Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
24.1.2022 | 22:37
Náði aungvu prófi og féll með skömm. Endaði loks inn til dala hjá grunsamlegum framsóknarbónda
Já, hún ferðaðist, eða öllu heldur flæktist, vítt og breitt á menntiskólaárunum, enda náði hún aungvu prófi og féll með sérstakri skömm. Á tímabili ræddu yfirvöld fjálglega um að leggja fram kæru á þennan vanmetaungling fyrir skróp og að draga dár að menntamálakerfinu. En á síðustu stundu var hætt við málaferli, en þá var sú stutta lent úti á galeiðunni og farin að drepa tittlinga framan í betra fólk og svara öllu út í hött eins og tunglsjúkur sálfræðingur. Auðvitað var þetta dapurt fyrir foreldrana, sem fóru að haga sér óskikkanlega eftir því sem leið á menntiskólanámið hjá dömunni.
Þó kastaði tólfunum þegar hún komst í kynni við frú Ingveldi og Kolbein. Telpan fór sem sé að sækja helgarsamkvæmin þeirra hjóna og þá má segja að kertið hafi byrjað að brenna í báða enda. Hún gjörðist líka fylgikona Brynjars Vondulyktar og skrapaði botninn þar til hann var orðinn eins og gatasigti. Svo tók frú Ingveldur hnátuna sér til handagagns og hýddi hana stórhýðingu vegna þess að hún hafði komið að stelpunni og Kolbeini Kolbeinssyni í innilegum faðmlögum í miðstöðvarkompunni. En Kolbein eiginmann sinn sló frú Ingveldur harkalega í rot við þetta tækifæri og mátti hann dvelja að sjúkrahúsi í margar vikur á eftir af því honum hafði nær því blætt út, auk þess sem hann var lengi ringlaður í kollinum eftir blíðuatlotin þessa nótt.Eftir að menntiskólanámið hafði runnið eins og seyra út í sandinn og fordjarfað umhverfið, fór hin mislukkaða menntafrauka eitthvert út í loftið og spurðist ekki til hennar um hríð. Svo kom upp úr dúrnum að hún var sest upp hjá einsetukarli, sóðalegum mjög, einhvers staðar lengst upp til dala norðanlands. En á undan hafði hún verið skipsjómfrú á spánsku skipi, sem komið hafi inn til hafnar á Hvammstanga, en þar steig jómfrúin á land og hafnaði, sem fyrr segir, hjá einsetukarlinum. Karl þessi hefir alla sína hundstíð, og það er hundstíð, kosið framsóknarflokkinn og lifað mest á skyri og brennivíni, en lambkettlingana lagði hann einlægt inn hjá kaupfélaginu. Margir höfðu, sem vonlegt er, illan bifur á mannkertinu og og litu hann illu auga og grunuðu hann um herfilegustu glæpi, verður ekki nánar farið út í þau ósköp hér. En okkar stúlka er, þegar öllu er á botninn hvoft, starfandi griðkona hjá hinum grunsamlega framsóknarmanni, langt frammi í dalsbotni og kveðs gera það gott.
![]() |
Með ljón á hælunum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Það er hreint voðalegt að ýjað sé að því, hvað ofan í annað, að herra Róbert Wessman, fjáraflamaður, lyfjasali og forstjóri, sé það sem í daglegu máli er kallað ,,glæpaurt", og látið í skína að hann sé mafíós, sem sést ekki fyrir. Hvurnig það má vera að siðaður maður, háæruverðugur ritstjóri, útgerðarmaður og skipstjóri, skuli hafa gjört að sinni höfuðhugsjón, að hundelta nefndan herra Wessman með það væntanlega fyrir augum að koma honum í fangelsi. Wessman má ugglaust þakka fyrir að Brimarhólmur, Rasphúsið og Spunahúsið eru blessunarlega aflögð úrræði fyrir íslenska afbrotamenn og fanga, því vandséð er að Reynir ritstjóri og göngumaður mundi syrgja þótt Wessman væri látinn erfiða í járnum til æviloka í Spunahúsinu.
Einusinni gekk hópur fólks til fjalla, þar á meðal sæmdarhjónin frú Ingveldur og Kolbein Kolbeinsson, einnig voru þar í ferð ekki minni persónur en Máría Borgargagn og Indriði Handreður, þá nýlega byrjuð í skammarlegu lostasambandi. Hópurinn fór akandi á einkabifreiðum langar leiðir upp til sveita að staðnæmdist ekki fyrr en við rammgjöra sóttvarnargirðingu. Þar var stigið út og fjallganga hafin. Ferðin gekk að mestu vel, nema hvað Borgargagnið og Hadreður gátu ekki á sér setið og fengu sér einn stuttan á lækjarbakka svo samferðarfólkið varð að slíta þau hvort af örðu eins og samfasta hunda.En þegar gönguflokkurinn kom að endingu til baka höfðu hross uppsveitarbænda komið á vettvang og heilsað upp á bifreiðarnar á eftirminnilegan hátt. Þau höfðu nagað lakkið á þessum aðskotadósum, bitið hjólbarða til sprengs og sparkað með afturhófunum í gegnum rúður; ein truntan hafði meira að segja teygt sig inn um brotinn bílglugga frú Ingvaldar og Kolbeins og náð tveimur konjakksflöskum með tönnunum, rifið þær upp og drukkið í botn. Það hross var mjög ölvað er að var komið, lét öllum illum látum svo að Máría Borgargagn varð hrædd því hún hélt að þessi óþverraskepna ætlaði að nauðga sér. En svo var henni sagt að þetta væri meri og þá róaðist Borgargagnið dulítið, en varð þess í stað smeyk um Handreð sinn gagnvart merhryssinu. Svo skröngluðust allir heim á hálfeyðilögðum bifreiðum, nema fulla merin, hún valt út í skurð og svaf þar til morguninn eftir.
![]() |
Reynir segir samhljóm með hugmyndum sínum og lögreglunnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.1.2022 | 22:31
Fáum nú góðgjarna mannvini til að fara með hann aftur til Seycelleseyja
Hvernig er það, er ekki hægt að fá einhverja góðgjarna menn og vel meinandi til að fjarlægja manninn áður en hann gerir eitthvað alvarlegt af sér, brýtur allt og bramlar eða sest að í Ásmundarsalnum fyrir fullt og fast? Þetta gengur ekki. Það er vel hægt að hjálpa skinninu litla aftur þangað sem hann var í ,,orlofi" fyrir skemmstu og skrópaði i vinnuna; hann er sem sé skrópagemlingur karlinn og þarf lækningar við. Það er að minnsta kosti alls ekki við hæfi hjá þessum hlaupagikk að koma blaðskellandi núna og láta eins og hann og græðgisgargskórinn hans í Sjálfstæðisflokknum hafi frelsað oss frá illu, svo sem eins og frá einni mannskæðri farsótt, sem lið á Flokksins snærum hélt lengi fram að væri vægari en minnsta nefkvef sem vitað er um. Sannleikurinn er sá að Sjálfstæðisgrátkórinn aldrei frelsað neinn eða neitt frá neinu, en að þvælast fyrir og og skara eld að eigin köku á kostnað annarra hefir fram að þessu ekki vafist fyrir þessu ólánsslekti.
Í orlofinu hefir einhver fjárinn komið yfir höfuðið á manninum þannig að hann heldur að hann sé sérfræðingur í sóttvörunum og svarta dauða. Þessi ósköp minna sláandi mikið á manninn sem hélt því statt og stöðugt fram að hann væri tiltekið bindi alfræðiorðabók; þeim náunga batnaði ekki fyrr en þeir settu hann í spennitreyjuna, en þá sagði hann að nú væri hann loksins kominn í bókbandspressuna. Það er, skal ég segja ukkur, gríðarlega hætta á að þessi nýsmíðaði sóttvarnarvargur og frelsisloddari geri allt stjörnuvitlaust í þingflokknum á næsta fundi og er víst illa á bætandi afleita andlega heilsu barnanna á þeim bæ.
En aftur á móti má segja, að ef góðir menn sjá sér fært að fara með manninn aftur til Seychelleseyja, þá væri bjarninn unninn og Björn sennilega líka. Á Seyshelleseyjum getur karlskröggurinn haft ofan af fyrir sér með því að stofna aflandsreiknininga og soleiðis og þar er heldur aungin hætta á að einhverjir fari að fetta fingur út í slíkt tómstundagaman og segja við hann: Maður minn, þetta sómir sér ekki. Á Seychelleseyjum er svo mikið frelsi, að sóttvarnir og þríeyki kæmu aldrei til greina, hvað þá pex vegna aflandsreikninga, stórgjaldþrota, fjárglæfra og Hruns. Því skulum vér ferja greyið þangað aftur hið snarasta til að hann geti jafnað sig. Hins vegar er hætt við að þingflokkurinn haldi áfram að hlíta lögmálum hænsnakofans eftir að minkurinn er kominn í heimsókn.
![]() |
Fara verði í afléttingar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.1.2022 | 21:33
Óstjórntækur stjórnmálaflokkur frekjast áfram og rífur kjaft
Eitt er það sem hundarnir kunna en ekki allar mannskepnu, en það er að skammast sín þegar við á. Meira að segja kettirnir eru betur að sér í slíkum málum en spjátrungar sem telja sig til yfirstéttar á Íslandi. Þegar haldinn heimilisköttur hefur látið sig hafa að kukka í fínasta sófann í stofunni verður hann skömmustulegur þegar húsbændur hans komast að hinu sanna og laumar sér tafarlaust út. En víst er um það að umræddur köttur verður aldrei ráðherra yfir einhverju sem hann hefir ekki hunds- né kattarvit á.
Ef Áslaug Arna kynni þá list að skammast sín eða kunna sig yfirleitt, mundi hún skilyrðislaust grjóthalda kjafti sóttvarnir og allt það sem þeim viðkemur. Í þokkabót er þessi gasprari sögð vera ráðherra vísinda og æðri menntunnar, þótt hún hafi aldrei sýnt vísindalegt eða menntunarlegt af sér. Hennar starf er að auglýsa sjálfa sig sem fulltrúa gráðugrar og glennulegrar burgeisastéttar, sem fengið hefir þá flugu í höfuðið að hún eigi allt, megi allt, viti allt og kunni allt, þrátt fyrir að vera lítið annað en hrokinn, yfirlætið, glimmerinn og græðgin.
Í gegnum tíðina hefur stöku uppskafningar, aðallega úr stjórnmála eða blaðamannastétt, tekið sér í munn að þessi eða hinn stjórnmálaflokkurinn væri óstjórntækur, og hafa þá einlægt miðað við hinn óstjórntæki væri hugsanlega of heiðarlegur og andsnúinn gróðabralli og þjófræði auðvaldsins. Í dag horfa hlutirnir þannig við, að það er Sjálfstæðisflokkurinn sem er með öllu óstjóntækur, þrátt fyrir að vera í ríkisstjórn. Ástæðan er fyrst og fremst sú, að á síðustu þrjátíu árum hefur Sjálfstæðisflokkurinn breyst úr því að vera sæmilega þægilegur hægfara hægriflokkur, nokkurskonar krataflokkur, í að verða mjög hægrisinnaður og öfgafullur nýfrjálshyggjuflokkur gráðugra og óheiðarlegra kapítalista. Samfara þessari óhugnanlegu þróun Sjálfstæðisflokksins hefir mannvalið, sem sæti á á Alþingi fyrir Flokkinn, þynnst svo um munar, má segja að ,,mannauður Sjálfstæðisflokksins hafi á umliðnum árum fallið úr B-flokk niður í algjöran ruslflokk. Þetta er nú staðan hjá Sjálfstæðisflokknum í dag, og því ekki eftir neinu að bíða að vísa honum úr ríkisstjórn, því hann er með öllu óstjórntækur.
![]() |
Endurskoða þurfi gildandi takmarkanir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.1.2022 | 20:27
Hálfdán Varðstjóri lét til skarar skríða við Bjarnar L. Leðurpung í dag
Í dag lét Hálfdán Varðstjóri til skarar skríða gegn íbúum að Oddgerðarbraut 15 í Garðabæ, en þeir hafa orð á sér fyrir mannvonsku af ýmsu tagi, kynáttaða siðvillu og rakinn óumhverfisvænan sóðaskap. Varð af nokkur slagur í millum Hálfdáns og þeirra er fyrir voru í íbúðinni. Einkum var húsráðandinn, Bjarnar Ljómi Leðurpungur, erfiður viðfangs og kastaði skít upp úr salerninu í Varðstjórann, en það athæfi varð Bjarnari Ljóma næstum að bana, því þegar Hálfdán hafði höndur á manninum voru það aungvar gælur sem hann veitti kauða. Með öðrum orðum: Háfdán Varðstjóri kreisti helvítið svo hranalega og bunan stóð bæði upp úr honum og aftan úr honum ásamt skyldugum eiturgufum og viðbjóði.
Um nokkurt skeið hefir Bjarnar L. Leðurpungur og hans vinir legið undir grun um svo andstyggilegt athæfi í mörgum myndum, að því verður vart lýst með orðum. Í íbúðinni að Oddgerðarbraut hafa sem sé verið haldin námskeið í kvenhatri, einnig námskeið í svokallaðri lostaðir kynjunarfræði. Þá hefir Leðurpungurinn og hans fólk stundað þar afhommanir, að eigin sögn með góðum árangri. Nú síðast héldu þau hópefli um frelsun blóðmera og frelsun óbólusettra. Þegar þar var komið ákvað Hálfdán Varðstjóri að nú væri nóg komið og tjáði undirmönnum sínum að næst á dagskrá hjá Bjarnari Leðurpungi væri að þjálfa upp fólk til kennsluréttinda í blóðskömm.Þá þykir og athugunarvert, að áður nefndur Bjarnar Ljómi Leðurpungur hafi oft sést í helgarsamkvæmum frú Ingveldar og Kolbeins og hafi hann þá gjarnan setið við hlið ráðherra og stórforstjóra við þau tækifæri. Hann er sagður hafa lagst með Máríu Borgargagni frammi í vaskahúsi, en Indriði Handreður eiginmaður Borgargagnsins og Brynjar Vondalykt komið að og tekið Bjarnar millum sín og farið með hann á salernið. Á salerninu stungu þeir höfði Bjarnar ofan í klósettskálina og sturtuðu nokkrum sinnum,- á eftir gáfu þeir honum inn uppsölumeðal, sem virkaði svo vel að Bjarnar sá stjörnur og heyrði dynki og sprengingar og gekk hér um bil af vitinu, þó varla væri nokkru viti fyrir að fara. Það er því ekki að undra að Hálfdáni Varðstjóra hafi ofboðið framkoma Bjarnars.
![]() |
Einn var hlaupinn í Laugar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hvar í fjáranum ætli Gölle a. Þórðarson hafi grafið þetta stórgáfaða djásn upp, hana Diljá Mist, sem frekar ætti að heita Giljá Pisst til heiðurs hinum vinsæla jólasveini Giljagaur, sem kvað vera frændi og einkavinur Gölle? Nú, Giljá þessi telur, af frámuna glöggskyggni, að Þórólfur og þau hin í þríeykinu hafi öll völd þegar kemur að sóttvörnum, þó svo að Þórólfur leggi tillögur fyrir ráðherra sem tekur ákvörðun. Miðað við málflutning þessa nýuppfundna farsóttafræðings, þá er augljóst að hún er að seilast eftir völdum Wíllúms framsóknarfrömuðs en kannski minna eftir að fá að gera tillögur til ráðherra.
Hitt er aftur annað mál, að ef Sjálfstæðisflokkurinn hefði einn fengið að ráða sóttvörnum vegna kóvíðs nítjánda, þá hefði hann eflaust hleypt vírusnum frjálsum á landsmenn þegar í upphafi, til þess að rottuhjól auðvaldsbesefanna í ,,atvinnulífinu" gæti nú spólað á fullri ferð. Sjálfstæðisaðferðin hefði eflaust sparað okkur mikla pénínga sem sólundað hefir verið í bóluefniskaup og annan viðlíka óþarfa. Þá hefðum við heldur ekki þurft að hafa áhyggjur þeim örmu djöflum, Sórós og Bill Gates, og ekki heldur verið neydd til að láta undirgangast tilraunabólusetningar með einhverju skuggalegu hlandi frá lyfjarisum og lyfjamafíum með njósnaörflögum og öðrum þrifnaði. Það hefði skohh verið gríðarlegur sparnaður. (Orðið ,,gríðarlegur" er ákaflega vinsælt meðal virkra blaðrara Sjálfstæðisflokksins og auðvaldsins yfirleitt).
En þessa Giljá Pisst ber að rannsaka í vísindalegan hátt. Vísindaráðherrann gæti riðið á vaðið við þá rannsókn, en svo gætu vísindamenn samherjanna hjá Hafró og Fiskistofu tekið við. Það er fyrirsjáanlegt, jafnvel ómálga börnum, hvað út úr þessháttar rannsókn kæmi, en það gæti verið eitthvað á þessa leið: Giljá er ekki Giljá nema Giljagaur fylgi með! Og allir væru jafnnær og áður. Já vinir mínir, fjær og nær, hún er orðin alvarlega þykk og dimm kóvíðsheilaþokan á Alþingi Íslendinga og aungvra úrbóta þar á að vænta í bráð og ekki bæta neinar Giljáar eða Beggóar það myrka ástand nema síður væri. Til fróðleiks má geta þess, að það eina sem vitað er um Giljá þessa Pisst er að Gölle a. Þórðarson veiddi hana af hendi upp úr skrifpúltsskúffu sinni og sagði: Veskú kjósið þetta! við íhaldsgöndlana.
![]() |
Vill að þingmenn fái völd þríeykisins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þá ætla nýfrjálshyggjuseyðin í Hreyfingunni framboði og Samfylkingunni að sýna kjósendum í Reykjavík að þau eru ekkert blávatn í einkavæðingum og ætla að sanna eðli sitt með því að selja Malbikunarstöðina Höfða úr höndum Reykvíkingar. Þetta kallar maður nú frammistöðu hjá þessum alræmdu gríslingum! Sér til halds og trausts hafa þau Líff, Dagur, Holupokinn og Heiða öfgahægridrjólana Þórdísi Lóu og hr. Páwél Bartósék, auk nýfrjálshyggjutelpunnar frá Pírataflokknum, og munar um minna þegar siglt er undir fölsku flaggi félagshyggju og sosí-eitthvað eins ruslapokarnir frá HF og Samfylkingu gera.
Að öðru leyti er svo þjóðmálaumræðan á Íslandi aldeilis herfileg og það sem verra er, þá sér aungvann veginn fyrir endann á þeim viðbjóði. Ofan í kóvíðsþras andsóttvarnarvitleysinganna og hinnar ógéðugu og óvitrænu kynjavilluumræðu sjúkra efrimillistéttarfémínísta bætist nú tryllingslegt rifrildi um stórlega misheppnaða borgarfulltrúa í Reykjavík, sem hafa í sameiningu framið spjöll í borginni, einkum gömlu borginni, með einkennilegum, ef ekki annarlegum, heimskutiltektum, sem minna einna helst á minningar Jósefs Sveijk frá vitfirringahælinu og þeim góðu dögum sem hann átti þar.
Í Atómstöðinni Halldórs frá Laxnesi kemur fyrir vísa, hvar stendur: ,,Fallinn er Óli fígúra, fjandinn sá arna í Keflavík". Í vor verður vonandi sungið eitthvað á þessa leið: ,,Fallinn er frjálshyggjufígúru-meirihlutinn í borginni, fjandinn sá arna í Reykjavík". En því miður, þókt meirihlutinn falli um koll og brotni í þúsund mola, þá er ekkert skárra í augsýn, því einskis góðs er að vænta af hinum alræmdu samtökum sem kenna sig við sjálfstæði og fylgihnöttum þeirra úr Fokki Fólsins og Klausturflokknum, sem er víst við að drepast. Líklegast fá Reykvíkingar að sjá framan í nýtt nýfrjálshyggjuskrímsli, óhugnanlegan fígúruhóp, afkvæmi Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar.
![]() |
Borgin skoðar að selja Malbikunarstöðina |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.1.2022 | 12:42
Poletiskur flóttamaður sest að á Seychelleseyjum eða Tortólu
Að það geti verið að hann Bjarniben, aumingja drengurinn sá arni, sé flúinn til útlanda og sestur þar að til frambúðar. Vel gæti það verið og láir honum það aunginn þókt svo sé. Vér gjörum þá ráð fyrir að þessi frækni sonur Engeyjar hafi valið sér Seychelleseyjar til búsetu, þannig að hann verði ekki alveg viðskila við hina góðu eyjamenningu heimsins. Þó efumst vér ekki um að honum hafi komið í hug að hefja búskap á Tortólu, því þar er sagt að sé með afbrigðum búsældarlegt.
Þá vekur það oss athygli, og í leiðinni stórfellda furðu, að roðhænsnin í stjórnarandstöðunni hafi komið upp miklu gargi og ærslum í þinginu í morgun yfir því að ráðherrar ríkisstjórnarinnar nenntu ekki að mæta á þingfund til að eiga orðastað við stjórnarandstöðuna, sem orðin er mjög sljó af heilaþoku og annarri geggjun eftir kóvíðsferlið síðustu tvö ár. Það segir sig sjálft að það er ekki nokkrum ráðherra samboðið að eiga orðastað við annan eins undirmálshóp sem stjórnarandstaðan er.
Nú, ef það er raunin að Bjarniben sé flúinn til framandi landa, þá er ekki úr vegi að nefna nauðsyn þess að fleiri ráherrar fari að dæmi Bjarnaben og gjörist flóttamenn, þau gætu kallað sig poletiska flóttamenn því það ku þykja fínna, og hverfi sjónum vorum á Íslandi til frambúðar. Hins vegar tökum vér aungva ábyrgð á hugsanlegum umsvifum ráðherranna þegar þeir verða komnir í flóttamannabúðir á erlendri grund, svo sem eins og á Gaza eða eyjunni Lesbos. En eftir orðbragð og svarragang stjórnarandstöðunnar í morgun er tilhlýðilegt að taka þau roðhænsn úr umferð að undangenginn géðrannsókn, því ljóst mun vera að þetta aumingja fólk gengur aungvann veginn heilt til skógar, er öðrum til leiðinda og skapraunar en sjálfum þeim til skammar og ómögulegt að gera sér grein fyrir hvað þessir hræðilegu óvitar kunna að taka sér fyrir höndur næst.
![]() |
Er hann fluttur til útlanda? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ja, ekki læstur hún að sér hæða hún Líff Magnínudóttir og ætlar að láta etja sér á forað Hreyfingarinnar framboðs, enda ekki seinna vænna áður en hún brennur til ösku af ,,stóra verkefninu", sem augljóst er að hún hefir hugmynd um hvert er. Aumingja kérlíngin hefir nú sullumbullað innan um orðlagða spjátrunga borgarastéttarinnar og hefir það sannarlega tekið sinn toll af henni og gjört hana að einum af þessum örvasa stjórnmálamönnum sem vita aldrei sitt rjúkandi ráð og ljúka svo poletiskri göngu sinni með því að með því að öskra eins og naut.
En gaman verður að sjá hverja Flokkseigendafélagið hefir fleiri í vasanum til að fífla í prófkjörsframboð. Glöggir menn í Hreyfingarframboðsfræðum sjá aungva í því sambandi nema lítilsigldar undanrennugoggur, sem eru að reyna að bera sig til að tala eins og fullorðnar manneskju, en með vægast sagt hörmulegum árangri. Þessi grey hafa ef til vill prófgráðu frá háskóla, en eru svo hryllilega skaðmenntaðar að þær kunna hvorki að skeina sig né hlýða á uppbyggjandi alþýðumál. Þess utan er óvíst að undanrennuungarnir atarna heiti nokkuð, hafi aðeins dulkóðað númer og segi lítið umfram fokking, mess, tráma og tuss og líði meðfram veggjum eins og meiningarlausar vofur.En allt er þetta í besta lagi, því óheilinda- og svikaflokkurinn Hreyfingin framboð hefir vísast misst allan hljómgrunn, af ofurskiljanlegum ástæðum, og mun skolast niður í klóakið í vor, nagdýrunum sem þar hafa heimilisfesti til mikillar gleði, þar til þau fara að melta sendinguna, en þá munu þau vissulega andast úr hörðum innanmeinum. Trúlegast verður endirinn samt sá í prófkjörs- og forvalsraunum Hreyfingarinnar framboðs í Reykjavík á þá leið að Líff Magnínu verður ein í framboði og hreppi öll sætin þrjú sem Flokkseigendafélagið býður upp á. Þar á eftir eru Flokkseigendurnir meira en vísir með að selja Líffu til Samfylkingarinnar eða Viðreisnar fyrir nokkra skiptimiða í strætó.
![]() |
Líf vill leiða lista VG í vor |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.1.2022 | 13:42
Hreyfingin framboð vill fíflum á foraðið etja
Þetta undur fámenna og fátæklega hrafl af fólki, sem eftir er í VG, ætti að spara sér þá fyrirhöfn að halda prófkjörsforval og bjóða fram til borgarstjórnarkosninga í Reykjavík. Við síðustu borgarstjórnarkosningar voru úrslit kosninganna VG til algerrar háðungar,- og háðungin verður enn meiri í vor, þar eð þessi sérkennilegi óheilinda- og svikaflokkur mun bíða endanlegt afhroð í höfuðborginni og hverfa af yfirborði jarðar eins og snjóhrúga fyrir stórrigningu.
Hinn óhagganlegi sannleiki er auðvitað sá, og honum verður ekki mótmælt með neinum rökum, að VG er sannlega alræmdur félagsskapur tiltölulega fárra ódáma, sem hafa gjört svik við íslenska alþýðu a sérgrein sinni. En það sýnir betur en allt annað hverskonar lítilmenni og andlegir öryrkjar og krypplingar eru þar á ferð. Það er rökrétt að kjósendur kjósi slíka óværu og skaðræði burt úr tilverunni fyrir fullt og fast. Hreyfingin framboð (ex Vinstrihreyfingin grænt framboð) er ekki á vetur setjandi, því skal hún skorin eins og bændur skera ónothæfan vanmetapening, svo sem eins og kýr sem mjólka illa og ær sem gjöra sér að leik að vera geldar ár eftir ár og safna spiki á kostnað arðberandi sauðkinda. Nei, flokkseigendur góðir, Stenngrimur, Álfheiður og undanrennubörn, það er ekki nóg að stela flokki frá sósíalistum og alþýðu þegar innræti ykkar og manndómur er með þeim hætti sem þið hafið sýnt og sannað.
En ef hins vegar gerpin í Hreyfingu framboði verða svo nautheimsk og ótengd raunveruleikanum að ana út í prófkjörsforval þá verður svo sem nógu hlálegt að sjá hvaða fíflum gamla Flokkseigendafélagið nær að etja út á foraðið. Þá má svo sem meira en vel vera, að innan Hreyfingarinnar framboðs sé slæðingur af vitgrönnum lukkuriddurum, sem eru nógu vitlausir að gefa kost á sér í þann galskap. En það mega þeir hinir sömu vita, að uppskera þeirra verður ekki önnur en að verða aðhlátursefni samborgara sinna. Líklega verður Líff Magnínudaugther ekki meðal þátttakenda í prófkjörsforvali Hreyfingar framboðs að þessu sinni, þar eð hún er illa upp að knjám gengin og hefir þar að auk margsannað getuleysi sitt með fjölda brotlendinga og borgaralegra auðvaldssnobbstilburða í borgarstjórn.
![]() |
Vinstri græn kjósa efstu þrjá á lista í borginni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu færslur
- Í því ungdæmi vildi æskulýðurinn samræði frekar en samráð
- Jegeravdelingen i Norges Blindeforbund með lásboga í Haukadalsá
- Brátt verður hin fræga, en skilvirka, rassskellingavél Jón Læ...
- Konunglegur pervertus og sexúalkrimínali gjörir sig gildandi ...
- Náfrændum Kolbeins og Vondulyktarinnar sparkað út í Stafangri
- Fáránlegur ferill hennar hefir tekið á sig draugslega mynd óh...
- Hann missti kerrunan með þremur hrossum niður í djúpt og brat...
- ,,Ef að illar vættir inn um myrkragættir bjóða svikasættir sv...
- Það er versti misskilningur að hún sé kölluð Togga
- Þekktir menn og ein kona í stjórnum KR og Vals láta til sín t...
Bloggvinir
-
Níels A. Ársælsson.
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Sveinn Elías Hansson
-
Guðbergur Egill Eyjólfsson
-
Þórbergur Torfason
-
Guðfríður Lilja
-
Rafn Gíslason
-
Ragnar Þór Ingólfsson
-
Bjarki Steingrímsson
-
Pálmi Gunnarsson
-
Grétar Mar Jónsson
-
Ásdís Helga Jóhannesdóttir
-
Rúnar Sveinbjörnsson
-
Þorvaldur Þorvaldsson
-
Rauður vettvangur
-
Björgvin R. Leifsson
-
Ingibjörg Friðriksdóttir
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Einar Ólafsson
-
Baldur Hermannsson
-
Dætur og synir Íslands.
-
hilmar jónsson
-
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
-
Þórdís Bára Hannesdóttir
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Hulda Haraldsdóttir
-
Óskar Helgi Helgason
-
Heiða Þórðar
-
Helgi Guðmundsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Baldur Fjölnisson
-
Birgitta Jónsdóttir
-
Ísleifur Egill Hjaltason
-
Reynir Andri
-
Rúnar Karvel Guðmundsson
-
Þráinn Jökull Elísson
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Auðun Gíslason
-
Jón Snæbjörnsson
-
Rannveig H
-
Magnús Jónsson
-
Steingrímur Helgason
-
Hallgrímur Guðmundsson
-
Ársæll Níelsson
-
Brynja Hjaltadóttir
-
Fríða Eyland
-
Þorsteinn Valur Baldvinsson
-
Ólafur Þórðarson
-
Eygló Sara
-
Lúðvík Lúðvíksson
-
Þorsteinn Briem
-
Ester Júlía
-
Svava frá Strandbergi
-
Björn Grétar Sveinsson
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Sigurbjörn Friðriksson
-
Ragnar Páll Ólafsson
-
Páll Ingi Kvaran
-
Jakob Jörunds Jónsson
-
Friðrik Hansen Guðmundsson
-
Þorkell Sigurjónsson
-
Jóhann Elíasson
-
Óskar Arnórsson
-
Bergur Thorberg
-
Gísli Bergsveinn Ívarsson
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Eyjólfur Jónsson
-
gudni.is
-
Sigurður Sigurðsson
-
Alma Lísa Jóhannsdóttir
-
Alfreð Símonarson
-
Guðni Ólason
-
ThoR-E
-
Arnar Guðmundsson
-
Þór Jóhannesson
-
Georg P Sveinbjörnsson
-
Himmalingur
-
Guðjón Baldursson
-
halkatla
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Einar Sigurjón Oddsson
-
Haukur Nikulásson
-
Félag Ungra Frjálslyndra
-
Heiða
-
Jakob Falur Kristinsson
-
Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
-
Steingrímur Ólafsson
-
Magnús Þór Hafsteinsson
-
Sigurbjörn Svavarsson
-
Landrover
-
Valla
-
Vilmundur Aðalsteinn Árnason
-
Vefritid
-
Sigríður B Sigurðardóttir
-
Ónefnd
-
Óskar Þ. G. Eiríksson
-
Þórarinn Eldjárn
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Jón Ragnar Björnsson
-
Hlédís
-
Einar B Bragason
-
Þorsteinn Helgi Steinarsson
-
Árni Karl Ellertsson
-
Hamarinn
-
Hamarinn
-
Helgi Þór Gunnarsson
-
Hörður B Hjartarson
-
Jack Daniel's
-
Jón Bjarnason
-
Kristján Jón Sveinbjörnsson
-
Kristján P. Gudmundsson
-
Linda
-
Rauða Ljónið
-
Sigurður Haraldsson
-
Sóldís Fjóla Karlsdóttir
-
Tryggvi Gunnar Hansen
-
Vináttufélag Íslands og Kúbu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.8.): 1
- Sl. sólarhring: 18
- Sl. viku: 223
- Frá upphafi: 1553337
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 198
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Ágúst 2025
- Júlí 2025
- Júní 2025
- Maí 2025
- Apríl 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Nóvember 2012
- Júlí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007