Leita í fréttum mbl.is

Ástandið hefur víst batnað. Allt tal um annað er lúsugur áróður og lýgi

xd7.jpgÁ fólk virkilega að trúa því að ástandið hafi ekkert batnað eftir bráðum árs valdatíð loforðastjórnar Simundarr og Bjarna og þar áður fjögurra ára yfirnáttúrlega flórmokandi kraftaverkastjórn Jóhönnu og Steingríms? Já, ástandið í fátæktarmálum og örbirgðar hafi jafnvel versnað? Ég á bágt með að trúa því. Og vóru þó báðar áminnstar ríkisstjórnir vel hægrisinnaðar; önnur endurreisti Gamla Ísland uppí skítugar lúkurnar á hinni.

Auðvitað hefur ástandið batnað mjög mikið, allt tal um annað ber vott um ófagurt hugarfar ef ekki illgirni og vonsku á háu stigi. Til marks um batnandi ástand eru sífelldar umfjallanir fjölmiðla um stórasannleik Verslunarráðs og annarra dásamlegra auðvaldsfélaga og viðhafnarviðtöl við æðstupresta þessara trúarstofnanna nýfrjálshyggjunnar. Og aldrei hefur blessað kvótakerfið verið fastara í sessi, þökk sé stórsocialistanum Steingrími Þríhrossi. Nú hyllir og undir að bölvað menntakerfið verði loksins einkavætt undir handleiðslu nýfrjálshyggjudrottningarinnar Margrétar Pálu og bandaríska heilbrigiskerfið bíður sem betur fer handan við hornið. Menn skulu minnast þess, og koma inní hausinn á sér í eitt skifti fyrir öll, að misrétti og ójöfnuður er jafnrétti og raunverulegur jöfnuður og sameign fólksins á atvinnutækjum og velferð er óréttlæti gagnvart þeim sem eru bornir til að vera jafnari en aðrir.

Það er sem sé allt að verða klárt undir næsta Hrun, og er það vel.
mbl.is „Ástandið hefur ekkert batnað“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Jóhannes. Þetta er allt löngu planað að utan, og samkvæmt misskiptingar-útrýmingaruppskrift AGS/USA/EES/ESB. Það veist þú eflaust mætavel.

Og Landsbankastjórinn alsælaði fær ofurlaun, og fyrir að sitja sinnulaus í bankastjórastóli? Eða einungis fyrir þá einu óframkvæmdu vinnu sína, að furða sig á þróun týndrar og glæpsamlega hálaunaðrar eilífðarslitastjórnar?

Krakkarnir í Háskóla Íslands ættu að snúa sér að þessum furðuþenkjandi og ofurlaunaða verklausa bankastjóra, í næstu mótmælum!

Það væri mannúðlegra að slátra fátæku, gömlu og sjúku fólki með einni kúlu, heldur en að draga fólk svona hægt og rólega niður að gröf kirkjugarðanna ríkisvæddu og "kristnu".

"Gleðilega" Páskakrossfestingarhátíð, í krossfests Jesú nafni. Það eru líklega kærleikshlý hýbýli, (og fjarri nöprum græðgivindum Kauphallarjarðar"Guða"), í himnaríki handan móðunnar miklu.

"Amen", hefðu líklega prestarnir líf-eyris-tryggðu sagt, á eftir svona ræðu? "Amen", er  VERÐTRYGGT orðtóm, í "Guðshúsum" vesturveldanna!

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 15.4.2014 kl. 21:00

2 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Sæl verið þið, til í að leiða alvöru byltingu gegn þessu auðvaldsmafíuflokkræðis kerfi! Tíminn er komin nú er að bretta upp ermar og láta verkin tala gegn þessum fasista öflum sem er hér allt að drepa með auðvaldshyggju og bankadýrkun.

Sigurður Haraldsson, 15.4.2014 kl. 21:29

3 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Sigurður. Ef þú ætlar að leiða siðbótarbyltingu, þá verður þú að leiða þá byltingu af úthaldi, og stanslausri þrotlausri þrautseiglu, kringum Frímúrarahúsið við Skúlagötuna.

Það er að segja ef þú ætlar að reyna að uppræta rót illgresis-stjórnsýslunnar á Íslandi, með þeirri byltingu. Þar gerast nefnilega enn þann dag í dag, miljónafélags-kaupin á eyrinni.

Betra er vit en strit, sagði einhver raunverulegur viskunnar boðberi eitt sinn. Það á vel við í þessu byltingar-samhengi. Ef ritað mál á rökstuddum stjórnarskrár-réttlætisgrundvelli, við æðstu stofnanir duga ekki, þá dugar hávaðasöm bylting á Austurvelli ekki.

Völdin eru í Hakakross-Frímúrarahöllunum vítt og breitt um vesturveldið. Gluggalausar undirheima-mafíustjórnstöðvar!

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 15.4.2014 kl. 23:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband