Leita í fréttum mbl.is

Háborgaralegur vikapiltur og trúðsfífl kapítalismans

kapital5Ósköp er ég glaður með að þjóðin mín skuli vera svona ofboðslega hrifin af Þorvaldi Gylfasyni. Ég trúi því að íslenska þjóðin sjái í þessum háborgaralega froðusnakki þann frelsara sem hún hefir lengi þráð og sé reiðubúin að vaða alla helvítiselda og brennisteins, þessa heims og annarra, til þess eins að hann setji oss stjórnarskrá. En við skulum heldur ekki gleyma því eitt andartak, að Þorvaldur Gylfason prófessor er fyrst og fremst vikapiltur og trúðsfífl kapítalismans og allra þeirra blekkinga sem kapítalisminn hefur yfir að ráða. Af honum er einskis að vænta utan þessarar hvimleiðu sjálfumgleði í besservisserastíl sem hann er einkum þekktur fyrir og fólk virðist hafa fallið fyrir í stjórnlagaþingskosningunni. 
mbl.is Þorvaldur ótvíræður sigurvegari
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Níels A. Ársælsson.

Nú verð ég að viðurkenna í fyrsta skipti er ég algerlega ósammála þér félagi Jóhannes.

Þorvaldur Gylfason er mín vonarstjarna enda nokkuð vel málkunnugur honum.

Ég mótmæli þessari bloggfærslu hér með af öllu hjarta.

Lengi lifi Þorvaldur Gylfason !

Níels A. Ársælsson., 2.12.2010 kl. 20:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband