Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
Það duga nú aungin svona skítatrikk hjá hugsjóna og meiningafátækum lukkuriddurum sem hafa það eitt að stefnuskrá að krækja sér í vellaunaða innivinnu þar sem ekkert verður á sig reynt nema að sleikja sér upp við ruglaða kontórista og svo auðvitað auðvaldið. Nei, drengir mínir, nú duga aungin bölvuð drullutrix, því Sólveig Anna Jónsdóttir bíður í startholunum með fríðan flokk að baki og mun eyða lukkuriddurunum, sem girnast að komast á peninga verkafólks hjá Eflingu til að komast á ráðherralaun, svo gersamlega að aldrei mun sjást tangur né tetur af þeim á verkalýðsakrinum meir.
Þetta er auðvitað allt gott og blessar, því Sólveig Anna er langbesti formannskandídatinn, sem verkafólk í Eflingu hefir völ á. Hins vegar, óttast margir að hún hafi þann arma þræl, Amríku-Vidda enn í eftirdragi og hyggist hola honum aftur niður á meðal hinna vemmilegu og ofurviðkvæmu kontórista á Eflingarskrifstofunni. Það gæti orðið banabiti Sólveigar Önnu að hafa Amríku-Vidda með sér, aftur á móti eru henni allir vegir færir ef hún skilur Viddann eftir heima, eða hreinlega treður honum ofan í ruslatunnuna, en þar færi honum svo ljómandi vel að eiga heima.
Það voru auðvitað mikil mistök hjá Sólveigu að hlaupast á brott síðastliðið haust, að því er sagt er út af skrifstofusjakölum og möppukvikindum á skrifstofu Eflingar og karluglunni honum Gvöndi á gröfunni, enda ganga verkalýðsfélög út á annað og meira en skrifstofuhald og þessháttar aukaatriði. Og erindi Sólveigar Önnu í formannsstólinn aftur er mjög brýnt, því sjálfstæði verkalýðshreyfingar á Íslandi er í húfi; það leikur sterkur grunur á, að lukkuriddararnir Ólöf Helga, Agníéska og Gröfu-Gvöndur séu leiksoppar myrkra afla sem vinna að því að eyðileggja stéttabaráttu íslensks verkafólks með SALEK-óþverranum, sem á upptök sín hjá burgeisastéttinni, auðvaldinu og nokkrum svikulum ,,verkalýðsforingjum" sem seilst hafa til valda fölskum forsendum, miður velviljuðum verkalýðnum. Af þessari ástæðu og mörgum öðrum til viðbótar, verður Sólveig Anna að koma aftur til starfa sem formaður Eflingar og gjörsigra lukkuriddaraframboðin, eins og hún sigraði arftaka Sigurðar Bessasonar og lagði það ofurdofna svefnveldi í rúst. Áfram svo allir verkamenn og verkakonur Eflingar styðjið Sólveigu Önnu til formanns aftur!
![]() |
Trúnaðarráðið samþykkir lista sem Ólöf leiðir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.1.2022 | 18:27
Swandeesý hefir aungvan áhuga á góðverkum við trillukarla
Auðvitað hefir Swandeesý Swabbós ekki minnsta áhuga á að gjöra gælur við einhverja helvíska trillukarla, þeir eru ekki hennar samherjar. Alvöru sægreifar eru hennar samherjar og þeir stjórna henni eins og spiladós. Gamli Swabbó, faðir Swandeesý var mikill kvótakarl frá upphafi kvótakerfis, samþykkti kerfið í upphafi síðan framsalið og þannig áfram. Hið sama var Stennrimur Johoð og fylgdi læriföður sínum í því sem öðru. Ekki hefir annað komið fram en að Swamdeesý væri samskonar kvótalingur og faðir hennar og Stenngrimur. Þetta fólk, ásamt afgangnum af Flokkseigendafélagi VG, hefir frá upphafi kvóta í sjávarútvegi verið dyggir samherjar Samherjanna, enda eru téðir flokkseigendur lítt við alþýðuskap, borgaralegir sem þeir eru í eðli sínu og hallir undir músarholusjónarmið.
Þegar þessar staðreynir eru hafðar í huga, þá er best fyrir trillukarla að gera sér grein fyrir að núverandi kvótamálaráðherra hefir mun minni samúð með þeim og enn minna álit á þeim en hvurri annarri hvimleiðri nagdýraplágu í holræsum Lundúnaborgar. En hún mun vera tryggur samherji Samherjanna og þar með nýfrjálshyggjunnar, stórkapítalismans, auðvaldsins, arðræningjanna og NATO. Húrrei, húrrei, húrrei for the CIA!Hins vegar er þeir margir, sem velta fyrir sér þeirri bíræfni Swandeesý og Flokkeigendafélagsins að stela Vinstrihreyfingunni grænu framboði og gera hana að ósvífunum og hugsjónalausum hægriflokki. Upp á síðkastið hefir þeim röddum fjölgað mjög, sem krefjast þess að Swandeesý, Katrín, Stenngrimu, Álfheiður og aftaníossar þeirra skili bæði ,,vinstri" og ,,grænu" úr nafninu á flokkum og láti hinn óheilaga og svikula félagsskap sinn bera hér eftir nafnið ,,Hreyfing framboð", skammstafað og bínefnt HF, því það er óhæfa að samherjar burgeisastéttarinnar og óhrein kolarassgöt skreyti sig með vinstri og grænum nafngiftum. Þar að auki er tímabært að kíkja inn í höfuðið á Flokkseigendafélaginu og gæta að hvort siðblinda, eðlislægur óheiðarleiki og borgarlegur snobbismus séu í þar í stórum stíl millum eyrnanna á óvættinni.
![]() |
Svandís hyggst ekki auka strandveiðikvóta |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Það gæti nú orðið grátt gaman að dreifa ösku ókunnugs fólks hér og þar út um hvippinn og hvappinn. Það er ég hræddur um. Fyrir tíu árum síðan var komið með gamla kérlíngu í dollu og henni dreift um lóðir í Þingholtunum að undirlagi frú Ingveldar. Svo sem klukkustund síðar kastaði einn íbúi hverfisins af sér vatni yfir eitthvað af kérlíngunni án þess að hafa hugmynd um öskudreifinguna. Þetta varð til þess að kérlíngarvargurinn gekk aftur af fádæma krafti og elju. Eitt hið fyrsta sem henni tókst var að leggja til nakins harðkvænts manns, sem lá í hjónarúminu og gjörði gælur frú sína heitfenga og fjöruga, með kústskapti og skaðaði hann á afturenda. En þetta var aðeins fyrsta vers bölvaðrar kérlíngartæfunnar, því hún átti eftir að velgja íbúum Þingholtanna illilega undir uggum áður en hún var kveðin niður.
Í annað skipti var dreift ösku norsks óbótamanns kringum barnaskólann á Stað. Eins og við manninn mælt þakkað drjólinn dreifinguna með því að gjörast illvíg afturganga. Aðfarir draugsins þóktu ónærgætnar, siðvilltar og djöfullegar svo ítrekað keyrði fram úr hófi. Það var ekki fyrr en síra Baldvin var kvaddur á vettvang að skelfingarástandinu í barnaskólanum linnti, en þá hafði vomurinn króað roskna kennslukonu af í skoti við skólann og svipt hana klæðum og látið sérlega óviðurkvæmilega við hana. Þegar síra Baldvin hafði sent drauginn til Helvítis lét hann skipta um jarðveg, niður á rúmlega métérs dýpi, og var gamla jarðveginum keyrt í beinaverksmiðjuna og honum rennt gegnum eldhólfin með tilheyrandi braki og sprengingum.
Af þessum ófélegu tveimur dæmum getur hvur maður séð að dreifing framliðinna út um allar þorpagrundir er vægast sagt mikið hættuspil, sem getur auðveldlega riðið borgarhverfum, þorpum, stofnunum og sveitum að fullu. Eftir draugaganginn í og við skólann á Stað reyndur yfir helmingur kennara og nemenda varanlega geggjaðir, en hinn helmingurinn lagðist í drykkjuskap, kynlíf og afbrot og fór í hundana. En í Þingholtunum eru fjölmargir íbúanna svo fullir skelfingar að þeir hafa viðað að sér skotvopnum, sem þeir rífa skjálfandi fram í hvert skipti er þeir sjá gamla kérlíngu nálgast hús sitt.
![]() |
Vildu dreifa ösku við Sólfarið og Norræna húsið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.1.2022 | 16:43
Arnarnessaðallinn fagnar komu Beggó og starfsmanns Sjálfstæðisflokksins
Það er áreiðanlega ekki ónýtt fyrir Arnarnessaðallinn að fá Beggó skrokk af Klaustri í samfélagið hjá sér á þar á nesinu. Beggó hefir nú komið sér upp innvígðri telpu úr Sjálfstæðisflokknum, sem er ótvírætt til bóta, og eru honum nú allir vegir færir. Leiðin ligg aðeins upp úr þessu. Beggó er í þokkabót rakinn platþingmaður, óekta og falsaður, þar eð talningin í kjördæminu sem hann bauð sig fram í var undirlögð svindilbraski og ómarktæk með öllu. Nú þarf Beggó aðeins að fullkomna framkomu sína og upphefð með því að ganga í Sjálfstæðisflokkinn og skilja Sigmund Davíð eftir einan í eyðimörkinni, en Klaustrið hrunið og hvíta merin dauð og allir á bak og burt.
Nú, hinum vaxandi júnkjæra og klausturstrák nægir auðvitað ekkert minna en höll til að búa í með þessum væna starfsmanni Sjálfstæðisflokksins sem hann hefir tekið sér til ektakærustu. Beggó þarf sitt pláss til að geta skrokkast og þylja upp langar bænir um Báru með hlustunarduflið, Albertínu, bæjarstjórafraukuna í Vestmannaeyjum, Alfredósínu, frú Sæland og fleiri vafasama heiðingja. Ef einhvern tíma hefir verið ástæða til að gleðjast, þá er það núna efir sí-bólgnandi veraldargengi Beggó skrokks og ekkiþingmanns af Klaustri.Vart þarf að taka fram, að Beggó og ungfrú Ketilsson starfsmaður Sjálfstæðisflokksins kynntust og náðu tengslum í helgarsamkvæmi að heimili frú Ingveldar og Kolbeins Kolbeinssonar. Fór samdráttur þeirra fram undir handleiðslu frú Ingveldar, en hún er sérfræðingur í að lesa saman ólánssama drengi sem villst hafa um skeið frá Sjálfstæðisflokknum og innvígðar telpur í Valhallarhelgidómnum. Allt gekk það afar virðulega fyrir sig, Beggó var bljúgur og undirgefinn en starfstúlkan úr Íhaldsfjósinu full af framhleypni, humaráti og nýmóðins Sjálfstæðisflokksgalsa. Svona eru nú kjörunum á Sjálfstæðisflokksakrinum misskipt, á meðan Beggó siglir hraðbyri upp innan burgeisastéttarinnar mega ástúðlegir pilta á borð við þá A. Edward, L. Bergmann, og A. Grant sæta því að vera sparkað niður í neðstu myrkur eins og hvurjum öðrum sóðalegum, halaklipptum og ósiðlegum skítahundum.
![]() |
Bergþór og Laufey keyptu glæsihús í Arnarnesi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
11.1.2022 | 13:12
Mynd til háðungar,- eða eru þau bara svona?
Mikið ofboðslega er þetta skelfileg mynd af honum Wíllúm og henni frú Jakobsson. Mætti halda að myndbirtingin atarna sé hugsuð í háðungarskyni við þessar sælu yfirstéttartilkomur. Sannast sagna er aungvu líkara, eftir myndinni að dæma, að þau Wíllúm og frú Jakobsson séu margvelktir rónar í strætinu, útgangshjú sem stundað hafi sleitulausan drukk í árafjöld. Nú fara eldri konur og hneykslunargjarnir karla að hugsa sem svo þegar þau virða myndina fyrir sér, hvort verið geti að í ríkisstjórninni sitji upp til hópa rónalýður, óráðssíufólk og trúðar.
Nú, ef staðan á Wíllúm og frú Jakobsson er á þá leið sem myndin af þeim gefur til kynna verður að grípa til félagslegra aðgerða, koma þeim á viðeigandi hæli og svo framvegis. Sannast nú að illa er aflagt óreglumannaheimilið í Gunnarsholti. En máske getur Hjálparstofnun kirkjunnar eða Hjálpræðisherinn skotið skjólshúsi yfir hina aðalbornu útigangsróna, sem virðast hafa haldið til í rennusteininum lengur en elstu menn muna; kannski eru þau búin að vera að síðan Guðmundur Fjósarauður og Stenngrimur Fjósarauður voru á dögum og hafa því marga flöskuna sopið.
Svo má vera að hjúin hafi myndast heldur illa og því óþarfi að hafa uppi hugrenningatengsl um myndina við rónalíferni og götuhark. En hér verður að rannsaka. Það gengur til dæmis ekki hjá gömlu siðbrengluðu Framsóknarmaddömunni að senda til ráðherradóms húskarl úr Fjósi sínu sem ber með sér yfirbragð útigangsmanns sem sefur að jafnaði fúnum smábátum á hvolfi úti í Efferisey. Ekki þykir heldur til fyrirmyndar af hálfu Stenngrims Fjósarauðs að bjóða þjóðinni upp á annað eins skúffelsi og frú Jakobsson, sem aldeilis er veðruð og vindblásin á myndinni sem hér er til umræðu.
![]() |
Áfram 20 manna fjöldatakmörk |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
10.1.2022 | 19:30
Voru eftirmenn Kambsránsmanna að verki í Kópavogi í dag?
Þessi atburður þarna í Kópavogi minnir óneitanlega á Kambsránið sællar minningar. Það er fallegt að enn séu til ræningjar sem eru þjóðlegir að halda í gamla þætti, sem að gagni komu þegar ráðist var í auðgunarbrot. Þó vantar upp á við innbrotið í Kópavogi, að þar var hinn rændi aðeins einn heima, en á Kambi voru auk bóndans, tvær griðkonur og krakki þegar þá Sigurð Gottsvinsson bar að garði. Þá segir í fréttinni að Kópavogsræningjarnir hafi bundið húsbóndann niður, en ekkert um að þeir hafi velt yfir hann dýnum, sængum rúmum, teppum, pottum og pönnum eins og gert var á Kambi, en það setti verulega skemmtilegan blæ á ránið.
Svo má vera að þjófarnir í Kópavogi séu ekki eins þjóðlegir og í fyrstu var talið. Uppi er til dæmis sannverðugur orðrómur í þá veru, að þarna hafi einungis verið verki illa greindir nýfrjálshyggjudrengir, ungir menn vart komnir úr Heimdallsstuttbuxunum. Ennfremur, að viðkomandi séu innvígðir og þekki kynlæga heitapottamenn. Þegar allt kemur til alls, þá verðum vér að bíða enn um hríð eftir góðu ráni að hætti Kambsránsmanna. Þessir drengandskotar þarna í Kópavogi eru greinilega bölvaðir fúskarar, alsendis ólistrænir og illa þefjandi subbur.
Fyrir nokkrum árum frömdu þeir Brynjar Vondalykt og Indriði Handreður býsna þekkilegt innbrot. Það fór fram að næturþeli. Þeir vóðu sem berserkir inn hjá leynivínsalanum Tómasi Jónssyni, tóku hann og kérlíngu hanna og tjóðruðu þau saman með haus við tær. Einnig bundu þeir griðkonuna Karítas, sem þeir fundu liggjandi í stofusófa og tjóðruðu hana við hjónin. Síðan helltu þeir öllu því hveiti og sykri sem þeir fundu á heimilinu, ásmat kryddi, tómatsósu og sinnepi, yfir hin bundnu áður en þeir fergðu þau með fjölmörgum rúmdýnum. Að svo búnu hæfðu þeir á brott með þér þrjár flöskur brennivíns og einn stauk af díazepami. Takið eftir því, að Vondalyktin og Handreðurinn létu ekki græðgi ráða för þegar þeir létu greipar sópa og mættu margir af því læra og hafa að fordæmi.
![]() |
Réðust inn í íbúð og bundu húsráðanda niður |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.1.2022 | 17:33
Hvað er samanvið jurtadrukkin Teyg?
Meira að segja gömlu Framsóknarmaddömunni er nóg boðið. Hún vill ekkert með nafn hr. A. Grant hafa nálægt sinni framleiðslu og þar með var honum sparkað kröftuglega niður í ystu myrkur til vinar síns, hr. A. Edwald, sem bændur með fulltingi Framsóknarmaddömunnar sturtuðu niður í gær. Nú er sjá hvort sú gamla getur gert eitthvað fyrir hr. L. Bergmann og hina gemlingana. En það er ljóst að það á eftir að fjölga all verulega á perradónadeildinni hjá hjá gamla Pokurnum í Neðsta-Víti.
Svo er það þessi ,,jurtaprótíndrukkur" sem Framsóknarmaddaman skipaði gifturíka kaupfélagsstjóranum á Sauðárkróki að hella í klóakið. Veit nokkur hvaða slums og gums er í þeim vökva. Það hefir þó ekki verið brúkað pervertagraðmeðal saman við jurtirnar? Vér getum ekki afskrifað það. Það verður að rannsaka hvernig fólki hefir orðið af þessum bölvuðum Teyg. Það hefir svo sem ekki legið alveg í láginni, að sumir neytendur Teygs hafa orðið alveg snar, fengið sjúklega áráttu fyrir að hlaupa berrassaðir í heita potta í tíma og ótíma og farið að hnusa af rassborum eins og dónalegir flækingshundar.
Versta tilfellið sem spurnir eru af er þó þegar Teygur var á borðum á þingflokksfundi Framsóknar. Það sem gjörðist í kjölfarið er vissuleg óbirtingarhæft af siðsemisökum. Að blanda pervertagraðmeðali í jurtadrukk er auðvitað mikið alvarlegra og meira mál en þegar verksmiðjustrákar hrækja og snýta sér í sósuflöskur og niðursuðudollur áður en þeim er lokað. Á heimili frú Ingveldar og Kolbeins Kolbeinssonar hefir ríkt verkfall og lömun síðan Grant, Bergmann og Edwald vóru afhjúpaðir. Þetta eru drengir sem lengi hafa verið fastagestir í helgarsamkvæmum hinna frægu hjóna og hafa numið margan fróðleik við fótskör frú Ingveldar. Nú er skarð fyrir skildi sem ekki verður auðfyllt og grátkjökur þeirra hjóna og Máríu Borgargagns er hjartaskerandi og sálardrepandi. Munið bara, að bergja ekki á pervertadrukknum Teyg ef hann skyldi verða á vegi ukkar.
![]() |
Slíta samstarfi við Arnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
10.1.2022 | 13:22
Skelfilegt dómgreindarleysi á hæsta stigi
Alveg er skelfilegt að verða vitni að fyrirliggjandi dómgreindarleysi á hæsta stigi hjá fullorðnum og fullfrískum einstaklingum, sem kemur fram í þeim kostulega fáránleika að ,,sækjast eftir að leiða lista VG". Þetta er svo hörmulegt og um leið hlálegt að aungvu tali tekur. Í dag berast okkur fréttir af minnst tveimur konum fyrir norðan land sem ætla að slást um að fá að sitja í efsta sæti hins úrkynjaða og hægrivædda undanrennuflokks. Ómögulegt er að ráða í hvað þessum kvinnum, Ásrúnu Ýr og maddömu Ingibjargar Jóseps, gengur til í raun og veru, hvort þær hafa lent í heilaþvottavél einhverra illa gjörðra kjána eða hafa svona ríka þörf til að gjöra sig að fíflum á landsmælikvarða.
