Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Verum á varðbergi gagnvart skrímsladeildurm, rógsvélum, lýðskrumurum og lukkuriddurum

xvgEkki er að efa að gamla Framsóknarmaddaman ætlar að tjalda öllu sem til er í kosningabaráttunni sem nú er hafin. Sú gamla á enn góða að, sem sjá sér hag að því að lauma péníngum til kosningaskrums húskarla og griðkvenna Maddömunnar. Og á sama hátt og Sjálfstæðisflokkurinn á sínar vægðarlausu rógsvélar og skrímsladeildir, gráar fyrir járnum rógs og lyga, þá eru samsvarandi vopn til staðar í Framsóknarfjósinu, sem kann að auki að yfirbjóða öll kosningaloforð annarra flokka og villa á sér heimildir sí og æ í gríð og erg. Að vissu leyti má fullyrða að poletisk ófyrirleitni og óheiðarleiki eigi lögheimili að Framsóknarmaddömunni  í Framsóknarfjósinu. Nú skulum við bara bíða og sjá þegar fylkingar skrímsladeildanna fara af stað með fádæma hávaða og illmælgi.

Ráðsmaðurinn í Framsóknarfjósinu og Kvikukindin hjá krataeðlisflokknum eru lævísir paurar sem enginn veit hvar hann hefur, - nema að því leyti að þau kappkosta auðvitað að stefna að ríkisstjórnarsamstarfi með Sjálfstæðisflokknum. Þau munu ganga óbundin til kosninga. Sjálfstæðisflokkurinn, sem er eins og rándýr, skrímsli, í sjálfheldu, er til alls vís um þessar mundir, og í fátinu sem er á því liði kæmi ekki á óvart þókt þeir beindu sjálfsmorðssveitum sínum í ógáti að sjálfum sér gerðu Flokkinn, Valhöllu og Heimdall, já og Eimreiðarhópinn, að einni kolbrunninni eyðimörk á svipstundu. Það væri þarft verk.

xmÞað er ljóst að það eru kjósendur sem þurfa á næstu vikum fram að kosningum að vera á varðbergi gagnvart skrímsladeildum, rógsvélum, lygasveitum, lukkuriddurum og lýðskrumurum hægriflokkana, líka hægriflokkana sem segjast vera eitthvað annað en hægriflokkar eins og til dæmis Samfylkingin, Miðflokkurinn, Flokkur fólksins, Píratanýfrjálshyggjuflokkurinn, Viðreisn, osfrv. Kjósendur skulu heldur ekki velkjast í vafa um að það eru þeir sem eru fyrirhuguð fórnarlömb hægriflokkana fram að kjördag, daginn þar á eftir verður þeim kast út í skurð.

  


mbl.is „Búið að setja allar vélar í gang“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Forsetinn í fljótu bragði fær sér í pípu gjótunni í

ing1Halla? Hvað ætli hún geti talað við formenn flokka? Hún er vart talandi stúlkan atarna, sem sást best þegar hún var að fimbulfambast í Kaupmannahöfn á dögunum, þá tafsaði hún einhverja djöflagolfrönsku sem enginn skildi bofs í við danska kónginn svo hann varð að hlaupa afsíðis til að hlæja að kérlíngaborunni, því hann er kurteis maður og vill ekki láta aðra sjá þegar skellir upp úr þegar hann heyrir virkilegt vileysisblaður í gestum sínum.

En Halla væri víst til að reyna að nýrri Hrunstjórn Sjálfstæðisflokks, Framsóknar og krata, enda er hún öllum hnútum kunnug þegar kemur að Hrunstjórnun og Hrunvinnubrögðum nýfrjálshyggjubesefanna sem kenndir eru við Eimreið. Ráðskonan á Holtavörðuheiðinni, súm fékk nú ... trall-lall-lall-lall-la. Já. En eflaust er keimlíkt að velta útaf eins og glugghross fyrir framan kóngalíng, þókt danskur sé, eins og að bukta sig í svaðið fyrir einum alvöru Hrundreng úr Valhöllu og Garðabæ. Og ugglaust tekst henni vel upp í tilgerðinni og væmninni þegar hún leiðir paurann Bjarnaben til sætis í betri stofunni á Bessastöðum og fer yfir öll Hruntækifærin sem eru á borðinu hjá auðvöldum og arðræningjum landsins.

Þó má ætla að keyri um þverbak þegar Halla tekur forseta Alþingis tali, því sá durtur er lítt mælandi nema á afkáralegri djöfla og andskotagolfrönsku, þannig að verið getur að þau Halla geti náð einhverskona talsambandi, en þó er það alls ekki víst. Best væri að Halla segði öllum flokksformönnunum að fara til Fjandans, en ráfa þess í stað út í hraun í fyrramálið og fá sér í eina svellandi pípu ofan í rúmgóðri gjótu og hugsa um blóm og rokktónleika. Síðra væri að hún hefði með sér landakút, því óvíst er hvernig taugakerfið bregst við heimagerðu áfengi, þrátt fyrir að sprúttsalar séu um þessar mundir ákaflega í tísku með Hrunæskunni í Sjálfstæðisflokknum.


mbl.is Halla gefi sér tíma til að ræða við formenn flokka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þá eru þau orðið landlaus, buxnalaus og vitlaus eins og drykkjurútar af Klaustri

x39Nú er íllt í efni hjá henni Swandeesý okkar hérna úr Flokkseigendafélagi VG. Lengi var var það heitasta ósk þessa sérkennilega flokkseigendafélags að komast í ríkisstjórn og langheitasta ósk þess var að sjálfsögðu að komast sem fyrst í ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokknum. Af þessari óstjórnlegu ríkisstjórnarþrá komu flokkseigendur sér upp frasanum að ,,þau væru í poletik til að hafa áhrif!", þó þau hafi hingað til verið það heiðarleg að láta þess í engu getið í hverju þessu áhrif væru eða hafi verið fólgin, enda hefir enginn maður séð þessi áhrif VG í einu eða neinu.

Svo kom að því að Flokkseigendur VG, sem eru í poletik til að hafa áhrif, náðu markmiði sínu og komust í ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokknum og settust að á Hjáleigunni í túni Íhaldsins. Segir ekki meira af áhrifum Flokkeigenda VG á undirlægju akri Sjálfstæðisflokksins fyrr en í dag þegar Bjarniben gjörði sér hægt um vik og sparkaði Fokkseigendafélagi VG eins og hvurju öðru óþrifnaðarfé út úr ríkisstjórninni, án þess svo mikið sem að ýja að slíku einu orði við Swandeesý, sem nú er orðin formenni VG; ódámurinn kom bara æðandi eins og stormsveipur inn á Hjáleiguheimilið, hvar ráðherrar VG hafa hírst í meiningarleysi síðustu árin, reif þá eins og hunda upp á eyrunum og kastaði þeim út - ekki út um dyrnar heldur út um gluggann til að skömm þeirra væri sem mest.

x-d4Einkennilegust er þó sú fólska sem Bjarniben gjörði sig beran að í dag, en það var árás hans á gömlu Framsóknarmaddömuna, en hún fékk aldeilis að kenna á fautaskap hans. Bjarniben, sá armi götudrengur yfirstéttarinnar, gjörði árás á Framsóknarmaddömuna um leið og hann djöflaði VG görmunum út af Hjáleigunni, með þeim afleiðingum að Framsóknarmaddaman lærbrotnaði í látunum. Auk þess sprautaði Benarinn hlandfor úr Framsóknarfjóshaugnum með haugsugu inn í Framsóknarfjósið og veit enginn hvert ástand er þar á húskörlum og griðkonum gömlu Maddömunnar, en vísast er eitthvað af því fólki dautt nú þegar; þetta var nefnilega árás de la d´ísrael á Gaza. En þókt VG sé týnt og tröllum gefið og Flokkseigendurnir með öllu landlausir, buxnalausir og vitlausir eins og drykkjurútar af Klaustri, þá er svo komið fyrir Sjálfstæðisflokknum að hann er í bráðri útrýmingarhættu og með voðaverki Bjarnaben í dag aukast líkurnar á því að Sjálfstæðisflokkurinn verði lagður til hinstu hvílu sama dag og urðun VG fer fram og Valhöll og gamli Moggi verði gerð upp og seld hæstbjóðanda eins og illa hirt afsláttarhross, kannski einhverjum frá Kommúnistaflokki Kína eða jafnvel Erkidjöflinum sjálfum, Pútín fógeta í Kreml.   


mbl.is Fundaði með Bjarna í gær
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Slíkur er máttur andans að stjórnin er farin til Fjandans - já, fari hún vel

x36Þá er endemis stjórnaskepnan okkar sprungin og farin til Fjandans, gwöð friði sál hennar þókt sálarlaus hefi sannarlega verið. Vér gjörum ráð fyrir að flokksómyndirnar sem nú eiga fulltrúa á Alþingi fari ekki sömu leið og ríkisstjórnin er þegar farin, bjóði fram lista sína og og lifi kosningarnar af eða deyði að öðrum kosti. Reyndar erum við með flokka sem mættu alveg missa sín og trúlega verða dagar einhverra þeirra taldir á kjördag þegar búið verður að telja upp úr kjörkössunum í Borgarnesi og annars staðar.

Best væri að flokkar sem óneitanlega draga sterklega dám af skipulögðum glæpasamtökum hverfi á braut, að þjóðin gefi sér þá góðu gjöf að kjósa þá burt úr lífi sínu og þjóðarinnar. Svo eru þarna nokkur flokksgerpi í pöddulíki sem þrifnaður væri af að losna við af fóðrum, svo sem eins og Klausturflokkurinn sem kennir sig við hvítt hross og miðju en er í raun öfgahægriklíka; Flokkur fólksins með sinn hájarmandi lýðskrumara og útlendingaandúð á sér varla tilverurétt; nýfrjálshyggjubarnaflokkar Pírata og Viðreisnar eru þess eðlis að ekkert annað en öskuhaugarnar í eiga tilkall í þá. Samfylkingin hefir haft góðan byr í í skoðanakönnunum undanfarið, en sá góði byr hefir þó stöðvast og brátt slær í bakseglin og þessi hægrisinnaði þunnildis og ímyndaræðisflokkur fer að hrekjast til baka. VG er þegar komið í líkkistuna og Swandeesý, Álfheiður, Stenngrimur og Úlfar Þormóðs þegar búin að setja upp pípuhattana sína og þess albúin að bera hinn burtsofnaðra til urðunar.

Það er því ekki um auðugan garð að gresja fyrir kjósendur þegar þeir staulast að kjörborðinu næst ef ekki standa önnur nöfn á kjörseðlunum en nöfn alræmdra glæpaflokka, flokka poletiskra auðnuleysingja eða steindauðra flokka. Því miður verða kjósendur, ef að líkum lætur , peppaðir upp af samviskulausum og enn hugsjónalausari PR-stofum til að kjósa sömu óaldarflokka og gert hafa sig seka um þjónkun við auðvald, arðrán, glæpastarfsemi og afkáralega idjósku af heldur vandæðalegu tagi. Flokkarnir okkar, þessar átta leiðindaklíkur, sem starfa á Alþingi í dag, eru sama marki brenndir með að vilja hvergi halda sig nema innan ramma kapítalisma og auðvaldsþjóðskipulags í anda USA, ESB og NATO. Fólk talar um breytingar og segist vilja breytingar, spurningin er aðeins: Hvaða breytingar er fólkið að tala um? Er það tala um smávægilegar breytingar innan auðvaldrammana, eða hefur það í huga gagngerar breytingar á þjóðfélagsskipulaginu? Þið vitið væntanlega að það er einungis ein slík þjóðskipulagsbreyting boði? 


mbl.is Ríkisstjórnin sprungin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þá Indriði varð fyrir listrænum útblæstri, sem á sér engar hliðstæðu. Hrollvekja.

djö2Fjandinn einn má vita hvar japanski leikstjórinn fékk innblástur sem varð til þess að hann sóðaði saman dæmalaust leiðinlegri kvikmynd, sem reynda er svo óhugnanlega leiðinleg að hún fékk ,,Gullna lundann" í verðlaun. Einhver sagði að leikstjóri þessi hefði ekki fengið neinn déskotans innblástur, hvorki í rassinn á sér né ofan í höfuðið, heldur hefði hann fengið útblástur, sem sé útblástur frá bifreið í þröngu bílastæðahúsi í Bankokk sem olli bölvaðri andnauð og eitrun í skynfærum hans. Að vísu leið leikstjórinn ekki alveg út af, en hann hafði ekki fyrr skriðið úr bílastæðishúsinu en hann hófst handa við leiðindin sem skiluðu honum að lokum ,,Gullna lundanum", hvorki meira né minna!

Þetta minnir á þegar Indriði Handreður fékk svona einhverskonar útblástur og ýmsar frumlegar og honum áður framandi hugmyndir fóru að sækja á heilabúið í honum. Fyrsta sjáanlega einkennið á breyttum forsendum í heila hans og hugsanagangi birtist með þeim hætti að hann skipaði eiginkonu sinni, sem þá var aðeins heitkona hans og sambýlingur, að fara úr buxunum og skónum og stíga ber neðan mittis út á strætið, en hann kæmi í humátt á eftir, enn naktari, með ljósbrúnt sárabindi eða teygjubindi, eða eitthvað í þá áttina, margvafið um sæðisranann á sér. Síðan mundu þau sýna heiminum fram á að vel væri hægt að gera dodo þókt leyndarlimurinn væri stórslasaður og liti fljótt á litið út eins og indverskur fakír með vefjarhött. Máría Borgargagn gekk að þessu boði ástmanns síns, og úti á strætinu urðu þau sér til óbætanlegrar skammar, því allt fór í handaskolum því við lá að brandurinn Handreðsins hengdist í íþróttatrafinu og samsvarandi tól Borgargagnsins skaðskemmdust af óæskilegum núningi við æfingarnar á malbikinu.

Næsta vers af hálfu Indriða Handreðs varð lýðum ljóst þegar hann birtist að morgni dags, árla mjök, með eina hroðalega kvengrýlu upp á arminn og tilsjáendur fengu sterkt á tilfinninguna að nú hefði þessi víðkunni ólánsmaður verið að halda framhjá sinni elskuðu Máríu Borgargagni með þessu líka tröllslega flagði sem sprangaði um á almannafæri í pínupilsi, nærbuxnalaus að sjálfsögðu, en að ofanverðu í margþæfðri og grútskítugri lopapeysu af enn skítugri trillukarli. Einhver gaf sig á tal við Handreðinn og spurði hvurnig honum dytti í hug að láta sjá sig með slíku óhræsi á sama tíma og börn væru á leið til skóla. Þetta hafði Handreðnum ekki dottið í hug og þá ekki heldur hinum íturvaxna og stórskorna kvenbelg sem með honum var í för. Enda fór nú svo að kvengrýlan þreif til mannsins er hafði ávarpað Indriða, hóf hann upp, að því er virtist til hymins, og kastaði honum undir bifreið sem þar kom aðvífandi. Fyrir verk sitt var konan dæmd í sex ára betrunarvist í ríkifangelsi, þar sem hún bætti um betur og hengdi einn fangavörðinn. Hún situr inni enn þann dag í dag og er ekki á leið út í frelsið. Svona birtist nú stundum réttlætið oss nútímafólki.


mbl.is Eilíf hamingja hlaut Gullna lundann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þeirra gamanmál minna á þurrafúa og nístandi kuldagjóstur

x-vg3Sem kunnugt er þá eru flokkseigendur VG afar vandir að virðingu sinni þegar kemur að húmor og gamanmálum almennt. Þetta snilldarfólk er mjög fágað til orðs, og jafnvel æðis, og hlær aldrei nema eftir fyrirfram ákveðinni goggunarröð. Ef Stengrimur segir eitthvað í heyranda hljóði á VG fundi sem á að vera fyndið þá hlæja allir í kring hátt og snjallt, en ef Jón Jónsson verkamaður segir sama brandara á sama stað og sömu stund þá hlær enginn, en allir líta til Stengrims, Álfheiðar og Swandeesýjar til að kanna hvort óhætt sé að brosa út í annað að gamanmálum slordónans.

Á myndinni atarna, sem fylgir með frétt mbl.is af kjöri Swandeesýjar, gefur að líta Swandeesý sjálfa og varaformenni hennar, Mumu af Brúarlandi, svo ógurlega skellihlæjandi að það sést vel niður fyrir úf á þeim báðum. Hvað hefur verið sem kætt þau skötuhjúin, eða öllu heldur skötuselshjúin, svona afgerandi er ekki gott að segja, en sennilega þefir Stengrímur látið einhver óborganleg hnyttiyrði falla um bölvaðan skelmirinn hann Ögmund, því varla hefir Stengrimur verið að segja einhverja dónasögu af samherjum sínum eins og Þorsteini Má.

femmaVarla hefir það þó verið Álfheiður Flokkseigandi Ingadóttir sem framkallaði þennan ofsahlátur Swandeesýjar og Mumu með spaugsömum munnsöfnuði, því Álfheiður Flokkseigandi er kvendi með öllu húmörslaust; fram af hennar vörum gengur aldrei neitt annað en tal sem minnir á fátt annað en þurrafúa og kuldagjóstur; ,,piff", ,,púff" eru hennar uppáhalds orð, ásamt: ,,ég á Flokkinn", ,,það er náumast gjótur á honum", auk þess sem hún á til að bölva lítilsháttar með fyrirlitlegu fussi og tauta ólundarlega: ,,skítur og rass". Þar með eru umræðuefni þessa fræga flokkseiganda upptalin.      


mbl.is Svandís nýr formaður og Guðmundur varaformaður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er ráðsmaðurinn Maddömunnar drukkinn í dag og verður hann líka fullur á morgun?

xbÞað er naumast uppi títan á ráðsmanni gömlu og geggjuðu Framsóknarmaddömunnar í dag. Sennilega hefir einhver gefið karlskröggnum í staupinu og látið hann blaðra, - nú, eða hann hefir komist í aquavítið hjá Maddömunni sjálfri og stolið frá henni eins og einni hálfflösku og drukkið sig augafullan á bak við fjóshauginn mikla. En hvernig sem þetta hefir nú verið eða ekki verið, þá eru það mikil firn að einn volaður húskarl, þókt ráðsmaður sé að framsóknarfjóssnafnbót, skuli vera að delera með að ekki hafi komið til greina að Mumu litli, sem líka er framsóknardraugur, fengi forsætisráðherraembættið eftir að Katrín Jakkcó gafst upp á rólunum og gjörðist poletiskur flóttamaður.

En hvernig í ósköpunum getur ráðsmaður Maddömunnar í Framsóknarfjósinu lagt margfalda blessun sína yfir að gera jafn göróttan vafasemdagemsa að forsætisráðherra og Bjarnaben, sem er svartari en sjálf erfðasyndin við hliðina á Mumu litla Brúarlandsundri. En vér verðum að sjá gegnum fingur við ráðsmannsskömmina Framsóknarmaddömunnar að þessu sinni á þeirri forsendu að hann hafi verið drukkinn í dag, annað hvort af gjafabrennivíni eða þjófstolnu áquavíti, og því ekki verið sjálfrátt þegar hann tók upp á að svívirða Mumu litla, skensa hann og gjöra voðalega lítið úr honum með því að æpa yfir alþjóð að þeim stór-paurunum, Bjarnaben og ráðsmanninum, hafi þókt formaður VG svo fáránlega lítilfjörlegur að það væri blátt áfram hlægilegt að láta sér detta í hug að fá honum forsætisráðherrastólinn. Og aumingjarnir í VG átu þetta ofan í sig eins og súkkulaðihúðaðan kattarskít.

kol3Ekki höfum vér, á þessari stundu, minnsta grun um hvort eitthvað verður runnið af rásmannstuskunni Framsóknarmaddömunnar á morgun, eða hvort hann mun birtast í morgunsárið moldfullur, talandi tungum, hreytandi drullu og móðgunum í Mumu og Swandeesý og sláandi um sig með þessu þokukennda bauli sem hann er svo frægur fyrir. Ef heldur sem horfir með ráðsmanninn verður gamla Maddaman að neyðast til að stinga honum undir pilsin sín, þar sem lyktin er hræðilegri en orð fá lýst, eða gefa hann Miðflokknum eða Viðreisn á vald. Það segir sig sjálf að ekki er hægt að hafa ráðsmann sem lætur sér sæma upp úr þurru að delera út um víðan völl og segja niðrandi brandara um vesalingana í VG sem hættir eru að bleyta smjörið og eiga ekkert annað eftir en að berja nestið sitt.   


mbl.is Guðmundur kom ekki til greina sem forsætisráðherra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Boðar stofnun níunda hægriflokksins - enn einn varðhundur ríkjandi þjóðskipulags

xxxEnn fjölgar hægriflokkunum á Íslandi og haldi áfram sem horfir verða þeir brátt óteljandi eins og hólarnir í Vatnsdal. Það er náttúrlega allt gott og blessað við það að hægrið sé að trosna upp í frumeindir, ef ekki væri þetta hræðilega framboð af kjöftugum lukkuriddurum og lýðskrumurum sem fylgir svona raðklofningi. Enn einn hægriflokkurinn innan ramma auðvaldsþjóðskipulagsins breytir nákvæmlega engu - ef kjósendur vilja raunverulega breytingar á samfélaginu verða þeir að stíga fram og berjast fyrir breyttu þjóðskipulagi, að öðrum kosti gerist ekki neitt. 

Og ekki vantar hinar frumlegu nafngiftir á flokka hægrisins: Við höfum öfgafullan hægriflokk sem kallar sig Miðflokk; últrahægriflokk undir nafninu Viðreisn; afdankaðir lýðskrumarar fullir með útlendingaandúð heita Flokkur ,,fólksins"; hópur kengruglaðra nýfrjálshyggjukverúlanta af yngri kynslóð, vel hægri sinnaðra, kennir sig við ,,Pírata", sem sé sjóræningja; ekki skulum við heldur gleyma þeim mjög hægrisinnaða flokki loddara og hræsnara sem gengur undir nafninu Samfylking og hefur lengi gengið um ljúgandi því að fólk að sá flokkur samanstandi af ,,jafnaðarmönnum" og ,,sosialdemokrötum"; loks er það hin þríeina og óheiðarlega ríkisstjórn enn annarra róttækra hægrimanna, sem inniheldur skipulögð glæpasamtök og einn sérlega óheiðarlegan flokk tækifærissinna sem þyrstir mjög i borgaraleg völd og snobbsamsæti með burgeisum, auðlindaþjófum og fjárglæframönnum, þetta óféti er svo ósvífið að kalla sig ,,Vinstrihreyfingu" þótt hvergi örli á vinstrimennsku, hvað þá sósíalisma, þar innan dyra.

byltingÞetta er nú ástandið í pólitíkinni á Íslandi. Það eru átta hægri flokkar á Alþingi, átta flokkar sem dag hvern sverja kapítalismanum, auðvaldinu og arðræningjunum, hollustu sína og verja þjóðskipulag kapítalistanna, heimsvaldasinna og ójöfnuðar með kjafti og klóm. Á Alþingi Íslendinga er engin stjórnmálaflokkur sem helgar baráttu sína gjörbreyttu þjóðskipulagi, enginn þeirra er einusinni hlynntur lítilháttar breyttu þjóðskipulagi, allt þeirra hjakk, meðvikni og varðahundahlutverk miðar að óbreyttu þjóðskipulagi með skattsvikum, mansali, stafsþrælaleigum fyrir ,,atvinnulífið", auðlindaþjófum og fjárglæframönnum sem víla ekki fyrir sér að leggja bankakerfi þjóðar sinnar á hliðina við og við eftir að hafa stolið öllu steini léttara innan úr þeim. 


mbl.is Arnar Þór stofnar nýjan stjórnmálaflokk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jólatré skýtur tundurskutli í rassinn á hvalveiðiséníum

x-vg2Þá hefir nú blessað Jólatréð aldeilis gert í nytina sína og reitt æðri máttarvöld til reiði með vanhugsuðum flumbrugangi sínum á fundi Alþjóða hvalveiðiráðsins. Að sögn hins burtrekna ráðherra Nonnýboy Gunnarssyni, sem svindlaði sér, eins og sönnum Sjálfstæðisflokksmanni sæmir, inn á fund hvalveiðiráðsins, þá skipaði Jólatréð sendinefnd sinni, harðri hendi, að segja sig frá bandalagi hvaladrepandi þjóða á þessum fundi. Svona ofboðsleg aðför að Kristjáni Loftssyni virkar náttúrlega eins og skutli hafi verið skotið úr fallstykki beint í rassinn á forustumönnum samstarfsflokka Jólatrésins og mun nú skammt að bíða þess að hefnt verið fyrir þennan óleik af fullum þunga og engu eirt.

Nú ber að líta til þess í sambandi við lúalega aðför sjávarútvegsráðherra að Stjána í Hvalnum, að flokkur ráðherra á í mesta basli og verður að berjast fyrir lífi sínu fram að kosningum ef ekki á illa að fara og hann þurrkist blátt áfram út af þingi. Vér höfum heyrt ekki minni spámenni en Swadeesý sjálfa og Mumu litla frá Brúarlandi, sem líka eru ráðherrar eins og Jólatréð, tala um nauðsyn VG að leita að meintum rótum sínum og skerpa á áherslum, eins og það heitir á fagmáli efrimillistéttarfémínísta og ekkisosialista. Liður í þeirri leit flokkseigenda VG að rótum og áherslum er meðal annars vitaskuld fólgin í því að ráðast á Stjána Lofts, Nonnýboy og hvalasamfélagið og úthýsa þeim úr félagsskap góðra hvalveiðimanna í Alþjóða hvalveiðiráðinu.

dráp2Þegar hér er komið sögu ríður mest á hvurt framhaldið verður. Gera verður ráð fyrir því að Nonnýboy safni liði og láti kné fylgja kviði og sparki öllum Jólatrjám, Swandeesýum og Brúarlandsundrum út úr stjórnarráðinu og hlutist til um að slíkur fénaður verði færður í böndum upp í óbyggðir og komið þar fyrir innan mannheldrar girðingar. Með öðrum orðum: Nonnýboy mun krefjast þess í nafni Mammóns, allra samherja og hinnar heilögu græðgi, að Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarmaddaman segi sig úr lögum við brjálæðingana og heimskingjana í VG og slíti ríkisstjórnarsamstarfinu við það fólk tafarlaust og sæki sér í staðinn liðstyrk hjá Sigmundi Davíð og frú Sæland, sem bæði eru að góðu kunn fyrir lýðskrum og skynsemishyggju, jafnvel skynsemiskristindóm.


mbl.is „Gert í andstöðu við forystumenn samstarfsflokkanna“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enn einn lukkuriddari skynsemishyggjunnar gengur í stjórnmálaflokk

bæn3Þá er kominn til skjalanna í Samfylkingunni náungi sem telur sig rétt sloppinn undan hrammi réttvísinnar í frægu ,,byrlunarmáli". Það kom sem sé fram í fjölmiðlum í gær, að lögregluyfirvöldin nenntu ekki að standa í því lengur að rannsaka hvurjir byrluðu ölvuðum skipstjóra ólyfjan og stálu af honum símanum og afrituðu innhald hans til að selja krassandi og skemmtilegar ,,fréttir" af skipstjóranum og stórfyrirtæki einu norður í landi. Þar með hélt fyrrnefndur náungi að hann væri sloppinn og yfir honum vofði ekki lengur vist á Hrauninu upp á vatn og brauð og þar með væri tímabært fyrir orðlagðan lukkuriddara eins og hann að skrá sig í Samfylkinguna því Fjandinn hafði hvíslað að honum að þaðan væri auðveldasta leiðin fyrir stórmenni af hans tagi inn á Alþingi.

En þá kemur jafnframt í ljós að skipstjórinn, sjálft fórnarlamb byrlunarinnar, er aldeilis ekki af baki dottinn og ætlar áfram með sitt mál þó svo lögregluyfirvöldin séu lögst á hliðina eins og einhver hafi byrlað þeim einhvern lamandi óþverra. Þessi ákvörðun skipstjórans getur að sjálfsögðu endað með því að lukkuriddarinn knái, sem er nýgenginn í Samfylkinguna og er sérlega mikill skynsemishyggjumaður eins og Sigmundur Davíð og Beggó, fari þegar öll kurl koma til grafar eftir sem áður í tukthúsið, þar sem hann verður barinn og látinn hírast í ómálaðri, gluggalausri og óupphitaðri herbergisskonsu þar sem einu húsgögnin eru skítug flatsæng og afgamall koppur, fjölmargra glæpamanna hland- og kúkvanur, fyrir fangann til notkunar þegar hann þarf erinda sinna.

prestur1Þetta lítur því alls ekki vel út fyrir lukkuriddarann hugumstóra því draumur hans um upphefð í formi alþingismennsku og ráðherradóms gæti breyst í niðurlægjandi fangavist með hroðalegum glæpamönnum og misyndissálum, ef skipstjórinn hefur sitt fram og fær sannað á hinn nýútsprungna lukkuriddara að hann sé einn helvískur bölvaður byrlari og símaþjófur. Það getur svo sannarlega brugðið til beggja vona í lífi náungans, lukkuriddarans og skynsemishyggjumannsins, sem ætlar sér á þing fyrir skynsemishyggjuflokk prinsessunnar úr Kvikubanka fínifólksins. Við verðum samt að vona að karluglan fá um það er lýkur makleg málagjöld og fái lausnina annað hvort greidda í því að velta sér um hrygg á skítugu fangelsisgólfinu eða verma síþykknandi bakhluta sinn í ráðherrastóli sem hæfir lukkuriddara af hans tegund.  


mbl.is Þórður Snær í Samfylkinguna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband