Leita í fréttum mbl.is

Ryðbrunasveitin Hjaltalín misbýður fólki

Ryðbrunasveitin Hjaltalín er áreiðanlega ein af þrem verstu hljómsveitum á Íslandi í dag. Þetta er að vísu jargansmikið hávaðaband, en í því felst galdurinn, því að með skerandi skarkalanum tekst þessum ótútlegu drengjum að fela að mestu hve herfilegir þeir eru á hljóðfæri sín. 

Fyrir fáeinum dögum var ég svo ólánssamur, að þurfa að sitja undir einu af tónverkum Hjaltalínsbræðra af nýrri hljómplötu þeirra, án þess að eiga mér undankomu auðið. Það voru hræðilegar mínútur og ég gat ekkert sofið nóttina á eftir, afþvíað sargandi breimið kom aftur og aftur uppí hugan og vakti upp verulega óskemmtilega minningu um þá lífsreynsu að hafa heyrt þessi ósköp hellast yfir mig úr útvarpstæki án þess að koma vörnum við.

Ég get á þessari stundu fullyrt, að aldrei hefi ég hlýtt á hörmulegri hávaðamengun þetta hjaltalínsgarg síðan dægurlagasveitin Samræðisfýsnir lék Járnplötuvalsinn fyrir fullu húsi í Breiðfirðingabúð í gamla daga. 


mbl.is Hjaltalín hefur sig til flugs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eitt gleymdist

Það virðist sem Steingrími J. og Jóhönnu hafi orðið örlítið á í messunni varðandi skattkerfisbreytingarnar. Svo er að sjá, að þau hafi gleymt, vonandi ekki af yfirlögðu ráði, að leggja sérstakan aukaskatt á sjálfstæðismenn. Það er ekki nema eðlilegt réttlæti, að þeir sem stóðu fyrir hruninu mikla, leggi meira að mörkum í sameiginlega sjóði landsmanna en þeir sem litla eða enga ábyrgð bera á afhroðinu. Réttast væri, þegar alls er gætt, að sá þriðjungur þjóðarinnar sem kosið hefur Sjálfstæðisflokkinn og ætlar að gera það áfram, borgi hrunadansinn alfarið án aðstoðar frá okkur hinum. En vonadi verður þessu kippt í liðinn í þegar málið kemur til kasta Alþingis.

Og svo leyfa sjálfstæðisflokkseignirnar sér að grenja og góla opinberlega útaf fyrirhuguðum skattabreytingum þegar staðreyndin er sú, að öllum almennigi er gert að hlaupa undir bagga með þeim við að borga óráðsíuna. Þvílík bölvuð kríp atarna.


mbl.is 50 milljarða skattahækkanir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Andlegir öreigar hrunsins

En mestu mistökin hjá þessum andlega öreiga var að bjóða sig fram til áframhaldandi setu á Alþingi eftir það sem á undan var gengið. Og enn meiri mistök voru það hjá háttvirtum kjósendum að kjósa þennan dreng aftur á þing. Ég dauðsé eftir hverjum einasta eyri af skattpeningunum mínum sem fer í að hafa Björgvin G. Sigurðsson og hans líka á fóðrum, en hans líkar eru því miður helst til margir á Alþingi íslendinga. 

Hinsvegar var ekki við öðru að búast en að Össurinn reyndi að koma í veg fyrir að Björgvin segði af sér. Það segir allt sem segja þarf um Össur og Samfylkinguna.

 


mbl.is Björgvin íhugaði tvisvar afsögn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Loksins, loksins stórglæsilegar skattabreytingar í réttlætisátt

hogg.jpgLoksins er komið að því að skattakerfinu verði breytt í réttlætis- og jöfnunarátt með þriggja þrepa skattkerfi. Það er óhætt að óska ríkisstjórninni og þjóðinni til hamingju með þennan mikilvæga áfanga, eftir hart nær tuttugu ára samfellda hraða þróun í átt til aukins ójöfnuðar og ómanneskjulegra þjóðfélags undir einbeittri harð- og ógarstjórn Sjálfstæðisflokksins.

Ég vona, að ríkisstjórnin láti ekki staðar numið við svo búið, heldur hadi ótrauð áfram að vinna að réttlæti, jöfnuði og heiðarleika. Ég sé fyrir mér, ásamt mörgu öðru, að næst verði hið sjandsamlega og subbulega kvótakerfi í sjávarútvegi leitt á höggstokkinn og hausinn látinn fjúka af því!

Hefði ég tvær flaggstangir á lóðinni hjá mér myndi ég draga Íslenska fánann í fulla stöng á annarri, en þann rauða á hinni. 


mbl.is Þriggja þrepa skattkerfi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Huggulegar hugleiðingar atarna

jail1.jpgNú er heldur en ekki skammt stórra högga í milli á blessuðu guðsríkisheimilinu í Valhöllu Sjálfstæðisflokksins: Í gær brokkaði svekkti íhaldsjálkurinn, Ólafur F., uppí ræðustól hreppsnefndar Reykjavíkur og heimtaði að aðrir hreppsnefndarmenn í Reykjavík, einkum fulltrúar Sjálfstæðisflokksins, skiluðu inn vottorði frá lækni þess efnis að þeir séu ekki geggjaðir og þar með færir um að gegna hreppsnefndarstörfu. Í dag er síðan greint frá því að gamli moggaofurstinn, Styrmir Gunnarsson, hafi gefið út bók þar sem hann veltir fyrir sér hvort ekki sé borðliggjandi, að þeir sem sátu í ríkisstjórn Gjeirs Haaarde eigi ekki, allir sem einn, að fara í fangelsi. Ekki kemur fram hvað Styrmir telur rétt að Gjeir og hans fólk gisti lengi að Litla-Hrauni, en en eflaust hefur hann í huga langa vist, jafnvel mjög langa.

Það verður þokkalegt fyrir fangaverði á Hrauninu, að hafa Gjeir, Ingibjörgu Sólrúnu, Torgerði Katrínu, Guðlaug Þór og Össur vafrandi um ganga austur þar um ófyrirsjáanlega framtíð í slagtogi með smákrimmum og öðrum ólánsgemlingum. Hugsið ykkur, ef það á fyrir Guðlaugi eða Gjeir að liggja, að deila heirbergi með Lárusi Svavarsyni Jones eða Annþóri handrukkara.

En ekkert er útilokað ... ýmislegt skemmtilegt getur gerst í henni veröld.


mbl.is Ráðherrar fyrir dóm?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heimsendamyndin ,,Gulldansinn" er lærdómsrík tragedía

hannez.jpg"Á þjóðfundi í Laugardalshöllinni í dag, 14. nóvember 2009, töluðu margir um, að snúa þyrfti til gamalla gilda. Ég er hjartanlega sammála þeim. Íslendingar týndu sjálfum sér í trylltan dansi í kringum gullkálfinn í fjögur ár, frá 2004 til 2008. Baugurinn, sem þeir drógu sér á hönd í einhverju fáti, spillti þeim. Þeir fáu, sem vöruðu við, voru hrópaðir niður." (HHG)

Ofangreind ummæli er að finna á bloggsíðu Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar, eins af yfirleikstjórnum kvikmyndarinnar ,,Gulldansinn fram af frjálshyggjuhamrinum," sem sló rækilega í gegn frá árinu 1991 og fram yfir áramót 2009, eða í samfleytt 18 ár, sem er algjört margfalt heimsmet.

Heimsendamyndin 2012 er sögð hafa þénað 225 milljónir dala á heimsvísu, en tapið á heimsendamyndinni Gulldansinn fram af frjálshyggjuhamrinum er ekki endalega komið í ljós, en það mun nema hundruðum, eða ölluheldur, þúsundum milljarða íslenskra króna.

Hannes karlanginn leikstjóri, er auk þess svo seinheppin að minnast á einhverja ,,fáa, sem vöruðu við og voru hrópaðir niður." Eina fólkið, sem ég veit til að hafi varað við frjálshyggjugullkálfi Hannesar voru liðsmenn Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs og þeir voru sannarlega hrópaðir niður. En ég þykist vita að Hannes á ekki við þá.


mbl.is Heimsendirinn heillar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

VG breytt í einkahlutafélag

vgÞað er mesti misskilningur hjá mbl.is, að þingflokkur VG hafi komið saman á sjötta tímanum í dag til að ræða Ís-Seivið og fyrirhugaðar breytingar skattkerfinu. Enda er langt á milli manna í þeim efnum í rökkrinu þar á baðstofuloftinu.

Það sem þingflokkurinn er að fjalla um þetta sunnudagssíðdegi er tillaga formanns flokksins um að VG verði breytt formlega í einkahlutafélag í meirihlutaeign Álfheiðar Ingadóttur, Svavarsfjölskyldunnar og Steingríms sjálfs. Hugmyndin að einkahlutafélagsvæðingu VG er um það bil 10 ára gömul, en henni er hrint í framkvæmd nú vegna augljósra hagræðingar sem hún hefur í för með sér.


mbl.is Þingflokkur VG fundar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Smákölskar á fjósloftinu nýta sér ástandið

dog5_870748.jpgÞað er heldur daprar fréttirnar, sem berast af Framsóknarmaddömunni þessa dagana. Fyrripartinn í síðustu viku upplýstu líflæknar gömlu húsmóðurinnar í Framsóknarfjósinu, að hún væri komin með svínsinnflúensu ofaní allann sinn ellihrumleika og kararlíf. Um hádegisbil á föstudaginn var Maddaman orðin rænulaus og hefur ekki komst til meðvitundar síðan og er nú haldið með lífsmarki með aðstoð öflugra véla.

En kaldhæðni örlaganna lætur ekki standa á sér: Ekki var hin aldna móðir allra framsóknarpúka fyrr dottin úr öllu sambandi við umheiminn, en smákölskar á fjósloftinu fóru að láta á sér kræla. Er nú svo komið að vikapiltur af loftinu, Einar að nafni, er kominn í stríð við húskarlinn Skara Dvergs og má af látbragði hans ráða, að hann hafi fullan hug á að vega Skara til að geta fyllt spillingarholuna hans í Hreppsnefnd Reykjavíkur.

Það má heita dægilegur andskoti, þegar bleyjuárar eru farnir að bretta uppá trýnið og sýna sér fullorðnari kölskum vígtennurnar með urri og skrækjum, í skjóli afleitrar heilsu gömlu frúarinnar. Þá mun skammt að bíða endalokanna.


mbl.is „Framboðið kom á óvart“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þar fóru Íslendingar rangt að

vik.jpgTil forna var íslenskum óbótamönnum vísað úr landi í lengri eða skemmri tíma og ef þeir gengdu ekki því kalli voru þeir réttdræpir hverjum þeim er hafði lyst á. Ég tel, að þetta hafi verið gott fyrirkomulag og það hefi verið hrein mistök heimskra manna að afnema það. Það hefði t.d. verið gott, að geta dæmt útrásardólgana, fjárglæframennina og gjörspilltu stjórnmálamelrakkana til ævilangrar útlegðar um leið og uppum þá komst í fyrrahaust. Og hefðu mannkertin ekki hypjað sig burt af landinu hið snarast hefði undir eins gengið í gildi veiðileyfi á þá líkt því sem gildir um veiðibjöllu og annann vargfugl.

Um hina afbrotahneigðu Fransmenn gegnir öðru máli. Best hefði verið að hleypa þeim inní landið og leyfa þeim að athafna sig að vild, því þetta eru fátækir menn og veitir ekki af einhverri búbót. Og þeir eru meira en fátækir, þeir eru víkingar, sem brjótast til annarra landa í leit að fé og frama. Samkvæmt sagnameisturum fornaldar erum vér Íslendingar af þessháttar mönnum komir og hefur, fram til þess a, þótt fínt að geta rakið ættir sínar beint til slíkra höfuðsnillinga. Því ættum vér Íslendingar að gleðjast þegar ræningjar frá einhverri merkustu þjóð veraldar gera lykkju á leið sína og heimsækja oss af sömu ástæðu og vorir sælu forfeður heimsóktu aðrar þjóðir af sinni alkunnu dirfsku og höfðingslund þá er víkingaöld var.


mbl.is Tveimur Frökkum vísað úr landi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gott að hún stoppar stutt

Mikið er gott að heyra Eivörr Pálsdóttir ætlar að stoppa stutt. Ég var nefnilega hræddur um að hún ætlaði að stoppa lengi og það hefði orðið óþolandi, skrækirnir og nágólið í henni eru þess eðlis. Og ef hún myndi stoppa lengi, er eins víst að hún tæki einhvern íslenskann pilt friðilstaki, en þessháttar þokkabragð væri að sjálfsögðu fyrir neðan allar hellur.
mbl.is Eivör í stuttu stoppi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband