Leita í fréttum mbl.is

Fágæt lífsreynsla frú Porró í Vík

ösEkki get ég ímyndað mér, að Özi Skarp, ræfilstuskan svorna, hafi gott af því að vera mikið innan um útlenska hottintegla af ESB-standi. Við þekkjum hann hér að heiman, vitum öll hvernig blessaður unginn hefur snúist eins og vindhani í öllum málum, og raunar er með öllu óskiljanlegt, að hann skuli ekki fyrir löngu vera hrokkinn uppaf standinum. Og öll erum við sammála um, að Özi eigi að sofa á daginn og blogga á nærbuxunum einum klæða við eldhúsborðið heima hjá sér á nóttinni.

En mikið andskoti held ég að ráðamenn í útlöndum hlægi skelfilega að Öza í hvert skipti sem hann víkur af fundi með þeim og segi sem svo, að ekki sé nóg með að Íslendingar hafi komið sér útúr húsi hjá öllum siðuðum þjóðum, heldur sendi þeir, í þokkabót, trúð til að tala máli þeirra við upplýsta ráðamenn erlendra þjóða. Eða eins og Korrína Porró, hafnarstjóri í Vígó (Vík), sagði eftir að hún var laus við Öza: ,,Þetta er í fyrsta sinn, sem ég hefi hitt strump af holdi og blóði, en fram að þessu hafði ég aldrei séð eða heyrt strumpa nema í teiknimyndum."


mbl.is Össur í höfuðborg spænsks sjávarútvegs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Byltingarhetjuna félaga Hugo til Íslands

byltingMikið vildi ég að við Íslendingar fengjum að verða þeirrar gæfu aðnjótandi, að fá félaga Hugo Chaves til að stjórna landinu okkar í eins og eitt ár. Hann myndi t.d. ekki hika eitt andartak við að hafa endaskipti á Sjálfstæðisflokknum og Framsóknarflokknum í eitt skipti fyrir öll, sem og glæpaklíkunum sem fengið hafa að þrífast í skjóli þessara tveggja alræmdu samtaka. 

Eftir þá hreingerningu gætum við farið að tala um Alvöru Nýja Ísland.

Lifi byltingin bæði á Íslandi og í Suður-Amríku


mbl.is Idi Amin var ekki svo slæmur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ráð vil eg yður gefa herra sóknarprestur

séraÞeir sem þjófstálu glæsivagni yfirsálnahirðisins í Keflavík, eru áreiðanlega afar vandir að virðingu sinni og miklir smekkmenn, sem láta ekki bjóða sér hvað sem er. Þessum mönnum kæmi aldrei til hugar, að taka 15 ára gamla japanska ryðdollu traustataki til að spara sér sporin ef þeir þyrftu nauðsynlega að bregða sér af bæ. Og ef það er rétt, að þjófarnir hafi gert sér ferð í sjálfa kirkjuna og inní skrúðhús til að sækja lyklana að eðalvagninum í frakkavasa musterishöfðingjans meðan hann söng helgar tíðir fyrir framan altarið, er auðsjáanlegt að þar hafa farið gáfaðir menn og sanntrúaðir. Að vísu stendur einhversstaðar á helgri bók, að menn eigi ekki að stela, en slíka smánuni setja menn, sem hafa frá blautu barnsbeini alist upp í þjófafélagi, ekki fyrir sig ef þeir þurfa að komast á þægilegan hátt frá Keflavík til Reykjavíkur.

Hitt er svo aftur annað mál, að það hefur vissulega verið erfitt fyrir sóknarprestinn, að þurfa að ganga alla leið heim til sín eftir að hafa lokið sínum guðrækilegu störfum í kirkjunni. Þessháttar gönguferðir geta verið hættulegar viðkvæmri heilsu fínstillra nútímaklerka. Mér kæmi ekki á óvart þó blessað hymmnaríkisljósið þar suðurfrá sé í dag altekið harðsperrum í fótunum og gangi um gólf álíka stirðlega og Stekkjastaur jólasveinn.

Ef kirkjumeistarinn í Keflavík vill komast hjá annarri slíkri uppákomu, ætti hann að selja eðalvagninn og fá sér hest, sem hann getur teymt með sér inní helgidóminn. Hross er auðvelt að binda við altarisbríkina á meðan eigandi þess sinnir skyldugu helgihaldi, allt uppí yfirgripsmiklar hátíðarguðþjónustur. 


mbl.is Fundu bíl sóknarprestsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Upplausn þjóðfélagsins og úrkynjun

drunk7Mikið óskaplega leiðast mér smámunasamir embættismenn, sem einlægt eru að reyna ná sér í prik með því að klekkja á náunganum útaf einhverjum nauðaómerkilegum tittlingaskít. Þessháttar larfar eru í sannleika sagt óþolandi illgresi í hverju friðsömu og glaðsinna samfélagi. Að láta sér detta í hug að veitast að góðglöðum skipstjóra er fáránlegra en svo að orðum verði að komið. Aldrei lét sá mikli og frægi skipstjóri, Þorgarður Þorgarðsson, ölvunarástand aftra sér frá því að bjóða Ægi konungi byrginn, hvernig sem viðrað. Enda varð Þorgarður snemma þjóðsagnapersóna og sönn fyrirmynd vaskra drengja. Og aldrei lét nokkur tollheimtumaður eða lögregluprjónn sér til hugar koma, að finna að því við Þorgarð, að hann sigldi sinn sjó með eins og eina pottflösku af rommi fyrir bringspölunum. Það er enda samdóma álit allra samferðarmanna Þorgarðs, að aldrei hafi hann siglt jafn glæsilega með himinskautum en þegar hann hafði Bakkus með sér við stjórnvölinn.

Nú ráðast undirtyllur myglaðra sýslumanna á skipstjóra á 111 metra löngum skipum og láta þá blása í blöðrur og sjúga úr þeim blóð af sama virðingarleysi og þeir væru að sparka í hund. Þvílík háttsemi kann ekki góðri lukku að stýra en sýnir betur en margt annað upplausn þjóðfélagsins og úrkynjun. 

   


mbl.is Drukkinn skipstjóri handtekinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Konur ærast allar saman, öskra og veina: gaman, gaman!

reiðarslagÞað var mikið að þessir andskotar drulluðust til að brugga nothæft víagra fyrir kerlingar. Þessi mikli sigur sigur vísindana í þágu holdsins er afskaplega tímabær, eða eins og gamla skrukkan sagði: oft var þörf en nú er nauðsyn. Og ekki er að efa að víða verður kátt í höllinni þegar bæði húsbóndinn og húsmóðirin verða komin á freyðandi víagratripp og flogin á vængjum fryggðarinnar uppum loft og veggi, inní fataskáp og þaðan útí blómabeð.

Annars vissi ég í gamla daga um vafasaman kallskarf, sem kunni að sjóða saman hörkukrassandi graðmeðal úr einhverjum jurtum og fuglaskít. Þetta líka fína meðal byrlaði karlinn andvaralausum konum útí áfengi. Sem betur fer kom þessi iðja karlsins honum í koll um síðir, því síðasta fórnarlamb hans af kvenkyni reið honum svo gjörsamlega af fullu að hann var borin til hinstu hvílu viku síðar. Og gálan var svo ósvífin að fylgja honum til grafar hágrátandi eins og Drottinn sjálfur hefði farist af slysförum. Það er einhver skrautlegasta útför sem haldin hefur verið á norðurhjara heims.


mbl.is „Viagra fyrir konur“ væntanlegt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stórkostleg hætta á stökkbreytingu hér á landi

dori2_844255.jpgEins og greint hefur verið frá áður á þessu bloggi, er talsverð hætta á að svínsveiran H1N1 eigi eftir að stökkbreytast hér á landi. Hættan liggur í því, að svínsveiran blandist hinum hættulega framsóknarvírusi með ófyrirsjáanlegum afleiðingum. Vísindamenn telja að samlegðaráhrif H1N1 og framsóknarvírusins kunni að verða einhver svæsnasta drepsótt sem yfir mannkynið hefur gengið frá upphafi vega.

Fyrir rúmri viku veiktist gamla Framsóknarmaddaman af svínsflensu, eins og við var að búast. Kerlingarómyndin var samstundis sett í svo stranga einangrun, að einungis eitruðustu húskarlar maddömunnar fá að stunda hana. Í því heilsubótarteymi eru þeir Halldór Ásgrímsson, Finnur Ingólfsson, Alfreð Þorsteinsson og Ólafur bóndi á Miðhrauni, auk Valgerðar Swerirzz. Ekki er gömlu frúnni hugað líf, ef hún er þá ekki dauð nú þegar; það er þá bættur skaðinn. En hinu hugrakka hjúkrunarfólki verður ekki hleypt út aftur vegna stórkostlegrar hættu á að drepsótt brjótist út og grandi ef til vill allri heimsbygginni. Það er því allt útlit fyrir, að ofangreindir fimm-menningar verði geymdir í skotheldri einangrun, uns yfir lýkur.


mbl.is Stökkbreytt svínaflensuveira
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Örvita hægri öfgamaður lætur gamminn geysa

Síðust daga hafa meðlimir hins öfgafulla Sjálfstæðisflokks lagt megináherslu á, að æsa hverjir aðra upp í kolsvart, blint og dómgreindarlaust ofstæki í garð ríkisstjórnarinnar. Er nú svo komið að gjörvöll svínahjörðin er veit ekki sitt rjúkandi ráð sökum ólgandi hysteríu, sem hún hefur komið sér upp sjálf með vel skipulögðu hópefli.

Árangurinn af  þessum djöfulgangi sjálfstæðisflokksmanna birtist svo í morgun í örvita hægrimanni, sem kom þjótandi inní Stjórnarráðið, froðufellandi af frjálshyggjusótt og talandi tungum. Svo illa höfðu félagar mannsins í Sjálfstæðisflokknum espað hann upp, að velti meira að segja um koll blómapotti, sem hvorki hann né samflokksmenn hans, áttu nokkuð sökótt við svo vitað sé.

Nú er svo komið, að ekki er lengur forsvaranlegt að meðlimir Sjálfstæðisflokksins fái að ganga lausir sökum öfga og ofsa, sem stafa af eðlislægu óþoli þeirra fyrir bræðralagi, réttlæti og jöfnuði. Saklausir borgarar þessa lands eiga nefnilega heimtingu á vernd fyrir óðum Sjálfstæðismönnum. 


mbl.is Fékk ekki viðtal við ráðherra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Örvita hægriöfgamaður í fantaformi

Síðust daga hafa meðlimir hins öfgafulla Sjálfstæðisflokks lagt megináherslu á, að æsa hverjir aðra upp í kolsvart, blint og dómgreindarlaust ofstæki í garð ríkisstjórnarinnar. Er nú svo komið að gjörvöll svínahjörðin er veit ekki sitt rjúkandi ráð sökum ólgandi hysteríu, sem hún hefur komið sér upp sjálf með vel skipulögðu hópefli.

Árangurinn af  þessum djöfulgangi sjálfstæðisflokksmanna birtist svo í morgun í örvita hægrimanni, sem kom þjótandi inní Stjórnarráðið, froðufellandi af frjálshyggjusótt og talandi tungum. Svo illa höfðu félagar mannsins í Sjálfstæðisflokknum espað hann upp, að velti meira að segja um koll blómapotti, sem hvorki hann né samflokksmenn hans, áttu nokkuð sökótt við svo vitað sé.

Nú er svo komið, að ekki er lengur forsvaranlegt að meðlimir Sjálfstæðisflokksins fái að ganga lausir sökum öfga og ofsa, sem stafa af eðlislægu óþoli þeirra fyrir bræðralagi, réttlæti og jöfnuði. Saklausir borgarar þessa lands eiga nefnilega heimtingu á vernd fyrir óðum Sjálfstæðismönnum. 


mbl.is Handtekinn við Stjórnarráðið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dr. Kolbeinn Kolbeinsson gefur kost á sér í prófkjöri Samfylkingar

fullur3Dr. Kolbeinn Kolbeinsson, fyrrverandi framsóknarmaður, hefur ákveðið, vegna fjölda áskoranna, að gefa kost á sér í annað af tveimur efstu sætunum hjá Samfylkingunni í Reykjavík. Eins og kunnugt er, keypti Framsóknarflokkurinn Guðmund Steingrímsson af Samfylkingunni í fyrra og greiddi fyrir með 5 milljón króna kúluláni og dr. Kolbeini Kolbeinssyni, sem metinn var á 500 þúsund krónur.

Dr. Kolbeinn er í miklum metum hjá hægri armi Samfylkingarinnar, enda er hann kvæntur frú Ingveldi, sem er ein helsta frammákona Hvatar, félags sjálfstæðiskvenna. Dr. Kolbeini og frú Ingveldi hefur enn ekki orðið barna auðið, sem kemur ekki á óvart því þau hjón eru nútímafólk á rísandi framabraut og hafa þar af leiðandi engan tíma fyrir grenjandi og skítandi krakkasmánir. 

Dr. Kolbeini er spáð mikilli velgengni í væntanlegu prófkjöri, jafnvel efsta sætinu, því hann er sagður njóta sérstakrar velvildar fjársterkra aðila í hinum og þessum skúmaskotum.

Það þarf því engan að undra, þó Dagur Bíbí Ekkertsson sé skelfingu lostinn þessa dagana og eyði lunganum af sólarhringnum á kamrinum þar eð dr. Kolbeinn er talinn mun sigurstrangari en Dagur í kapphlaupinu um oddvitasæti Samfylkingarinnar í Reykjavík. 


mbl.is Prófkjör Samfylkingar í Reykjavík 30. janúar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á móti öllu, sem til framfara og þjóðarheilla horfir

bjorn1_871977.jpgÞað er öllum vitibornum mönnum fjandans sama hvað stjórnarandstöðuundanrennunni finnst um skattabreytingaáform ríkisstjórnarinnar. Þessi svokallaða stjórnarandstaða hefur stimplað sig rækilega inn sem Fúll á móti, er á móti öllu, einkum því sem til framfara og þjóðarheilla horfir. Það er erfitt að átta sig á af hverju stjórnarandstöðufólkið er svona óskaplega þreytt og stirt á geðsmunum; hver fýlupokinn uppaf öðrum angandi af neikvæðni og útboruhætti þusandi uppúr sér þurkuntulegum fúkyrðum og klóakfrösum, er ekki beinlínis uppörfandi fyrir þjóð, sem er að drepast úr timburmönnum eftir hart nær tveggja áratuga frjálshyggjufyllirí.

Þó er indælt, að Þráinn Bertilsson og þingskörungurinn Margrét Tryggvadóttir, skuli hafa náð saman í andstöðunni við skynsamlegt og réttlátara skattakerfi. Máske verður Borgarahreyfingin endurreist innan tíðar með faðmlögum og frönskum kossum.

Um hina syfjuðu leiðindadurga, Bjarna Ben og Sigmund Davíð, þarf ekki að fjölyrða: Þeir eru svo gjörsamlega á móti öllu, að varla er hægt að merkja að þeir séu af þessum heimi.


mbl.is Ekki sátt við skattahækkanir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband