Leita í fréttum mbl.is

Steffie Ericson veldur vonbrigðum með háttarlagi sínu

xd9_1241092.jpgÞað hefir löngum verið hald manna, að Steffie Ericson væri sá er tæki við keflinu af stjörnusýslumanninum Stones sem æðsta yfirvald í Árnessýslu þegar þeim síðarnefnda þóknast að setjast í helgan stein eftir áratuga baráttu við óbótamenn og glæpalýð.

En trúlega hefir Steffie ekki þolinmæði til að bíða eftir að stjörnusýlumaðurinn láti af störfum og ætlar að snúa sér að mjúku málunum. Svo getur hugsast að drengskökullinn sé of blauður til að þora að takast á við hina forhertu glæpajúða sem hreiðrað hafa um sig í Árnessýslu. Sem betur fer er þó engann bilbug að finna á hr. Stones, sem barist hefur nótt og dag við óaldarsvín héraðsins, með litlum árangri.
mbl.is Stefán ætlar ekki að festast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband