Leita í fréttum mbl.is

Ódæði Steingríms og Samfylkingarinnar

Staðreyndin er sú, að Samfylkingin og hægri armur VG hafa blásið til stórsóknar gegn Jóni Bjarnasyni, með það að markmiði að koma honum úr embætti sem allra, allra fyrst.

Það kemur svo sem ekki á óvart þó aumingjarnir í Samfylkingunni geri aðför að Jóni, en verra þykir mér að samflokksmenn hans, með formanninn sjálfan fremstan í flokki, taki þá í ódæðinu með Samfylkingunni.


mbl.is Vilji Alþingis skýr
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Eggert Hjelm Herbertsson

Þetta er að verða þráhyggja hjá þér Jói. Þú veist hvað stjórnarsáttmáli er. Ég vitna í annað svar frá mér við færslu frá þér: Þetta ferli hófst með stofnun þessarar ríkisstjórnar sem allir þingmenn beggja flokka samþykktu og er það plagg sem unnið er eftir, þar stendur meðal annars: "Nýtt atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti tekur til allra atvinnugreina (utan opinbera geirans og fjármálamarkaðarins), nýsköpunar og þróunar innan þeirra. Þar verða teknar ákvarðanir um nýtingu auðlinda á grundvelli rannsókna og ráðgjafar frá umhverfis- og auðlindaráðuneyti." Sjá: http://www.forsaetisraduneyti.is/verkefni/rikisstjorn/stefnuyfirlysing/

Eggert Hjelm Herbertsson, 20.1.2011 kl. 12:11

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Eggert, þú ættir að lesa fréttina sem hann er að blogga um.  Ef þú ert ekki gallharður og blindur Landráðafylkingarmaður, ætti þér að vera ljóst að Alþingi samþykkti EINGÖNGU að senda inn umsókn að ESB og ekkert annað, þannig að Jón Bjarnason er EINI ráðherrann, sem fer eftir samþykktum Alþingis...........

Jóhann Elíasson, 20.1.2011 kl. 12:29

3 Smámynd: Eggert Hjelm Herbertsson

Aðförin sem Jói bloggar um er að sameina atvinnuvegaráðuneytin í eitt. Það samþykkti Jón Bjarnason þegar hann samþykkti stjórnarsáttmálann sem unnið er eftir.

Þetta aðlögunarferlis-kjaftæði er orðið óþolandi. Við erum búin að vera að aðlaga okkur að ESB frá 1993 í gegnum EES. Við erum í hefðbundnu umsóknarferli, sem á þann lokapunkt að þjóðin ákveður niðurstöðuna og við eigum að virða það.

Og fyrir kjósendur VG, þá er það skýrt brot á stefnu flokksins sem samþykkt var á landsfundi 2009, að þetta mál á útkljá í þjóðaratkvæðagreiðslu. Þetta samþykkti Jón Bjarnason.

Eggert Hjelm Herbertsson, 20.1.2011 kl. 13:30

4 Smámynd: Eggert Hjelm Herbertsson

Svona hljómar stefna VG í málefnum ESB (og flokkurinn fór með í kosningar): " Vinstrihreyfingin – grænt framboð telur nú sem fyrr að hagsmunum Íslands sé best borgið utan Evrópusambandsins.  Sjálfsagt er og brýnt að fram fari opin og lýðræðisleg umræða um samskipti Íslands og sambandsins. Landsfundur VG leggur áherslu á að aðild íslands að ESB eigi að leiða til lykta í þjóðaratkvæðagreiðslu. Landsfundur telur mikilvægt að fyrirkomulag þjóðaratkvæðagreiðslu fái rækilega umræðu og að hliðsjón verði höfð af væntanlegum stjórnarskrábreytingum og hvað eðlilegt getur talist þegar afdrifaríkar ákvarðanir eru teknar um framsal og fullveldi. "

Eggert Hjelm Herbertsson, 20.1.2011 kl. 13:37

5 Smámynd: Eggert Hjelm Herbertsson

Samkvæmt þessari stefnu á leiða þessi mál til lykta í þjóðaratkvæðagreiðslu, það er nákvæmlega það sem verið er að gera. Jón Bjarnason er því að ganga gegn þeirri stefnu sem hann var kosinn til að framfylgja.

Eggert Hjelm Herbertsson, 20.1.2011 kl. 13:39

6 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Þetta er ekkert að verða að neinni þráhyggju hjá mér, Eggert minn, þú þarft ekki að óttast það. Ég veit það bara Jón Bjarnason á í höggi við óheiðarlegt og ódrengilegt fólk í ríkisstjórnarflokkunum, sem vill fyrir alla muni koma honum úr ráðherraembætti vegna skoðanna hans, t.d. á ESB. Hins vegar hefur staða Jóns verið mun sterkari sem ráðherra en óvildarmenn hans gerðu ráð fyrir, annars væri hann löngu fokinn.

Varðandi stonun svonefnds ,,Atvinnuvegaráðuneytis þá get ég með engu móti fundið í stjórnarsáttmálanum einhver tímamörk varðandi hvenær slíkt ráðuneyti taki til starfa, að öðru leyti vísa ég í orð Jóns í fréttinni sem ég bloggaði við.

Og fyrst minnst er á stjórnarsáttmálann, er ekki úr vegi að nefna, að gaman væri að fá úttekt á því hvort ríkisstjórnin fer nákvæmlega eftir nefndum sáttmála eða hvort hún hefur gegngið eitthvað á svig við hann, eða jafnvel svikið hann í einhverjum atriðum.

Jóhannes Ragnarsson, 20.1.2011 kl. 13:59

7 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já það má spyrja um skjaldborgina og norrænu velferðar áherslurnar og margt fleira, en ég tek undir orð þín Jóhannes Jón Bjarnason er maður sem þorir og gerir það sem gera þarf.   Hann á heiður skilinn.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 20.1.2011 kl. 14:03

8 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Það stendur ekkert í þessari klásúlu, Eggert, um að VG sé hlynnt því að Ísland sæki um aðild að ESB. Þvert á móti hefur það verið yfirlýst stefna VG frá stofnun flokksins, að Ísland standi utan ESB. Það hefur jafnframt verið stefna VG, að ef sótt verður um aðild og samningur næst, verði sá samningur lagður í dóm þjóðarinnar. Umsóknin að ESB er því algjör svik við almenna flokksmenn og kjósendur VG. Sem betur fer tók Jón Bjarnason sér strax stöðu með flokksmönnum og kjósendum VG gegn svikurunum. Fyrir það ber honum heiður en ekki skömm.

Jóhannes Ragnarsson, 20.1.2011 kl. 14:13

9 Smámynd: Eggert Hjelm Herbertsson

Jói það stendur:"Landsfundur VG leggur áherslu á að aðild íslands að ESB eigi að leiða til lykta í þjóðaratkvæðagreiðslu". Og með eðlilegum rökum þá er ekki hægt að leiða til lykta aðild í þjóðaratkvæðagreiðslu nema með umsókn.

Eggert Hjelm Herbertsson, 20.1.2011 kl. 14:18

10 Smámynd: Eggert Hjelm Herbertsson

Jón Bjarnason kom í heimsókn í mitt fyrirtæki fyrir síðustu kosningar. Með honum voru Ásmundur og Lilja Rafney. Ég ræddi við hann (í votta viðurvist) um hvort það væri ekki eðlilegt að sækja um aðild og láta þjóðina kjósa. Jón taldi það lýðræðislegt ferli og þar við sat, ekki hreyfi Ásmundur neinum mótmælum.

Jón er ekki hugsjónamaður í stjórnmálum. Hann langaði bara í vinnu, tapaði fyrir Önnu Kristínu Gunnarsdóttur í prófkjöri Samfylkingarinnar og reyndi næst við VG, þar fékk hann sæti. Ekki REYNA að láta fólk trúa því að hér sé hugsjónamaður á ferð.

