Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
21.12.2024 | 17:55
Til heiðurs nýrri ríkisstjórn
Learning is a game,
a game that is dear to me;
to learn about lust and greed,
then lie like a madman.
The bell rings, we head
home from school full,
stirred by sexual passion,
now all in a row!
Olafur, Olafur, Olafur Sckanz!
The most ruthless wild animal is
Vala his wife.
You are bulls! You are bulls!
Thus she began her speech.
Olafur shot, Olafur shot, Vala's vagina (to shreds).
Olafur, Olafur Olafur Sckanz!
Look how messy you are, says his Vala.
Right seven! Right seven!
She jumps with glee.
At two o'clock, at two o'clock,
she threw herself from her seat.
Bullet, bullet, bullet loan!
Gleeful are the old women
who get away with robbery.
![]() |
Þetta er ríkisstjórn almannahagsmuna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.12.2024 | 18:09
Göglin, þjófræðið, og auðvaldspervertarnir
Að göglin séu að verða búin að sulla saman ríkisstjórn? Það héld ég verði nú þrifasamsetningurinn atarna. 7Hægri og Kvika fínimannabank með nokkra gaulandi lýðskrumara í eftirdagi. Þeir missa ekki úr svefn kaupsýslumennirnir þessa dagana út af óæskilegum aðilum við ríkisstjórnarmyndun, því að göglin sem eru að semja um ríkisstjórn þessa stundina eru fulltrúar auðvalds sem mun halda sig vel og vandlega innan ramma þjóðskipulags kapítalismans og ekki rugga skipum sægreifanna eða annarra auðvaldsperra landsins.
Það eina sem er spennandi varðandi næstu ríkisstjórn er hvernig þeim tekst að svíkja kosningaloforðin sín og önnur loforð liðinna ára á sem áferðarfallegastan hátt þannig að heimskur lýðurinn, sem kaus þetta, átti sig ekki á einu né neinu og lifi sig frá fyrsta degi inn í meðvirknisgírinn og verji svikin og lýgina frá fyrsta degi. Þá getur orðið fróðlegt að fylgjast með hvort Sjálfstæðisflokkurinn í stjórnarandstöðu muni leggja áherslu á hreina skrímsladeildarandstöðu eða virðulegt og sanngjarnt aðhald í anda siðaðra manna. Ég hallast að því að Íhaldið velji skrímsladeildarleiðina og skemmti sér við að reka Thorgerdi 7Hægri Katrínu, Kristrúnu, og lýðskrumara Fokks Fólsins, úr einu víginu í annað með hlátrasköllum og upphrópunum, þar til göglin vita ekki lengur sitt rjúkandi ráð.
Við megum búast við heiftarlegum hrærigraut og sóðaskap innan ramma íslenska auðvaldsþjóðskipulagsins næstu misseri og um að gera fyrir fólk að reyna að skemmta sér yfir óþverranum og drullusokkshættinum sem gegnsýrir þjófræðispólitíkina á Íslandi. Á meðan þessu fer fram á yfirborðinu munu auðvaldspervertarnir okkar athafna sig að vild með því að slá eign sinn á þær auðlindir almenningseign, sem þeim hefur ekki enn tekist að stela frá okkur.
![]() |
Stjórnarsáttmálinn kynntur um helgina |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.12.2024 | 15:19
Vér óskum emírítusnum innilega til hamingju með glæsilega ákvörðun
Ekki lái ég blessuðum emírítusnum okkar þó hann frábiðji sér að halda Reyni Traustasyni uppi í ellinni; soleiðis peyjar geta séð um sig sjálfir, sko. Hins vegar þykir mér hálf skrýtið, að málsmetandi maður úr Háskólanum, eins og emírítusinn sannarlega er, skuli ekki hafa séð í gegnum þessa Heimildarþvælu strax í upphafi. Þetta rit var sína hundstíð hálfsoðið og hálfgildings krataeðlistrúboðsrit, en þó án allrar sannfæringar og með öllu óekta. Þarna var á ferðinni eitthvað lakara og ótrúverðugra en krataeðlið og er það þó ekki burðugt að siðferðissvellinu eða hvað mannvit varðar.
En nú er semsé emírítusinn okkar góði búinn að segja Heimildinni og öllu hennar hafurtaski til Helvítis og frábiðja sér þann skítasnepil að eilífu. Og það verður engin eftirsjón af Heimildinni, svo lélegt og falstuskulegt sem það fyrirbæri hefir verið. Þó kæmi ekki á óvart þókt einhver lénsherrann eða lénsdrottningin tæki bölvaða fyrirmununina upp á sína arma til að láta börnin á blaðinu spinna upp lærðar greinar um mikilvægi auðvaldsskipulagsins og hina ósýnilegu hönd markaðarins. Það gætu börnin eflaust gert með smávegis fábjánafémínísmus í bland við alvarlegri mál. Upp í hugann koma stórmenni landsins á borð við Íshúskonuna í Eyjum, Kaupfélagsstjórann í Skagafirði og Drottinn Guð Almáttugann á Akureyri. Svo eru einhverjar gildar fjármagnsóvættir í lyfjabraskinu, lífeyrissjóðunum og fagfjárfestavéunum sem gætu alveg hugsað sér að kaupa misheppnaðan fjölmiðil til að millifæra hagstæð töp í skattaskyni og áróðurs.
En vér, sem minna megum oss, óskum emíríusnum okkar til hamingju með að vera laus við óværuna sem Heimildargarmurinn er. Það er enginn smávegis andlegur búhnykkur fyrir hann að vera allt í einu frjáls undan meðvitundariðnaði, sem hann hélt í sakleysi sínu vera meinhægan krataeðlisáróður, en reyndist vera þegar til kom eitt herjans útgáfustöff tækifærissinna, lukkuriddara og eins útbrunnins hægridalls vestan af fjörðum, sem er í þokkabót orðinn ellilífeyrisþegi og vissu tilliti emírítus líka.
![]() |
Eiríkur ætlar ekki að tryggja Reyni Trausta áhyggjulaust ævikvöld |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.12.2024 | 14:25
,,Hjónabandið er samábyrgð tveggja andlegra öreiga"
Þórbergur gamli Þórðarson frá Hala í Suðursveit var glúrinn kall, djúpvitur og hvort tveggja í senn: alheimsmaður og mikill Íslendingur. Í ,,Bréfi til Láru" lætur hann þessi fleygu orð falla, að ,,hjónabandið sé samábyrgð tveggja andlegra öreiga". Hann segir enn fremur á sama stað: ,,Andlegi dauðinn hefst með værð, sívaxandi stemmningasljóleik og ást á sveitalífi. Að eins andlega dauðir aumingjar þrá rósemi sveitalífsins." enn fremur segir hann einkenni andlega dauðans: ,,Fas og andlitsdrættir fá dásamlegt samræmi. Yfir andlitið sest sauðarleg ró og friður, eins og títt eru um heilaga menn. Sérhver rannsakandi hugsun, sérhver lifandi tilfinning, sérhvert þjáningarspor undan yfirstandandi eymd þurrkast burt. Þá er sagt að maðurinn fríkki með aldrinum, fái virðulegt útlit, og vergjörn konuefni elta hann á röndum."
Og félagar okkar, þeir Karl Marx og Friðrik Engels, segja, að ,,hið borgaralega hjónaband sé í rauninni sameign á konum" og sé sú staðreynd ,,hulin hræsni og leynd", en ,,grundvöllur hinnar borgaralegu fjölskyldu nútímans sé auðmagnið (kapítalisminn) og einkareksturinn." Svo mörg eru þau orð hinna miklu risa mannsandans. Og ekki blæs sérlega byrlega fyrir hjónaböndum burgeisanna og aftaníossa þeirra. Það má vel vera að Kári telji sig meiri mann á samfélagi andlegra öreiga með unga konu upp á arminn en hann kominn á gamalsaldur og fátt annað uppbyggilegt fyrir karla eins og hann en dansinn á grafarbakkanum, eins og það er nú viðkunnanleg skemmtun.Vissulega hlýtur að vera freistandi fyrir gúrú á borð við Kára að gera erfðafræðilega könnun á værðinni, stemmningasljóleikanum, andlegum dauða og þrá eftir rósemi sveitalífsins. Ekki væri síðra ef karlinn gerði genólógíska leifturrannsókn á hinu borgaralega hjónabandi, afleiðingum þess fyrir ráð og rænu mannfólksins og framtíðarhorfum þess. Slík rannsókn væri, ef vel tekst til, gagnleg til að fækka innihaldslausum og gjörsamlega ónauðsynlegum hjónaböndum til muna og létta í leiðinni þeirri óhuggulegu skyldu af prestum og prelátum að gefa saman í hjónaband allan þann óviðeigandi urmul af andlegum öreigum, allt niður í galna fáráðlinga, sem raun ber ófagurt vitni.
![]() |
Kári Stefánsson og Eva giftu sig |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.12.2024 | 13:06
Álfabakkamúrinn á eftir að reynast fólki vel; þökk sé Degi og Holu-Hjalli
Mikið djöfull var nú vel til fundið hjá Degi og Holu-Hjalli að láta viðgangast að braskarar byggðu upp þennan líka heljar skemmtilega virkisvegg við Álfabakkann í Breiðholti. Þessi mikli múr á sannarlega eftir að reynast fólki og fénaði óborganlegt þarfaþing, verja það fyrir veðrum og vindum og grófri sólarsterkju sem fer illa með augun og sjónina. Og þókt einhverjir geðvondir íbúar handan götunnar segist missa það sem þeir kalla ,,útsýni" hlustar enginn vitborinn maður á þessháttar marklaust hjal, enda er veggurinn góði fullgott útsýni fyrir þessa fýlupíka sem ekkert gott kunna að meta. Vér vitum ekki annað en múrinn sé útsýni og ágætur til að glápa á á sumarkveldum.
Svo er sagt að Dagur og vinur hans, Holu-Hjallur, séu margbúnir að grénja úr sér augun af gleði yfir rassaköstum og bölbænum þeirra sem þykjast vera á móti veggnum við Álfabakka, því þeir vita sem er, að þetta lið er bara að þykjast og er hjartanlega sama um hvað rolurnar í Búsetablokkinni hafa fyrir glyrnunum þegar þær glápa út um gluggana hjá sér. Og vér hin, sem höfum orð á oss fyrir að vera vönd að virðingu vorri, veltumst um af fölskvalausri Þórðargleði í hvert sinn sem við heyrum minnst að Álfabakkamúrinn í fjölmiðlum og þökkum innilega fyrir skemmtunina.Og varla eru gleðipinnarnir spaugsömu, Dagur og Holukarlinn, dauðir úr öllum æðum og af baki dottnir í gamanmálum höfuðborgarinnar. Nú er Dagurinn til dæmis á leið inn á þing og kannski í ráðherrastól, þar sem hann gapa fyrir okkur og slummsast eins og fulli kallinn á Hlemmi í gamla daga, en Holu-Hjallur tekur vissulega við Borgar-Samfylkingunni og mun leiða hana til stórsigurs í næstu borgarstjórnarkosningum, ásamt með griðkonunum sínum, þeim Dóru Björtu og Alexandríu í snjóskaflinum.
![]() |
Framkvæmdir hófust á undan leyfinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.12.2024 | 18:40
Spøgelset í höfn á Jótlandi
Okkur varðar vissulega ekkert um einhverja skítalúsera á vegum krataeðlisins, hvort heldur þeir heita Þórður, Dagur eða eitthvað annað. Nú viljum vér alvörumenn fram á sviðið. fyrir stinnri hálfri öld þyrptust íslenskir síldarbátar með hringnót í Norðursjóinn til síldveiða og lönduðu aflanum í Hirtshals eða Skagen; þá var nú ekki verið að druslast við landa aflanum sitt á hvað á Dalvík og Dagverðareyri, eins og segi í dægurlagatextanum. Og íslensku sjómennirnir tóku sumir fast um stýristaumana og gáfu sig af fullri ábyrg þeim nautnum á vald sem fylgja lífinu í erlendum höfnum.
Einn þeirra sem sigldi suður á bóginn í átt að Bretlandseyjum og þaðan til gömlu herraþjóðarinnar, Danmörku, var gleðimaðurinn Páll Draugur, alltaf kallaður ,,Spøgelset" á danskri grund og undir því nafni þekktu stúlkurnar á Jótlandi hann. En því miður er déskotans lífið ekki allt dans á rósum og því fékk okkar maður, Spögelsið, stöku sinnum að kenna á. Til dæmis, að þegar meðfylgjandi mynd var tekin af honum var hann nýkominn úr misheppnaðri ferð á gleðihús með kvennaþjónustu í Álaborg. Þegar hann kom til baka neitaði hann að borga leigubílinn og greiddi bílstjórnum rothögg þegar hann fór að ganga efir borgun fyrir aksturinn. Á eftir reyndu Spögelsið og félagar hans að hífa leigubifreiðina um borð bátinn og hugðust hafa hana með sér á miðin við Shetlandseyjar. Eitthvað fór samt hífingin úrskeiðis bíllinn skondraðist um borð í bátinn sem lá utan á okkar skipi og fór, sem maður kallar, í klessu.
Þegar þarna var komið sögu, var Spögelsinu orðið mál og hann gekk til kukks í bátnum sem lá utan á þeim sem fékk leigubílinn um borð til sín. Og á salernisskálinni leið svo Spögelsinu í brjóst og hann steinsofnaði, enda mjög þreyttur, úttaugaður, pirraður og búinn að drekka þessi ógnar býsn. Og þegar báturinn hallaðist örlítið í stjór, valt Spögelsið út af setunni og lá eftir það eins og hringormur við klósettið. Morguninn eftir komu djöflar af bátnum þar sem Spögelsið svaf og ræstu okkur með hávaða og orðbragði og skipuðu okkur á fætur og hirða þennan andskota sem lægi eins og dauður brókarsóttargemlingur á taðhúsinu hjá þeim og harðneitaði að vakna eða hreyfa sig yfirleitt nokkuð.
![]() |
Á þriðja hundrað strikuðu yfir eða færðu Þórð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.12.2024 | 19:23
Þétt dagskrá forseta á morgun - og fullveldismessa síra Baldvins í dag
Það má vel vera að forseti fundi með Kristrúnu klukkan 0900 í fyrramálið og í kjölfarið með Bjarnaben klukkan 1000. Fari það allt og veri. Hins vegar ætlar forseti að funda með Davíð Oddssyni klukkar 0600 í fyrramálið til að fara yfir með honum hvern mann formannsnefnurnar í stjórnmálaflokkunum hafa að geyma. Vissulega fer mjög eftir því hvernig formennin hafa lagt inn hjá Davíð í gegnum tíðina hvernig þeim mun reiða af í stjórnarmyndunarviðræðunum; þeir sem Daoddson, eins og litlu guttarnir kölluðu hann í gamla daga, hefur illan bifur á þeim mun ganga herfilega.
En allt er þetta auðvitað til einskis. Í hvert sinn sem kosið er kemur Sjálfstæðisflokkurinn upp á öllum teningunum og þegar gengið er til ríkisstjórnarsamstarfs kemur Sjálfstæðisflokkurinn líka upp á öllum teningunum. Á hverjum teningi er u sex hliðar og á hverri hlið stendur skýrum stöfum: Sjálfstæðisflokkurinn. Í stjórnmálastærðfræði dagsins í dag er Sjálfstæðisflokkurinn táknaður með ,,D í sjötta veldi", D6, sem segir okkur það að það hafi sex flokkar náð þingsæti að allir séu þeir Sjálfstæðisflokkurinn þókt þeir heiti sex mismunandi nöfnum.
En í dag, fullveldisdaginn, 1. desember 2024, söng síra Baldvin fullveldismessu í höfuðmusteri sínu og mæltist vel að vanda. Tveir nýkjörnir þingmenn voru viðstaddir guðsþjónustuna og bannfæri síra Baldvin þá báða því hann hafði fundið vínlykt af þeim er þeir olnboguðu sig inn kirkjugólfið. Að vonum brugðust þingmennin illa við og þrættu fyrir að það væri brennisvínsþefur af þeim, en það tjóaði lítið, því síra Baldvin skipaði þeim í Jésúnafni og Erkidjöfulsins að grjóthalda kjafti, loka buxnaklaufum sínum, og fá sér sæti beint fyrir framan predíkunarstólinn. En hvernig á því stóð að nýþingmennin vóðu inn í helgidóminn með opnar buxnaklaufar svo glitti í prjónana helgaðist af því að þeir höfðu kastað af sér vatni við kirkjudyrnar og gleymt að renna upp áður en þeir stigu inn. Fyrir þessi tæknimistök voru svo blessaðir aumingjarnir bannsungnir og færðir Djöflinum á hendur. Og síra Baldvin sagði við söfnuðinn af stólnum: Þessir ræflar og vesalingar sem hér húka fyrir framan oss, angandi af spíritus og viðbjóðslegum gleðikonum og graðkérlíngum, eru nú orðnir formlegir hirðmenn Hins Illa og verður héðan í frá fyrirboðin öll geistleg þjónusta og æðri máttarvalda, þar til þeim verður búinn staður í mógröfinni hérna fyrir neðan hólinn við Innstabæ hér í sveit. Amen.
![]() |
Kristrún fyrst á fund forseta |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
,,Horfið, glatað, gleðifregn." Þessi frægu orð þjóðskáldsins komu upp í hugann þegar mér var tilkynnt um dauðastríði VG væri lokið og það formlega úrskurðað dautt og horfið úr heimi hér.
Jæja, þá er fyrirtæki Flokkseigendafélags VG, þ.e. Vinstrihreyfingin grænt framboð, farin á hausinn og kominn til gjaldþrotaskipta. Það má ljóst heita, að einhverjir af þeim stórmennum sem á sínum tíma slógu eign sinni á VG, það voru allt stórmenni, munu fara í skuldafangelsi fyrir vikið og ugglaust gjörðir útlægir í framhaldiaf því að fangavist líkur. Í fyrndinni þóktust þessi grey vera sósíalistar og erfingjar Einars Olgeirssonar, en undir síðustu aldamót fóru þau í felur, en skriðu von bráðar út úr holum sínum plötuðu raunverulega vinstrisósíalista og kommúnista til að stofna með sér ,,vinstrihreyfingu" sem ekkert varð úr þegar á hólminn var komið, því þetta varð örfáum árum síðar borgaralegur flokkur efrimillistéttarfémínísta, og umhverfismálasnobbara og dútlara, en kommúnistum og vinstrisósíalistum var gert skiljanlegt að þeirra væri ekki óskað lengur og nú skyldu þeir hafa sig á brott ella hefðu þeir verra af.
Um hríð héldu landsmenn að VG væri vinstriflokkur, jafnvel kommúnískur vinstrisósíalistaflokkur öreiga og tómthúsmanna, þókt allir þeir róttæku væru farnir og steinhættir að kjós þetta apparat sem þeir höfðu verið plataðir til að stofna með óvönduðu fólki af allt öðru sauðahúsi. Svo fór auðvitað að halla undan fæti. Hið kúnstuga Flokkseigendafélag Álfheiðar, Svavarsfjölskyldunnar og Stenngrims hætti að sjást fyrir í sókn sinni inn í samfélag burgeisastéttarinnar, og jafnframt fór það fólk að birtast mönnum sem argvítugir stórvinir samherja af greifastandi og fleiri stórauðvalda; þau settu á krítískri ögurstundu eitt skoðanadauft og hugsjónalaust gluggaskraut sem formennisígildi hjá sér og komust í ríkisstjórn með auðvaldinu, því Flokkseigendurnir kváðust vera í poletik til að hafa áhrif.
Svo fleygði Sjálfstæðisflokkurinn VG og flokkseigendum þess út á guð og gaddinn, en þá var líka hugjónalausa gluggaskrautið horfið, hafði dottið út um gluggann í einu vestanrokinu og brotnað í mél á gangstéttinni fyrir neðan við hliðina á taðhrúgu úr hundi. Og með það sama var VG-ið gjaldþrota og kjósendur snöru, við því baki. Og nú undir morgun, hins 1. desember 2024 gaf sá er öll stjórnar út dánarvottorð á Vinstrihreyfinguna grænt framboð og gat þess í vottorðinu að hið hið látna hafi andast úr ólæknandi innanmeini, ásamt sullaveiki og óheilindum. Engar eignir hafa fundist í þrotabúinu og verður hræið af hinu framliðna óféti því urðað utangarðs á kostnað hins opinbera.
![]() |
Sannarlega þáttaskil fyrir okkur öll |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.12.2024 | 13:00
Fræðifúskarinn hr. Bergmann hefir talað
Alltaf er stjórnmála,,fræði"fúskarinn Bergmann að með sína föstu ruglandi til afvegaleiðingar í þá átt að leiða oss fyrir sjónir að hvítt sé svart og svart sé að minnstakosti grátt. Nú talar fræðijöfurinn um ,,jarðskjálfta í íslenskum stjórnmálum," eins og ekkert minna en bylting sé skollin á. En þegar að er gáð er auðvitað ekkert slíkt í spilunum; hægrið styrkti sig vel í sessi um sinn og allar hræringar milli flokka rúmast afskaplega vel innan ramma hins hákapítalíska, vestræna, auðvaldsskipulags þar sem enginn er að fara að breyta neinu nema í átt til enn meiri samfélagseyðileggingar nýfrjálshyggju og gjörspillingar undir væmnislegu yfirskyni kjaftæðis um umbætur og annarra miður geðslegra auðvaldslyga. Þetta er nú allur jarðskjálftinn í höfðinu á hr. Bergmann stjórnfræðispekingi.
Sjálfstæðisflokkurinn er auðvitað sigurvegari kosninganna, hann sem sé gjörsigraði í þessari lotu. Hann fékk um það bil 20% atkvæða sjálfur, en samtals um 90% þegar hjáleigur hans og fylgihnettir eru reiknaðar með, sem skyldugt er að gera. Nú ætti hin margarma ófreskja auðvaldsins á Íslandi að geta með góðri samvisku skellt landamærunum í lás og rekið útlendingana úr landi, gengið í auðvaldsbáknið ESB; einkavætt og gefið allar eigur og stofnanir ríkisins; keypt fullt af vopnum fyrir NATO til að láta Úkraínumenn berja á hálfmennunum í Rússlandi með og stúta þeim helst öllum; senda Síónistunum líka pénínga fyrir vítisvélum til að gleðja konur, börn og gamalmenni á Gaza; og stofna íslenskan her með orrustuflugvélum, skriðdrekum og klasasprengjum; og endilega og nauðsynlega að koma á herskyldu ungra manna úr lægri stéttunum, það er stéttunum fyrir neðan efrimillistéttina. Þá verður gaman að lifa Hannes minn og Björn fær loksins góðan nætursvefn.
Allt er þetta nú gott og blessað, nema hvað hið náttúrulega réttlætislögmál mun liggja í leynum og halda áfram að vinna sína vinnu, hægt og bítandi og örugglega. Og þókt enn eitt þúsundáraríki auðvaldsins virðist vera að rísa innan járntjalds hins borgaralega þjóðskipulags auðvaldsins, mun það hrynja með brauki og bramli fyrr en varir. En hr. Bergmann, kunnáttumaður um fræðilega poletik, gerir sér auðvitað enga grein fyrir svona smámunum, og mun halda áfram að berja hausnum við stein vísvitandi ruglandi og annarra góðra verkfæra þjóðfélagskipulagsins sem hann þjónar eins og tunglsjúkur trúarvitfirringur.
![]() |
Jarðskjálfti í íslenskum stjórnmálum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
26.11.2024 | 19:45
Kratakindurnar stela listaverki eftir heimsfræga listakonu
Það eru nú meiri djöfuls endemin þetta, að ráðast að söngverki Mílu Cýrusar og stela því inn í trumpíska lygaauglýsingu hjá sér. Svo er ætlast til að fólk kjósi þetta! Nei takk! Krataeðlissálirnar geta stolið öllu sem heiti hefur frá hverri annarri, en þær skulu láta eignir annarra kjurar. Það kæmi ekki á óvart þókt Míla Cýrusar færi með Samfylkinguna fyrir sakadóm og fengi hana dæmda til óheyrilegra fésekta og innilokunar og jafnvel útlegðar. Ég veit að Samfylkingin mundi una vel útlegðardómi til ESB, - þar til hún kæmist það því að hún ætti að afplána í Grikklandi eða Búlgaríu og vera á grískum og búlgörskum bótum og éta mat við dönsku verði. Þá held ég færi nú að fara um skjátuna á Samfylkingunni og hefir hún þó ekki verið beysin fram að þessu.
Hvernig ætli færi fyrir henni Kristrúnu ef Kvikubónusarnir, Kvikukaupréttirnir, Kvikuvextirnir og þingfarakaupið væri tekið af henni, allt á einu bretti, og hún sett á grísk lúsarlaun og látin éta og borga rúmenskt hrossket í hvert mál sem danskt eða þýskt uxakjöt á hinu rómaða ESB-matvælaverði? Ég get alveg sagt ukkur það, að það mundi verða lítið úr henni, - meira að segja svo lítið að vesöl músarhola væri henni eins rúmgóð og gríðarleg keisarahöll í Brussel eða Þjóðverjalandi. Og um vorið mundi hún að öllum líkindum falla óbætt úr hor eins og ærskita hjá óforsjálum bóndadurg á átjándu öld. En aftur að þessari Mílu Cýrusar. Hún er úr Landbrotinu, ekki satt? Jú. Og var látin reka kýr í fjós og úr fjósi í haga, kvölds og morgna, allt fram á unglingsár, en þá var hún send vestur í Breiðuvík til áframuppölslu og betrunar. Þaðan kom hún ný og betri Míla og sást stundum upp úr því spranga um Laugarveg og Austurstræti með þrjár bokkur í beltinu og bauð hvurjum manni í brattan dans og hafði ávallt betur. Þar til hún lenti í klónum á Hálfdáni Varðstjóra. Og Hálfdán Varðstjóri var ekki að tvítóla við hlutina daginn þann fremur en endranær: Fyrir það fyrst tók hann Mílu Cýrusar úr umferð, lokaði hana inni í klefa eftir að hafa rifið utan af henni spjarirnar og drakk allt úr bokkunum þremur þar til hann stóð á þambi og starði blóðsprengdum glyrnunum út í bláinn og tómið og gaulaði. Já þannig leið ævin hennar Mílu í þá daga, eða allt þar til hún samdi lagið sem Samfylkingin stal af henni.
![]() |
Fjarlægja auglýsingu eftir notkun á lagi Cyrus |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu færslur
- Ískyggilegt ástand í helsta Fjósi landsins
- Séra Hallgrímur, Júdas, Gunnarsmári og götustrákarnir eiga da...
- Frú Sæland, frú Andersen - og síðust en ekki síst: Frú Ingveldur
- Baráttumál kvenna á ýmsum aldri fyrr og nú.
- Meðan ábyrgir leiðtogar fagna í Moskvu flaðra krataeigirnar u...
- Einelti gegn útgerðarmanni og eitthvað fleira
- Það er hamingja vor og lán að eiga ígildi kóngs
- Þá hefir frú Sæland fallið á léttasta prófi allra prófa. Aumi...
- Renturnar á Hjáleigunni
- Nýfrjálshyggjubyltingin étur börnin sín
Bloggvinir
-
Níels A. Ársælsson.
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Sveinn Elías Hansson
-
Guðbergur Egill Eyjólfsson
-
Þórbergur Torfason
-
Guðfríður Lilja
-
Rafn Gíslason
-
Ragnar Þór Ingólfsson
-
Bjarki Steingrímsson
-
Pálmi Gunnarsson
-
Grétar Mar Jónsson
-
Ásdís Helga Jóhannesdóttir
-
Rúnar Sveinbjörnsson
-
Þorvaldur Þorvaldsson
-
Rauður vettvangur
-
Björgvin R. Leifsson
-
Ingibjörg Friðriksdóttir
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Einar Ólafsson
-
Baldur Hermannsson
-
Dætur og synir Íslands.
-
hilmar jónsson
-
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
-
Þórdís Bára Hannesdóttir
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Hulda Haraldsdóttir
-
Óskar Helgi Helgason
-
Heiða Þórðar
-
Helgi Guðmundsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Baldur Fjölnisson
-
Birgitta Jónsdóttir
-
Ísleifur Egill Hjaltason
-
Reynir Andri
-
Rúnar Karvel Guðmundsson
-
Þráinn Jökull Elísson
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Auðun Gíslason
-
Jón Snæbjörnsson
-
Rannveig H
-
Magnús Jónsson
-
Steingrímur Helgason
-
Hallgrímur Guðmundsson
-
Ársæll Níelsson
-
Brynja Hjaltadóttir
-
Fríða Eyland
-
Þorsteinn Valur Baldvinsson
-
Ólafur Þórðarson
-
Eygló Sara
-
Lúðvík Lúðvíksson
-
Þorsteinn Briem
-
Ester Júlía
-
Svava frá Strandbergi
-
Björn Grétar Sveinsson
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Sigurbjörn Friðriksson
-
Ragnar Páll Ólafsson
-
Páll Ingi Kvaran
-
Jakob Jörunds Jónsson
-
Friðrik Hansen Guðmundsson
-
Þorkell Sigurjónsson
-
Jóhann Elíasson
-
Óskar Arnórsson
-
Bergur Thorberg
-
Gísli Bergsveinn Ívarsson
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Eyjólfur Jónsson
-
gudni.is
-
Sigurður Sigurðsson
-
Alma Lísa Jóhannsdóttir
-
Alfreð Símonarson
-
Guðni Ólason
-
ThoR-E
-
Arnar Guðmundsson
-
Þór Jóhannesson
-
Georg P Sveinbjörnsson
-
Himmalingur
-
Guðjón Baldursson
-
halkatla
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Einar Sigurjón Oddsson
-
Haukur Nikulásson
-
Félag Ungra Frjálslyndra
-
Heiða
-
Jakob Falur Kristinsson
-
Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
-
Steingrímur Ólafsson
-
Magnús Þór Hafsteinsson
-
Sigurbjörn Svavarsson
-
Landrover
-
Valla
-
Vilmundur Aðalsteinn Árnason
-
Vefritid
-
Sigríður B Sigurðardóttir
-
Ónefnd
-
Óskar Þ. G. Eiríksson
-
Þórarinn Eldjárn
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Jón Ragnar Björnsson
-
Hlédís
-
Einar B Bragason
-
Þorsteinn Helgi Steinarsson
-
Árni Karl Ellertsson
-
Hamarinn
-
Hamarinn
-
Helgi Þór Gunnarsson
-
Hörður B Hjartarson
-
Jack Daniel's
-
Jón Bjarnason
-
Kristján Jón Sveinbjörnsson
-
Kristján P. Gudmundsson
-
Linda
-
Rauða Ljónið
-
Sigurður Haraldsson
-
Sóldís Fjóla Karlsdóttir
-
Tryggvi Gunnar Hansen
-
Vináttufélag Íslands og Kúbu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (5.6.): 66
- Sl. sólarhring: 259
- Sl. viku: 350
- Frá upphafi: 1549986
Annað
- Innlit í dag: 62
- Innlit sl. viku: 324
- Gestir í dag: 62
- IP-tölur í dag: 62
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Júní 2025
- Maí 2025
- Apríl 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Nóvember 2012
- Júlí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007