Leita í fréttum mbl.is

VG stefnir í 0 borgarfulltrúa

flokkseigendur_786424.jpgEf frú Sóley Tomm nær efsta sætinu hjá VG í prófkjörsforvalinu þarf ekki að spyrja að leikslokum: Listi með þessa bráðgáfuðu frú í fyrsta sæti fær auðvitað engann fulltrúa í hreppsnefnd Reykjavíkur. Svo einfalt er það.

Hinsvegur nýtur frú Sóley þess að vera fulltrúi hins hægrisinnaða Svavarsarms í VG og því miður virðist sem sá ónytjuarmur eigi enn eftir lögg af bensíni á kosningavélina.

Gangi það eftir að hæfileikalaus fulltrúi Svavars Gestssonar, Álfheiðar Inga og Árna Þórs sigri í prófkjörsforvali VG í Reyjkavík mun það flýta fyrir formlegum klofningi VG, en það er svo sem ágætt útaf fyrir sig. 


mbl.is Sóley í 1. sæti hjá VG
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sveinn Elías Hansson

Þar með afhendir VG hrunaflokknum hreinan meirihluta í hreppsnefndinni.

Sveinn Elías Hansson, 6.2.2010 kl. 19:41

2 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Þetta er brandari. Sóley er svo gersamlega búin að gera sig marklausa fyrir löngu í öfgafenínismanum sínum að það mun ekki nokkru maður með fullum fimm styðja slíka hlandfroðu til valda.  Hrunelítan á margt að þakka þessum flokki á næstunni. Íslendingar munu ekki kjósa yfir sig vinstri stjórn næstu 16 árin, svo það verður algerlega á þeirra reikning eins og raunin var hér á árum áður.

Leiðtogakreppa verður okkar versta kreppa næstu árin. Það verður að rísa upp nýtt grasrótarafl, sem svara vilja fólksins, virðir líðræði og hefur vilja til stjórnlagabreytinga.  Þeir sem fyrir eru á báðum vængjum nú eru gersamlega rúnir trausti.  Þeir treysta ekki einu sinni sjálfum sér, eins og berlega skín í gegn þessi misserin.

Jón Steinar Ragnarsson, 6.2.2010 kl. 19:56

3 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Það hefur ekki legið í láginni, að Svavarsarmurinn hefur beitt sér af festu gegn Þorleifi Gunnlaugssyni með þeim meðulum sem armi Svavars og Álfheiðar er tamur. Þetta lið mun ganga af VG dauðu eins og Alþýðubandalaginu.

Jóhannes Ragnarsson, 6.2.2010 kl. 20:19

4 Smámynd: Sveinn Elías Hansson

Er þorleifur eitthvað skárri en Sóley.

Ég get ekki betur séð en að það rigni niður í nefið á honum, oft hef ég séð hann við ýmis tækifæri.

Sveinn Elías Hansson, 6.2.2010 kl. 20:22

5 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Þorleifur er ágætismaður með hjartað á réttum stað, það er a.m.k. mín reynsla af honum.

En máske vakir fyrir VG-fólki í Reykjavík að fjóða uppá absúrd lista í vor. Ef svo er, má segja að frú Sóley Tomm Fílí romm bomm bomm sé góður kostur í fyrsta sæti.

Jóhannes Ragnarsson, 6.2.2010 kl. 20:31

6 Smámynd: Sveinn Elías Hansson

Vera má að ég hafi rangt fyrir mér um hann.

Sveinn Elías Hansson, 6.2.2010 kl. 20:35

7 identicon

Þorleifur er frábær maður, hjartað á réttum stað og ötull stuðningsmaður og rödd þeirra sem minna mega sín. Megi Vg verða að góðu með alla sína femínista raddir.

Ágúst Valves Jóhannesson (IP-tala skráð) 6.2.2010 kl. 20:39

8 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Eftirfarandi málsgrein á að hljóða svona:

,,En máske vakir fyrir VG-fólki í Reykjavík að bjóða uppá absúrd lista í vor. Ef svo er, má segja að frú Sóley Tomm Fílí romm bomm bomm sé góður kostur í fyrsta sæti."

Jóhannes Ragnarsson, 6.2.2010 kl. 20:41

9 Smámynd: Axel Guðmundsson

Nú skulum við fyrir hönd þjóðar vorrar vona  að þessi V.G. mistök líði nú brátt hjá. Og að þessir fáu einstaklingar sem voru haldnir þessari sótt fái nú fullan bata.

Axel Guðmundsson, 6.2.2010 kl. 21:01

10 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Ég get einnig vitnað vel um Þorleif. Hann er fylginn sínum hugsjónum og hann hefur verið ötull við að benda á og vefja ofan af spillingu innan borgarinnar.  Hann er góður og heill maður held ég, þótt það sé ótrúlegt að finna þannig fólk í stjórnsýslunni. Hann er þá allavega undantekningin, sem sannar regluna.

Jón Steinar Ragnarsson, 6.2.2010 kl. 21:07

11 Smámynd: Sveinn Elías Hansson

Sagt er að þorleifur reki fyrirtæki sem borgin hafi keypt þjónustu af fyrir 150 milljónir síðustu 6 ár.

Ef svo er líst mér ekki á manninn.

Sveinn Elías Hansson, 6.2.2010 kl. 21:32

12 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Þorleifur er dúklangningarmeistari, Sveinn. En hvort hann hefur unnið fyrir borgina sem slíkur veit ég ekki. Hafi hann selt borginni slíka þjónustu fyrir 150 milljónir á síðustu sex árum, bendir það til þess að hann sé góður í sínu fagi.  

Jóhannes Ragnarsson, 6.2.2010 kl. 21:56

13 Smámynd: Sveinn Elías Hansson

Hafi þetta verið eftir útboð, þá er það í lagi.

Sveinn Elías Hansson, 6.2.2010 kl. 22:08

14 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

En mikið andskoti held ég að íhaldsframsóknar og samfylkingarliðið hægi þessa stundina að VG með frú Fílí romm bomm bomm á toppnum! Það verður áreiðanlega þokkalegur andskoti fyrir velmeinandi kosningasmala að reyna að nudda fólki til að kjósa VG með þessa líka stórbrotnu prímadonnu í efsta sæti.

Jóhannes Ragnarsson, 6.2.2010 kl. 22:36

15 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Mjög góður stjórnmálamaður Sóley og afar góð úrslit.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 6.2.2010 kl. 22:38

16 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Þú ert þó altént gamansamur maður, Ómar minn Bjarki.

Jóhannes Ragnarsson, 6.2.2010 kl. 22:43

17 Smámynd: Sveinn Elías Hansson

Nú er kátt í Höllinni.

Sveinn Elías Hansson, 6.2.2010 kl. 23:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband