Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
10.3.2022 | 18:38
Brígslyrði, fjandskapur og stórlygar urðu þeim að falli
Þá er tímabært að Agníeska, Ólöf Helga og Halldóra á Selfossi pakki saman og pilli sig úr húsum verkalýðshreyfingarinnar - já, og jómfrú Snædal og frú Halla í ASÍ líka. Þessar dömur eru ekki húsum hæfar, allrasíst í húsum siðaðra manna. Þegar virt endurskoðunarfyrirtæki hefir gefið út heilbrigðisvottorð á gjörðir og umsvif Vidda og Andrasig á Eflingarkontórnum er ekki seinna vænna en að halda aðalfund Eflingar, kjósa á þing Starfsgreinasambandsins, taka það yfir og ASÍ í kjölfarið. Sólveig Anna, Ragnar í VR, Skaga-Villi og Aðalsteinn á Húsavík er komin með tögl og hagldir verklýðshreyfingarinnar í sínar höndur og ekki eftir neinu að bíða.
Hvað um Agníeski, LöfuFelgu og Halldóru verður má Sathan sjálfur vita. Það má búast við að þær verði dæmdar til þyngstu refsingar fyrir brigslyrði, fjandskap og stórlygar í garð Vidda, Sollu og Andrasig, sem sumir kalla The Blokkerboy. Já, það fjölgar innan tíðar á Hólmsheiðinni og Hrauninu, því Halldóra fer auðsjáanlega á Hraunið því það er í hennar heimasveit. Þetta eru bévaðar óvættir þessar kérlíngar.
Ef áður talinn fénaður verður ekki á brott af kontórum verkalýðshreyfingarinnar strax í fyrramálai, er ekki um annað að ræða hjá Sólveigu Önnu og hennar fólk en að draga Agníesku, jómfrú Snædal og allt það kvenfólk út af skrifstofunum, því kontórar verkalýðsins eru ekki greni fyrir slóttugar tófur og tófuyrðlinga. Nei, aldeilis ekki. Og ekki vill betur til, þá dregur Sólveig Anna mannorðsmorðingjana og brígslarana út á hárinu; annað eins hefir nú gerst í sveitinni þegar kýrnar eru dregnar á vorin út af básunum á halanum og þeim hleypt út í buskann. Sjáið þér ekki Sólveigu Eflingarformann þeysa með vandamálið jómfrú Snædal á halanum út úr Verkalýðshöllinni og skilja hana eftir í hnipri, hágrénjandi, í holu í malbikinu við Gwörúnargötu? Þá verður mikið um dýrðir, skal eg segja yður.
![]() |
Segir dylgjur Agnieszku tilhæfulausar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.3.2022 | 13:36
Tvær æstar kérlíngar í hár saman fyrir augliti þjóðarinnar
Merkilegt hver fjölmiðlar eru gjarnir á að flytja fréttir af því þegar fólk gjörir sér til mikillar minnkunar. Sumir þeirra virðast sérhæfa sig í að draga dár að heimskum þingmönnum undir rós og leitast við að gjöra hlut þeirra sem hlálegastan í augum þjóðarinnar. Í morgun virðast þær nöfnur, Thorgerdur Katrín og Katrín Djakkó, heldur en ekki opinberað fátæklegt gáfnafar sitt með því að fara í hár saman út af stríðsæsingum og hernaðaraðdáun afdankaðra Vesturlandaskúnka. Önnur Katrínin vildi ,,uppfæra" stríðsfélagið" NATÓ, eins og um tölvuleik væri að ræða, en hin Katrínan svaraði úr og í eins og hennar er vandi, enda er hún svo hugsjónalaus og skoðanadauf að leitun er á öðru eins. Þegar þær höfðu öskrað hvor á aðru úr ræðustóli Alþingis um stund, skjögruðu þær eins og vindblásin hænsn, hvor á sína skrifstofuna, og fengu sér reyk meðan þær uppfærðu og störtuðu næsta tölvuleik í embættistölvum sínum.
Hvað það er sem kemur fólki til að haga sér svona eins og hver önnur fífl er ekki gott að ráða í. Sumir eru að vísu svo lausir við vit, að þeim stendur á sama þókt þjóðin öll stari á þá fyrirlitningaraugum. En þegar þjóðkjörið fólk, í þessu tilfelli tvær vafasamar kvensniptir, taka til við að efna til stríðsæsinga hjá vopnlausri þjóð þykir oss sem skörin sé heldur um of farin að færast upp í bekkinn. Þær eru sem sé sammála um, að besta leiðin til að tryggja heimsfriðinn sé að senda stríðshaukunum í Kænugarði vopn til að stríða á móti Rússum. Þetta hljómar álíka vitrænt og ætla sér að láta renna af drykkjurúti með því að færa honum meira brennivín.Meira gaman hefði verið að ef þær nöfnur hefðu látið höndur skipta fyrir framan ræðustól þingsins og slegist eins og hamslausir villukettir. Þá hefði Thorgerðdur Katthrin getað beitt hinu fræga hægrisjö glímubragði á Kattarhrinu Djakkó og slengt henni utan í ofninn út við vegg í þingsalnum. Það hefir oft gefist vel í hörðum leik að dengja keppinauti sínum utan í ofn; það gjörði Pétur Hoffmann Salómonsson við fjögurra snúru foringja úr breska sjóhernum eftir að hafa rifið og tætt utan af honum einkennisbúninginn. Svo var foringi þessi borinn blóðugur og í öngviti úr húsum Péturs og út í bifreið frá herliðinu. Læðist nú að mér sá grunur, að lítt hefði Hoffmann, sveitungi og fermingarbróðir afa míns, runnið fyrir tveimur æstum kérlíngum, hefðu þær sökum skorts á vitsmunum ætlað sér til við hann í miður góðu.
![]() |
Deilt um hvort uppfæra þurfi varnarsamninginn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.3.2022 | 12:05
Hin endanlega lausn á vandamálum útgerðar og landsbyggðar
Auðvitað væri tilhlýðilegast að leggja þess ,,Fiskistofu" niður með manni og mús, enda er hún ekki til neins annars en að kreista pénínga undan nöglum skattgreiðenda. Að vísu hefir ,,fiskistofa" þessi verið notuð af auðvaldinu til að hvítþvo og farða kvótakerfi sægreifanna, svo að enginn haldið því fram að ekkert eftirlit væri með veiðum, brottkasti, kvótasvindli og kvótaþjófnaði. En það eftirlit er nú allt í skötulíki og skrökvi líkast. En þetta finnst burgeisastéttinni gott fyrirkomulag, ef ekki frábært, og skála oft fyrir því þegar menn á burgeisabæjum gjöra sér glaðan dag.
Hvernig afladagbókafarganið verður kokkað framvegis, er ekki einusinni aukaatriði í leikritinu, því það er alls ekkert atriði og kemur málinu ekki við. Já, skattþegar þessa lands geta sparað sér heilmiklar upphæðir á hvurju ári með því að leggja Fiskistofu niður; þeim péníngum væri vel varið í rekstur Landspítalans eða til að bæta kjör öryrkja og aldraðra. Og fyrst vér erum farin að tala um tímabæra niðurlagningu þessarar ,,Fiskistofu", sem framsóknartarfurinn vitiborni færði með valdi til Akureyrar, svo að segja niður á miðjar höfuðstöðvar Samherja, sem allir samherjar samherjanna elska, dá og bukta sig fyrir og beygja, þá er ekki nema við hæfi að drepa á fleiri atriði sem vel mættu hverfa af sjónarsviðinu, en kosta fátæka skattþega stórfé.Þegar ,,Fiskistofan" atarna verður horfin af yfirborði jarðar og út í kosmosið, þá er forgangsatrið að leggja ráðherra furðufyrirbærisins ,,matvælaráðuneytis" niður og senda hann, eða öllu heldur hana, beint til Úkraínu. Svo strokum vér matarvælisráðuneytið út, samherjarnir geta vel haft þann fjanda hjá sér og rekið ef þeir nenna. Þar á eftir skal selja Hafródraslið úr landi; hugsanlega kaupendur af því er trúlega að finna í Namibíu. Að lokum verði allir samherjar gjörðir friðhelgir að lögum og bannað verði með ákvæðum í stjórnarskrá að nokkur geti tekið gjöld af sægreifum og umsvifum þeirra, og einnig að fiskveiðiauðlindin verði þinglýst eign sömu greifa og samherja, endurgjaldslaust. Þar með væru vandamál útgerðarinnar endanlega úr sögunni, sem og landsbyggðarinnar. Svo einfalt er það nú.
![]() |
Fiskistofa segir útgerðum að sigla eigin sjó |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Óskaplegum vonbrigðum mundi það valda ef borgarstjórnin í Reykjavík lætur undir höfuð leggjast að skipa rannsóknarnefnd til að kanna ofan í kjölinn hönnun og uppbyggingu á öllum þeim holum sem nú prýða götur höfuðborgarinnar. Það hefir vakið undrun og aðdáun allra, sem skoðað hafa holurnar, hverskonar völundarsmíð þær eru og stórkostlegt verkfræðileg afrek. Á bak við þetta kraftaverk, því holurnar á götum Reykjavíkur eru kraftaverk, eru hinir óumræðilegu hugsuðir Dagur Bé og Holu-Hjalli sjálfur; þeir munu Nóbélsverðlaunin hreppa við næstu úthlutun þeirra.
Það er haft til marks um ævintýralega hönnunarsnilld í holugérð þeir kumpána, að á hálftíma sprungu sautján hjólbarðar bifreiða sem óku allar yfir einu og sömu holuna. Þvílík hola hlýtur að vera algert meistarastykki og guðdómlegt listaverk. Svo kom ein kérlíngarönd á þeysispretti á Rangaróvernum sínum, illileg á svipinn, beint ofan í stórgóða holu á Rauðarárstígnum með þeim afleiðingum að annað framhjólið ásamt búnaði var eftir í holunni, en Rangaróverinn tók stökk og hafnaði á hliðinni í skuggalegum snjóruðningi. Kérlíngarhróið kom skríðandi að bragði út úr bifreiðinni, allsendis óslösuð, sem verður líka að teljast kraftaverk, en að öðru leyti sturluð af geðshræringu og heift. Síðar kom í ljós að konan hafði veikst á geði við höggið sem varð af akstrinum yfir holuna.Nú ætla holumennin Dagur Bé og Holu-Hjalli að fara í kosningar í vor eins og ekkert hafi í skorist. Þeir telja að þeir hafi pálmann í höndunum, ekki síst eftir að út spurðist að Vigdís Hauks væri búin áðí, sprungin á limminu, öldungis affelguð og vindlaus eftir þá. Þó hafði Vigdís gjört sitt besta í grýta öllum fjandanum sem hönd á festi í þessa þokkapilta og reka þá á flótta úr einum stað í annan. En svo bregðast klausturtré sem aðrir raftar og Vigdís pissaði úr og liggur nú í einni reykjavíkurkolunni eins og sprungin hlandblaðra. Það er nú það, þér að segja.
![]() |
Tillaga um rannsóknarnefnd tekin fyrir á morgun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.3.2022 | 17:19
Svo kalla þau hvort annað lygara og þjóf
Skósveinn Gunnarsmára, Andri Sig. kveðst byggja veraldargengi sitt og atvinnurekstur á orðspori sínu, en það orðspor grundvallast aðallega á því að blokka alla á netinu og á sem dirfast að vera honum ósammála, eða spyrja hann spurninga sem honum líkar ekki og á ekki nein svör við. Enginn veit hið minnsta af hverju manngrýlan haga sér svona, en honum virðist í mun að einangra sig hægt og rólega frá samfélagi manna. Kannski skýtur honum upp síðar á meðal apakatta eða urðarkatta, hver veit.
Hitt er svo vitað, að dýrðleg sveit lukkuriddara fór í sparfötin og mætti fyrst á vettvang þegar ljóst varð að listi Sólveigar Önnu hafði sigrað í stjórnarkjöri Eflingar fyrir fjórum árum, enda ganga þeir riddarar betur og meir fyrir péníngum en hugsjónum, allrasíst sósíalískum hugsjónum þókt þeir hafi um hríð látið að því liggja að þeir væru meiri sósíalistar en aðrir menn. Nú, Andrisig snaraði blessunarlega tuttugu og þremur milljonum í hús fyrir heimasíðu og annað smásnatt, sem engin þörf var fyrir hjá félagi verkamanna, Eflingu. Þetta var auðvitað vel af sér vikið hjá Andrasig, þó svo hann sé þessa stundina æfur af bræði út í SALEK-kérlínuna á Selfossi og hana Agníesku, sem eitt sinn hallaði sér ákaft að Sollu en hallaði sér strax frá henni og gaf jómfrú Snædal, Höllu og SALEK-slektinu hjarta sitt um leið og Solla yfirgaf Eflingarkontórinn. Það vantar ekki drengskapinn og kristilegu kærleiksblómin í urtagarð Eflingar og Gunnarssmára.
En af hverju eru staðreyndirnar um Andrasigmálið ekki bara lagðar á borðið, í stað þess að láta blokkarann fræga og SALEKfraukuna bera hvort annað sökum í fjölmiðlum og það aungvum smásökum. Það hljóta allar fundargerðir um verkkaup af heimasíðusnillingnum Andrasig vera á sínum stað sem og reikningar frá honum, undirritaðir og greiddir. Þetta hefðu Salek-kélíngarnar, Drífa, Halla og þessi frá Selfossi getað skoðað í mesta bróðerni og systerni með Andrasig, Vidda, Agnísesku og OllýFelgu og komist að óyggjandi niðurstöðu í stað þess að kalla hvert annað þjóf eða lygara á opinberum vettvangi. Andskotist þið svo til að haga ykkur einu sinni eins og heiðarlegt og siðað fólk, - og þú líka Gunarsmári!
![]() |
Sakar Halldóru um atvinnuróg |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Blessaður öðlingurinn, ekki gerir hann það endasleppt. Ekki vitum vér um annan Íslending sem er jafn uppfullur af kristilegu hugarfari, hjartagæsku og mannkærleika en dómsmálaráðherra Sjálfstæðisflokksins. Jón Gunnarsson er nefnilega dómsmálaráðherra Sjálfstæðisflokksins en ekki Íslands, höfum það hugfast. Og nú er hann búinn að taka herskara úkraínskra flóttamann upp á eigin eyk og fyllt hús sitt af þessu ólánssama fólki. Þetta væri nú ekkert, ef ekki hefðu verið fyrir í húsi dómsmálaráðherra Sjálfstæðisflokksins þessi líka glás af flóttamönnum og hælisleitendum frá Sýrlandi, Afganistan, Súdan og fleiri hrjáðum og þjáðum þjóðum.
Uppi á háalofti geymir dómsmálaráðherra Sjálfstæðisflokksins nokkra skeggjaða Íraka, sem hvergi hafa átt höfði að halla síðan Saddámur heitinn leið. Með á loftinu gista fáeinir poletiskir flóttamenn sem sagðir eru frá Rauða-Kína, en eru í reynd sjálfboðaliðar frá Formósu og Indókína. Í kjallara ráðherra eru gúlagspíndir stjórnarandstæðingar, sem taldir eru Rússar en tala bandarísku með suðurríkjahreim og með þeim eru í vist eru Íranar og landflótta Tyrkir og Kúrdar. En í svefnherbergi sínu hefir dómsmálaráðherra Sjálfstæðisflokksins komið upp kojum fyrir Úkraínumenn allt í kringum hjónarúmið, því dómsmálaráðherra Sjálfstæðisflokksins vill hafa sína hjartfólgnustu flóttamenn innan seilingar.Í morgun heimsóktu sæmdarhjónin frú Ingveldur og Kolbeinn Kolbeinsson heimili dómsmálaráðherra sinn og gjörðu góðan róm að gestrisni hans og glæsilegum höfðingsskap. Frú Ingveldur fékk a nota toilet ráðherrans og þó setuna vel og vandlega upp úr spíritusi áður en hún dró niðrum sig og fékk sér sæti á henni, því frú Ingveldur var smeyk um að flóttamannaskita og hælisleitendaþvag kynni að vera á setufjandanum. Á meðan frú Ingveldur gekk til kukks að salerni dómsmálaráðherra réðst Kolbeinn í að renna augum sínum yfir hinn stríðsþjakaða kvenpéníng, sem dómsmálaráðherra hafði tekið upp á sinn eigin eyk. Og þar sem Kolbeinn, sem líka er skrifstofustjóri og Framsóknarmaður, var nokkuð svo ölvaður eftir morgunafréttinginn, bað hann konu dómsmálaráðherra að sjóða ýsu og kartöflur og bræða upp hamsatólg til útáláts.Svo kvöddu þau sæmdarhjón að afloknu ýsuáti og fóru, en hælisleitendurnir frá Úkraínu og Gúlaginu störðu þrumulostnir á eftir þeim.
![]() |
Flóttafjölskylda fékk inni á heimili ráðherra |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Á þessum tímapunkti á að draga tjöldin frá og upplýsa hvað er rétt og hvað er rangt í þessu Andrasigmáli hjá Eflingu. Það ætti að vera mjög auðvelt. Og ef það er svo að Agníeska og Ólöf Helga, svo umboðslausar sem þær eru frá félagsmönnum Eflingar og SALEK-kérlíngin frá Selfossi hafa á samviskunni að dreifa tilhæfulausum rógi, rugli og sóðaskap af óskiljanlegum lághvötum er ekki nema sjálfsagt að leiða þær fyrir dóm og láta þær standa fyrir máli sínu; ef þær geta það ekki og eru bera af ósannindum og meiðyrðum þá alveg óhætt að dæma þær til duglegrar og viðeigandi refsingar.
Ef einhverju hefur verið áfátt varðandi verkaup af blokkarameistaranum Andrasig, svo sem eins og bókanir fundargerða á stjórnarfundum, þar sem ráðningin hefir eflaust verið tekin fyrir, þá er það eitthvað skrifast á vankunnáttu og kæruleysi í félagsstjórn. Hvort einhver eigi að sæta ábyrgð vegna slíkra mistaka er í höndum félagsstjórnar og almennra félagsmanna en ekki einhverra SALEK-dólga út í bæ.
Hafi Andri aftur á móti fengið péníngagreiðslur frá skrifstofu Eflingar, sem sem fullnægjandi stjórnarsamþykktir eru ekki fyrir, eða farið hefir verið á bak við formann og stjórn varðandi greiðslur, verður víst að kalla á lögregluna og láta hana rannsaka málið. Þetta getur varla verið mikið einfaldara, eða haldið þið það? Þessum leik með hálfkveðnar vísur, rósamál og ruglandi í málefnum verkalýðsfélagsins Eflingar verður að linna strax, á því eiga félagsmenn Eflingar, Starfsgreinasambandsins og allir verkalýðssinnar heimtingu. Og að sjálfsögðu eiga Agníeska og Ólöf Helga hafa sig á brott úr húsakynnum Eflingar hér og nú, þær væru kosnar burtu og eiga því ekkert erindi þar lengur.
![]() |
Sólveig svarar fullum hálsi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.3.2022 | 15:00
SALEK-skuggakérlíng kveður sér hljóðs
Er þetta ekki SALEK-kérlíngin, sem sögð er ein af skuggalegustu skuggunum innan vébanda samtaka verkafólks í dag? Það held ég svei mér þá. Manni er sagt, að um hríð hafi verið í undirbúningi að gjöra kérlíngu þessa að formanni Starfsgreinasambandsins, sem eru heildarsamtök verkafólks, þegar framsóknarvoffanum á Akureyri þóknast að hrökklast frá formennsku sambandsins. Þessar óverkalýðslegu persónur, ásamt með jómfrú Snædal og Höllu Gunnarsdóttur frá Katrínu Jakobsdóttur og VG, eru víst helstu merkisberar samstöðunnar með samherjum samherjanna, kerfisundilægjuhættinum við kapítalismann og auðvaldið innan verkalýðssamtakanna.
En gefum nú Ragnari Ingólfssyni formanni VR orðið:
,,Ég hafði margoft orðið vitni að þöggun og ótrúlega svívirðilegri framkomu í garð þeirra sem höfðu aðrar skoðanir en sá aðall sem stjórnaði hreyfingunni og stjórnar henni enn. Ég sat í stjórn VR frá árinu 2009, áður en ég náði kjöri sem formaður og upplifði eitt og annað á þeim tíma, margt af því miður gott svo vægt sé til orða tekið. Hér er eitt af mörgum dæmum þöggunar á þingum ASÍ. Sjá má þegar reynt er að slökkva/þagga niður í Vilhjálmi Birgissyni sem reyndi að svara linnulausum árásum í sinn garð þegar hann laggði fram tillögu um að sjóðfélagar lífeyrissjóða ættu einir að kjósa stjórnir þeirra árið 2009. Tillögu sem ég studdi. Vilhjálmur Birgisson - Ársfundur ASÍ - (5. hluti) - YouTube Þetta var ekki bara þáverandi forseti ASÍ heldur margir af meðreiðarsveinum hans og bakland margra stéttarfélaga sem eru innan vébanda ASÍ.Við getum kallað þennan hóp skuggafólkið sem fæstir vita hverjir eru."
Og Ragnar heldur áfram:
,,Og af hverju vitum við lítið um þennan hóp? Því þetta fólk tekur sjaldan eða aldrei slaginn á opinberum vettvangi eða lætur nokkuð í sér heyra, nema þá helst til að níða skóinn af félögum sínum eða tala niður verk þeirra og árangur. En af hverju þetta grímulausa hatur? Munu þau aldrei fyrirgefa okkur þann glæp að riðla völdum innan hreyfingarinnar? Þrátt fyrir lýðræðislegt kjör og umboð? Ég gæti tekið saman röð greina, ný og gömul dæmi máli mínu til stuðnings, skrifað heila ritgerð um fjölmörg af þeim rætnu árásum, og aðferðum til þöggunar, sem bæði ég og þeir sem hafa ekki kosið að dansa eftir þeirri duglausu og meðvirku línu sem þetta fólk vill fara. Hefur einhver velt fyrir sér starfsmannaveltunni á skrifstofu ASÍ og starfsánægjukönnunum þar,bæði fyrr og nú? Eru þær aðgengilegar þeim 130 þúsund félagsmönnum ASÍ eða læstar ofan í skúffu? Eða á þetta bara við um eitt stéttarfélag? Eða hvernig fer fyrir fólki annarsstaðar innan hreyfingarinnar sem dansar ekki eftir skoðunum stjórnenda og hvernig er fólk almennt valið þar inn? Það er bullandi pólitík innan verkalýðshreyfingarinnar. Og hún er ógeðsleg og hefur verið ógeðsleg þau 13 ár sem ég hef starfað á vettvangi hennar. Þeir sem stunda þessa ógeðslegu pólitík og oft á tíðum falinn rógburð og baktjaldamakk eru að mestu fólk sem fæstir vita hverjir eru, sumir eru þó vel þekktir en fara fínt með það. Þetta er yfirleitt fólk sem leggur ekki mannorð sitt að veði á opinberum vettvangi og tekur slaginn við sérhagsmunaöflin. Nei það er meira í því að setja like,deila og taka undir níðskrif um fólk sem því er illa við eða stendur ógn af eins og Sólveigu og hennar framboði, og hennar baráttu almennt. Ég hef persónulega upplifað þessa grímulausu heift á opnum og lokuðum fundum og þingum hreyfingarinnar, oftar en ekki í vitna viðurvist. Það skal tekið fram að árásir í minn garð frá ákveðnu fólki innan hreyfingarinnar eru barnaleikur miðað við það sem aðrir hafa þurft að þola".
Að lokum segir Ragnar þetta í grein sinni:
,,Sem dæmi má nefna að formaður Bárunnar á Selfossi, Halldóra Sveinsdóttir, undirbýr framboð til formennsku í Starfsgreinasambandinu sem er mjög valdamikil staða innan hreyfingarinnar og ljóst þykir að Sólveig Anna mun ekki styðja hana til kjörs.Er það tilviljun að starfsmenn Bárunnar hafa nú gengið hvað harðast fram við að koma höggi á framboð Sólveigar? Með tilraun til að fá starfsmenn allra stéttarfélaga til að senda út ályktun í miðri kosningu um forystu í Eflingu, sem væri skaðleg framboði Sólveigar og Baráttulistans. Er það tilviljun að annar starfsmaður Bárunnar skuli sjá sér leik á borði, á þessum tímapunkti, að skrifa enn eina níðgreinina um Sólveigu, níðgrein sem skuggafólkið keppist um að deila og like-a? En til að setja þetta í samhengi fer Efling með um 44% atkvæðavægi innan starfsgreinasambandsins.Ég ætla ekki að hafa eftir þá kveðju sem ég fékk frá sama starfsmanni Bárunnar á þingi ASÍ, kalda kveðju fyrir það eitt að hafa aðra skoðun en títtnefndir skuggar.Getur verið að eitthvað meira hangi á spýtunni en hinar miklu áhyggjur af skrifstofu Eflingar? Gætu þetta verið dulbúnar áhyggjur af því að valdahlutföll innan hreyfingarinnar gætu riðlast og fólkið sem hefur margoft verið uppvíst að blindu hatri í garð okkar, sem fengum nóg af meðvirkni og dugleysi hennar, nái ekki völdum sínum á ný"?Getur verið að eitthvað meira hangi á spýtunni en hinar miklu áhyggjur af skrifstofu Eflingar? Gætu þetta verið dulbúnar áhyggjur af því að valdahlutföll innan hreyfingarinnar gætu riðlast og fólkið sem hefur margoft verið uppvíst að blindu hatri í garð okkar, sem fengum nóg af meðvirkni og dugleysi hennar, nái ekki völdum sínum á ný"?Getur verið að eitthvað meira hangi á spýtunni en hinar miklu áhyggjur af skrifstofu Eflingar? Gætu þetta verið dulbúnar áhyggjur af því að valdahlutföll innan hreyfingarinnar gætu riðlast og fólkið sem hefur margoft verið uppvíst að blindu hatri í garð okkar, sem fengum nóg af meðvirkni og dugleysi hennar, nái ekki völdum sínum á ný"?
![]() |
Mjög alvarlegt ef lög hafa verið brotin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.3.2022 | 13:07
Og fíflunum er á foraðið att sem aldrei fyrr
Nú eru smámennin, sem hanga enn eins og hundar á roði í stjórn Eflingar, að lúsleita að öllu sem þau halda að geti nýst þeim til að klekkja á Sólveigu Önnu, réttkjörnum formanni Eflingar, og tefja fyrir og helst að koma í veg fyrir að hún taki við valdataumunum sem hún var kosin til fyrir skömmu. Það er ekki annað að sjá að þeim sem standa að baki Agníesku og Ólöfu Helgu og etja þeim eins og fíflum gegn Sólveigu sé stórlega áfátt, þannig að það verður sjálfkrafa fyrsta verkefni Sólveigar og nýrrar stjórnar að sópa þeirri vitfirringasamkomu út úr húsakynnum Eflingar.
Hinsvegar er óhjákvæmilegt fyrir Sólveigu Önnu að skipta algjörlega um helstu ráðgjafa og meðreiðarsveina, klippa tengslin við Gunnarssmáraklíkuna, Viðar Þorsteinsson heimspeking og rugludallinn Andra Sigurðsson. Sólveig Anna getur gengið að því vísu, að hún getur fengið mikið betra fólk til liðs við sig en fyrrgreinda leppalúða og loddara. En hvað Agnísesku og Ólöfu Helgu gengur til að láta einhverja sálsjúka vesalinga hafa sig að fíflum er ómögulegt að gera sér grein fyrir. Agníeska þessi hefir aldrei verið kosin formaður Eflingar og Ólög Helga ekki verið kjörin varaformaður félagsins. Þeim var báðum hafnað af félagsmönnum Eflingar í síðasta mánuði og eru því í raun umboðslausar og ættu að hafa vit á að pilla sig á brott nú þegar. Þegar stjórn og trúnaðarráð Eflingar tók þá ákvörðun að flýta formanns- og stjórnarkjöri félagsins var sú ákvörðun væntanlega ætluð til þess að Efling fengi sem fyrst löglega kjörna stjórn. En nei, ekki aldeilis, hinar umboðslausu, væntanlega hvattar áfram af andlega sjúkum kontóristum og jafnvel skuggaböldrum úr afkimum verkalýðshreyfingarinnar, grípa þá til þess ráðs að reyna að koma í veg fyrir að lýðræðið eigi að ráða ferð í þessu stóra verkalýðsfélagi. Hverskonar siðleysi og fáráðlingsháttur er þetta eiginlega?
![]() |
Fjármálastjóri Eflingar segir upp |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þá hafa einhverjir aðframkomnir auðnuleysingjar í Fjarðarbyggð útbúið vel borgaralegan kvennalista til brúks þar austurfrá í bæjarstjórnarkosningunum í vor. Svo er að sjá, samkvæmt þar að lútandi fréttatilkynningu, að Katrín Jakobsdóttir hafi blessað yfir kvennalistann atarna, sem bendir aftur til þess að henni hafi um stundarsakir tekist að losa sig úr örmum Stoltenbergs og NATÓ, en það verður varla lengi, því Katrín er mjög elsk að stríðsfélaginu NATÓ og Stoltenbergi framkvæmdastjóra.
Því er ekki að leyna, að Fjarðarbyggð er fjarska mikið undir áhrifum samherjanna, undir járnhæl þeirra segja margir, en það kemur heim og saman við burgeisaást Katrínar og gluggaskrautseðli. Kvennalisti Hreyfingarinnar framboðs(HF) fyrir austan sýnir í reynd úrkynjun og andleysi Austfirðinga, sem forðum voru miklir kommúnistar og stjórnuðu Neskaupstað árum saman af myndarbrag. Þeir þóktu ötulir kommúnistar þeir Lúðvík, Bjarni og Jóhannes, en því miður vanræktu þeir uppeldishlutverk sín svo glæsilega, að þriðja kynslóð frá þeim var ekki aðeins ókommúnísk með öllu, heldur kapítalísk og gjörðust snemma fótaþurrkur samherjanna og sviku eigu alþýðunnar á Norðfirði í eigu þeirra sem eru sannarlega samherjar í græðgi og auðvaldi. Enda eru þessi lubbar nú þegar gleymdir og aunginn veit nöfn þeirra né heimilisföng.
Hinn undanrennufúni Kvennalisti HF í Fjarðarbyggð er eflaust góður og viðeigandi minnisvarði um sviknar hugsjónir, sameign alþýðunnar á atvinnutækjum og hraðfara hrörnun vinstrimennsku á Austfjörðum. Og vel er við hæfi að gluggaskraut samherjanna, frá Stenngrimi Johoð og Thorstene Mó til Álfheiðar Inga og Engeyinga, sjálf tvíbytnan á andafundum NATÓ, skuli hafa séð sér fært að birtast allt í einu austur á landi eins og útfrymi með pípuhatt skinhelginnar til að vígja og blessa náttúrulausan Kvennalista HF í Fjarðarbyggð.
![]() |
Þrjár Önnur leiða lista VG |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Nýjustu færslur
- Í því ungdæmi vildi æskulýðurinn samræði frekar en samráð
- Jegeravdelingen i Norges Blindeforbund með lásboga í Haukadalsá
- Brátt verður hin fræga, en skilvirka, rassskellingavél Jón Læ...
- Konunglegur pervertus og sexúalkrimínali gjörir sig gildandi ...
- Náfrændum Kolbeins og Vondulyktarinnar sparkað út í Stafangri
- Fáránlegur ferill hennar hefir tekið á sig draugslega mynd óh...
- Hann missti kerrunan með þremur hrossum niður í djúpt og brat...
- ,,Ef að illar vættir inn um myrkragættir bjóða svikasættir sv...
- Það er versti misskilningur að hún sé kölluð Togga
- Þekktir menn og ein kona í stjórnum KR og Vals láta til sín t...
Bloggvinir
-
Níels A. Ársælsson.
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Sveinn Elías Hansson
-
Guðbergur Egill Eyjólfsson
-
Þórbergur Torfason
-
Guðfríður Lilja
-
Rafn Gíslason
-
Ragnar Þór Ingólfsson
-
Bjarki Steingrímsson
-
Pálmi Gunnarsson
-
Grétar Mar Jónsson
-
Ásdís Helga Jóhannesdóttir
-
Rúnar Sveinbjörnsson
-
Þorvaldur Þorvaldsson
-
Rauður vettvangur
-
Björgvin R. Leifsson
-
Ingibjörg Friðriksdóttir
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Einar Ólafsson
-
Baldur Hermannsson
-
Dætur og synir Íslands.
-
hilmar jónsson
-
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
-
Þórdís Bára Hannesdóttir
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Hulda Haraldsdóttir
-
Óskar Helgi Helgason
-
Heiða Þórðar
-
Helgi Guðmundsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Baldur Fjölnisson
-
Birgitta Jónsdóttir
-
Ísleifur Egill Hjaltason
-
Reynir Andri
-
Rúnar Karvel Guðmundsson
-
Þráinn Jökull Elísson
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Auðun Gíslason
-
Jón Snæbjörnsson
-
Rannveig H
-
Magnús Jónsson
-
Steingrímur Helgason
-
Hallgrímur Guðmundsson
-
Ársæll Níelsson
-
Brynja Hjaltadóttir
-
Fríða Eyland
-
Þorsteinn Valur Baldvinsson
-
Ólafur Þórðarson
-
Eygló Sara
-
Lúðvík Lúðvíksson
-
Þorsteinn Briem
-
Ester Júlía
-
Svava frá Strandbergi
-
Björn Grétar Sveinsson
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Sigurbjörn Friðriksson
-
Ragnar Páll Ólafsson
-
Páll Ingi Kvaran
-
Jakob Jörunds Jónsson
-
Friðrik Hansen Guðmundsson
-
Þorkell Sigurjónsson
-
Jóhann Elíasson
-
Óskar Arnórsson
-
Bergur Thorberg
-
Gísli Bergsveinn Ívarsson
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Eyjólfur Jónsson
-
gudni.is
-
Sigurður Sigurðsson
-
Alma Lísa Jóhannsdóttir
-
Alfreð Símonarson
-
Guðni Ólason
-
ThoR-E
-
Arnar Guðmundsson
-
Þór Jóhannesson
-
Georg P Sveinbjörnsson
-
Himmalingur
-
Guðjón Baldursson
-
halkatla
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Einar Sigurjón Oddsson
-
Haukur Nikulásson
-
Félag Ungra Frjálslyndra
-
Heiða
-
Jakob Falur Kristinsson
-
Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
-
Steingrímur Ólafsson
-
Magnús Þór Hafsteinsson
-
Sigurbjörn Svavarsson
-
Landrover
-
Valla
-
Vilmundur Aðalsteinn Árnason
-
Vefritid
-
Sigríður B Sigurðardóttir
-
Ónefnd
-
Óskar Þ. G. Eiríksson
-
Þórarinn Eldjárn
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Jón Ragnar Björnsson
-
Hlédís
-
Einar B Bragason
-
Þorsteinn Helgi Steinarsson
-
Árni Karl Ellertsson
-
Hamarinn
-
Hamarinn
-
Helgi Þór Gunnarsson
-
Hörður B Hjartarson
-
Jack Daniel's
-
Jón Bjarnason
-
Kristján Jón Sveinbjörnsson
-
Kristján P. Gudmundsson
-
Linda
-
Rauða Ljónið
-
Sigurður Haraldsson
-
Sóldís Fjóla Karlsdóttir
-
Tryggvi Gunnar Hansen
-
Vináttufélag Íslands og Kúbu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.8.): 17
- Sl. sólarhring: 21
- Sl. viku: 302
- Frá upphafi: 1553315
Annað
- Innlit í dag: 17
- Innlit sl. viku: 263
- Gestir í dag: 17
- IP-tölur í dag: 16
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Ágúst 2025
- Júlí 2025
- Júní 2025
- Maí 2025
- Apríl 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Nóvember 2012
- Júlí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007