Eggert Hjelm Herbertsson, 20.1.2011 kl. 14:20

11 Smámynd: Eggert Hjelm Herbertsson

Og stjórnarsáttmálinn er fyrir kjörtímabilið sem fer að verða hálfnað. Því er ekki óeðlilegt að þetta verkefni sé í vinnslu, enda um það samið.

Þar kemur aftur að hugsjónamanninum Jóni (hann var nefnilega ekki orðinn ráðherra þegar hann samþykkti stjórnarsáttmálann, og það er erfitt að tapa völdum).

Eggert Hjelm Herbertsson, 20.1.2011 kl. 14:22

12 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Hvað veist þú um það, Eggert, hvort Jón sé hugsjónamaður eða ekki?

Það að aðild Íslands eigi að leiða til lykta í þjóðaratkvæðagreiðslu, segir ekkert um að Ísland eigi að sækja um slíka aðild. Stefna VG varðandi aðild að sambandinu hefur hinsvegar verið ljós frá 1999. Og svikin við þá stefnu liggja fyrir.

Jóhannes Ragnarsson, 20.1.2011 kl. 14:42

13 Smámynd: Eggert Hjelm Herbertsson

Ég nefndi dæmi um hugsjónamanninn.

Stefna VG var samþykkt síðast á landsfundi VG. Þú getur ekki kosið um aðild nema að sækja um hana - þannig er það. Jón, vinur þinn, samþykkti líka stjórnarsáttmálann. Þar samþykkti hann þetta:

 "Ákvörðun um aðild Íslands að Evrópusambandinu verði í höndum íslensku þjóðarinnar sem mun greiða atkvæði um samning í þjóðaratkvæðagreiðslu að loknum aðildarviðræðum. Utanríkisráðherra mun leggja fram á Alþingi tillögu um aðildarumsókn að Evrópusambandinu á vorþingi"

Hér er meira að segja tímasettning. Þetta eru bara staðreyndir sem tala sínu máli. 

Eggert Hjelm Herbertsson, 20.1.2011 kl. 15:15

14 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Það kannast ekki nokkur maður við að umsókn að ESB hafi verið samþykkt á síðasta landsfundi VG. Flokkurinn hefur ekki skipt um stefnu hvað það varðar.

Jón Bjarnason stóð með sjálfum sér, stefnu VG og kjósendum flokksins og greiddi atkvæði á móti aðildarumsókninni á Alþingi, þrátt fyrir að Jóhanna og Steingrímur hafi reynt hvað þau gátu að kúga hann frá sannfæringu sinni. 

Jóhannes Ragnarsson, 20.1.2011 kl. 15:31

15 Smámynd: Svavar Bjarnason

Ég ætlaði ekki að skipta mér af þessari bloggfærslu þinni Jóhannes,en stóðst ekki mátið, því mér finnst Eggert hafa bakað þig þarna! Sorrý!

Svavar Bjarnason, 20.1.2011 kl. 15:46

16 Smámynd: Eggert Hjelm Herbertsson

Stefna flokksins er samþykkt á landsfundi í hvert skipti (og í lögum VG segir meðal annars "Landsfundur hefur æðsta vald í öllum málum VG"). Ég er búinn að senda þér þá stefnu og þar er lagt áherslu á að aðild verði útkljáð í þjóðaratkvæðargreiðslu - og það er ekki hægt nema að sækja um aðild (þú kýst ekki um aðild án þess að vita hvort þú komist inn og hvað þú færð). Hann var kosinn út á stefnu flokksins.

Jón samþykkti einnig stjórnarsáttmálann (án fyrirvara) og þar er ofangreind klausa um umsókn og þjóðaratkvæðagreiðsla í kjölfarið.

Einnig ræddi ég persónulega við Jón, í votta viðurvist, þar sem hann sagði það lýðræðislegt ferli að sækja um aðild og láta þjóðina kjósa. Hann tók einnig skýrt fram að hann sé á móti aðild en ekki þessu lýðræðislega ferli. Enda á það enginn að óttast, þjóðin velur það sem hún telur best og á rétt á að fá kosti og galla upp á borðið, það gerist eingöngu með því ferli sem er í gangi. Ég tel aðild áhugaverða en áskil mér rétt til að skipta um skoðun náum við ekki fram góðum samningi í ákveðnum málum.

Eggert Hjelm Herbertsson, 20.1.2011 kl. 15:49

17 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Í hverju liggur sá bakstur, Sævar ?

Jóhannes Ragnarsson, 20.1.2011 kl. 15:50

18 Smámynd: Eggert Hjelm Herbertsson

Rökin tala.

Það er oft einkennilegt með þá sem telja sig lengst til vinstri að það fólk sem er á móti er alltaf þeirra fólk - óháð málefnum, oft á tíðum.

Eggert Hjelm Herbertsson, 20.1.2011 kl. 15:57

19 Smámynd: Svavar Bjarnason

Röksemdafærslunni!!!

Svavar Bjarnason, 20.1.2011 kl. 16:01

20 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Hvernig er það, Eggert, skilur þú ekki muninn á aðildarumsókn og þjóðaratkvæðagreiðslu um samning við ESB.

Það var ljóst frá upphafi að Jón ætlaði ekki að samþykkja umsóknina að ESB. Um það þar ekki fleiri orð.

Ég sé að það er gjörsamlega þýðingarlaust, Eggert minn, að koma því inní höfuðið á þér að Visntrihreyfingin grænt framboð, sem flokkur, er á móti aðild Íslands að ESB. Það þýðir ekkert fyrir Samfylkinguna að djöflast á Jóni Bjarnasyni til að reyna að afsanna það.

Þú vitnar í samtal þitt við Jón fyrir síðustu kosningar. Ég sé ekki betur á því en að Jón hafi verið þeirrar skoðunnar að ef svo færi að aðild yrði samþykkt og samningar tækjust við ESB væri þjóðaratkvæðagreiðsla óhjðákvæmileg, enda er það stafna VG. Það er nefnilega ekki sjálfgefið að slík þjóðaratkvæðagreiðsla fari fram.

Nú rétt í þessu heyrði ég Steingrím J. lýsa því yfir á Alþingi að VG væri á móti aðild Íslands að ESB, í þeim efnum hefði ekkert breyst.

Jóhannes Ragnarsson, 20.1.2011 kl. 16:06

21 Smámynd: Eggert Hjelm Herbertsson

VG er á móti aðild, ég hef aldrei sagt annað. Hins vegar er stefnan sú að sækja um aðild og fara með málið fyrir þjóðina. Þannig er stefna hvað sem þú segir. Mér finnst þetta fín stefna og í anda lýðræðis.

Í samtali mínu og Jóns, sagði hann það saman. Að það væri lýðræðislegt að sækja um og láta þjóðina svo dæma um mál sem hefur klofið hana í amk 20 ár.

Hann samþykkti líka stjórnarsáttmálann þar sem klárt var að sækja átti um aðild og og fara með málið fyrir þjóðina. Við það gerði hann engan fyrirvara. Þegar hann sá hvað stór hluti af VG var á móti, skipti hann um nálgun. Þegar hann svo áttaði sig á að hann gæti misst ráðherrastólinn, þá vesnaði hann til muna.

Það að vera á móti aðild er ekki það sama og vera á móti umsókn sem þjóðin hefur lokaorðið um.

Eggert Hjelm Herbertsson, 20.1.2011 kl. 16:15

22 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Bíðið nú við, hvaða röksemdafærslu !!!???

Eru það góð rök að rugla saman stefnu flokks varðandi umsókn um aðild að ESB og þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarsamning ? Ég skil ekki svona gallaðan hugsunarhátt, nema hvað svona lagað er stundum kallað vísvitandi ruglandi. 

Jóhannes Ragnarsson, 20.1.2011 kl. 16:15

23 Smámynd: Eggert Hjelm Herbertsson

Lestu stefnuna og túlkaðu svo. Það er ekki hægt að misskilja þetta.

Eggert Hjelm Herbertsson, 20.1.2011 kl. 16:21

24 Smámynd: Eggert Hjelm Herbertsson

Lestu svo stjórnarsáttmálann og túlkaðu svo. Það er ekki hægt að misskilja hann heldur.

Meira hef ég ekki um málið að segja.

Eggert Hjelm Herbertsson, 20.1.2011 kl. 16:23

25 Smámynd: Svavar Bjarnason

Heimaskítsmát!!

Svavar Bjarnason, 20.1.2011 kl. 16:25

26 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Ég þekki stefnu VG, Eggert, ekkert síður en þú. Umsókn ríkisstjórnarinnar um aðild að ESB eru ótvíræð svik við stefnu VG og það liggur fyrir hverjir stóðu að þeim svikum; þeir munu líka uppskera eins og þeir hafa til sáð. Ég veit að það liggur í krataeðlinu að stunda óheilindi og svik og sleikja sig uppvið auðvaldið, heimskapítalismann. Hvað á t.d. að segja um flokk eins og Samfylkinguna, sem heldur því að fólki að hann sé vinstriflokkur þegar reyndin er sú að hann er langt til hægri ? Er það heiðarlegt ? Er það líklegt til að hafa góð áhrif á þjóðarsálina ? Ég held ekki.

Jóhannes Ragnarsson, 20.1.2011 kl. 16:42

27 Smámynd: Eggert Hjelm Herbertsson

Ég er algjörlega ósammála því að umsókn sé svik. Að kjörnir fulltrúar VG myndu samþykkja samning væri hægt að túlka sem svik.

Ég veit ekki hvernig þú túlkar Vinstri og hægri. Mér finnst að þú túlkir þá sem eru alltaf á móti og gera engar málamiðlanir vera til vinstri. Jón Bjarnason, títtnefndur, er að mínu mati ekki vinstri maður. Af hverju reyndi hann fyrir sér í krataflokk og þegar hann komst ekki að fór hann annað og nú telur þú hann lengst til vinstri, af hverju? 

Ég tala ekki fyrir flokk, enda er ég ekki virkur í flokksstarfi (þó svo ég hafi verið það). Óheilindi og spilling hefur ekki einkennt það flokksstarf sem ég hef stunda, og hef ég nú oft verið virkur. Mér finnst gaman að rökræða hlutina og les oftast bloggið þitt, og hef gaman af.

Eggert Hjelm Herbertsson, 20.1.2011 kl. 16:54

28 Smámynd: Eggert Hjelm Herbertsson

Svo er það annað. Þessi svokallaða órólegadeild VG, hefur örugglega tryggt það að vinstri menn, sósíalista, jafnaðarmenn eða hvað þú vilt kalla þetta komast ekki aftur til valda hér. Verða í stjórnarandstöðu og fá að vera á móti, í friði, eins og þeim líður greinilega best með. Ég er ekki í þannig hóp.

Eggert Hjelm Herbertsson, 20.1.2011 kl. 16:57

29 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Jón Bjarna reyndi fyrir sér í Samfó meðan ekki var enn útséð hvort VG kæmist á koppinn. Hann var síðan beðin um að leiða lista VG á Norðurlandi vestra. Ég veit það af kynnum mínum af Jóni að hann er gegnheill sósíalisti. Meira hef ég ekki af því að segja.

Það er afstaðan til hins kapítalíska þjóðskipulags sem aðgreinir sósíalista og borgaralega þenkjandi fólk, svo það er ekkert undarlegt þó hinir fyrrnefndu hafi margt við athafnir borgaralegs ríkisvalds að athuga og séu á móti mörgu sem kemur úr þeim herbúðum. 

Ég hef ekki tekið þátt í flokksstarfi VG síðan haustið 2003, að því undanskildu að ég rak uppá mitt einsdæmi kosningaskrifstofu VG í Ólafsvík fyrir síðust kosningar.

En það getur verið gaman að þrasa um pólitík, svona án skuldbindinga. Og ekki erfi ég það við menn þó að þeir séu mér ekki sammála og láti mig hafa það óþvegið ef svo ber undir.

Jóhannes Ragnarsson, 20.1.2011 kl. 18:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband