Leita í fréttum mbl.is

Hvað gerir móðir sextán ára hormónadrengs?

perrTjahh-há. Svo helvítis ormurinn atarna þverneitar fyrir að giljað konuna frá Kalíforníu. Maður trúir því nú svona rétt mátulega. Það er nefnilega alkunna, að sextán til sautján ára strákagægsni eru jafn stútfullir af eðlunarfýsnishormónum og hrútar um fengitímann. Og það sem verra er: siðferðisleysi þessara drengja leiðir þá oft til að snuðra í pilsum sér eldri kvenna, oft með skelfilegum afleiðingum.

Síðastliðið sumar réðist móðir sextán ára glaumgosa á Máríu borgargagn úti á miðri götu um hábjartan dag og vændi hana um að hafa afvegaleitt drenginn sinn. Og móðirin var ekkert að tvítóla við hlutina og barði Máríu borgargagn í hausinn með handtösku sinni, grjótharðri og þungri, svo Máría kastaðist utaní verslunarglugga. Svo kom uppúr dúrnum, að móðirin hafði misskilið málavexti allhrapalega, því það var faðir drengsins, en ekki drengurinn sjálfur, sem fallið hafði eina krítíska kvöldstund fyrir borgargagninu. 


mbl.is Bieber: Ég á ekki barnið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband