Leita í fréttum mbl.is

Hvað er eiginlega að þessum Þór Saari

Hvað er eiginlega að þessum Þór Saari, getur hann ekki hjólað af ærlegum myndarbrag í Jóhönnu Sigurðardóttur af innblásnu offorsi eins og Bjarni Benediktsson og hans góða fólk? Með þessu áframhaldi líður ekki á löngu að Þór lendi í ruslafötunni á sama hátt og hann fleygði skjölunum með hinum alvarlegu samskiptum Jóhönnu og Más í ruslið.

En Bjarni Ben stendur sína pligt í Jóhönnumálinu, eins og aðrir siðferðislega stöndugir sjálfstæðismenn, sem vinna nú hörðum höndum að því að gera Jóhönnu að opinberum stórlygara í augum almennings í sömu andrá og þeir klappa Guðlaugi Þór á kollinn fyrir dugnað í styrkjasöfnun fyrir sjálfan sig.  


mbl.is Heimatilbúinn vandi Jóhönnu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hanna Birna verður flott með Stjána Júl

Nú dugar ekkert hik né hangs, Hanna Birna á ekkert með að íhuga nokkurn skapann hlut; hún á að einhenda sér í varaformanninn og taka hann með trompi. Þau vera gífurlega áhugavert og framsækið í forustupar í brúnni á Sjálfstæðisflokknum þau Stjáni Júl og Hanna Birna, uppfull af ferskleika, hugmyndum og útbólgnum hugsjónum; hann samherji, hún af valhallarkontórnum hjá Kjartani Gunnarssyni.

Á meðan ég man: Stjáni Júl mun afgreiða Bjarna Ben, núverandi formann, með hælkrók að hætti samherja, á landsfundi óreiðusamtakanna sem eru svo óforskömmuð að kenna sig við sjálfstæði. Og eftirleikurinn verður auðveldur: Eftir valdatökuna mun Stjáni sigla íhaldsjaktinni rakleiðis til Akureyrar, rétt eins og samherjar brunuðu með ísfirsku Guðbjörgina frá Ísafirði til Akureyrar, sællar minningar. Og Hanna Birna mun blíva sem ein sérdeilis siðleg og prúð skipsjómfrú í brúnni með Stjána, en Gulli, Bjarni Ben, Illugi og Torgerður Katrín verða að láta sér lynda að hvíla lúin bein og útbrunnar taugar í lestinni innanum drukkna menn, krankar konur og skran.


mbl.is Íhugar varaformannsframboð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skólprottur telja Jóhönnu lygalaup

Nú er gjörsamlega uppi títan á bræðrum og systrum í syndlausu náhirðarsamfélaginu. Af alkunnri sannleiksást reiða náhirðingar hátt til höggs í dag og saka Jóhönnu forsætisráðherra um að vera blygðunarlausan og forhertan lygalaup; hún hafi sem sé logið því blákalt uppí saklaust geðið á þjóð sinni, að hún hafi aldrei rætt við hinn gráðuga Má Guðmundsson um væntanlega þénustu hans í Seðlabankanum.

Við sem þekkjum afturámóti gjörla til málsins, vitum að Jóhanna hefur aldrei talað aukatekið orð við þennan Má og allrasíst mundi henni til hugar koma að eyða orðum við þann mann um launakjör hans. Þeir sem halda gagnstæðu fram eru náttúrlega (eða ,,nottlega" eins og sjálfstæðismenn orða það) ekkert minna en sverir óþokkar og hvers manns níðingar. Að bregða forsætisráðherra þjóðarinnar um lýgimál er alvarlegt tilræði við þjóðarsálina og lýðræðisskipulagið. En fyrst hælbítarnir í náhirðarsamfélaginu kjósa að haga sér með þessum hætti, verða þeir að sætta sig við að taka afleiðingum gjörða sinna.

Ég býst við að Jóhanna forsætisráðherra Sigurðardóttir mæti þessari aðför af festu og kæri lygaáburðinn til sérstaks saksóknara, sem mun láta hneppa náhirðarsamfélagið í gæsluvarðhald til loka kjörtímabilsins.  


mbl.is Már og Jóhanna ræddu launin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þegar Gnarrið fer að veiða í Elliðaánum

veiðiÞað er öllum fjandans sama um Norðurá og Blöndu þessa dagana. Nú bíður fólk í ofvæni eftir að Gnarrið hefji veiðar í Elliðaá. Það fer að vísu litlum sögum af því hvort umrætt Gnarr viti hvað snýr fram eða aftur á veiðistöng, eða hvort hann þekki skötusel frá laxi, en það gerir ekkert til svo framarlega að það verði laxinn sem dregur Gnarrið ofaní hylinn til sín í staðin fyrir að Gnarrið sveifli fiskinum uppá árbakkann. Þá verður Gnarrið að gæta þess að fiski- og atkvæðafælur á borð við Dag B., Hönnu Birnu verði hvergi nær þegar hann fer að munda veiðarfæri sitt. Og ekki skal Gnarrið heldur ætla sér þá dul, að nota Sóleyju Tomm fílí-romm-bomm-bomm í beitu fyrir laxinn, því þá mundi gjörvallur elliðaárstofninn af laxfiskum synda rakleitt niður ána og láta ekki staðar numið fyrr en hann væri kominn útfyrir fiskveiðilögsögu Íslands, en þannig fór einmitt fyir Sóleyju í nýafstöðnum borgarstjórnarkosningum; VG-lýðurinn streymdi með vængjaslætti og gargi burt frá flokknum eins og hænsni undan fálka.
mbl.is Fyrsti laxinn kominn á land
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rammfölsk nóta uppúr hjáróma væluskjóðu

The Beatles komu í síðasta skipti opinberlega fram saman uppi á þaki, en hr. Gnarr og D. B. Eggertsson koma í fyrsta skipti fram saman útá þekju í Breiðholtinu, sem er að sjálfsögðu hymingnævandi snjallt og umfram allt skemmtilegt.

En hvernig sem á því stendur, þá losna ég ekki við þá tilfinningu, hvernig sem ég fer að, að Dagur B. sé ekki minna en rammfölsk nóta innanum Gnarr, Proppé og Einar Örn og komi aldrei til með að hljóma öðruvísi en hjáróma væluskjóða úr öðru sólkerfi í meirihlutasveit með Bestaflokknum.

Leiðinleg og væmin Samfylking á enga samleið með skemmtilegu fólki. Leiðinleg og væmin Samfylking hæfir leiðinlegum og væmnum Sjálfstæðisflokki eins og kjaftur skel, eða ölluheldur eins og sorp hæfir ruslatunnu. 


mbl.is Jón Gnarr verður borgarstjóri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Brjóstumkennanlegur kjánaskapur í Kópavogi

Mikil þó bölvuð sauðnaut eru þessir gripir sem standa að nýjum meirhluta í bæjarstjórn Kópavogs. Ég á andskotann ekki eitt einasta orð yfir svona kórvillu. Fyrst vesalings meirihlutinn hafði ekki döngun í sér, eða yfirsást af tómri glópsku, að ráða Gunnar I. Birgisson borgarstjóra Kópavogs, þá hefðu þessi grey átt að gera Óla (mis)góða úr svavarshjörðinni í VG að bæjarstjóra.

Svona frammistaða er hreint klámhögg, ef ekki súrrealískur skepnuskapur.

Best gæti ég trúað að þessi Guðrún Pálsdóttir sé ekki til og hafi aldrei verið til, nema hausunum á meirihlutafólkinu. Sennilega hefur slegið útí fyrir þeim af súrefnisskorti í reykfyllta bakherberginu þar sem þau voru að pukrast við að skálda upp meirihlutann í bæjarstjórn Kópavogs.


mbl.is Nýr bæjarstjóri Kópavogs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er jafn gott að vera berrassaður á Íslandi og að búa í Kópavogi

Hver man ekki sönginn góða, ,,Það er gott að búa í Kópavogi," sem steinsteypusöngvarinn Gunnar I. Birgisson kyrjaði til mikilla vinsælda hér um árið með sinni silkimjúku og kvenlegu bassarödd? Þá voru góðir dagar á Íslandi, sem grundvallaðist á því, að þá áttu sjálfstæðismenn allt og máttu allt. Svo fóru góðu dagarnir til andskotans ásamt öllum loftbóluaurunum, sem gufuðu upp í hundraða milljarðatali, og Gunnari I. borgarstjóra í Kópavogi var sparkað útí horn af sínu eigin fólki með þeim orðum að hann væri spilltur stjórnmálamaður!!!

En nú hafa mátulega geggjaðir auglýsingasérfræðingar tekið hið vinsæla lag Gunnars I. til endurskoðunar og endurbóta og heitir það nú í nýrri útsetningu: ,,Það er gott að vera berrassaður á Íslandi." Nú skulum við bara sjá til hvort títtnefndur Gunnar I. Birgisson, fyrrum borgarstjóri í Kópavogi, verði ekki fenginn til að syngja nýju útgáfuna af kópavogsbragnum, ,,Það er gott að vera berrassaður á Íslandi" inná allar auglýsingar sem ætlaðar eru til að leiða fólki í útlöndum fyrir sjónir að ekki sé eins djöfullegt að búa á Íslandi og sagt er, þrátt fyrir eldgos og glæpasamtökin sem kenna sig við sjálfstæði.   


mbl.is Gott að vera berrassaður á Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sumarbústaðadeild ungra sjálfstæðismanna

Ef mér skjátlast ekki þeim mun meir, þá eru delikventarnir, sem brotist hafa inní allflesta sumarbústaði á Suðurlandi og í Borgarfirði, ungir sjálfstæðismenn sem hafa mikla trú á einkaframtaki og einkavæðingu. Fyrst stóru strákarnir í frjálshyggjunni rændu öllum bönkunum og sparsjóðunum, þá vilja litlu svínin ekki láta sitt eftir liggja í ránskap. Auðvitað ber fólki að virða djarfa hugsjónamenn í hvívetna og læra að skilja að þeim gengur nákvæmlega ekkert annað til með umsvifum sínum en að byggja upp frjálst, kapítalískt þjóðfélag, en til að nálgast það göfuga markmið er fátt betra en ræna banka og sumarbústaði að innan. En allt um það, þá bera störf hinna ungu sjálfstæðismanna í sumarbústaðadeildinni Stóra Flokknum glæsilegt vitni um vel heppnað flokksuppeldi, þar sem hugsjónir gróðans og græðginnar ríkja ofar öllum kröfum. 


mbl.is Gengi gert út til glæpa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gott útspil

auðvaldÞað væri aldeilis gott ef útspil Jóns Atla Jónassonar, að taka ekki við tilnefningum til grímulágkúrunnar útaf herra Ólafi Ragnari Grímssyni, verður til þess að svokölluð Gríma verði úr heimi höll. Að losna við innantóman snobbsubbuskap á borð við Grímuna er alfarið af hinu góða og væri óskandi, að sem mest af þessháttar andlegu auðnuleysi fái að fjúka útí hafsauga eða hreinlega til helvítis til hrellingar fyrir íbúana í þeim fræga stað. 

En mikið asskoti væri nú vel af sér vikið hjá herra Ólafi Ragnari ef honum tækis að losa okkur bæði við Icesave-rottuganginn og Grímuna með nokkurra mánaða millibili. Ef hann gæti nú kveðið niður lúsafaraldurinn, sem kenndur er við LÍÚ kvótaþrjótana, fyrir næstu áramót væri óhætt fyrir þjóðina að taka karlinn í dýrlingatölu eins og þeir gerðu við Þollák byskub helga fyrir margt löngu.


mbl.is Ósáttur við forsetann sem verndara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fyrr má nú vaða botnlausan elginn

cocoÉg var að enda við að hlusta á Grím þennan Atlason á Rás 2, þar sem hann óð elginn um eitthvað sem ég gat með engu móti fengið nokkrun botn í. Mér skildist þó einna helst að hann væri að tala um eitthvað sem viðkemur pólitík og úrsögn hans úr VG. En því miður var Grímur svo gjörsamlega óskiljanlegur að engin leið var að henda reiður á hvað hann var að fara.

Nú er það mála sannast, að Grímur þessi hefur gert heiðarlegar tilraunir til að príla upp framboðslista hjá VG, en verið hafnað, og má í því samhengi álíta sem svo, að karlanginn sé þess vegna, að minnsta kosti, ofurlítið móðgaður útaf tómlæti og áhugaleysi flokksmanna á honum. En það væri samt lágmarkskurteisi af Grími Atlasyni, vilji hann deila opinberlega á menn og málefni í VG, að hann geri það á skiljanlegan og rökstuddan hátt, svo enginn þurfi að velkjast í vafa um hvað hann er að meina.  


mbl.is Grímur yfirgefur VG
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband