Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Vinn ei það fyrir vinskap manns að víkja af götu sannleikans

x-vg3Það er svosem eftir öðru, að Bjarnben hafi sagt ósatt; honum hættir dálítið til þess, aumingjanum svorna, að víkja af götu sannleikans, en það gerir hann þó í góðum tilgangi í því skyni að vinna sér vinskap þeirra sem skipta hann máli í sjálfu lífinu. Að leika á, plata, hafa náungann að fífli, féfletta hann, arðræna, skilja hann eftir í ræsinu og reka svo smiðshöggið á listaverkið með því að telja honum trú um að hann hafi það virkilega gott þegar öllu sé á botninn hvolft, hann sé í raun og veru bölvaður forréttindagosi og eigi alls ekki að gera kröfur til annarra, vinnuveitanda síns, sveitarfélagsins eða ríkisins, að öðrum kosti kunni illa að fara.

Og þó Bjarniben sé pörupiltur, ósannsögull og og stundum einkennilega upptrekktur, eins og til dæmis í kjaftaþætti sjónvarpsins í gærkvöldi, þá er ég ekki alveg viss um að frú Swandeesý hafi alla tíð fetað veg sannleikans á þann hátt sem heiðarlegu guðbarni ber. Og jafnvel eru þeir enn verri, sem ljúga með fólki eins og Bjarnaben og Swandessý með þögninni eða taka undir ruglandina og ,,hálfsannleikann" sem vellur upp úr þeim í tíma og ótíma gegn betri vitund eða í ófyrirgefanlegu hugsunarleysi. Og lítill mannsbragur er af þeim sem hylma yfir með lygum og óheiðarleika ófyrirleitinna stjórnmálamanna með þögninni.

x21Hitt er svo aftur annað mál, að nú fer í hönd svanasöngur VG í poletik, einnig Swandeesýjar, Mumu frá Brúarlandi, Stenngrims og Álfheiðar. Fari þau vel. Ég syrgi þau ekki. Hvar hræið af VG verður urðað kemur mér ekki við við, að öðru leyti en því að þeim sem ganga frá ræksninu geri það á þann hátt að það mengi ekki frá sér, ýldan af því eigi ekki greiða leið í vatnsból saklauss fólks, óféleg lyktin nái ekki að komast upp úr urðinni og valdi eitrun í öndunarfærum manna og dýra, eða að ókindin nái ekki að ganga aftur með öllum þeim hörmungum sem slíkir mórar, skottur og þorgeirsbolar eru vanir að valda í sveitum, bæjum og borgum með óvægnum tiltektum sínum.


mbl.is Svandís segir Bjarna hafa sagt ósatt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heimska og dómgreindarleysi villuráfandi þjóðar staðfest

xviðÞað hefir lengi leikið sterkur grunur á að gáfnafar íslensku þjóðarinnar fari mjög hrakandi með samsvarandi dómgreindarleysi og kemur margt til sem rennir styrkum stoðum undir þá kenningu. Í skoðanakönnunum, sem teknar eru um reglubundnum hætti, um fylgi við stjórnamálaflokka landsins sést best á hve alvarlegt stig andlegt atgervi og vitræn heilsa kjósenda er komin. Maður er farinn að efast um að slíkur líður, sem lætur skoðanakannanir á borð við þá sem kunngerð var dag um sig spyrjast geti klætt sig skammlaust að morgni eða ratað á salernið til að kasta af sér vatni.

Og fyrst þjóðin gjörist nú æ heimskari og dómgreindalausari með hverjum degi sem almættið gefur oss, þá þarf enginn að láta sér koma óvart þókt landið, þjóðin og menningin riði til falls og hrynji eins og grútarkaggi á hliðina og innihaldi velli eins og hvur önnur óhreinindi ofan í niðurfallið og blandist þar seyru og sóðaskap. Já, íllt er það allt og bölvað og fátt ef nokkuð til bjargar einni vitgrannri og stórbilaðri þjóð á hjara veraldar. 

xmEn fyrr má rota en dauðrota. Hverjum hefði dottið það í hug fyrir hálfri öld eða svo, að íslenska þjóðin ætti efir að verða svo heillum horfin að ljá forhertum braskaraflokki með alræmda hrunkérlíngu (7 hægri) í forustu tuttugu prósent atkvæða í alþingiskosningum, og flokki stórbilaðra klausturdólga önnur tuttugu? Fyrir nú utan allt það fylgi sem gömlu skipulögðu óyndissamtökin Samfylking, Sjálfstæðisflokkur og Framsókn eru vís með að fá, en það ku samanlagt vera um það bil fimmtíu prósent. Svo eru menn að fárast yfir því að grunnskólabörn á Íslandi séu ekki lengur hálfdrættingar á börn í öðrum löndum í einhverjum helvískum PÍSA könnunum, séu ekki lengur læs eða skrifandi og viti nákvæmlega ekki neitt í sinn haus ef þau fyrir slysni gjóa heimskum glyrnunum upp úr kókópuffsdiskunum sínum.  


mbl.is Ný könnun: Fylgi Viðreisnar eykst og eykst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þegar líkin koma á færibandi inn á borð ráðherra

do1.jpgÞá er komið að því að ríkisstjórnin fari að fá líkin af ólæknuðu fólki inn á borð hjá sér á færibandi. Það kemur víst í hlut leiðindadurgsins Wíllúms að taka við hinum burtsofnuðu og pakka þeim inn til greftrunar. En hvurt Wíllúm reynir eitthvað að semja við lækna og koma þeim til starfa á ný er enn óráðin gáta, en líklega þykir framsóknardraugnum ekki taka því að gera kjarasamning við dólgana á hvítu sloppunum. Wíllúm er sko framsóknarmaður af þeirri tegund sem kennd er við álfa út úr hól, en til þeirra teljast allir hinir framsóknarbesefarnir í þingflokki gömlu geggjuðu Framsóknarmaddömunnar.

Og fyrst framsóknarbesefar og gamla Maddaman eru komin til umfjöllunar, þá má með sanni segja að þeir minna um margt slembivalinn skussahóp upp úr rassvasanum á Gunnarismára, gaspra út og austur á almennum nótum með alla enda opna og ekkert fast land undir fótum. En nú eru læknar búnir að tala sig upp í verkfall og færibandið fyrir líkin komið í gang. Og ekki auðveldar það málið, að læknar dagsins í dag eru forhertir og ósveigjanlegir péééníngalæknar en ekki hugjónalæknar eins læknar voru upp til hópa í gamla daga. Það er því ekkert gamanmál sem bíður hans Wíllúms okkar þegar læknaverkfallið fer að virka svo um munar.

piss5_1126417.jpgEn nú kemur upp í hugann sagan af framsóknarmanninum sem staðinn var að því að míga inn um bréfalúgur hjá nágrönnum sínum og velgjörðarmönnum. Hann hélt víst að hann kæmist upp með þetta háttarlag til eilífðar og hann fékk dásamlega örvun á miðvígstöðvarnar þá hann mé inn um lúgurnar og ráfaði jafnan á brott eftir vel unnið ver með sæluríkt lostaglott á vör. En svo kom að því að hugvitsmaður einn tengdi háspennu rafurstraum við blaðalúguna hjá sér. Svo kom framsóknarmaðurinn um miðja nótt að húsi hugvitsmannsins og tók þegar til við að spræna. Nú, hann fékk soleiðis háspennu-lífshættu í skökulinn á sér, sem leiddi út um allan líkamann, og í næstu andrá stóð framsóknarmaðurinn, vinur okkar, í björtu báli fyrir framan dyrnar, og þegar að var komið var ekkert að sjá annað en öskuhrúgu með einhverjar óskilgreindar tætlur, eða lufsur saman vip á stéttinni. Það hefi sem sé ekki valdi nokkurs péééníngalæknis í verkfalli eða ekki verkfalli að bjarga lífi framsóknarmannsins sem var sjúkur af löngun til að pissa inn um bréfalúgur nágrana sinna.    



mbl.is Læknar samþykkja verkfall
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að sjálfsögðu skaut úlfsmakkinn hrokkinnn og grár upp kollinum á ögurstund

xvgÞað fór sem ég hugði, að úlfseyrun og úlfsmakkinn á Gunnarsmára mundi skjóta kolli sínum upp úr sauðargærunni miðri á síðustu stundu sem frambjóðandi í fyrsta sæti Sósíalistaflokksins í öðru reykjavíkurkjördæmanna. Og ekki er nú fagurt andlitsfallið á þessu stærsta vandamáli sósíalista, og enn síður er skjálfhverfan og eiginhagsmunasóknin viðkunnanleg hjá hinu sótsvarta íhaldi, Gunnarismára. Reyndar var víst mjótt á mununum í gærkvöldi, að tillagan um Smárann í fyrsta sæti væri hreinlega felld, en því miður verður okkur sósíalistum allt að ógæfu þessi árin og Smárinn samþykktur efir kostuleg rifrildi og læti.  

En í gærkvöld fór  Sósíalistaflokkurinn endanlega með sig endanlega; úr því sem komið er er þessum undarlega gervisósíalistaflokki varla við bjargandi. Að láta sér detta í hug að setja Gunnarsmára, aftur í fyrsta sæti á lista fyrir alþingiskosningar er dómgreindarbrestur á hæsta stigi. Fyrir það fyrsta á þessi maður ekkert erindi á þing og það allrasíst undir merkjum flokks sem kallar sig Sósíalistaflokk Íslands; Gunnarsmári er nefnilega ekki sósíalisti fremur kötturinn sem liggur við músarholuna og bíður eftir því að mýsnar komi út. Og í öðru lagi er full ástæða til að vara kjósendur við kjósa flokk Gunnarssmára, því þar er ekki allt sem sýnist og þessi flokkur hans alls ekki sá sem hann þykist vera, það ætti að öllum að vera ljóst núna. Maðurinn er sótsvart íhald og hættulegur og spilltur loddari og væri best geymdur sem salernisvörður hjá Davíð í Hádegismóum eða hirðfífl í Valhöllu Sjálfstæðisflokksins

Einhvers staðar er haft eftir Gunnarismára, að hann hafi fallist á að taka fyrsta sætið að ,,beiðni Sönnu Magdalenu". Ef það er satt og rétt, þá er dómgreindarbrestur Sönnu Magdalenu þess eðlis, að héðan í frá er eins gott að umgangast hana af stakri varúð. Hún virðist algjörlega staurblind á Smárann, sem og á pólitík og uppbyggingu sósíalísks stjórnmálaflokks, enda reynslulaus og barnaleg. Þegar maður lítur yfir framboðslistasviðið hjá Sósíalistaflokki Ísland í dag, á sér maður hnípin og ósjálfstæðan söfnuð undir skósólum Gunnarssmára, söfnuð sem lifir í persónudýrkun á fáeinum persónum sem eru engrar dýrkunar verðar. Þarna er um vond trúarbrögð að ræða. Þarna er um vond trúarbrögð að ræða. Í þessu sambandi er tilvalið að nefna, að Gunnarsmári viðraði ett sinn, ekki fyrir alls löngu, þá hugmynd, að gera Vorstjörnuna, sem er hliðarfélag innan Sósíalistaflokksins, að lífskoðunarfélagi, sem sé nokkurskonar trúfélagi, og skrá það sem slíkt hjá Hagstofunni og fá út á það sóknargjöld frá ríkinu; þetta er auðvitað bíræfin hugmynd og einstaklega Gunnarssmáraleg.

Af þessu tilefni er vert að rifja sem snöggvast upp ljóðmæli þjóðskáldsins, sem sagði eftir að hafa gluggað í rytjurnar af framboðslistum Sósíalistaflokksins: 

Aumt er að sjá í einni lest
ormsmognar sálir með vondan gest,
jaðarfemmur og pornó prest,
pungsíða snata og spillingarhest.


mbl.is Gunnar Smári í oddvitasætið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað ætli Sanna hafi nú að segja?

paunkHvað ætli Sanna hafi nú að segja hinum ofurhægrisinnuðu nýfrjálshyggjuguttum í Hádegismóum í dag? Það kann að verða eitthvað fróðlegt, þó ég sé nú hóflega bjartsýnn á það. Eflaust getur hún hún sagt Stefáni Einari sögur af því hve Gunnarsmári sé famúrskarandi klár og mikill sosialist og af hve mikilli list hann hefur hantérað einfalda sakleysingja sem gengu í fávísi sinni til liðs við þann kauða. Það er ekki á allra færi að finna út að hægt væri að vinna bug á eigin atvinnuleysi og útskúfun allra fjölmiðla á sér, að stofna til sosialistaflokks, sanka að sér dálitlum hóp af búrtíkum og kjánakálfum úr pönkaraleiknum á Hlemmi og fáeinum öðrum númerum úr 101 og bjóða fram til Alþingis, og sjá: péníngarnir fóru að streyma inn í sosiflokkinn og hann plataði þá einföldu og trúgjörnu til að láta að minnsta kosti helminginn af því ríkisfé í fjölmiðil, Samstöðina. 
Þá væri upplagt fyrir sönnu að segja frá fræknleik hennar og Smárans í að byggja upp sósíalískan stjórnmálaflokk með innantómum ekkisósíalistum, krataeðlispersónum og reynslulausum fúskurum af tegund lukkuriddara. Það er nú ekki lítið afrek. Fylgið er á bilinu 3,5-4,5% þrátt fyrir sjö ára basl, ríkispénínga í tugmilljonum og heila Samstöð, sem hefir reyndar ekki unnið neitt fyrir Sósíalistaflokkinn en þeim mun meir fyrir Samfylkinguna og Viðreisn og þrengstu óskir og ímyndaða hagsmuni 101 menningarinnar.

Eflaust mun Sanna reyna að gera út á hreinmeyjarástand Sósíalistaflokksins, að hann hafi aldrei átt fulltrúa á Alþingi eða í ríkisstjórn, aðeins átt gleymda fulltrúa í minnihluta borgarstjórnar Reykjavíkur. Á móti kemur að Sósíalistaflokkurinn er frámunalega illa hannað fyrirbæri, þar sem grunnhyggni, óskhyggja og hrein og bein vitleysa ráða ríkjum, hugsjónir á reiki í einu graut, ef þær eru þá einhverjar, og að auki er hann með þennan líka skaðræðis bleika fíl í stofunni hjá sér, sem búrtíkurnar, dólgafémínístarnir, pönkaraleikararnir af Hlemmi og óbreyttir sakleysingjar flokksins þora aldrei að nefna og þykjast ekki sjá. Að endingu segir Sanna Stefáni Einari frá einstakri snilld sinni í uppstillingar- og kosninganefnd Gunnarssmára og AmríkuVidda og hvernig það atvikaðist að henni var falið að skipa fólk í þrjú efstu sæti allra framboðslistanna með aðstoð ótilgreindra ráðgjafa. 

Lukkudýrin löng og mjó
leita svöng til byggða;
þau eru ávísun að íllsku og tjóni.
Illa mun ganga enn um hríð
að efla sósíalisma á Fróni.
 


mbl.is Sanna mætir í leiðtogaspjall í Spursmálum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þeir sem leiða leiðindi og rugl á svokölluðum ,,vinstri" væng

x-krat7Þessi pistill fjallar reyndar ekki um framboðsskrum ísfirsk lukkuriddara af kvenkyni, sem telur þjóðin hafi eitthvað gott af því að fá hana á þing fyrir þann kámuga og illalyktandi flokk sem gengur undir heitinu Samfylking og þykist vera jafnaðareitthvað. Það eru fleiri sem hafa farið skítugum lúkum um flokka, sem í daglegu tali eru kallaðir ,,vinstriflokkar", en einn þeirra er sá frækni Gunnarsmári og hans klíka.

Það er sérkennileg staða sem þeir sem hafa reynt að telja fólki trú um að Gunnarsmári sé sósíalisti, eru búnir að koma sér í. Hið sótsvarta íhald og stofnandi flokksins sem hafði um skeið það helst á stefnuskrá sinni að vinna að því að Ísland gengi Norðmönnum á vald og gerðist fylki í Noregi, er auðvitað enginn sósíalisti, - ekki fremur en Pétur Þríhross sem kvaðst á góðri stundu vera það sem kallað er á erlendum málum sosialist.

Þegar fyrirbærið ,,Sósíalistaflokkur Íslands" er skoðað kemur fljótlega í ljós auvirðilegt spillingardæmi þar sem atvinnulaus lukkuriddari úr DV-umhverfi íslenskrar fjölmiðlunar, maður sem allir fjölmiðlar höfðu gefist upp á og vildu og vilja ekki fyrir nokkurn mun sjá í sínum híbýlum, tókst með hugviti sínu og bíræfni að plata hóp af trúgjörnu og einföldu fólki upp úr skónum og fá það til í að stofna með sér stjórnmálaflokk. Hinir einföldu og trúgjörnu héldu sumir hverjir að þeir væru að fara að taka þátt í merkilegum þjóðþrifum, hugsjónum, og jafnvel þjóðfélagsbyltingu. En höfuðpaurinn sjálfur, sem aldrei hefur verið gefinn fyrir annað en þrengstu eiginhagsmuni sjálfs sín, hafði auðvitað ekkert hugjónabasl og þjóðþrifnað á sínum óskalista, hvað þá þjóðfélagsbyltingu, hann leiddi hina trúgjörnu einfeldninga sína beint út í stofnun ,,sósíalistaflokks" til að gera út á ríkissjóð, sem honum hefur tekist gera með miklum ágætum.

Nú er Gunnarsmári kominn með fína atvinnu við fjölmiðlun, og aurarnir streyma fyrirhafnarlaust eins og lygn bergvatnsá á sumardegi frá ríkinu til Sósíalistaflokksins og þaðan gegnum ,,Vorstjörnuna", og yfir landamærin yfir í ,,Alþýðufélagið" og þaðan til Samstöðvarinnar og um leið þráðbeint ofan í rassvasann á hinum hugumstóra fjölmiðlamanni, flokksútgerðarmanni, atvinnurekanda, lukkuriddara og sótsvarta íhaldi.

Fyrir síðustu alþingiskosningar setti Gunnarsmári upp sérlega spennandi og frábært leikrit fyrir söfnuð sinn, taldi því trú um að það væri að fara að bjóða fram og ráða hverjir skipuðu framboðslista sosiflokks Gunnarsmára. Á ákveðnu augnabliki tók höfuðpaurinn fram fyrir hendurnar á uppstillingarnefndinni, sem var slembivalin með vísindalegum hætti, og dró upp úr rassvasa sínum fullskipaða framboðslista að eigin vali og sendi þá rakleitt út í kjördæmin. Listinn sem hann sendi á kjósendur Norðvesturkjördæmis var til dæmis þannig, að þegar gamall og reyndur áhugamaður um pólitík sá listann varð honum að orði að þessi listi væri greinilega sérhannaður til þess að enginn mundi kjósa hann, og aðrir framboðslistar úr rassbókhaldi Smárans voru eftir því.

ÁlfurOg sama leikinn er verið að leika núna: Kjörstjórn kosin, uppstillinganefnd skipuð, en á síðustu stundu eru hinir einföldu og trúgjörnu látnir samþykkja að svipta öllum tilfæringum í burtu og láta það heita að Sanna Magdalena muni ásamt með óskilgreindum ,,ráðgjöfum" sjá um framboðin; að því búnu dregur sosialistarekandinn, Gunnarsmári, framboðslistana upp úr rassavasanum, eins og læknir lyfseðil, að skipar hinum lítilsigldu að samþykkja sitt fólk. Gunnarismára er nefnilega fjandans sama hvort Sósíalistaflokkurinn fær engan þingmann kjörinn eða einn eða tvo, bara ef hann nær lágmarkinu til að fá styrinn frá ríkinu, en sá styrkur er að sjálfsögðu enginn hégómi með aumlegum fátæktarbrag yfir sér. Og nytsömu sakleysingjarnir halda áfram að vera í pönkaraleik á Hlemmi.


mbl.is Bæjarstjóri Ísafjarðar vill leiða listann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki stendur á hræsninni hjá þerri fínu borgaralegu frú

ingv30.jpgÞað stendur ekki á hræsinni hjá frú Swandeesý. Nú hefir hún málað sig svo rækilega út í horn á öllum vígstöðvum, að ekkert er fyrir hana að hægt að gera annað en að hía á hana og senda henni löngutöng í kveðjuskyni, því bæði hún og flokkur hennar og flokkseigendafélag eru á hraðferðu út úr íslenskri pólitík, eftir áralanga þjónustu við Sjálfstæðisflokkinn, sægreifana og önnur auðvöld. Er nú svo komið að hún og slitrurnar sem eftir eru af VG eiga ekki í nein hús að venda og þá allra síst hjá kjósendum, sem búnir eru að sjá í gegnum tvískinnunginn, loddaraskapinn og óheiðarleikann.

Og þó að Swandeesý setji í svip upp sparisvipinn og þykist þakka Bjarna Jónssyni fyrir veruna í VG, þá vitum við ósköp vel að þar fylgir enginn hugur máli. Bjarni Jónsson er sósíalisti og hefur átt erfitt að umbera liðið sem hann lenti í þingflokki með, því það vita margir að það fer illa með sálina að vera lengur en sólarhring samvistum við flokkseigendaklíkuna í VG. Eflaust hefur Swandeesý verið skapi næst að segja Bjarna að fara til helvítis þegar hann afhenti henni úrsögn sína úr VG og þingflokki þess. 

En alltaf má fá annað skip og annað föruneyti, segir einhvers staðar, en það á ekki við Swandeesý og VG, Bjarna eru ýmsir vegir færir. Ef VG er skip, þá er það vandlega strandað og mölbrotið í skerjagarði auðvaldsþjónkunarinnar og Swandeesý og Mumu frá Brúarlandi fá ekkert föruneyti í stað þess sem gengið er frá borði þessarar aumu svikaskútu. Svo talar þetta lið um um að leita í einhverjar ,,rætur" og ,,skerpa á áherslum", gallinn er bara sá að enginn hefur hugmynd um hvaða rætur og hvaða áherslur Swandeesý og hennar kvótalið er að tala um, sennilega vita þau það ekki einusinni sjálf.  


mbl.is Svandís þakkar Bjarna fyrir samstarfið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Einn útþynntur framsóknarbesfi gjörir út af við kennarastéttina með níði og svívirðingum

x-vgÞað er þokkalegur andskoti hjá kennurum, eftir að hafa kosið Framsókn og Einsa Þorsteinsson í belg og biðu í síðustu borgarstjórnarkosningum, að hofa síðan upp á þennan nýsmíðaða ástmögur sinn fara niðrandi orðum um kennarastéttina, hæðast að henni og formæla. Ég hefi heyrt af fleiri en einum kennara sem svívirðingar Einars hittu svo fast og þungt að þeir hafa legið í rúminu síðan. Og þegar kennarar koma svo í Ráðhús Reykjavíkur til að færa Einar mótmæli, þá er sá kauði allur á bak og burt, kominn til Mexíkó til skrafs og ráðagerða við framsóknarmenn og heimdellinga þar á bæ. Í staðinn voru kennarar niðurlægðir enn meir með því að þurfa að afhenda Degi Bé mótmælin undir hlátrasköllum hans og hinna gleðigjafana í meirihluta borgarstjórnar.

Enda ku kennarar farnir að segja upp í Reykjavík og brátt verða skólarnir mannlausir að mestu og kennslan komin í hendurnar á húsvörum og drukknum framsóknarmönnum. Af þessu geta allir séð að það er langt í best að kjósa Framsókn. Allir vita að að gamla, geggjaða Framsóknarmaddaman hefir lengi stundað kennslu í Framsóknarfjósinu og útskrifað þaðan fjölda ókræsilegra nemenda, sannkallaðan pöddufans, sem sköruðu fram úr á prófum í siðblindu og glæpahneigð, sem löngum hafa verið vinsælustu námsgreinarnar í Framsóknarfjósinu.

Já, þeim er ýmislegt til lista lagt Framsóknarmönnunum, ekki síður en Bjranaben og Gölle a. Þórðar. Nú öslar þessi þrifafénaður enn og aftur í kosningar, þannig að kennarar geta tekið aftur til fótanna á kjörstað til að kjósa gömlu Framsóknarmaddömuna til að fá á nýjan leik yfir sig gusu frá henni og hennar slekti niðurlægjandi athugasemdir og árásir. Því þangað leitar klárinn sem hann er kvaldastur. Og kennarahrossin eru ugglaust afar minnisdauf eins og afgangurinn af kjósendum, sem kjósa viðstöðulaust sín  íhöld og framsóknir, hvernig sem sömu íhöld og framsóknir hafa gert sér að leik að vanvirða og féfletta þá. Það er þokkalegur andskoti að einn útþynntur framsóknarbesefi, með heimdellinga og nýfrjálshyggjuorð á sér, skuli á einu augabragði hafa gert út af við kennarastéttina og gjört kennara að ómerkingum og óheiðarlegum letingjum í huga annarra landsmanna.


mbl.is Segir kennara hafa sagt upp vegna orða Einars
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Swandeesý, dósinn og ruglandin - æ, Fjandinn hirði það allt saman

skip5Hvað er að heyra? Þykist nú einhver vesæll dósi vita eitthvað um hvað niður snýr eða upp í æðri stjórnsýslu og poletik? Ja, heyr á endemi! Hún Swandeesý, skohh, hún er frá barnæsku upplýst í ranghölum hins kapítalísk þjóðskipulags og veit því manna best hvort hú er í starfsstjórn eða ekki. Og hvurju fjandans máli liðónýt stjórnarnefna, sem hvort eð er til bráðabirgða í örstuttan tíma, heitir starfstjórn eða eitthvað annað; að tala um ,,hugtakarugling" í því sambandi er ekki einusinni hlálegt því það er svo óravitlaust.

Eitt eiga þó Swandeesý og Bjarniben sameiginlegt, fyrir utan að vera varðhundar ríkjandi þjóðskipulags, en það er sækjast stíft eftir að verða útfararstjórar flokka sinna, og því ber að fagna og virða. Auk þess eru þau bæði klunnalegir stjórnmálamenn, þ.e. ef orðið ,,stjórnmálamaður" á við í þeirra tilfelli, ófyrirleitnar kjaftamaskínur, sem setja hvorki sannleika né heilbrigt mannvit fyrir sig þegar snúa skal á kjósendur og aðra meinta andstæðinga. En fyrst og síðast eru þau afkvæmi gírugra flokkseigendafélaga og þeirrar ómenningar sem þau standa fyrir. Hins vegar er skyldugt að geta þess að Bjarniben er mörgum sinnum heiðarlegri í sinni poletik en Swandeesý og hennar flokkseigendahyski, því maður veit þó hvar maður hefir Bjarnaben og Sjálfstæðisflokkinn en það er meira en hægt er að segja um hitt hundsspottaliðið.

En hvort Swandeesý sé villt, eða jafnvel strönduð eins og fúahrip, í myrkviði hugtaka um nöfn á tegundum ríkisstjórna skiptir engu máli. Meira væri vert að Swandeesý og VG hverfi af sjónarsviði stjórnmálanna í næstu kosningum, þannig að sá óþrifnaður sé úr leik við að koma óorði á sósíalismann. Svo má þessi dósi þarna eiga allar sínar starfsstjórnir og hugtakarugling um þessháttar smámuni.



mbl.is „Hugtakaruglingur“ hjá Svandísi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Í mörg horn að líta hjá Kolbeini og Brynjari

x28Menn hafa oftar en ekki rætt málefni Kolbeins Kolbeinssonar og frú Ingveldar út frá því sjónarmiði að það hafi verið sérlegt ólán fyrir þennan áferðarfallega og mjúka mann að hafa lent í klónum á því flagði sem frú Ingveldur er talin vera. Síðast í fyrradag kallaði hún eiginmann sinn ,,stórbrenglaðan graðnagla og umskipting" þegar hann kom dauðþreyttur og þjakaður heim um klukkan sjö um morguninn eftir að hafa sinnt samkvæmislífinu á óeigingjarnan hátt frá því á fimmtudagskveld í síðustu viku. Að vísu vantaði eitthvað upp á að hann væri í öllum þeim fötum sem hann var í er hann lagði upp frá heimili sínu, af þeim sökum varð frú Ingveldur bálreið, og var ekki á bætandi, og lagði allt út á versta veg.

Að vísu lagði stækan áfengisþef af Kolbeini er hann kom heim og það voru leifar af hvítu dufti kringum nasirnar á honum, en að öðru leyti var hann hress og fór í vinnuna að sinna skrifstofustjórastöfum eftir að frú Ingveldur hafði lúskrað á honum á skyldugan hátt. Og þar eð Kolbeinn er í æðsta ráði gömlu Framsóknarmaddömunnar var í mörg horn að líta hjá honum, enda Bjarniben hlaupinn úr skaftinu, orðinn hálfvitlaus og lagður á flótta frá ríkisstjórninni og alþingiskosningar í uppsiglingu. Og sem kunnugt er eru aungvar ákvarðanir teknar í Framsóknarfjósinu án þess að Kolbeinn komi að málum og fylgi vilja gömlu Maddömunnar eftir og passi upp á að ráðsmaðurinn Sigingi haldi sig á stefnunni og griðkonurnar í fjósinu þjóni fyrir fyrir altari sem þeim ber skylda til.

Víkur nú  sögunni að hirðsveinum Bjarnaben, þeim Brynka, Óla Apaketti, Nonnýboy og þá ekki síður smátelpunum sem hafa hangið í rassinum á Benaranum síðustu misseri. Nú er þetta fólk komið niður í 12% og algjör ringulreið brostin á í Valhöllu því þókt Sjálfstæðisforingjum þyki skítur til 12 prósenta koma, þá liggur leiðin enn niður á við í áttina að núllinu. Nú, Brynki var kosinn burt í síðustu kosningar og mátti dratthalast sem þjónn, eða öllu heldur þræll, Nonnýboy, sem flottaði sig um sem dómsmálaráðherra þar til hann var rekinn, eftir það kvað Brynku upp úr með að hann væri hættur í poletik. En nú er komin upp sú voðalega staða, að við liggur að rafturinn Brynki verði aftur á sjó dreginn til að bjarga Sjálfstæðisflokknum, Bjarnaben og Áslaugu Örnu endanlegri poletiskri útrýmingu. Ef þannig verkast, þá er útséð með að ekkert verður úr hótunum Brynka og Nonnýboy um að ganga í Miðflokk klámfengnu Klausturgúbbanna Sigmundar og Beggó, sem gera mjög út á útlendingaandúð og lægri hvatir landsmanna.  


mbl.is Brynjar Níelsson aftur á leið í framboð?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband