Leita í fréttum mbl.is

Rotaði bróðir sinn með öskubakka

girl.jpgÞað er alþekkt að kerlingum renni í skap ef þeim er borið á brýn að vera feitar. Enda vill enginn kona vera hlandsprengja, júfferta eða brikki. Þetta fékk Kjartan ræfillinn vindbelgur að reyna á eigin skinni þegar hann var í heimsókn hjá Herborgu systur sinni. Systirin var að vaska upp með tilheyrandi glamri og brussugangi, en Kjartan vindbelgur sat við eldhúsborðið, reykti sér sígarettu og virtiHerborgu fyrir sér. Allt í einu gat Kjartan ekki orða bundist lengur og mælti: - Djöfull ertu orðin feit, helvítis geitin þín! Og viðbrögð Herborgar létu ekki á sér standa: Hún greip níðþungan öskubakka, sem hún var rétt búin að vaska upp og kastaði honum af hendi, beint í höfuðið á Kjartani, sem valt samstundis undir borð og lá þar meðvitundarlaus í um það bil hálfa klukkustund hjá heimilishundinum Kölska, sem reyndi sitt besta að vekja lagsbróðir sinn með því að sleikja hann í framan.

Á meðfylgjandi mynd, er Herborg, systir Kjartans, (sú stóra til vinstri) á góðri stund, skömmu áður en hún varð bróður sínum næstum því að bana.


mbl.is Rak umboðsmann sem sagði henni að léttast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband