Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Að ,,finna ástina" á ekki að hafa í flimtingum

kol18Það er víst ekki hlaupið að því finna bévítis ástina atarna þókt hennar sé leitað. Af ástarleit er margar ófagrar sögur, bæði sóðalegar og sorglegar. Hver man ekki eftir ástsjúka piltinum sem fannst drukknaður í fjóshaug; hann var myrtur af meðbiðli sínum, sem auðvitað hreppti hnossi og gjörðist ektagiljara stúlkukindarinnar, sem í hlut átti. Alla sína hjúskapartíð hafði hún ekki hugmynd um að hún væri gift morðingja, kaldrifjuðum og ágjörnum. Það var ekki fyrr en hann tók af lífi, með harðri hendi, náunga nokkurn, sem hann hafði grunaðann um að hafa fíflað eiginkonuna, að hér var um morðvarg að ræða, en þá var hann líka búinn að hengja eiginkonuna. Og þegar hann var dæmdur í ævilangt fangelsi, stökk hann upp úr stólnum og sló dómarann í hel, með einu höggi. Með einu höggi, takið eftir því.

Svo var annar andskoti sem lagði ást við kvenmann, hvurs andlitsfall minnti óneitanlega á blágómu, eða þaðan af ófríðari fisk. Þegar sýnt þókti, að manngarmurinn væri ærður af ást og ungfrú Blágóma var orðin fylgikona hans, brá svo við að ekki nokkur maður vildi koma nálægt honum eins og hann væri haldinn næmum og lífshættulegum smitsjúkdómi. Þetta fór allt illa, því Blágóman ól manni sínum nokkra sérlega ófríða drengi, sem með tíð og tíma gerðust glæpamenn og tukthúslimir; þeir sérhæfðu sig í fjárglæfrum, gengisbraski, skattsvikum og bankaránum. Þvílíkur andskotans ófénaður sem spratt út af þessu bölvaða ástarbralli mannsins með kvensnipt af blágómufjölskyldunni.

En svo vér víkjum að manni dagsins, Sveini Andra lögspekingi, þá hefir hann löngum verið fundvís á rifurnar og glufurnar í lagasafninu og auk þess haft orð á sér sem góður kvennamaður og líflegur ástarbrandur. Svo hnaut hann um ástina eins og blindur bolakálfur á blábrún hyldýpisins og stakkst á höfuðið hjónaband. Þykir lítið hafa lagst fyrir kappann og úti um glæstu kvennamennskuna. Það er eins og tvíbent sverð að finna ástina, því oftar en ekki ástarfundur villuljós, samanber: ,,villir hann, stillir hann". Það þekkir Máría Borgargagn kvenna best, því oftar en ekki hefir hún keypt köttinn í sekknum í ástarmálum; því situr hún nú uppi með Handreð sinn brenglaðan og ballslitinn, enda henni líður oft núorðið eins og úrbræddri vél. 



mbl.is Anna María og Sveinn Andri fundu ástina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ört vaxandi pervertismus

perr4Úr stólræðu síra Baldvins, sunnudaginn 13.08.2023:

Það fer ekki milli mála, að pervertismus hefir vaxið tröllslega á síðustu árum, og má sannlega segja, að útbólgnun hans sé orðinn að fullkomnum veldisvexti. Nú mætti ætla, að múgurinn sé þeirrar skoðunar að aukinn pervertismus sé góð þróun og holl mannslíkamanum til holds og anda. En það er nú öðru nær. Þrútinn pervertismus, eins og við þekkjum hér á landi, er fyrst og fremst plága, sem á síðari árum hefir dregið fleiri til dauða en vondar drepsóttir á borð við Kóvíð nítjánda og graðpestina sem kölluð var Svartidauði, sem margir sáluðust úr.

Nú þykir oss sem óvísir menn séu í óða önn að hefja pervertismusinn til skýjanna, með ógurlegum afleiðingum. Það er nefnilega og sem sé komið í ljós, að umrædd pervertismusarplága flýtir mjög hrörnum fólks, eykur stórkostlega á ljótleika þess og skorpnun, gjörir limaburð allan afkáralegan, auk þess sem andleg úrkynjun sjúklingsins fer út í öfgar í hlutfalli við hröðun annarra einkenna pervertismans. Rannsóknir hafa sýnt, að andlát úr pervertismus er margfalt kvalarfyllri en verstu krabbimein og köfnunareitranir. Svo er líka farið að flokka þessa vá undir menningarveislur á hámenningarrófi - en það er bara eins og allt annað á þessum tímum úrþvættunar og öngþveitis.

ingÞið munið eflaust eftir kérlíngunni hérna uppi á brekkunni, Moría hét hún víst eða Máría. Þegar hún fékk pervertsismusarköstin kastaðu hún sér, án nærhalds, upp í loft á strætið fyrir utan heimili sitt, og bauð gestum og gangandi að neyta þeirra krása sem upp á var boðið. Fyrir aldur fram varð hún sífellt ljótari og hryllilegri, uns hún varð djöfulleg á allan hátt og andaðist loks á strætinu, með sóðalegt orðbragð á vör og slíkri frygðarhryglu, að jafnvel harðgerðustu menn, er heyrðu hljóðin, gengu umsvifalaust af vitinu og annað hvort hlupu undir næsta bíl eða beint í sjóinn. En nú þykir víst fínt, að hafa pervertismus um hönd, klæmast opinberlega og leggjast á bæn og krefja kynæðisgwöðinn Afmor um enn meiri pervertismus, svo þjóðin megi nú lognast út af í einni grængolandi orgíu.  


mbl.is Lífið er kynlíf fagnað af öllu hjarta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hernaðarátök magnast í Dölum vestur - skeggöld, skálmöld og sturlungaöld gengin í garð.

gun3Djöfull er að heyra þetta. Hverskonar skálmöld og seggöld fær að viðgangast þarna inni í Dölum, átölulaust? Ha? Svarið þið því, þorpararnir ykkar. Þetta er ekkert skárra en þegar afkomendur Hvamms-Sturlu létu gamminn geysa um héruð á Sturlungaöld. Hvað vilja þessir Lambeyradólga upp á dekk? Er ef til vill nauðsynlegt að flegja alla þá fjölskyldu og stilla henni upp í gapastokkum fyrir kirkjudurum í Dalasýslu, og víðar? Sennilega verður þrautarlendingin í málinu, að senda Hálfdán Varðstjóra vetur til að taka í lurginn á Lambeyringum og siða þá dulítið til, því ekki mun af veita.

Og rétt á meðan ég er að rita þessi orð, berast mér fregnir af því, óstaðfestar að vísu en samt gleðilegar og vonandi sannar, að lögreglan hafi umkringt búgarðinn að Lambeyrum upp úr hádegi, og hafi ferðafólk, sumt erlent, orðið vitni að því þegar fjórir rassíðir lögregluprjónar báru á milli sín úr húsi spriklandi mann, Ásmund að nafni. Rann ferðamönnunum til rifja að heyra kveinstafi hins spriklandi manns, herfilegt bölv hans, blandið stjórnmálamannslegu orðbragði, og átakanlegum bænafrösum, sem hinn óði maður beindi til heilagrar Framsóknarmaddömunnar og kaupfélagsvésírins af Sauðárkróki.

x19En allt um það, þá spriklaði hinn handtekni svo í greipum lögreglumannanna, að þeim fataðist flugið og misstu á honum tökin, þannig að hann slapp og tók þegar til fótanna. Allt er þetta að verða ein óslitin sorgarsaga, sem gnæfir yfir allt annað í Dölum vestur á þessu sumri. Hvað gerist ef Ásmundi tekst að sleppa frá réttvísinni og skríða undir pilsin Maddömunnar og klifra upp slímugt læri kérlíngar? Verða þá systurnar, frænkur Ásmundar, teknar úr umferð og færðar upp á Hólmsheiði? (Verst að skuli vera búið að leggja Spunahúsið í Danmörku niður, en þangað voru íslenskar afbrotakindur sendar í þá gömlu góðu daga.) Hvað ef kemur til skotbardaga á Lambeyrum? Já, hvað þá? Munu stjórnvöld leita liðsinnis NATÓ, - sona eins og Sélénskíyi? Verða hernaðarkollur Sjálfstæðisflokksins, kvennaherdeildin í Valhöllu, send vestur, gráar fyrir járnum af vopnum frá Sölunefnd varnarliðseigna? Já, telpur mína, vél lifum á spennandi tímum, sem fela í sér mörg tækifæri fjöld áskoranna.       


mbl.is Lögreglan með Lambeyramál í ferli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vandræðamaður stendur að tilræði við Reykjavíkurflugvöll

landroverHér þurfti ekki vitnanna við: Verkin sýndu merkin. Auðvitað var það sjálfstæðisflokksmaðurinn Brynjar Vondalykt, sem lauk verslunarmannahelginni með því að keyra á Reykjavíkurflugvöll á eitthundrað kílómetra hraða. Hvað Vondulyktinni gekk til má Fjandinn vita; hann er ekki, svo vitað sé, yfirlýstur andstæðingur Reykjavíkurflugvallar; ekki liggja heldur upplýsingar fyrir hvort karlinn hafi verið að flýta sér í flug og og ekki viljað missa af vélinni, en það þykir mjög hæpið; einnig var þessi alræmdi þorpari blindfullur og búinn að míga í sig er að var komið.

Það sem kom þó einna mest á óvart við þessa furðulegu ákeyrslu Brynjar Vondulyktar var að hann hafði farþega með í för, og þá ekki af verri endanum. Fyrir það fyrsta var einn af ráðherrum ríkisstjórnarinnar með Brynjari og í öðru lagi kvensnipt, sem fræg er af allt öðru en skírlífi og siðsömu líferni. Lögreglumönnunum, sem komu að slysinu, eða hvað sem má kalla það, féllust bókstaflega höndur er þeim varð ljóst hvaða mannskapur var þarna á ferð, enda stóð ekki á ráðherranum að benda með hálfbognum vísifingri verði laganna og hvæsa á þá ókvæðisorðum þess efnis, að ef þeir voguðu sér að gera eitthvað úr þessu, þá færu þeir beint í steininn, fyrir utan að vera hýrudregnir og sektaðir um tugi, ef ekki hundruði, milliona króna og dollara. Og með það sama hurfu lögregluþjónarnir af vettvangi.

Síðast sást til Brynjars og farþega hans, er þau slöngruðu ósiðleg í fasi í átt að miðbæ Reykjavíkur og veifuðu bokkunum eins og þeir sem valdið hafa. Bifreið þeirra varð eftir, óökufær, rammflækt í hænsnanetinu sem flugvöllurinn er girtur af með, og það rauk voveiflega upp með vélarhlífinni. Hins vegar tók Hálfdán Varðstjóri á móti löggæslusveinunum þegar þeir komu til baka úr sneypuförinni af Reykjavíkurflugvelli. Eftir að hafa hlýtt á sögu þeirra, sópaði Hálfdán þeim öllum inn í klefa, og þar dvelja þeir enn, þegar þessar línur eru skrifaðar, og bíða þess að Varðstjórinn ljúki upp dyrum og gangi í skrokk á þeim í refsingarskyni, því réttlætið lætur ekki á sér standa á varðstofu Hálfdáns Varðstjóra.        


mbl.is Ók í gegnum girðingu Reykjavíkurflugvallar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hún er svo viðbjóðsleg

hátíðUmgengnin í Landmannalaugum er svo viðbjóðsleg, farið er að kalla þennan áður géðslega stað ,,Hlandmannalaugar" og þá sem hann heimsækja ,,Hlandmannadrauga". Það er svo hræðilegt þarna, er mér sagt, að verra gæti það ekki orðið þókt Djöfullinn sjálfur, stórbóndi að Helvíti, kæmi með alla sína ógeðslegustu og verstu púka og léti þá drulla krussum þvers ofan í allar Landmannalaugarnar, yfir bakka þeirra, gangstíga, og alveg upp í miðjar hlíðar. Enda er mála manna, að þarna hafi Djöfullinn um vélt og túristasvínin, sem lagt hafa leið sína í staðinn, séu sendir gagngert af Pokurnum til að vinna spjöll og gjöra Íslendingum gramt í geði.

Úr því sem komið er, er ekki nema um tvennt að ræða: Annað hvort að loka Landmannalaugum með gaddavír og vopnuðum vörðum, eða troða tré- eða korksponsum í rassinn á túristafjöndunum áður en væri hleypt á svæðið. Þetta gjörði Ólafur Bóndi ávallt þegar hann veitti ferðimönnum aðgang að heitavatnspollinum á landareign sinni. Það var gaman að fylgjast með göngulagi túraranna þegar þeir kjöguðu að pollinum eftir að Ólafur Bóndi hafði tappað þá. 

Síða hvarf Ólafur Bóndi fyrir björg, eins og menn vita og fyrr hefir verið frá sagt, eftir að hinn merki fjárhundur Snati, stuggaði við Ólafi er hann stóð tæpt á brúninni og teygði álkuna framan til að gá til kinda þar fyrir neðan. Í dag kemur fjöld ferðamanna til að skoða bjargbrúnina, þar sem Ólafur féll fram af, og urðina þar fyrir neðan, sem tók við bóndanum er hann lenti. Talið er fullvíst að Ólafur bóndi gangi aftur þar sem hann fórst, og á miðilsfundum hefir hann hvað eftir annað valdið saklausu fólki ótta og óþægindum með fólskulegum munnsöfnuði og heitingum. 


mbl.is Viðbjóðsleg umgengni í Landmannalaugum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tilræði í Holti og poletískur flótti Rósu

war3.jpg- Ef þetta eru ekki Talíbanar, þá er það Pútín, sem reyndi að sprengja okkur aftur á steinöld, varð grandvörum Hafnfirðingi að orði þegar hann skreið kjökrandi undan rúminu eftir sprengjutilræðið mikla við Hafnarfjörð í dag. Því miður hafði sá grandvari Hafnfirðingur ekki á réttu að standa. Hins vegar var það sá armi óþokki Sélenskiyi sem sprengdi nifteindasprengju í jaðri Hvaleyrarholt, heimamönnum til vandlegrar áminningar. Næst skulu þeir fá atómsprengju í hausinn svo að kvarnirnar í þeim verði að dufti, sagði Sélénskiyi að lokinni sprengingu í dag og þandi út bringuna eins og villtur andarsteggur frá Kirjálahéraðinu.

Já, víst er það mikið sem á gengur á Íslandi í dag. Forsmekkurinn að móðuharðindum tuttugustu og fyrstu aldarinnar stendur nú yfir og brátt gjósa Askja, Hekla, Katla og Skjaldbreiður einhverjum hrottalegustu eldgosum sögunnar og gígarnir í Laka upphefja sama stef og þeir sungu þjóðinni á átjándu öld. Þá verður lífið skemmtilegt gamangaman hjá fréttamönnum og auðnuleysingjum. Og þegar þjóðin verður sama sem útaf dauð, aðeins dálítið hrafl eftir af henni, svona eins og tíu prósént, eða svo, þá, já þá, en fyrr ekki, verða Íslendingar loksins fluttir hreppaflutningi suður á Jótlandsheiðar og þeir látnir eiga sig þar.

En dularfyllst af öllu við sprenginguna á Hvaleyraholtinu er þó hin einkennilega staðreynd, að ekki skuli enn hafa náðst í bæjarstjóra Hafnarfjarðar, frú Rósu, vegna þessa voveiflega atburðar. Sóknarpresturinn í Hafnarfirði hefir þegar beðið alla heilaga, þar með talinn sjálfan Gwuð almáttgan, að láta það ekki hafa gerst, að Rósa hafi verið viðriðin sprenginguna. Það er allt annað er géðslegt að hafa bæjarstjóra, hvers nafn er nefnt í sambandi við slíkt tilræði.

Rósa,ljós í fjósi frítt,
í felur hljóp - já það er skítt.
Svo flengingar og hengingar, 
koma í kjölfar sprengingar.
Sú hegning er, í Holti ger,
sem hefir réttlætið inni í sér.
En sí og æ ég að því hlæ
er Rósa syngur ,,Til eru fræ".


mbl.is Myndskeið: Reykur reis upp eftir sprenginguna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hinn endinn á gosanum

xd11Í morgun birti mbl.is harmagrátinn í gosanum honum Brynjari, en nú um miðjan dag mætir svo hinn endinn á gosanum, sjálfur Nonniboy, burtrekinn úr dómsmálaráðuneytinu á vordögum, og grénjar jafnhátt Brynjari. Þessir óhamingjusömu piltar, segjast vera að springa úr óþolinmæði vegna VG og Kristjáns í Hvalnum. Í millitíðinn voru þeir G.a. Þórðarson og Hlandskeggur úr Grindavík látnir vitna í útvarpinu um nauðsyn þess að spraka VG með Swndeesý, Katrínu og öllu saman til andskotans þar eð málamiðlunarkvóti Sjálfstæðisflokksins væri á þrotum og ekki kæmi til greina að leigja málamiðlunarkvóta hjá Framsóknarmaddömunni eða Samherja.

Gállinn á þessum þessum herramönnum í dag er þesskonar, að þeir virðast ekki munu víla fyrir sér að sprengja ríkisstjórn í loft upp fyrir einn bölvaðan langreð, svo Stjáni í Hvalnum geti tekið gleði sína og farið að leggja aftur inn aura á reikning Flokksins í Valhöllu. Staðan er þannig núna, að sendiherrajobbið, sem Katrín var búin að semja um fyrir sig við Bjarnaben og Sjálfstæðisflokkinn, og framkvæmdastjóraembættið Brussel eða Ravalpindí, sem Swandeesý átti að fá, eru hvort tveggja í uppnámi og fullyrða allir í hinum vegvillta grénjukór Íhaldsins, að ekki komi til greina að jafn heimskar og viðsjárverðar kérlíngar fái nokkuð í sinn hlut, þrátt fyrir óeigingjarnt starf þeirra sem hækjur auðvalds og samherja.

Svo er að sjá hvurnig þetta allt fer, - hvort grátgosarnir halda óhljóðum ínum til streitu, eða kikni í hnjáliðunum og lyppist niður eins og blauðir apakettir. Spá manna, einkum viðurkenndra spámanna, eru allar á þá leið, að þegar veisluglaumurinn hjá frú Ingveldi og Kolbeini er þagnaður, og helgarvíman runnin af veislugestum, þá muni Brynjar, Nonniboy, Hlandskeggur og G.a. Þórðarson skríða þögulir heim og ekki láta sjá sig eða heyra á almannafæri fyrr en frú Ingveldur blæs til næsta helgarsamkvæmis.   


mbl.is Þolinmæðin á þrotum: „Miklar ógöngur“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Klofningsórar í klofi Flokksins

x39Mikill öðlingur er hann Brynjar, að gefa sér tíma frá helgarsamkvæmi frú Ingveldar og Kolbeins til ræða stöðu Flokksins og hin skelfilegu vandamál sem að honum steðja. Og þrátt fyrir að karlanginn sé bljúgur og lítillátur þegar kreppu Flokksins ber á góma, óttast klofning hans og hrun, þá veit hann ekkert hver klofningurinn er og enn síður út á hvað hann gengur. Það eina sem Brynjari dettur í hug, klofningarmáli sínu til stuðnings, er að einhverjir ótilgreindir, elliærir belgir, sem eru við það að kafna úr fortíðarþrá, sakni svo gamla Bjarnaben og Óla Thors, sem komu fótunum undir þjóðina með hugmyndafræði Flokksins. Sennilega hafði Brynjar gert betur, að halda áfram að skála við frú Ingveldi, Kolbein, Indriða Handreð og Máríu Borgargagn en að kumra um einhverja altóma vitleysu við Moggalinginn í Hádegismóunum.

Það er náttúrlega fjarri því að gamli Bjarniben og Óli sperrileggur Thors hafi, fyrir hönd Flokksins, komið þjóðinni á lappirnar. Hið rétta er að róttæk verkalýðshreyfing ásamt kommúnistunum Einari Olgeirssyni og Brynjólfi Bjarnasyni tóku Sjálfstæðisflokkinn hágrátandi á milli sín og neyddu hann til að leggja inn á braut nýsköpunar í þágu alþýðunnar. Upp úr því varð Flokkurinn hægfara hægriflokkur, svona spakur krataflokkur með velktan pípuhatt og geðslag gelts fresskattar. En um 1980 breyttist Sjálfstæðisflokkurinn í grénjandi villudýr, einhverskonar géðbilaðan mínk eða melrakka með djöfullega tannpínu, og hóf af offorsi samfélagsleg skemmdarverk, sumir segja hryðjuverk, sem ekki sér enn fyrir endann á.

kol21Þessa dagana bitnar fúllyndi og lífsleiði Brynjars og annarra Sjálfstæðisflokksdrjóla aðallega á VG, af því að ráðherra þess auma flokks bannaði einum stærsta hluthafanum í Sjálfstæðisflokkum að pynta hvali til dauða. Og nú síðast hafa vígamenn flokksins beint skutlum sínum að veslings byskubbsskepnunni okkar, virðis, sem þeir í sínum poletisku géðrofum og tremens, haldi að þessi tiltekni kirkjuhöfðingi sé buslandi og blásandi langreyður eða búrhveli. Já, stúlkur mínar, hún er sannarlega skæð og skemmandi vonda lyktin sen fyllir hvern krók og kima Sjálfstæðisflokksins þessi dægrin Og þó hafa þeir nýjan Bjarnaben til að gamna sér við og gætu sem best fengið Thórsarann Guðmund Andra með sér í lið til að gera dagana viðkunnanlegri í Valhöllu. En drífðu þig nú aftur í veisluna til frú Ingveldar og Kolbeins, Brynjar minn, svo þú bíðir ekki óafturkræfan skaða á viðkvæmri sálu þinni.    


mbl.is Óttast klofning
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Upphaf súrrar sorplyktar.

jólasveinn2Sú var tíðin að Reykvíkingar voru svo firrtir að þeir létu sig hafa að kjósa flokks Gnarrsins í svo stórum stíl að þeir sátu upp með þennan ferlega giljagaur sem borgarstjóra í fjögur ár. Auðvitað hafði Gnarrið, og aftaníossar þess í Gnarrflokknum, ekkert til borgarmála að leggja annað en vitleysu og úldna fimmaurabrandara úr pússi Gnarrsins sjálfs. Gnarrflokkurinn var að sönnu afkvæmi nýfrjálshyggjunnar og tómhyggjunnar, enda sá nýfrjálshyggjuprins Samfylkingarinnar, Dagur Bé, sér leik á borði og handsamaði Gnörrin eins og blinda hænuunga og nýtti þau sér til meirihlutavalda í borginni; því má segja, að Dagur hafi haft einræðisvald í Reykjavík á Gnarrtímanum, þrátt fyrir að hafa sjálfur fengið dræma kosningu.

Súrþefurinn sem gamla Gnarrið kveinkar sér nú undan, er meðal annars afleiðing af óstjórnartíð hans undir Samfylkingunni og Degi Bé, og því er ekki nema von að Gnarrið gretti sig og hnerri eins og hvolpur á skítugu baðstofugólfi. Því er svo við að bæta, að Brynjar Vondalykt spáði því á sínum tíma, þegar Gnarrið, Dagur og Holuhjallur voru og hétu, að þeirra örlög mundu verða að kafna í eigin poletisku skítafýlu og verða eftir það minnst í sögubókum, sem einhverrar verstu óværu í Reykjavík síðan Grímur Borgara hvarf af vettvangi fyrir margt löngu. Þykir nú Vondalyktin hafa verið sannpá.

x-rvkSem betur fer auðnaðist Reykvíkingum að sópa Gnörrunum og Gnarrflokknum út úr lífi sínu við fyrsta tækifæri. En því miður sitja þeir enn uppi við nýfrjálshyggjuprinsinn Dag Bé, sem tókst bjarga sér fyrir horn eftir síðustu borgarstjórnarkosningar með því að taka hlandþunna vikapilta gömlu Framsóknarmaddömunnar með sér til meirihlutabrúks. Það góða við núverandi stöðu er að góðar líkur eru á hlandsveinar Maddömunnar muni þorna upp á kjörtímabilinu og hverfa eitthvert út í kosmosið, nákvæmlega eins og Gnarrflokkurinn illþefjandi. Eftir það fara Dagur og Samfylkingarskepunar í meirihluta með Sjálfstæðisflokknum, sjálfu Íhaldinu, enda verða Samfylkingin og Íhaldið komið í eina sæng í ríkisstjórn. Þá munum við skemmta okkur við að geta upp á hvor eyðir hvoru, Samfylkingin eða Sjálfstæðisflokkurinn. En hin viðbjóðslega súrusorplykt mun þá sem nú svífa yfir Ráðhúsi Reykjavíkur og Reykvíkingum eins og mökkur.    


mbl.is Súr sorplykt og viðbjóður ekki neinum til sóma
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Öræfaferð frú Ingveldar og Kolbeins fyrr í sumar

ing10Samkvæmt venju fóru þau hjón, frú Ingveldur og Kolbeinn, í sína árlegu stór-fjalla- og öræfareisu um miðjan júlímánuð, ásamt þeim góðum ferðahópi, er saman stendur af úrvalsfólki. Þau vóru heldur ekki að tvítóla við ferðalagið og vóðu þegar upp að Hallbjarnarvörðu og þaðan lá leiðin beint á Fjallabaksleið eystri, hvar séra Atgeir p. Fjallabaksen bað hópinn að staldra við meðan hann færi með ferðabæn og segði þeim frá forfeðrum sínum, sem mann fram af manni bjuggu að þar að baki fjalla og höfðu sína hentisemi á allan hátt.

Ljóst var af frásögn séra Atgeirs p. að forfeður hans höfðu ekki bundið sína bagga sem þeim var skylt að landslögum, og var á honum að skilja, að þessi afskekkta ætt hafði um aldir lifað glaðir við sauðaþjófnað og sifjaspell, þannig að enginn veit lengur hver var afi hvers eða forfaðir og þegar yfirlauk voru Fjallabaksenarnir svo líkir, að þeir voru óþekkjanlegir hver frá öðrum, hvort heldur þeir voru karlar eða konur. Undir þessum fróðleik mærðarklerksins snöri Máría Borgargagn sér undan og gubbaði, en Brynjar Vondalykt rak upp roknahlátur og hrósaði síra Atgeiri með handapati og varafrussi og sagði hann engum líkan.

Í Köldukvísl sauð upp úr, þegar frú Ingveldur reiddist Kolbeini eignmanni sínum og Indriða Handreði og rotaði þá báða. Hún stóð þá sanna að sök að tilefnislausum kynferðismökum bak við stein einn stórann, er þeir höfðu horfið á bak við þeirra erinda, að því þeir sögðu, að ganga örna sinna. Báðir voru drukknir og höfðu kviknað með þeim ástir er þeir sátu á hækjum sínum þar undir bjarginu. Er frú Ingveldur hafði unnið á karli sínum og tækifærisástmanni, heimtaði hún af séra Atgeiri p. Fjallabaksen, að hann bannfærði þessa andskota þar sem þeir lágu í öngviti í eitt skipti fyrir öll; þetta væru viðbjóðslegir menn, sem ekki undir neinum kringumstæðum væri treystandi fyrir húshorn, hvað þá bak við stein, sökum ófyrirleitni, siðvillu og losta.


mbl.is Ævintýraþráin fleytti þeim þvert yfir landið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband