformaður VG, hafi áréttaði að Vintstri grænir hefðu alla tíð rökrætt á opinskáan og beinan hátt en að hennar mati væru fundargestir allir í góðri sátt hver við annan.

Þessi fullyrðing Katrínar er einfaldlega röng, vísvitandi lygabull. Innan VG hefur opinská umræða frá upphafi verið mjög illa séð af formanninum og hans hirðfíflum, sem nú fá að súpa seyðið af eigin óheiðarleika, yfirgangi og svikum. Og allt tal varaformannsins um að fundargestir á flokksráðsfundinum, sem nú fer fram, séu ,,allir í góðri sátt hvor við annan" er þeirrar tegundar að það dæmir sig sjálft í flokk með ómerkilegri pólitískri ruglandi og ósannsögli.

Það er sannarlega íllt í efni fyrir stjórnmálaflokk að hafa formann og varaformann sem ekki eru ærlegri en kompaníið Steingrímur J. og Katrín Jakobsdóttir.  

 


mbl.is Flokksráðsfundur VG settur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband