Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
5.2.2022 | 18:26
Andrés vill leiða í Reykjavík; Hildur og Stefán Páls úr leik
Þá hefir oss borist sú gleðifrétt að Andrés B. Filipusson hafi ákveðið að gefa kost á sé í oddvitasæti Sjálfstæðisflokksins við borgarstjórnarkosningarnar í Reykjavík í vor. Þykir ákvörðun Andrésar mikill búhnykkur fyrir Sjálfstæðisflokkinn og rímar einstaklega vel við viss áhugamál Sjálfstæðisflokksmanna. Reykvíkingar munu eflaust upp til hópa bregðast feikn vel við við ákalli Andrésar og kjósa hann unnvörpum til borgarstjóra Reykjavíkur.
Eftir því er best er vitað, mun Andrés laus og liðugur eins og Sigurður Sjámaður var á sjöunda áratugnum, þannig að nú er eftir feitum g safaríkum bita að slægjast fyrir fósturlandsins freyjur, ekki síst þær ungfrú Falak, jómfrú Lillíendalh og Borgarholts-Hönnubjörgu og aðra álitlega kynjunarsérfræðinga, því Andrés Filipusson er hneigður fyrir allt sem kynjað er. Þess er vert að geta, að Andrés er bráðfjörugur til ásta og hefir um árabil lifað á víagraáti í hvurt mál; ,,hann minnir á stangarstökkvarann Sérigí Búbbka", sagði ónefnd kona af betri stétt eftir vel lukkaðan fund með Andrési.Nú er ljóst, að ekki tjóir lengur fyrir Hildi Íhaldsfrauku, sem hrakti hr. E. Arnalds frá borgarstjórn, eða Stefán Pálsson þingkonufrú að sækjast eftir oddvitasæti hjá Sjálfstæðisflokknum í Reykjavík eftir að spurðist til framboðs Andrésar, því hann mun gjörsigra alla Íhaldskrakkakroppinbaka í Reykjavík svo léttilega að lengi verður munað.
![]() |
Andrés mun bera vitni eiðsvarinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.2.2022 | 17:49
Til hamingju Siggý Bauntens með árin (306)
Þá er nú hún Sigga okkar Bauntens orðin mjög gömul. Í raun og sann er kerlíngarkjökrið orðið óguðlega aldurhnigið og ,,fallinn af fótum fram" eins og oddvitabjáninn sagði þegar hann var spurður um hvernig hún amma hans hefði það. Nú, Sigga er sem sé orðin þrjúhundruð og átta ára (308 ára) og er syngur ennþá. Það er að segja, hún reynir að framleiða hljóð með raddböndum sínum sem hljóma eins og þegar ryðbrunninn gaddavírsstrendur er strokinn eða nuddaður með hrjúfri spýtu. Fyrir nokkrum vikum var Siggí Bauntens fengin til að ,,syngja" útför látinnar heiðurskonu með þeim afleiðingum að hin andaða sparn kistulokinu ofan af sér og reis upp frá dauðum og strunsaði á dyr í fússi.
Eins og vænta má, hefir Siggó Bauntens lifað tímana tvenna, þrenna og ferna. Hún var við guðsþjónustu síra Jóns Steingrímssonar er hann kvað gosið í lakagígum niður og sigldi með sama skipi og Jón Hreggviðsson til Kaupinhafnar þegar hann hugðist taka mál sín upp aftur. Sjálf segir Sigga Bauntens hafa verið viðstödd Tyrkjaránið, en það er eitthvað ofsögum sagt hjá henni, sennilega misminni. En hún þekkti Kambránsmenn og lyfti oft glasi með þeim á góðri stund, þókt ekki hafi hún verið með þeim í för er þeir heimilisfólkið á Kambi þeirra erinda að ræna fé bóndans.
A síðari árum hefir Sigga stundað söng með góðum árangri. Til dæmis söng hún dúett með Garðari Hólm á frægum tómleikum í Bárunni og nokkru síðar söng hún jazz með Jöreni Gráferngord, sem vakti reiði og hneykslan menntaðra Íslendinga. En lengst verður sönglistar Siggó minnst fyrir túlkun hennar á Töfraflautu Mósarts, en þar fór hún með hlutverk sjálfrar Töfraflautunnar. Á allra síðustu tímum fór hún svo að söngflytja paunkkveðskap, það fór alveg með þetta litla sem eftir var af röddinni svo að nú hefir það hættulegar afleiðingar ef henni verður það á að upphefja raust sína, svo sem eins og dæmið með dauðu konuna sannar, sem reis upp undan greftrunarhljóðum Siggýjar Bauntens. Og svo var nú það og vér óskum Siggu Bauntens til hamingju með árin þrjúhundruð og sex og væntum þess að hún hætti að leggja í vana sinn að vekja upp sannarlega kóvíðsdauðar manneskjur með hljóðum sem eiga engin sín lík á byggðu bóli.
![]() |
Þrefalt stórafmæli hjá Siggu Beinteins í ár |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Það var ekki í síðustu viku og ef til vill ekki í næstu viku, en eitt er víst og það er að umræddur atburður gerist einhvern tíma. Hitt er annað, að þá Wíllúm var lítill drengur og fram á unglingsár hans voru barnaflengingar við hafðar í öllum betri skólum landsins. Verkefnisstjóri var Jón Læknir, en hann hannaði þjónustuna og stjórnaði oftast flengingunni. Þegar fram í sókti, bjó Jón Læknir til rassskellingarvél og not við þá smíði aðstoðar Árna bróður síns, sem var tæknifræðingur og járnsmiður. Árni þessi féll frá á mjög dularfullan og andstyggilegan hátt.
Í sjóþorpum landsins boðuðu barnaverndarnefnd og skólanefnd til barnaflengingar ásamt með barna-og unglingaskólanum til aðgerðarinnar, oftast í slægingarsal frystihússins eða á bílaþvottaplaninu ef froststillur voru. Jón Læknir sat sjálfur á stól og kaghýddi hin óþekku börn með hrísvendi eða með berum lófa upp úr jökulköldu vatni. Eftir að rassskellingarvélin var tekin í notkun var krökkunum rennt inn um annan endann á maskínunni og en við hinn endann beið Jón Læknir og handflengdi þau börn sem þurftu átakanlegast á slíkum vinnubrögðum að halda. Verstu börnin, þau er voru tryllt af óþekkt og óknyttasömu líferni, reyrði Jón Læknir við staur og lúskraði á með hnútasvipu úr snæri undir stöðugu kaldavatnspusi.
Þann tíma er barnaflengingar voru hluti af uppeldis- og skólastarfi þóktu þær skila mun þægari og lærdómsfúsari börnum en nú tíðkast. Í dag þykir ekki tiltökumál að börn standi uppi í hárinu á kennurum, brúki við þá klámfenginn ruddakjaft með tilheyrandi bölvi og ragni, eða gangi í skrokk á þeim með hnefahöggum, spörkum og klóri og bíti þá líka til skaða hvar sem þau koma tönnum á kennarann. Í gamla daga dugði vel heppnuð barnaflenging upp undir ár í góðri hegðan og kristilegu framferði skólabarna. Svo sem sjá má af þessari reynslu af barnaflengingum Jóns Læknir er fullt tilefni til að taka þær upp aftur. Sjálfur er Jón læknir kominn fast að níræðu, en er einstaklega vel ern og kveðst tilbúinn að stjórna barnarassskellingum af sama þrótti og forðum þegar hann hefir smurt vélar sínar og mótora og gangsett þær.
![]() |
Við hverju má búast í næstu viku? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.1.2022 | 19:44
Birtingarmynd nútímaaðferðar við hægðalosun
Einhvern tíma heyrði ég af manni sem auglýsti að hann tæki að sér að skíta í garða hjá sveitungum sínum gegn vægu gjaldi. Þessi náungi gekk fram af hreinni hugsjón fyrir garðrækt og mörg kartaflan fékk góðan aukavöxt af störfum þessa óeigingjarna heiðursmanns. Svo hefir maður líka haft áreiðanlegar fregnir af öðrum og óvandaðri persónum sem hafa gjörst sekir um að kukka í bílskúra ókunnugs fólks, ofan í lest skipa og í fiskkör. Og eitt endemið læddist inn hjá saklausri banafjölskyldu að næturþeli og dritaði á eldhúsborð þess góða fólks; sá fjandi mátti reyndar taka við sínu karma fljótlega, því hann fótbrotnaði um morguninn þegar hann hrapaði niður í kjallara heima hjá sér þegar hann fór dyravillt í rökkrinu.
Annað mál var það þegar Kolbeinn Kolbeinsson skrifstofustjóri og framsóknarmaður meikti eigin skitu í hefndarskyni upp um veggi hjá kvenskepnu sem hann sagði að hefði brugðist sér á ögurstundu og kjaftað skammarlegri lostasögu um hann í frú Ingveldi. Frú Ingveldur brást að vonum hart við og refsaði eiginmanni sínum með þungu höfuðhöggi og hann sveif eins og engill langt inn í óminnisgeyminn. Þegar Kolbeinn komst aftur til meðvitundar blasti við honum lögreglukæra, sem runnin var undan rifjum óheiðarlegu kvinnunnar sem brugðist hafði honum á óviðurkvæmilegan hátt.
Nú kemur fram á sjónarsviðið ljóskan Reballa Wilson og grobbar sig af því að hafa sprautað niðurgangi sínum beint ofan í gróinn mel á almannafæri eftir að hafa étið ofan í sig allskyns óþverra. Svona andskotans ómenningarsiðir minna mest á kvenvarginn sem ég sá í sumar á ferð minni um sveitir landsins, en sú gála hafði rifið niðrum sig svo sem eina átta métra frá þjóðveginum í Eyjahreppi og var í óðaönn við að skíta í grasið er ég ók framhjá. Mikið skelfing var þetta óviðeigandi sjón og fráhrindandi. Ekki var heldur géðslegra, að sjá sambýling konu þessarar valhoppa skælbrosandi og haldandi um líf sitt fyrir framan kvendið. Mér er sagt þetta atvik, er ég varð vitni að við þjóðveginn, sé birtingarmynd nútímaaðferðar við saur- og þvaglát.
![]() |
Rebel Wilson kúkaði í garð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.1.2022 | 14:38
Gervivísndastýra veldur uppnámi og skelfingu í sjónvarpssal
Það gat ekki öðruvísi farið; hún er búin að vera; verður að segja sig úr vinnu, með skít og skömm; og skríða ofan í öskutunnuna, aftur á bak með lafandi tungu, eins og skáldið sagði. En það var tími til kominn. Og skemmtilegt til að vita, að það var klámfræðingurinn Siggsdögg sem kvað gervivísindastýruna niður.
Það var víst mörgum ofraun að horfa upp á hegðan gerfivísindastýrunnar úr Borgó hvar hún vóð uppi með svarragang og ódulda kvenvonsku í Kastljósinu í gærkveldi. Hvað eftir annað grætti hinn ruddafengni efrimillistéttarfémínísti kynferðisreglunnar Siggudögg með svigurmælum og fólskuglotti á vör svo Siggadögg hefir nánast verið í stanslausri áfallahjálp síðan. Eftir Kastljósþáttinn var til þess tekið að kynjaði víkingurinn úr Borgarholsskólanum hafi brunað út eins og skriðdreki og blár logi hafi staðið hvæsandi aftan úr honum.
Þá væri fróðlegt að vita hvað orðið hefir af stjórnanda þáttarins, því hann hefir ekki sést síðan þættinum lauk í gærkveldi. Starfsfólk Ríkisútvarpsins eru ekki á einu máli um afdrif stjórnandans. Sumir, og þeir eru fleiri, sem telja að hann hafi orðið undir skriðdrekanum, sem hafi afmáð hann af yfirborði jarðar, en þeir bjartsýnari vona að hann hafi læst sig inni á einu af fjölmörgum náðhúsum útvarpshússins og sé ekki væntanlegur þaðan út í bráð. En hvað sem þessu öllu líður, þá er ljóst að finna verðu ráð við kynjuðum gervivísindastýrum og koma í veg fyrir að slíkt fólk leggi ekki allt í rúst þar sem það drepur niður fæti.
![]() |
Hanna Björg biðst afsökunar á framkomu sinni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Loksins kemur þó ein góð frétt innan um alla neikvæðnina og subbuskapinn sem fréttamiðlarnir bjóða yfirleitt upp á. Hún Sólveig okkar Anna ætlar sem sé að láta slag standa og býðst til, þar sem frá var horfið, að berjast í fylkingarbrjósti fyrir reykvískan verkalýð. Hún sá eflaust fljótt, hver mistök það voru hjá henni að segja af sér formennsku síðastliðið haust og ganga á dyr með hurðaskellum sem glumdu við um land allt.
Eflaust fagnar allt verkafólk í Eflingu ákvörðun Sólveigar og hún mun, ef að líkum lætur, vinna stórsigur í stjórnarkosningunni sem fram fer 15. febrúar næstkomandi. Já, stórsigur verður það, því ekki er beint trúlegt að Eflingarfólk vilji endurvekja dauðamókið frá Bessasonartímabilinu. Það er því mikið tilhlökkunarefni að sjá Sólveigu Önnu taka aftur við stjórnartaumunum og hjóla endurnærða til sálar og líkama í auðvalds- og arðræningjastóðið og taka á því eins og nauðsyn krefur. Það má svo sem vel vera að kontóristasöfnuðurinn á skrifstofu Eflingar sé nú þegar farinn að þylja bænirnar sínar og biðja Mammón, atvinnurekendur og Sjálfstæðisflokkinn að bjarga sér. En skrifstofulýðurinn er ekki Efling, hann deilir ekki einusinni kjörum með verkafólkinu í félaginu og þar gerir Sólveig sér fullkomlega grein fyrir, og hún fer ekki héðan af að eyða tíma sínum og kröftum í aukaatriði eins og stærilátar og grimmar skrifstofublækur.
Nú, það kemur hvergi fram svo ég viti í framboðstilkynningu Sólveigar Önnu, að hún hafi Viðar Þorsteinsson ,,framkvæmdasjór" lengur með í farteskinu og er það góðs viti; fátækt og vinnulúið verkafólk þarf ekkert á þessháttar Raspútín að halda við stjórnun félagsins. Þannig að þegar á allt er litið, er ekkert fyrir Sólveigu Önnu og reykvíska alþýðu en að bretta upp ermarnar og hefja árangursríka kosningabaráttu stefna á ekki minni stórsigur en síðast þegar Sólveig var kosin formaður Eflingar með fáheyrðum yfirburðum.
![]() |
Sólveig Anna býður sig fram til formanns Eflingar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.1.2022 | 21:21
Kompásskekkja kynjavillufémínístana
Það er aldeilis uppi typpið á hinum fémínísku kynvillufræðingum þessa dagana. Viku eftir viku flytja svokallaðir fjölmiðlar fregnir af afbrigðilegu kynferðisþvogli örvasa kérlínga, sem virðast kynóðar miðað við áhuga þeirra á að klæmast öllum stundum yfir alþjóð. Í eyrum venjulegs íslensks alþýðufólks hljóma klám- og kynvilluræður þessa aumingja fólks eins og óráðshjal vitfirringa, sem vaga fram og aftur um vitfirringahælið með kynfærin í lúkunum.
Mér verður oft hugsað til Flosa heitins Ólafssonar þessi dægrin, því hann kemur alltaf upp í hugann í hverst skipti sem ég sé eða heyri kynvillu-urr klámkerlingafressanna, klerklegan vandlætingartóninn í þeim, hræsnina og ýlduþrungna skinhelgina. Eflaust trúa þessi hvimleiðu fress, að þau séu heilagrar náttúru og lágkúrulegt skipbrot sálarlífa þeirra sé frá Guði sjálfum komið. Ofan í allan þennan óþrifajafning eru kérlíngarfressin sannarlega yfirnáttúrulega leiðinlegar, svo sem tilheyrir sjúkdómi þeirra. Ef einhver er svo illa settur að vita hvorki upp né niður í kynjaþokunni eftir að hafa hlustað yfir sig á kynbilunina og vaðalinn, sem rennur viðstöðulaust upp úr klámfressunum, þá bendi ég þeim hinum sama að nálgast rit Flosa Ólafssonar, ,,Í Kvosinni" og lesa sér þar til gagns um uppáferðir og dodofræði til að leiðrétta kynferðiskompásinn sinn.
Það sér auðvitað hvur maður að svona getur þetta ekki gengið lengur og er nú mál að linni og væri gott ef góðgjörðafélög tækju að sér að leiða kynjavillu- og klámfressin í líknandi meðferð hjá brjóstgóðum sérfræðingum. Þá eru þjóðskáldin okkar mörg komin í viðbragðsstöðu, þess albúin að gjöra sitt til að kveða óværuna niður og leiðrétta villuna sem fressin hafa leitt yfir landið. Í dag frumorti einn af okkar bragvísustu ljúflingum á akri skáldskaparins, Hallgrímur Jónasson frá Rúðum, ljóð í tilefni atgangs hinna óðu og kynjuðu efrimilliséttarfémínísta, sem komir eru með kynfærastöppu í heila stað. En sú ljóðræna hljóðar svo í Drotins nafni, ef ég man hana rétt:
,,Nú kvöldar að í kynferðisvilltu landi,
og karlarnir skríða eins og pöddur í sín ból.
En kérlíngar þeirra sveifla yfir höfðum sér koppum með hlandi
og klæmast eins naut á Landeyjasandi
og klippa loks undan mönnunum öll þeirra tól ...
færa þá í kjól,
stilla þeim upp á stól
svo sjái þá konur og fjandi" ...
![]() |
Skiptar skoðanir á fræðslu um kyrkingar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.1.2022 | 14:04
Sönn frásögn af ofbeldisfullu fjallaleiðsögusvíni
Sama er að segja af frú Ingveldi í hennar fræknu fjallaferðum með öðru fólki, en í þeim hefir hún einlægt verið leiðsögumaðurinn og leikið listir sínar sem sá obbeldisfantur og ójafnaðarkona, sem sumir meina að hún sé. Fyrst þegar fréttir fóru að berast af fjallaterrór frú Ingveldar, sögðu flestir að þær væru lýgi tóm, öfundarnagg og þvættingur, aungin kona beitti aðra obbeldi, hvorki kynferðislegu né öðru. Var farið mjög hljótt með þessar fregnir, enda löngum mikil virðing borin fyrir frú Ingveldi og gjörðum hennar.
Svo birti eitthvert skítablaðið óþverraklausu, þess efnis að frú Ingveldur hefði gripið um hreðjar ónefnds manns í fjallaferð og snúið þær hér um bil af honum, draslið átti að hafa hangið á einni taug, eða kannski tveimur. Hins vegar lagði aunginn í þá fyrirsjáanlegu mannraun að staðfesta umrædda frásögn og því til áréttingar kom frú Ingveldur í heimsókn á ritstjórnarskrifstofu skítablaðsins og og hafði endaskipti á ritstjóranum og lét hann éta söguburðinn ofan í sig eins og skít úr magaveikum hundi. Varð svo allt hljótt um hríð og fór frú Ingveldur margar ferðir til fjalla með vini sína og kunningja, en hún hefir aldrei sporlöt verið og mikið fyrir holla útivist og hreyfingu.
Svo fór hún með vinina í fjallaskokk á Fjallabaksleið eystri, en þar eru skemmtilegar hæðir og ásar og fjallaskörð og ágætir og velklífandi tindar. Með í för var séra Atgeir p. Fjallabakssen, en hann á ætt sína að rekja til Fjallabaksleiðar eystri, en þar var langalangafi hans útilegumaður og langalangamma hans líka. Einnig voru þau Máría Borgargagn, Indriði Handreður á nærbuxunum, Vondalyktin og fleiri stórmenni, en aumingja Kolbeinn, eiginmaður frú Ingveldar, rak lestina, haltur og skakkur með áverka á andliti og hálffullur í þokkabót. Í þessari ferð gjörðist það svo sem sagt, að Borgargagnið fór að stíga í vænginn við séra Atgeir p. Fjallabakssen og varð blessaður guðsmaðurinn hvumpinn við hina kynferðislegu áreitni og kallaði á hjálp. Að bragði brást frú Ingveldur snart við og skakkaði leikinn með því að læsa krumlu sinni um þann stað á Borgargagninu þar sem hreðjar hanga á bölvuðu karlkyninu og herti að svo um munaði. Máría Borgargagn skrækti upp eins og vargfugl og spriklaði og viðhafði hrottafenginn munnsöfnum, sem varð til þess að frú Ingveldur herti enn semíhreðjatak sitt þar til að henni tókst að píkusprengja vinkonu sína. Auðvitað hljóp Borgargagnið með ófarir sínar í blöðin, kvaðst vera fórnarlamb og stórþolandi kynferðislegs ofbeldisfóla, þ.e. frú Ingveldar, sem hefði neytt yfirburðastöðu sinnar og misnotað sig á einkar óviðfelldinn hátt í augsýn málsmetandi manna, svo sem séra Atgeirs p. Fjallabakssen og friðils síns Indriða Handreðs.
![]() |
Segir frá ofbeldi fjallaleiðsögumanns |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.1.2022 | 18:05
Rótarfúskið og andlegur leiðtogi þess
Í dag eru Rótarfúskarar reglulega Þórðarglaðir. Ástæðan fyrir kæti fúskaranna er að stjórnarformenni SÁÁ varð fyrir nokkrum árum hórnum að bráð og féll í synd. Í gengnum þetta dodovandamál formennisins eygja hinir hámenntuðu besservisserar og fúskarar Rótarinnar nokkra von til að krækja í aura hjá ríkinu til brennivínsmeðferðarstarfa, sem Rótarkerlur segjast vera einstakir sérfræðingar í, eða jafnvel að ríkið taki SÁÁ og færi þeim á silfurfati. Já, þá mundi nú aldeilis renna af lýðnum í hrönnum ef það gerðist, því Rótarfúskarar kunna svarið við áfengisvandamálinu þó þær hafi aldrei sagt neinum frá því.
Á heimili frú Ingveldar og Kolbeins Kolbeinssonar skrifstofustjóra og framsóknarmanns hefir ætíð ríkt frjáls og óheftur alkóhólismi undir yfirskriftunum ,,öl er yfirburða maður" og ,,kókaín er klárasti maður". Þetta starf þeirra hjóna hefir gengið afburðavel og hafa þau útskrifað margann manninn og marga konuna með prófskýrteini upp á að vera mjög hæf til stjórnmála- og forstjórastarfa, sem og fjárafla- og fjárfestavinnu. Burgeisastéttin er enda frú Ingveldi og Kolbeini ævinlega þakklát þeim fyrir óeigingjarnt fræðslu- og frumkvöðlastarf og hvatningu í garð efnilegra fjármálamanna.
Þess ber að geta í þessu sambandi, að frú Ingveldur er einn af stofnfélögum Rótarinnar og hefir margan fyrirlesturinn flutt á Rótarfúsksfundum við gífurlegar undirtektir mættra Rótardósa. Nú, Kolbeinn, eiginmaður frú Ingveldar rótarkonu, fór einusinni sem oftar út af sporinu og gaf sig hórnum á vald. Þegar þetta gerist kemur Kolbeinn stundum fáklæddur og skríðandi heim og þá kallar frú Ingveldur í vinstúlkur sínar úr Rótarfélaginu og býður þeim að horfa á þegar hún refsar Kolbeini fyrir ólifnað sinn og glæpi. En kalrdjöfullinn vill ekki betrast þó svo Rótarkvinnur hafi marg reynt við hann, heldur snöri hann eitt sinn blaðinu við og kærði kerlurnar fyrir ofbeldi og vann málið gegn þeim. Já, vinir mínir, spillingin er víða og Kleppur er víða, við skulum ekki forakta það.
![]() |
Brot Einars nöturleg valdamisnotkun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.1.2022 | 13:53
Hann hefir nokkrum sinnum farið mannavillt líka
Ekki er það alveg nýtt að lögreglan fari mannavillt. Þetta hefir komið oftar einusinni fyrir hjá Hálfdáni Varðstjóra. Eitt sinn, þegar hann var að leita að alræmdum kynferðisbrotamanna tók hann mann nokkurn fastann og sýndi honum í tvo tvo heimana og rúmlega það. Hinn ólánssami náungi hafi svo sem ekki meira til sakar unnið en að Hálfdáni grunaði eiginkonu sína um að halda við hann. Og svo mikið er víst að manngarmurinn hefir ekki getað gagnast kvenmanni eftir hinar föðurlegu meðferð Hálfdáns Varðstjóra á honum.
Í annað sinn fór Hálfdán ekki einungis mannavillt heldur og húsvillt líka og réðst til inngöngu hjá blásaklausu fólki og sópaði allri fjölskyldunni og hundinum líka í dýflissuna. Ekki lét Varðstjórinn alveg við sitja að fangelsa fjölskylduna, heldur fengu þau öll að kynnast píningarbekknum hjá honum; það voru mikil öskur og óhljóð, en fjölskylda þessi samanstóð af hjónum og tveim dætrum þeirra og syni, auk hundsins. Hinsvegar játuðu hjónin og börn þeirra á sig ýmiskonar stórglæp meðan gengu gegnum dagskrána á píningarbekknum, sem Hálfdán kallar alltaf sannleiksbekkinn. Hjónin sitja enn þann dag í steininum vegna játninganna, en börnin voru send á vandræðabarnaheimili og hefir lítið til þeirra spurst síðan, en Hálfdán gerir ráð fyrir og hefir sagt það sjálfur, að krakkaskrattarnir verði ugglaust góðkunningjar lögreglunnar um leið og þau losna af hælinu.
Í þriðja lagi fór Hálfdán kynjavillt en ekki manna, þegar hann kom með handjárnin hringlandi og kylfuna á lofti inn um gluggann hjá frú nokkurri. Hann grunaði manninn í næsta húsi um græsku og hugðist kenna honum faðirvorið með nýrri og endurbættri aðferð. Nú, frúin, sem Hálfdán heimsókti í misgripum, varð æf við heimsóknina og kastaði stóreflis blómavasa í höfuðið á Varðstjóranum. Þetta hefði kérlíngarboran ekki átt að láta eftir sér, því Hálfdán brást illa við sendingunni og lagði íbúð konunnar í rúst og hana líka. Svo fór hann með hana niður á stöð og kærði hana fyrir líkamsárás, ofbeldi gegn sér og valdsstjórninni, og hún var dæmd ótæpilegrar og viðeigandi refsingar af Hæstarétti og var mál þetta þar með úr sögunni.
![]() |
Lögreglan fór mannavillt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu færslur
- Í því ungdæmi vildi æskulýðurinn samræði frekar en samráð
- Jegeravdelingen i Norges Blindeforbund með lásboga í Haukadalsá
- Brátt verður hin fræga, en skilvirka, rassskellingavél Jón Læ...
- Konunglegur pervertus og sexúalkrimínali gjörir sig gildandi ...
- Náfrændum Kolbeins og Vondulyktarinnar sparkað út í Stafangri
- Fáránlegur ferill hennar hefir tekið á sig draugslega mynd óh...
- Hann missti kerrunan með þremur hrossum niður í djúpt og brat...
- ,,Ef að illar vættir inn um myrkragættir bjóða svikasættir sv...
- Það er versti misskilningur að hún sé kölluð Togga
- Þekktir menn og ein kona í stjórnum KR og Vals láta til sín t...
Bloggvinir
-
Níels A. Ársælsson.
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Sveinn Elías Hansson
-
Guðbergur Egill Eyjólfsson
-
Þórbergur Torfason
-
Guðfríður Lilja
-
Rafn Gíslason
-
Ragnar Þór Ingólfsson
-
Bjarki Steingrímsson
-
Pálmi Gunnarsson
-
Grétar Mar Jónsson
-
Ásdís Helga Jóhannesdóttir
-
Rúnar Sveinbjörnsson
-
Þorvaldur Þorvaldsson
-
Rauður vettvangur
-
Björgvin R. Leifsson
-
Ingibjörg Friðriksdóttir
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Einar Ólafsson
-
Baldur Hermannsson
-
Dætur og synir Íslands.
-
hilmar jónsson
-
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
-
Þórdís Bára Hannesdóttir
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Hulda Haraldsdóttir
-
Óskar Helgi Helgason
-
Heiða Þórðar
-
Helgi Guðmundsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Baldur Fjölnisson
-
Birgitta Jónsdóttir
-
Ísleifur Egill Hjaltason
-
Reynir Andri
-
Rúnar Karvel Guðmundsson
-
Þráinn Jökull Elísson
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Auðun Gíslason
-
Jón Snæbjörnsson
-
Rannveig H
-
Magnús Jónsson
-
Steingrímur Helgason
-
Hallgrímur Guðmundsson
-
Ársæll Níelsson
-
Brynja Hjaltadóttir
-
Fríða Eyland
-
Þorsteinn Valur Baldvinsson
-
Ólafur Þórðarson
-
Eygló Sara
-
Lúðvík Lúðvíksson
-
Þorsteinn Briem
-
Ester Júlía
-
Svava frá Strandbergi
-
Björn Grétar Sveinsson
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Sigurbjörn Friðriksson
-
Ragnar Páll Ólafsson
-
Páll Ingi Kvaran
-
Jakob Jörunds Jónsson
-
Friðrik Hansen Guðmundsson
-
Þorkell Sigurjónsson
-
Jóhann Elíasson
-
Óskar Arnórsson
-
Bergur Thorberg
-
Gísli Bergsveinn Ívarsson
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Eyjólfur Jónsson
-
gudni.is
-
Sigurður Sigurðsson
-
Alma Lísa Jóhannsdóttir
-
Alfreð Símonarson
-
Guðni Ólason
-
ThoR-E
-
Arnar Guðmundsson
-
Þór Jóhannesson
-
Georg P Sveinbjörnsson
-
Himmalingur
-
Guðjón Baldursson
-
halkatla
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Einar Sigurjón Oddsson
-
Haukur Nikulásson
-
Félag Ungra Frjálslyndra
-
Heiða
-
Jakob Falur Kristinsson
-
Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
-
Steingrímur Ólafsson
-
Magnús Þór Hafsteinsson
-
Sigurbjörn Svavarsson
-
Landrover
-
Valla
-
Vilmundur Aðalsteinn Árnason
-
Vefritid
-
Sigríður B Sigurðardóttir
-
Ónefnd
-
Óskar Þ. G. Eiríksson
-
Þórarinn Eldjárn
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Jón Ragnar Björnsson
-
Hlédís
-
Einar B Bragason
-
Þorsteinn Helgi Steinarsson
-
Árni Karl Ellertsson
-
Hamarinn
-
Hamarinn
-
Helgi Þór Gunnarsson
-
Hörður B Hjartarson
-
Jack Daniel's
-
Jón Bjarnason
-
Kristján Jón Sveinbjörnsson
-
Kristján P. Gudmundsson
-
Linda
-
Rauða Ljónið
-
Sigurður Haraldsson
-
Sóldís Fjóla Karlsdóttir
-
Tryggvi Gunnar Hansen
-
Vináttufélag Íslands og Kúbu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (27.8.): 19
- Sl. sólarhring: 21
- Sl. viku: 239
- Frá upphafi: 1553335
Annað
- Innlit í dag: 19
- Innlit sl. viku: 213
- Gestir í dag: 19
- IP-tölur í dag: 16
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Ágúst 2025
- Júlí 2025
- Júní 2025
- Maí 2025
- Apríl 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Nóvember 2012
- Júlí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007