Leita í fréttum mbl.is

Grímsbæingar halda að Vallarkirkjan sé hernaðargóss frá Kananum

prestur2Hvaða fjárans uppástöndugheit eru kirkjulausum Grímsbæingum að vilja ekki þiggja þetta prýðismusteri á Vellinum að gjöf. Það mætti ætla að í Grímsbæ séu miklir herstöðvaandstæðingar með andstyggð á NATÓ og annarri slíkri hernaðardrullu og þeir haldi einfaldlega að gjöfin atarna sé eitthvert subbulegt hernaðargóss frá Sölunefnd varnarliðseigna. Sem gæti svo sem verið ef kíkt væri undir guðshúsið á Keflavíkurflugvelli.

Þegar margblessaður Bandaríkjaherinn var og hét á Vellinum og hermangið stóð í miklum blóma, gjörði síra Baldvin sér ferð suður og söng hátíðarmessu í kirkjunni, sem Grímsbæingar vilja ekki, yfir fjölmörgum gullsnúruðum hershöfðingjum, marskálkum, ofurstum, majórum og herráðsforingjum. Hann mælti jöfnum höndum á íslensku og engilsaxnesku með USA-framburði, því nokkur íslensk stertimenni og gægsn sátu meðal borðalagðra amrískra hernaðarfrömuða. Síra Baldvins vissi vel hvað passaði í kramið hjá stríðsæsingamönnum og lagði út af orðum Frelsarans, þess efnis að hann boði mönnum ekki frið, heldur sverð. Og þegar hinn mikli kennimaður sagði það ,,alveg í anda Jésú og áríðandi væri að ganga til verks og höggva hálfmennin í austri eins og hænsn við stökk, lustu þeir borðalögðu og gullsnúruðu upp ægilegu siguröskri, klöppuðu saman lófum og stöppuðu niður fótum og litlu íslensku hýenurnar klöppuðu líka og vældu upp í nefið. Þetta var dásamleg helgiathöfn og einhver hin hátíðlegasta og glæsilegasta sem sungin hefir verið á Íslandi frá landnámstíð.

Þá er þess ógetið, að fólsk illyrmi á Norðurlandi eru búin að pakka hundakofa inn í gjafapappír og ætla að láta varðskip ríkisins flytja kofann út til Grímsbæjar og gefa Grímsbæingum hann til að messa í. Einnig ætla þeir í höfuðstað Norðurlands að senda Grímsbæingum prest, óðan Vesturíslending frá Gimli, sem Kanadamenn viðja gjarnan losna við. Það má búast við að mikið verði um dýrðir í Grímsbæ um jólin þegar sá vesturíslenski fer að messa yfir heimamönnum í hundakofanum við kertaljós og reykelsi.  


mbl.is Grímseyingar afþakka kirkju frá Keflavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ölvaðir talningarmenn, sérhannaðir kjörkassar og strangheiðarlegur kjósandi

fundur2Í kveld ætla þeir að telja aftur í Suðurlandskjördæmi. Þá verða kjörkassarnir teknir til endurskoðunar, falskir botnar fjarlægðir, sem og auka atkvæðaseðlar, að því búnu verða þeir sýndir blaðaljósmyndurum, sem geta tekið af þeim myndir í svo sem stundarfjórðung. Að sérhanna kjörkassa er mikið nákvæmnisvinna, þar sem aðaláherslan er lögð á að kassarnir skili upp úr sér því sem til er ætlast af valdinu, valdstjórninni og ríkisstjórninni. Nú hefir það víst gjörst, þvert ofaní væntingar, að alvarlega hefir skolast til í kjörkössunum með þeim afleiðingum að tölur stemma ekki og Beggó aftur kominn inn á þing. Sumir vilja meina, að ástandið sé ekki alvarlegra en svo, að talningarmennirnir hafi bara verið fullir, farið línuvillt þegar þeir lögðu saman og allt farið í hund og kött.

En hvað á gjöra við drukkið talningarfólk? Láta það telja aftur? Eða? Væri eftir vill affarasælast að berja það dálítið og koma því svo í refsivist að Litla Hrauni? Jú, það væri þjóðráð, sem sýndi að yfirvöld tækju hart á talningarglæpum, og almenningur mundi gleðjast að eiga réttlátt og röggsamt yfirvald. Og af hverju í andskotanum voru kvikindin full, sauðdrukkin og delerandi við talninguna? Komu þau sjálf með áfengi með sér? Voru þau máske blindfull þegar þeim var hleypt inn í talningasalinn? Veitti yfirkjörstjórn talningarfólkinu vín eftir að talning var hafin og þá til hvers? Þessum og mörgum öðrum spurningum verður að svara, áður en talningaslektinu verður stungið inn.

Í einum stað á landinu hefir strangheiðarlegur maður um langt árabil tekið að sér að kjósa fyrir alla í kjördeildinni. Þar hefir sem sé ekki verið þörf á sérhönnuðum kassa með flóknum hagræðingarútbúnaði til þess að kosning verði rétt. Í kjördeild strangheiðarlega mannsins er einfaldlega farið þannig að, að sá strangheiðarlegi mætir um leið og kjördeild opnar, fær kjörseðlana afhenta og fer með þá inn í kjörklefann og kýs á þá alla og skilar þeim að svo búnu í kassann. En formaður kjördeildar merkir við alla þá er hafa kosningarétt í kjördeildinni og gengur frá pappírum. Ef einhverjir kjósendur mæta á kjörstað er þeim snúið við með þeim orðum að þeir séu búnir að kjósa.


mbl.is Talið aftur í Suðurkjördæmi í kvöld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Beggó heimtur úr helju og mæðraveldinu hrundið

x25,,Fagna saman flöskudegi
fundið hafa barinn sinn,
Fyrir miðju er myndarlegi
maðurinn með tittlinginn".

Gott að réttlætið sigraði. Eftir að hafa verið útstrikaður úr bókum Alþingis reis Beggó bænagjörðarverkfræðingur Klaustursins, sem stundum hefir verið kennt við Miðfótunga,úr rústum eyðileggingarinnar, nýr og stálsleginn eins og endurfæddur guð. Og Miðfótungar féllu að fótum hans og sungu Mammóni lof og prís og hellilúgíja. En Albertína, Alfredóína og ungfrú Sæland tóku upp olíubrúsa og myrru og þógu honum um kríkana og smurðu á honum lendarnar og lærin stinn, og ...


Við fyrst skímu í morgun var oss kunngjört, að feðraveldið væri fallið, það hefði horfið af vettvangi um leið og síðasta atkvæðið var talið. Konur höfðu hrifsað til sín meirihluta þingmanna og voru byrjaðar að tjóðra karlana og reisa höggstokka og gálga. En svo komu kraftaverkamenn á vettvang og endurreistu feðraveldið, frelsuðu það úr ánauð, en sturtuðu, að tómri kvenvonsku og kvenfyrirlitningu, hinu nýkrýnda mæðraveldi niður í klóakið. Beggó er sem sagt væntanlegur í þinghúsið á morgun, ber að ofan og til í tuskið.

Það var Kolbeinn Kolbeinsson framsóknarmaður og skrifstofustjóri á ríkisstofnuninni sem skipaði fyrir um endurtalningu atkvæða eftir að ljóst varð að Beggó væri ekki lengur á vettvangi. Ekki er að orðlengja, að endurtalningin tókst svona fjarskalega vel til, að eftir hana lifir Beggó, en Kalli Gautur féll útbyrðis og varð eigi bjargað. Svo verður Fokkur Fólsins látinn greiða Miðfótungum tvo þingmenn í skatt og þeir færðir með valdi í Klaustrið og verða Miðfótungar þá aftur meiri en kérlíngin Sæland. 


mbl.is Konur ekki lengur í meirihluta eftir endurtalningu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú skuluð þér öll segja af ykkur áður sól hnígur að við í kvöld, annars ...

gildraÆtli sé ekki bara nóg komið af ekkisosialistunum Gunnarismára og hálfvitlausu lukkuriddarahjörðinni hans? Jú, ég held það. Það er nákvæmlega engin þörf á að svona lið stundi það að koma óorði á sósíalisma með hundakúnstum sínum. Ef Sósíalistaflokkur Íslands áfram að vera til og starfa, verður framkvæmdastjórn flokksins að segja strax af sér, íslenskir sósíalistar eiga ekkert vantalað meir við það fólk, og aðrar stjórnir sem skipaðar hafa verið í flokknum ættu auðvitað að gera slíkt hið sama. Að svolítill hópur lukkuriddara, sem allt í einu þykjast vera orðnir sósíalistar og krýna sig með sósíalistanafnbót, er ekki ásættanlegt fyrir þá sem þó eru sósíalistar af hugsjón og upplagi. Ekki vantaði að þetta slekti upphæfi sig með háværu verkalýðstali, en því miður fjaraði sá söngur út og var því með öllu gleymdur þeagar komið var að kosningabaráttuni.

Ég var frá upphafi gagnrýninn á þennan sósíalistaflokk Gunnarssmára og félaga og einkennilega tilurð hans, og taldi mig sjá margt í þeirri hrákasmíði sem ekki kæmi heim og saman við róttækan, alþýðlegan sósíalisma. Og ekki batnaði það þegar ljóst varð að þetta fólk, uppfullt af sjálfbirgingshætti, hroka og loddaraskap, þoldi enga gagnrýni og barði allar slíkar raddir frá sér af þeim ömurlega skítaskap, sem einungis hæfir heimskum mönnum, eða undirförulum legátum með óhreint í pokahorninu. Að reyna að ræða við þetta fólk um sósíalisma, flokksstarf, áherslur og baráttuaðferðir hefir verið með öllu útilokað, því það virðis haldið þeirri meinloku að það viti allt og eigi allt sem viðkemur sósíalisma og þurfi ekki ráð gamalla kommaskratta með takmarkaða menntun. En mest hefir þó framkoma talsmanna sósíalistaflokksins og viðbrögð þeirra við gegnrýni minnt mig á rúmlega hálfvitlausa andlega öreiga.

esb_1342428Ef Gunnarsmári og tapara-besservisserarnir eru svo bilaðir og útúr öllum kortum, að þeir vilji ekki hunskast til að segja af sér og hypja sig á brott, þá er lágmarkið að krefjast þess að þeir skili sósíalistanafnbótinni aftur og finni sér eitthvert annað nafn á klúbbinn sinn. Flokkur, sem ekki gat á fjórum árum komið sér upp sómasamlegri stefnu, sem hæfir sósíalistaflokki, á ekkert erindi við fólk. Að skila auðu, eða einhverri óljósri vitleysu, í hverjum málaflokknum af öðrum er bæði brjóstumkennanlegt og hlægilegt. Nú er komið að því að þið flytjið ykkur um set, til dæmis til Samfylkingarinnar eða Pírata, og látið ykkur nægja að kyssa á rassinn á nýstjórnarskrár- öfgafémínista- og ESB-þráhyggjuliðinu á þeim bæjum. 


mbl.is „Hvorki upphaf né endir flokksins“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rannsóknir hafa sýnt að það er hættulegt að fara snemma í háttinn

ing20Ætla má að Birgi Ármannsyni sé ekki fullkomlega kunnugt um þá alvarlegu hættu, sem ungum íhaldskynjuðum pilthlunkum úr Valhöllu er búin af þeirri visku að fara snemma í háttinn. Því er nefnilega þannig varið, að drengskunkum af þessu tagi er mjög gjarnt, eins og rannsóknir hafa sýnt, að gera í sig í svefni ef þeir ganga of snemma til náða. Það liggur í hlutarins eðli, að gráðugir auðvaldsungar, sem eru nýbúnir að svelgja í sig sósur, hvítvínsgrogg, humarhala og þunga kýrsteik, sem seld var sem ungnautaket og velta sér svo til svefns upp úr klukkan níu, síðdegis, eru í bráðri hættu með útsvína rekkvoðir og sængur með villimannlegri steinsmugu.

Það er skammt að minnast þess þegar foldgná Sjálfstæðisflokksstúlka á framabraut gleypti í ógáti heilmikinn og rándýran demant, þegar húna graðgaði í sig froðuvíni og eldstromeruðum hanakjúklingi. Þegar bið varð á að telpan losaði sig á náttúrlega hátt við dýrgripinn var hún látin laxera, sett stólpípa og gert að drekka hálfan lítér af volgu sápuvatni í fyrstu umferð. Stelpuskarfurinn lét ekki á sér standa að ræpa og skíta í heilan sólarhring, og toiletið heima hjá henni var orðið eitrað af gufum og sora.

En demantinn skilaði sér ekki, hvernig sem stólpípunni og laxerolíunni var beitt. Til þrautavara var því farið með skessuhlunkinn í gegnumlýsingu í sneiðmyndatæki og þá loksins sást móta fyrir demantinum, sem kvað vera mörghundruð milljona virði, inni í miðjum heilanum á telpunni, sem er í minna lagi miðað við aldur. Strax varð ljóst að ekki væri hægt að ná demantinum með óperasjón því þá mundi Sjálfstæðisflokksstúlkan á framabrautinni óhjákvæmilega geispa golunni og drepast. Því er hún geymd í rammgerðum klefa, sem var útbúinn í miðju húsi foreldra hennar, því stórkostleg hætta er talin á að ágjarnir flokksbræður framahnátunnar, eða flokkssystur, sætti færi á að reka öxi í skallann á henni og hverfa á braut með demantinn. Því ætti Biggó Mannadon að hugsa sig tvisvar um áður en hann skreiðist kviðfullur í bælið fyrir allar aldir að kveldi dags.      


mbl.is Rósa ætlar að vaka en Birgir fer snemma í háttinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

I am the egg man They are the egg men I am the walrus Goo goo g'joob

rostVissulega eru rostungar viðsjárverð kvikindi og til alls vís. Í fornum sögnum segir frá rostungi, sem drap Sveðju-Vígharð með því að höggva tönnum sínum í ofanverða bringu hans ,,svo nam niður við grindarbotn", eins og segir í handritinu Fjörvetlu. Nú berast fregnir frá frændum okkar Írum, þess efnis að rostungur sá er sest hefir að í Hornafirði hafi í sumar herjað á Írland og Skotland með fáheyrðum hryðjuverkum, brotið og sökkt skipum og etið þá menn er á þeim vóru er þeir fóru í sjóinn.

Það er því ekki örgrunnt um, að uggur fari vaxandi með mönnum í Hornafirði og Suðursveit með að hafa slíkan vanmetapéníng glottandi á bryggjunni. Verst er þó, að rostunginn bíta engin vopn á hefir hann átt alskosta við þá menn er reynt hafa að fara að honum með skotvopnum. Þá var til þess tekið, að rostungurinn stökkti Þórbergi Torfasyni frá Hala í Suðursveit á hamslausan flótta, en Þorbegur hugðist skoða skrímslið og vega það ef færi gæfist. En rosmhvalurinn var ekki á því að láta drengstaula frá Hala granda sér og rak því upp org og hljóp hreifahlaup æi átt að Þórbergi, sem tók til fótanna og hljóp til fjalla, hrópandi guðsorð í belg og biðu á milli gráthviðanna.

rost1Ekki er víst hvað rostungurinn ætlar sér, hvort hann haldi á til Grænlands eða hyggi á veturstu á Höfn í Hornafirði. Ef skepnan verður ekki farið að sýna á sér fararsnið um mánaðarmótin sjá Hornfirðingar og nærsveitarmenn fram á þunga tíð og varhugaverða. Bústea fólks er í uppnámi, því aunginn vill fá rostunginn í heimsókn til sín, kannsi um miðja nótt, og horfa upp á hann eta börnin og konuna á heimilinu og fá ekkert að gjört. Frá Írland hafa og borstist enn ljótari tíðindi, sem sé að rostungurinn sé öldungis kynóður og setji ekki fyrir sig að nauðga búpéníngi og jafnvel fullorðnum mönnum og konum þeirra. Ef rétt er og rostungurinn sest að á staðnum, getur ekki öðruvísi farið en íbúar Hafnar flykkist allrir sem einn burt úr plássinu og komi þar aldregi síðan. Á meðan raular hinn óboðni gestur, þar sem hann bíður á bryggjunni og reykir sér sígarettu: ,,I am the egg man They are the egg men I am the walrus Goo goo g'joob"...


