28.1.2012 | 22:32
Hroðalegar tónlistarmisþyrmingar
Ég veit að ég tala fyrir munn flestra landsmanna, að Söngvakeppni Sjónvarpsins í kvöld keyrði algjörleg um þverbak. Annað eins andskotans nágól held ég að hafi aldrei heyrst í gjörvallri sjónvarpssögu Íslands á einni kvöldstund.
Nú væri sök sér, að þessi ósköp væru glömruð og orguð í lítt þekktu neðanjarðarbyrgi þar sem enginn er nær. En að blása jafn óviðjafnanlegum óþverra eins og klóakholskeflu framan í landsmenn er ófeyrirgefanlegt.
Hvern fjandann á þetta að þýða?
Heldur Páll Magnússon að við séum að borga afnotagjald til Ríkisútvarpsins til þess að hann geti umgengist okkur eins og fífl og fávita í staðinn?
Andskotans ekkisens hlandpétraútfyrmi og íllyrmi geta þessir fjölmiðlapaurar verið.
Af öllu vondu í Söngvakeppni Sjónvarpsins í kvöld var þó framlag Magna Ásgeirssonar langverst: Sjá þennan volaða manngarm liggjandi argandi og kveinandi á hnjánum í einum kegng, eins og verið væri að urga með vírbusta í innýflunum áhonum, er einhver hryllilegasta upplifun sem nokkur maður getur upplifað. Þar var sannalega um að ræða mestu og hroðalegustu tónlistarmisþyrmingu Íslandssögunnar. Og svo kemur til greina að senda þessa eyðileggjandi tónmengun í söngkeppni sem send er út um víða veröld! Þvílík og önnur eins niðurlæging, smekkleysa og guðlast verður ekki fundin á byggðu bóli, - sem betur fer myndi margur segja.
Með svona áframhaldi verða allir Íslendingar fluttir til Noregs fyrir næstu áramót og enginn eftir á Íslandi nema nokkrar pólskar eftirlegukindur sem ekki vóru með á nótunum.
Þrjú lög komust áfram | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:57 | Facebook
Nýjustu færslur
- ,,Skipulögð starfsemi" Flokks
- Sú á nú eftir að fá sína sálumessu yfir sig eins og Birgitta ...
- Aðför að lýðræðinu og saga af ferð á hvalaslóðir
- Mun alvarlegri atburður en ætlað var í fyrstu
- Erlendur njósnari settur á Nonnýboy til að kanna hvalablæti hans
- Gunter Sachs var glaumgosi en þó var Indriði Handreður honum ...
- Af óviðunadi afvegaleiðingu ungmenna
- Vinn ei það fyrir vinskap manns að víkja af götu sannleikans
- Heimska og dómgreindarleysi villuráfandi þjóðar staðfest
- Þegar líkin koma á færibandi inn á borð ráðherra
Bloggvinir
- Níels A. Ársælsson.
- Vésteinn Valgarðsson
- Sveinn Elías Hansson
- Guðbergur Egill Eyjólfsson
- Þórbergur Torfason
- Guðfríður Lilja
- Rafn Gíslason
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Bjarki Steingrímsson
- Pálmi Gunnarsson
- Grétar Mar Jónsson
- Ásdís Helga Jóhannesdóttir
- Rúnar Sveinbjörnsson
- Þorvaldur Þorvaldsson
- Rauður vettvangur
- Björgvin R. Leifsson
- Ingibjörg Friðriksdóttir
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Einar Ólafsson
- Baldur Hermannsson
- Dætur og synir Íslands.
- hilmar jónsson
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Þórdís Bára Hannesdóttir
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Hulda Haraldsdóttir
- Óskar Helgi Helgason
- Heiða Þórðar
- Helgi Guðmundsson
- Sigurður Sigurðsson
- Baldur Fjölnisson
- Birgitta Jónsdóttir
- Ísleifur Egill Hjaltason
- Reynir Andri
- Rúnar Karvel Guðmundsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Auðun Gíslason
- Jón Snæbjörnsson
- Rannveig H
- Magnús Jónsson
- Steingrímur Helgason
- Hallgrímur Guðmundsson
- Ársæll Níelsson
- Brynja Hjaltadóttir
- Fríða Eyland
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Ólafur Þórðarson
- Eygló Sara
- Lúðvík Lúðvíksson
- Þorsteinn Briem
- Ester Júlía
- Svava frá Strandbergi
- Björn Grétar Sveinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Sigurbjörn Friðriksson
- Ragnar Páll Ólafsson
- Páll Ingi Kvaran
- Jakob Jörunds Jónsson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Þorkell Sigurjónsson
- Jóhann Elíasson
- Óskar Arnórsson
- Bergur Thorberg
- Gísli Bergsveinn Ívarsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Eyjólfur Jónsson
- gudni.is
- Sigurður Sigurðsson
- Alma Lísa Jóhannsdóttir
- Alfreð Símonarson
- Guðni Ólason
- ThoR-E
- Arnar Guðmundsson
- Þór Jóhannesson
- Georg P Sveinbjörnsson
- Himmalingur
- Guðjón Baldursson
- halkatla
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Einar Sigurjón Oddsson
- Haukur Nikulásson
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Heiða
- Jakob Falur Kristinsson
- Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
- Steingrímur Ólafsson
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Sigurbjörn Svavarsson
- Landrover
- Valla
- Vilmundur Aðalsteinn Árnason
- Vefritid
- Sigríður B Sigurðardóttir
- Ónefnd
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Þórarinn Eldjárn
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Ragnar Björnsson
- Hlédís
- Einar B Bragason
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Árni Karl Ellertsson
- Hamarinn
- Hamarinn
- Helgi Þór Gunnarsson
- Hörður B Hjartarson
- Jack Daniel's
- Jón Bjarnason
- Kristján Jón Sveinbjörnsson
- Kristján P. Gudmundsson
- Linda
- Rauða Ljónið
- Sigurður Haraldsson
- Sóldís Fjóla Karlsdóttir
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Vináttufélag Íslands og Kúbu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 3
- Sl. sólarhring: 18
- Sl. viku: 115
- Frá upphafi: 1539337
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 101
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Nóvember 2012
- Júlí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
Athugasemdir
Þetta var nú ekki alveg jafn slæmt og Jóhannes lýsir hér. Þannig var lagið Aldrei sleppir mér feiknagott og gæti hugsanlega orðið sigurlagið í ár. Lagið sem Ópal flutti í fyrsta þættinum fannst mér líka mjög gott. Herbert hefði kannski betur fengið Jónsa til að syngja fyrir sig áðan en lagið hans var alls ekki slæmt.
Davíð Pálsson, 28.1.2012 kl. 22:43
Ekki alveg jafn slæmt???
Ég myndi segja öllu verra, ef eitthvað væri.
Ég siki ekki hvað maðurinn er að fara.
Jóhannes Ragnarsson, 28.1.2012 kl. 23:02
,,Ég SKIL ekki hvað maðurinn er að fara" átti að standa þarna.
Jóhannes Ragnarsson, 28.1.2012 kl. 23:05
Dabbi, Jói tekur vægt til orða þetta er helvítir drasl og svo er manni naugað til að borga.
Kv,Sigurjón Vigfússon
Rauða Ljónið, 28.1.2012 kl. 23:09
Þetta er á íslensku hjá þér Jóhannes :) en ég deili með þér vonbrigðum með keppnina í kvöld. Það hefur verið mun betra síðustu tvö laugardagskvöld en þetta voru bara skrautbúnar konur og karlmenn að engjast eins og þú segir. Ekkert sem hreyfði við manni. Ég verð þó að taka fram að ég missti af Herberti því miður. "Aldrei sleppir mér" er ekki boðlegt svona yfirhlaðið af skrauti og glingri,enda fer það ekki lengra. Hitt lagið hennar Grétu með Jónsa var hinsvegar skemmtilegt og gaman að sjá það fara alla leið. Kveðja Kolla
Kolbrún Stefánsdóttir, 28.1.2012 kl. 23:18
Ég vil fá hið ekta íslenska lag Hey áfram með Simba og hrútspungunum, fimmundarsöngur og frábært ekta þjóðlegt lag.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 28.1.2012 kl. 23:18
Jamm
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 28.1.2012 kl. 23:18
Ég held Ásthildur að lagið Hey, eins ágætt og það er, myndi ekki hljóma vel í úrslitaþætti Eurovision þegar sumar er komið í Evrópu. Eiginlega myndi það hljóma eins og Bjart er yfir Betlehem.
Davíð Pálsson, 28.1.2012 kl. 23:27
Snilldar blogg hjá þér :)
Sædís Ósk Harðardóttir, 28.1.2012 kl. 23:39
Nei þvert á móti myndi það hljóma eins og góður norðangarri.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 28.1.2012 kl. 23:42
Lélegasta júrúvísíón um aldir alda. Eigum við ekki betri lagahöfunda en þetta?
Guðmundur St Ragnarsson, 29.1.2012 kl. 01:51
& að auki, leggur Jói til að Karþagó zé lögð í eyði !
Steingrímur Helgason, 29.1.2012 kl. 03:11
Ólagvist fólk á það sameiginlegt að heyra ekkert nema gaul út úr lögum sem það heyrir í fyrsta skipti, en pistillinn er skemmtilegur aflestrar. Þetta var misgott eins og gengur og gerist en ég er sammála Ásthildi með Simma og Hrútspungana. Það skiptir engu máli þótt það vinni ekki keppnina úti.
Emil Hannes Valgeirsson, 29.1.2012 kl. 13:34
Er ekki allt í lagi heima hjá þér? ...
Treysti því að þessi pistill sé grín.
Auðvitað var þetta ekkert fullkomið, en fólk er þó að gera sitt besta og aldrei hægt að gera öllum til geðs, ekki frekar en með handboltann. Ef okkur líkar ekki, þá er okkar val að slökkva. -
Jóhanna Magnúsdóttir, 29.1.2012 kl. 13:34
Heill og sæll Jóhannes; æfinlega !
Jóhannes !
Tek undir; með þér, utan þess, sem spyrja má, hvað Norður- Ameríku þjóðin Íslendingar, séu yfirleitt, að taka þátt í Evrópskri keppni, af þessum toga.
Jóhanna Guðskona Magnúsdóttir !
Ég hygg, að þú getir alveg sparað þér skenzið, til fornvinar míns, Sjóhundsins- og Beitningarmeistarans Jóhannesar, úti undir Enni vestra, og einbeitt þér, að áframhaldandi sukki Þjóðkirkju vina þinna, sem leika sér með 5 - 6000 Milljónir Króna, ár hvert, til þess að viðhalda þessum siðferðilega sóða söfnuði, sem ætti að vera, búið að uppræta fyrir löngu, með tilheyrandi sparnaði, fyrir landsmenn, alla.
Þjóðkirkjan; er ásamt núverandi stjórnsýslu annarri í landinu, einhver sú fremsta, í röð íslenzkra afætna, ágæta kona.
Hversu miklu; skyldi Jóhannes Ragnarsson, og hans líkar, vera búnir að skila fjármunalega, til íslenzks samfélags, í samanburði við rolur, eins og gerfi- Byskupinn Karl, og preláta hyski hans, gott fólk ?
Með beztu kveðjum; sem jafnan, úr Árnesþingi /
Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 29.1.2012 kl. 13:54
Á sömu mínútu Jóhanna!
Emil Hannes Valgeirsson, 29.1.2012 kl. 13:55
Jújú, Jóhanna, það er allt í lagi heima hjá mér.
En að svo stöddu svara ég engu um hvort þetta er grín eða fúlasta alvara. Það verður að bíða betri tíma.
Jóhannes Ragnarsson, 29.1.2012 kl. 15:52
Hvar fékkstu þetta mynd Jóhannes, sé ekki betur en söngkonan hafi pissað í buxurnar
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 29.1.2012 kl. 15:55
Ég veit ekki betur en myndin sé úr júrúvísjóninu í gærkvöldi. Ef þetta er ekki þessi Magni, þá er þetta ein af söngkonunum.
Jóhannes Ragnarsson, 29.1.2012 kl. 18:19
Hahahaha Jóhannes þú drepur mig
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 29.1.2012 kl. 18:32
Óskar Helgi, - mér sýnist þú vera viðkvæmari fyrir gríninu en Jóhannes pistlahöfundur, sem náði því að ég var bara að tala í sama dúr og hann.
Og hvað í ósköpunum kemur mitt innlegg þjóðkirkjunni eða biskupnum við?
Jóhanna Magnúsdóttir, 29.1.2012 kl. 18:40
Já, Emil frændi; 13:34!
Jóhanna Magnúsdóttir, 29.1.2012 kl. 18:56
Komið þið sæl; að nýju !
Jóhanna Guðskona !
O; fremur skjöplazt þér ályktunin, um meinta viðkvæmni mína, gagnvart Evrópsku sönglaga keppninni, svo sem.
Læt mér alveg; í léttu rúmi liggja, hvar Íslendingar skipa sér á bekki, í utanlands keppnum, af því taginu. Hins vegar; fer ég ekki ofan af því, að grannar okkar í vestri - sem samálfubúar, ættu að standa okkur nærri, en Evrópska kraðakið, með fullri virðingu fyrir Azerum, sem öðrum keppnis höldurum, þar austan hafs.
Varðandi Þjóðkirkjuna; mátti ég til, að koma þeirri sneiðinni að þér, þó svo; eftir á að hyggja, hefði ég átt að beina henni fremur, að þessum fígúrum, sem þykjast feta í fótspor garmsins Karls, á Sumri komanda.
Þar í; lá skot mitt, til prjál liðs Þjóðkirkjunnar, þó ekki ætti að beinast að þér; persónulega, Jóhanna mín.
Bið ég þig; fyllsta forláts, þar á, að svo komnu.
Með; ekki síðri kveðjum - en þeim fyrri /
Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 29.1.2012 kl. 20:28
Sæll aftur Óskar Helgi, - hvorki ég né þú berum ábyrgð á öðru fólki, hvað þá biskupnum. - Ég skráði mig frá þjóðkirkju fyrir u.þ.b. tveimur árum vegna þess að það var eina vald mitt til að lýsa óánægju með yfirstjórn kirkjunnar og máttleysi biskups. Reyndar skrifaði ég svo pistil á Pressuna 11. júní sl. þar sem ég hvatti biskup til þess að segja af sér, en það fór eins og það fór. Hægt er að lesa þann pistil hér.
En umræðan er komin frá júróvisjón yfir í þjóðkirkjuna, sem er kannski bara allt í lagi, en munurinn þarf að vera sá að kirkjan á að vera einlæg og þar á ekki að vera um "show" að ræða, - en auðvitað er júróvisjón "show" og á að vera það.
Auðvitað semjum við frið og strjúkum kvið, enda er allt stríð mér á móti skapi og ég sein til vandræða. Annað hvort er það leti, ég nenni ekki vandræðunum, eða gleymska, ég man ekki af hverju verið er að vandræðast!
Kær kveðja á móti.
Jóhanna Magnúsdóttir, 29.1.2012 kl. 21:34
Komið þið sæl; sem fyrr !
Jóhanna Magnúsdóttir !
Þakka þér fyrir; drengileg - sem einarðleg andsvör þín, sem upplýsingu alla, og munum við dús verða, héðan í frá, með öllu, hvað þessum málum viðvíkur.
Með; sízt lakari kveðjum - en þeim fyrri, og áður /
Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 29.1.2012 kl. 21:41
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.