Nú hefir komið fram áður, að raunverulegri vinstri menn og umhverfissinnar hafa fullan hug á að taka bæði ,,vinstri" og ,,grænt" af óhræsunum sem stálu VG og gerðu flokkinn að viðundri og óskiljanlegri ýlduslepju. Eftir það lögtak, mun flokkurinn heita Hreyfingin framboð og skammstafað HF. En konunum Ásrúnu Ýr og Ingibjargar Jóseps virðist fyrirmunað að skilja hverskona fíflska er af þeirra hálfu að sækjast eftir að leiða lista fyrir annað eins svikaþý og flokkur Stenngrims, Álfheiðar og Swabbófjölskyldunnar er. Hér verða heilbrigðis- og félagsmálayfirvöld fyrir norðan landa að grípa inn í og leiða þessum illa áttuðu og skoðanalausu konum fyrir sjónir hvaða villugötur þær hafa álpast út á og hyggjast troða. Einnig mætti kanna hvort einhver værðarklerkur fyrirfinnst þar fyrir norðan sem væri opinn fyrir að taka aumingja konurnar til bæna.
Svo eru náttúrlega aðrir, sem eru þannig gjörðir að þeim er andskotans sama þótt tvær konur á Norðurlandi falli fyrir þeirri freistingu að gjöra sig að trúðsfíflum fyrir augum samborgara sinna. Dæmi um vondan mann sem horfir fullur af Þórðargleði og háði á konurnar sem vilja leiða HF, áður VG, er skelmirinn Kolbeinn Kolbeinsson. Hann lét sér sæma, eftir afréttarann í morgun, að konur, já og menn líka, sem ætla að slást eins og hreysikettir um einskisverða vegtyllu hjá óbótagörmunum Stenngimi og hans líkum, eigi ekkert annað skilið en að vera teknar til grandgæfilegar höfuðrannsóknar af bestu vísindamönnum heims. Þetta sagði helvítis gölturinn hann Kolbeinn eftir að hafa harmað fall hr. A. Edwald, hr. L. Bergmann og fleiri máttastólpa Sjálfstæðisflokksins.
![]() |
Ásrún sækist eftir að leiða VG á Akureyri |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þeir voru ekki að tefja tímann með lognmollu og óþarfaþvaðri bændurnir sem eiga Íseyjuna, heldur þrifu vasklega í rassboruna á hr. Edwald og köstuðu honum á skottinu eins og kattaróhræsi langt út á götu. Þar með var umsvifum hins virðulega framkvæmdastjóra og Sjálfsstæðisflokksmanns fyrir skyrjarmsfirmað Ísey lokið fyrir fullt og allt. Sumir telja þetta farsæl málalok, en í Sjálfstæðisflokknum, ekki síst í höfuðstöðvum hans Valhöllu ríkir djúp sorg og óyndi.
Eins og fyrr hefir fram komið rambar Sjálfstæðisflokkurinn á grafarbakkanum, rúinn trausti og orðinn almennt aðhlátursefni út um allt land vegna óviðurkvæmilegra kynóra og losta hinna áferðarfallegu burðarása Flokksins. Á þessari stundu er með öll óraunhæft að ætla að Sjálfstæðisflokkurinn lifi kynferðisskandalinn af, því eftir að Áslaug Arna og fleiri málsmetandi smákvendi flokksins fóru að keppast við að ,,læka" sakleysisupphrópanir dónakarlanna á netinu varð mörgum ljóst að leiknum var lokið, dauðastríð Sjálfstæðisflokksins hafið og Valhöll rústir einar eins og eftir stórskotaliðsárás en Flokkurinn sjálfur skjátan ein í öngviti eftir kynlífsmökkinn sem hann hafnaði í. Við getum verið sátt við það.Þetta gat varla endað öðruvísi. Flokkur sem starfar í anda pervertsisma er ekki hæfur til ásetnings. Nú verða hinir dólgarnir reknir veg allrar veraldar, jafnvel seldir Sigmundi Davíð og Klausturflokknum í hendur. Svo verður haldið uppboð á reytunum sem sá látni, Sjálfstæðisflokkurinn, lætur eftir sig. Þar munu fulltrúar Viðreisnar, Fokks Fólsins, Klausturmann og gamla Framsóknarmaddaman mæta og skiptast á um að bjóða í hina villuráfandi og kynlífssæknu sauði sem Flokkurinn átti áður en hann varð gjaldþrota og deyði eins og rotta milli veggja. Það er þokkalegur andskoti, að láta kynóra, kynvillu og kynjaðar athafnir gjöra sig gjaldþrota og verða loks grafinn á kostnað sveitarinnar. Fyrr má nú vera bölvuð ekkisins úrkynjunin og óeðlið!
![]() |
Ara sagt upp |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 29.1.2022 kl. 19:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
9.1.2022 | 21:49
Þegar sviptivindurinn vóð gegnum húsin og stórskemmdi Fjósið
Enn er í minni svipað áfall sem reið yfir blessað Framsóknarfjósið og viðbyggingar þess hér um árið. Þá tróð hatrammur sviptivindur sér inn í súrheysgryfjuna, hvar flatsæng gömlu og grályndu Framsóknarmaddömunnar er til húsa, í gegnum heyhlöðuna og þaðan fram í Fjós þar sem hann sprengdi máttarviði svo sjálft við lá að Framsóknarfjósið færi á hliðina eða þakið færi af því út í veður og vind. Þetta var sem sé sterkur vindstrengur og gamla Maddaman lá í öngviti í klukkustund eftir bylinn í súrheysgryfjunni. En ráðsmaðurinn lagði á flótta, hljóp á brott úr Fjósinu þá neyðin var stærst.
Daginn eftir sendi Maddaman út neyðarkall og krafðist samskota. Hún vildi gamalt bárujárn, rekadrumba og rafta sem ekki höfðu um árabil verið á sjó dregnir. Gifturíki kaupfélagsstjórinn brást fyrstur við og sendi hlaupastráka sína, fræga kvótaþefara, út í Drangey til að sækja trjábolinn sem varð Gretti Ásmundarsyni að falli um það er lauk. Svo var lappað upp á Framsóknarfjósið; Ásmundur Einar kom með geldingataungur sínar og klippti bárujárnið til meðan Guðni, SigIngi og Alfredónía stóðu á öndinni og klipptu gull. Er viðgerð lauk barði gamla Framsóknarmaddaman ráðsmann sinn með priki og tautaði fyrir munni sér um leið, að það ætlaði að ganga seint að gera mann úr því kvikindi.En þar eð sannast hefir á síðustu dögum, að Sjálfstæðisflokkurinn eigi við ramman kynferðisvanda a stríða og landlægan pervertisma, þá hefir sumum af hinum flokkunum komið til hugar að kanna sína innri kynóra og óeðli. Helst eru það gamla Framsóknarmaddaman og Flokkseigendafélag VG sem hafa nokkurn hug á skoða sín mál. Í VG er til dæmis farið að bera mikið á óeðlislegu náttúruleysi og gelduheilkennum; undanrennufólkið þar ku vera orðið kalt, hart og vökvalaust eins og vindþurrkuð skreið, en þeir gömlu sjúkir af ýldu og úrsörgun. Þetta er alvarlegt mál og kæmi ekki á óvart þókt einhverjir í VG verði fundnir sekir um kynjaða glæpi og villu. Hvað rottuhölunum í Framsóknarfjósinu viðvíkur, þá eru þeir eins og þeir eru eftir áratuga misnotkun Framsóknarmaddömunnar á þeim.
![]() |
Safna bárujárni eftir að hlið fjárhúss fauk |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu færslur
- Í því ungdæmi vildi æskulýðurinn samræði frekar en samráð
- Jegeravdelingen i Norges Blindeforbund með lásboga í Haukadalsá
- Brátt verður hin fræga, en skilvirka, rassskellingavél Jón Læ...
- Konunglegur pervertus og sexúalkrimínali gjörir sig gildandi ...
- Náfrændum Kolbeins og Vondulyktarinnar sparkað út í Stafangri
- Fáránlegur ferill hennar hefir tekið á sig draugslega mynd óh...
- Hann missti kerrunan með þremur hrossum niður í djúpt og brat...
- ,,Ef að illar vættir inn um myrkragættir bjóða svikasættir sv...
- Það er versti misskilningur að hún sé kölluð Togga
- Þekktir menn og ein kona í stjórnum KR og Vals láta til sín t...
Bloggvinir
-
Níels A. Ársælsson.
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Sveinn Elías Hansson
-
Guðbergur Egill Eyjólfsson
-
Þórbergur Torfason
-
Guðfríður Lilja
-
Rafn Gíslason
-
Ragnar Þór Ingólfsson
-
Bjarki Steingrímsson
-
Pálmi Gunnarsson
-
Grétar Mar Jónsson
-
Ásdís Helga Jóhannesdóttir
-
Rúnar Sveinbjörnsson
-
Þorvaldur Þorvaldsson
-
Rauður vettvangur
-
Björgvin R. Leifsson
-
Ingibjörg Friðriksdóttir
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Einar Ólafsson
-
Baldur Hermannsson
-
Dætur og synir Íslands.
-
hilmar jónsson
-
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
-
Þórdís Bára Hannesdóttir
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Hulda Haraldsdóttir
-
Óskar Helgi Helgason
-
Heiða Þórðar
-
Helgi Guðmundsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Baldur Fjölnisson
-
Birgitta Jónsdóttir
-
Ísleifur Egill Hjaltason
-
Reynir Andri
-
Rúnar Karvel Guðmundsson
-
Þráinn Jökull Elísson
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Auðun Gíslason
-
Jón Snæbjörnsson
-
Rannveig H
-
Magnús Jónsson
-
Steingrímur Helgason
-
Hallgrímur Guðmundsson
-
Ársæll Níelsson
-
Brynja Hjaltadóttir
-
Fríða Eyland
-
Þorsteinn Valur Baldvinsson
-
Ólafur Þórðarson
-
Eygló Sara
-
Lúðvík Lúðvíksson
-
Þorsteinn Briem
-
Ester Júlía
-
Svava frá Strandbergi
-
Björn Grétar Sveinsson
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Sigurbjörn Friðriksson
-
Ragnar Páll Ólafsson
-
Páll Ingi Kvaran
-
Jakob Jörunds Jónsson
-
Friðrik Hansen Guðmundsson
-
Þorkell Sigurjónsson
-
Jóhann Elíasson
-
Óskar Arnórsson
-
Bergur Thorberg
-
Gísli Bergsveinn Ívarsson
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Eyjólfur Jónsson
-
gudni.is
-
Sigurður Sigurðsson
-
Alma Lísa Jóhannsdóttir
-
Alfreð Símonarson
-
Guðni Ólason
-
ThoR-E
-
Arnar Guðmundsson
-
Þór Jóhannesson
-
Georg P Sveinbjörnsson
-
Himmalingur
-
Guðjón Baldursson
-
halkatla
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Einar Sigurjón Oddsson
-
Haukur Nikulásson
-
Félag Ungra Frjálslyndra
-
Heiða
-
Jakob Falur Kristinsson
-
Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
-
Steingrímur Ólafsson
-
Magnús Þór Hafsteinsson
-
Sigurbjörn Svavarsson
-
Landrover
-
Valla
-
Vilmundur Aðalsteinn Árnason
-
Vefritid
-
Sigríður B Sigurðardóttir
-
Ónefnd
-
Óskar Þ. G. Eiríksson
-
Þórarinn Eldjárn
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Jón Ragnar Björnsson
-
Hlédís
-
Einar B Bragason
-
Þorsteinn Helgi Steinarsson
-
Árni Karl Ellertsson
-
Hamarinn
-
Hamarinn
-
Helgi Þór Gunnarsson
-
Hörður B Hjartarson
-
Jack Daniel's
-
Jón Bjarnason
-
Kristján Jón Sveinbjörnsson
-
Kristján P. Gudmundsson
-
Linda
-
Rauða Ljónið
-
Sigurður Haraldsson
-
Sóldís Fjóla Karlsdóttir
-
Tryggvi Gunnar Hansen
-
Vináttufélag Íslands og Kúbu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.8.): 2
- Sl. sólarhring: 18
- Sl. viku: 224
- Frá upphafi: 1553338
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 199
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Ágúst 2025
- Júlí 2025
- Júní 2025
- Maí 2025
- Apríl 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Nóvember 2012
- Júlí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007