mbl.is Rostungurinn líklega þekktur vandræðagemsi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Grimmt og guðlaust hjarta ræðst að Maddömunnar vesæla krossbera

Grýla1Að Bjarniben skuli voga sér að veitast að ráðsmanni gömlu Framsóknarmaddömunnar ber vott um grimmt og guðlaust hjarta, hreina mannvonsku og fólsku. Ráðsmaðurinn, símnefni: Sigingifjosinu, þessi volaði og sí-grátandi krossberi, sem reynir að láta aðra halda að hann beri syndir heimsins á herðum sér, hefir, sem kunnugt er, í mörg horn að líta dags daglega. Fyrir utan að moka undan Íhaldinu og burgeisum þess er hann á þeytingi fyrir Maddömuna, sem er forn í skapi, kröfuhörð og kolklikkuð. Dag hvurn verður þessi dauðans vesalingur að steðja í Áfengis og tóbaksverslun ríkisins og bera út þaðan þungar byrðar af sterku, sem hann færir Maddömunni svo hún geti nú vætt kverkarnar í amstri dagsins. Þetta er alveg eins og hjá ráðsmenninu á Bessastöðum, sem ber forsetabrennivín úr vínbúðinni í vínkjallarann á Bessastöðum ofan í Guð og hvurn mann.

En karlinn Bjarniben, það er nú meiri truntan. Sjáiði hann ekki fyrir ykkur elta SigInga eftir illfærum þúfnakarga þar til honum verður fótaskortur og fellur á kviðinn og nær ekki að hafa sig á fætur áður en fanturinn nær honum? Þegar þar er komið tekur Bjarniben til við að hnoða og draga ráðsmann Maddömunnar út og austur um mýrina og mokar að síðustu móverki og stórum hnullungum ofan í buxurnar hjá honum, svo tilsýndar verður SigIngi eins og úlfurinn í Rauðhettu eftir að veiðimaðurinn hafði fyllt kviðinn á honum af grjóti.

Framsókn3En hvernig stendur eiginlega á fautaskap Bjarnaben við hinn endalaust volandi krossbera úr Fjósi Framsóknarmaddömunnar? Ástæðan er ósköp lítilfjörleg og aum og byggist á óstöðvandi samdrætti Sjálfstæðisflokksins í hvurri skoðanakönnuninni af annarri, en það þykir sannað, að orsök samdráttarins er furðumikið rennirí af atkvæðaskjátum úr beitarhólfum Íhaldsins á Höfuðbólinu yfir í Framsóknarfjósið, sem fyrir löngu er þó orðið þurrabúð og hjáleiga frá Sjálfstæðisflokknum. Ef fer sem horfir, getur þessi þróun ekki orðið önnur, en að gamla Framsóknarmaddaman éti Sjálfstæðisflokkinn í sig með öllum amboðum, Valhöllu og Engeyingum. Þess vega veitist Bjarniben af slíkri fólsku að ráðsmannsgarminum.  


mbl.is Bjarni skýtur á formann Framsóknar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samkvæmt leiðarbæklingi frú Ingveldar

ing25Samkvæmt leiðabæklingi, sem ríkisstjórn Íslands og þá sérstaklega ,,ríkisstjórnarflokkur Íslands", Sjálfstæðisflokkurinn, fékk frú Ingveldi til að setja saman og koma á prent, þá er algerlega forboðið allri mennskri kind að prumpa fyrir framan maka sinn. Frú Ingveldur tekur dæmi í fræðigrein sinn þessu að lútandi af tengdamóður sinni, sem hvarf einn góðan veðurdag svo rækilega að til hennar hefir lítið spurst síðan. Það næsta sem frú Ingveldur hefir komist hinu sanna í þessu dularfulla máli er, að tengdamóðir hennar rak duglega við er hún var að morgunverkum í eldhúsinu að eiginmanni sínum, Kolbeini Kolbeinssyni eldri, viðstöddum.

Nú, haldið er að Kolbeinn eldri hafi sent kérlíngu sína úr landi eftir ódæðisverkið í eldhúsinu og hún hafi eftir það búið við mikla örbyrgð einhvers staðar Suður Amríku uns hún lést þar úr ófeiti undir lok níunda áratugs tuttugustu aldar. Af þessu má sjá að frú Ingveldur er öllum hnútum kunnug og veit hvað hún syngur. Eitt sinn gjörðist Kolbeinn Kolbeinsson yngri, eiginmaður frú Ingveldar, svo djarfur að leysa hastarlega vind undir sæng í hjónarúminu með konu sína við hlið sér. Fyrir þessa sök snöri frú Ingveldur sér leifturhratt við í bælinu og rotaði mann sinn á augabragði og lá hann í öngviti til morguns, þegar frú Ingveldur rak hann öfugan fram úr og í vinnuna.

Í riti frú Ingveldar kemur glögglega fram, að fjöldi hjónaskilnaða og sambúðarslita verður ár hvert á Íslandi út af viðrekstraræði annars makans. Brynjar Vondalykt missti af kvonfangi þegar stúlkan hans prumpaði hátt og snjallt í þann veginn að þau ætluðu sér að hefja samræði. Við þennan háskaleik ungu konunnar féll Vondulyktinni allur ketill í eld og honum hurfu á augnabliki allar þær fýsnir, sem heyra til innilegu ástarsambandi. Eftir þetta hefir Brynjar Vondalykt verið leiðinlega brenglaður og öfugsnúinn á kynferðissviðinu.  


mbl.is Hvenær má prumpa fyrir framan makann? – „Það er vont að halda því inni“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frú Sæland ber af öðrum frambjóðendum ásamt honum Glúmi okkar

ingÞað má frú Sæland eiga, að hún getur verið hress og skemmtileg í fjölmiðlaviðtölum og laus við tepruskap. Í þeim efnum stendur hún öðrum frambjóðendum langtum framar, enda eru þeir nú flestir illþolanlegar leiðindaskepnur og sumir svo hörmulega, að álitamál er hvort forsvaranlegt sé að láta þá ganga lausa. Það er einungis einn annar frambjóðandi sem er mönnum bjóðandi og talar hreint og beint út frá hjartanu, en það er auðvitað hann Glúmur okkar Baldvinsson, ansans ári óhefðbundinn miðað við náttúrulausa harðlífisframbjóðendur, sem hugsa ekkert um annað en ímynd sína og eru að drepast hvurn dag af hræðslu við að vera sakaðir um spillingu, þjófnaði, kynferðisafbrot og fávitaskap.

Frú Ingveldi list, sem vonlegt er, ekki neitt á kosningabaráttuna nú og enn ver á frambjóðendur flokkanna. Hún kveðst undantekningarlaust sjá uppskafningshátt í öðru auga frambjóðendanna en en græðgi og þjófslund í hinu. Nema hjá frú sæland og Glúmi. Um síðustu helgi bauð frú Ingveldur til sín mikilvægu fólki, ráðherrum, þingmönnum, forstjórum, fjárfestum, forsetum og bysskubbum. Úr varð svallsamkoma og sýndu gestirnir í mörgum tiltektum, að þeir voru ekki verðir að sitja helgarsamkomu í húsi frú Ingveldar og Kolbeins. Við þetta einstæða tækifæri gjörðust sumir frambjóðendur svo innilega væmnir og leiðinlegir, að frú Ingveldur sá sér ekki annað fært en að vísa þeim úr húsi. En á þau verstu sigaði hún Kolbeini eiginmanni sínum, Brynjari Vondulykt, Indriða Handreði og Máríu Borgargagni og er ekki trútt um að þau hafi handfjatlað leiðindafólkið býsna liðlega og þjóðnýtt nærbuxur þess af stakri kunnáttu og reglusemi. Og eitt tilfellið leiddu þau hjón, Haldreður og Borgargagn, afsíðis og létu það gjöra nærbuxnalaust sprell.

En svo við víkjum að þeirri undursamlegu þjóðsagnapersónu, frú Sæland, aftur, þá ku hún hafa viðrað þá hugmynd að gjörast áhrifavaldur á Innstagrammi og sýna sig í uppbyggjandi stripli í sturtunni heima hjá sér. Ef af verður, mun frú Sæland uppskera dálaglega og fá fjölmörg atkvæði út á það eitt að koma skemmtilega fyrir í sturtu á Innstagrammi. Þess utan er frú Sæland eini frambjóðandinn sem mundi þora að koma soleiðis fram í kosningabaráttunni, nema ef vera skyldi Gúndi Fránklín, sem sagður er kræfur karl og ófeiminn við að sýna sig berbrjósta á almannafæri. En hinir frambjóðendurnir, gwöð minn almáttugur, það er nú meira úrkastið. Það óþarfalið heldur að kosningar og stjórnmál snúist um harðlífi, tepruskap, plastpokablæti, gripdeildir í skjóli nætur, kynfæraólag og ímyndir. Að ósekju mætti reka alla þá frambjóðendur á fjöll og gjöra þá að útileguskepnum á Hveravöllum allan ársins hring. En einkanlega ætti þó að huga að því að hafa þetta innan mannheldrar gaddavísgirðingar, svo það sleppi nú ekki til manna og spilli siðaðra manna samfélagi þeirra.  


mbl.is Óttast Ingu Sæland á Instagram í sturtu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skipsfélagarnir drukku áfengi úr stígvélum sínum í vertíðarlok og það fór sem fór

drau2.jpgSvipað fór þeim skipsfélögunum á vertíðarbátum í dentíð og þessum dárum sem supu vín úr skónum sínum. Á loka daginn helltu sjóararnir áfengi í stígvélin sín, sem voru klofbússur, og drukku. Þeir lágu allir dauðir upp úr miðnætti, helbláir í framan eins og sjálfur Sathan hefði kyrkt þá með eigin hendi. Það þarf varla að fara í neinar grafgötur með örlög þremenninganna er supu þann görótta táfýludrukk úr gönguþrúgum sínum eftir skemmtiskokkið um Ísland.

kol36Atburðurinn með félaganna vertíðarbátnum var fólki á staðnum lengi minnisstæður. Fyrst sló ugg og óhug að bæjarbúum, síðan ofsahræðslu þegar sýnt þókti og sannað, að bölvaðir drykkjuraftarnir væru farnir að ganga aftur, hver á eftir öðrum, uns öll skipshöfnin vóð ljóslifandi í draugslífi sínu um plássið og gjörði margan óskunda. Upp úr miðnætti höfðust konur ekki við vegna kynferislegar áreytni drauganna og hlupu berrassaðar eða klæðlitlar út á götur. Nokkra heimilisfeður börðu afturgöngurnar nær til ólífis og sóknarprestinn ráku þær fáklæddan upp úr rúminu um miðja nótt og eltu hann fram og aftur um þorpið fram á morgun, en þá var hann fullgenginn af göflunum og fluttur í fangelsið og þaðan í böndum suður til Reykjavíkur.

strandÞegar þessi gamalgróni og myndarlegi fiskibær var að niðurlotum kominn vegna reimleika og flestir íbúarnir flúnir var loks leitað til síra Baldvins og hann beðinn ásjár. Jú, síra Baldvin tók sér ferð millum landshluta og kom í draugabælið undir nótt í lok ágústmánaðar, en þá höfðu reimleikarnir geisað í þrjá mánuði. Síra Baldvin, sá andans risi, og bænheiti kennimaður, hófst þegar handa og kvað draugafansinn niður á innan við klukkustund með brauki, bramli, neistaflugi og háreysti. Kom hann öllum draugunum fyrir í bátnum sem þeir höfðu verið á vertíðinni, leysti svo landfestar hans, ræsti vélini og snöri bátnum til hafs og lét hann sigla einan síns liðs þá stefnu er er hvergi nemur við land fyrr en hinum megin á jarðkringlunni. Hefir síðan ekki spurst til skips né drauga.


mbl.is Drukku freyðivín úr skónum eftir gönguna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband