Leita í fréttum mbl.is

Erill og orrustugnýr við og á heimili virðulegra borgara.

ingv13.jpgÞað er hætt við að ferðalag Sigmundar Davíðs Kanada fari eins og hjá uxanum sem fór til London og kom aftur naut. Það er nefnilega ekki nein ástæða að ætla að þetta piltkorn betrist nokkuð við að þeytast eins og landafjandi frá Íslandi til Manítóbu og Winnipeg, og væntanlega til baka aftur. Því miður. En vonandi hagar gripurinn sér vel á heimleiðinni; gerist ekki flugdólgur um borð í flugvélinni, sem ferjar hann til Íslands eftir öll rassaköstin og kokteilboðin á slóðum Vesturíslendinga.

En víkjum nú ögn að öðru og alvarlegra máli. Svo er mál með vexti, að undarfarnar vikur hafa Kolbeinn Kolbeinsson og frú Ingveldur verið í sumarleyfi. Það væri svo sem ekki í frásögur færandi, ef þau og þeirra félagar hefðu haft taumhald á drykkjufýsn sinni, eituráti og kynlífsáráttu, en því er aldeilis ekki að heilsa.

Fyrir utan hefðbundna svallfélaga þeirra hjóna, þau Máríu Borgargagn og Indriða Handreð, hafa nú bæst í hópinn alræmdir lostahrókar og illyrmi á borð við Brynjar vondulykt og Óla apakött, auk Sigurveigar dræsu, sem nýlega fékk ágætan pólitískan bitling hjá Sjálfstæðisflokknum. Þessi skaðræðishópur hefur nú í tæpan hálfan mánuð haldið uppi slíkum djöfulgangi heima hjá sæmdarhjónunum Kolbeini og frú Ingveldi, að nágrönnum þeirra er hætt að standa á sama, enda orrustugnýrinn sem þessu fólki fylgir af því tagi, að ekki er búandi við innan einnar sjómílu radíus við slíkt brölt. Til að mynda máttu nágrannarnir, nú fyrr í vikunni, horfast í augu við rassakinnar Máríu Borgargagns klesstar uppvið rúðu í eldhúsglugga frú Ingveldar í röskan hálftíma um hábjartan dag og hryglunar og hvalabláturinn í Brynjari vondulykt heyrðist útá götu, börnunum sem þar voru að leik til mikillar undrunar.

Í morgun lá svo Brynjar vondalykt rotaður í blómabeði á lóð frú Ingveldar og Kolbeins, eftir að einum nágrannanna hafði tekist að koma á hann höggi í nótt, þegar rafturinn hafi gengið út að míga yfir rósabeð í garðinum. En eftir hádegi var móttaka tiginna gesta á heimili frú Ingveldar og Kolbeins og er búist við miklum erli, hávaða og fantaskap í kvöld og nótt þar um slóðir.
mbl.is Í sviðsljósinu í Vesturheimi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Austmann,félagasamtök

Sem sagt business as usual heima hjá þeim hjónum. Ekki væri amalegt að sækja þau heim og fá á broddinn.

Austmann,félagasamtök, 2.8.2013 kl. 23:03

2 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Því miður fá ekki allir aðgang að veislum frú Ingveldar og Kolbeins Kolbeinssonar.

Jóhannes Ragnarsson, 2.8.2013 kl. 23:08

3 Smámynd: Austmann,félagasamtök

Nú, þarf ég að vera með bindi eða hvað? Hvers konar kyn- og drykkjusvall er þetta eiginlega ef heiðvirðir borgarar eins og ég megum ekki einu sinni vera með? Ég bara spyr.

Ég vil jafnvel ganga svo langt að koma með eina kippu af bjór. En smokk nota ég aldrei. Bara svo að það sé á hreinu.

Austmann,félagasamtök, 2.8.2013 kl. 23:38

4 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Það eru heldur aldrei notaðir smokkar í samkvæmum frú Ingveldar og Kolbeins.

Jóhannes Ragnarsson, 5.8.2013 kl. 01:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband