Leita í fréttum mbl.is

Strangheiđarlegt fólk situr undir árásum skinhelgra hundingja

fokk1_1055728.jpgŢađ er alkunna ađ ţiggjendur arđgreiđsna, ţ.e. hinar kapítalísku haugsugur, eru afar mótfallnar ţví ađ stjórnvöld skipti sér af gróđabralli ţeirra. Ţá eru og ţekkt viđhorf bölsýnismanna og öfundarlýđs útí arđgreiđslur og ţá menn sem ţćr ákveđa. Auk ţess eru til skítmenni sem láta sér sćma ađ hlćgja ađ arđgreislum og ţví meir sem ţćr bera merki um örvita grćđgi og smásálarhátt; fólk sem hlćr ađ arđgreislum er ugglaust haldiđ sóđalegri geđveiki og hefđi gott af ađ kynnast höggstokknum. Já ...

Miskunnarlausar rottur örlaganna hafa nú hagađ hlutunum ţannig ađ sćmdarhjónin frú Ingveldur og Kolbeinn eiginmađur hennar mega sitja undir bölvi og hótunum eđa skensi og jafnvel athugasemdum af kynferđislegum toga vegna ţess ađ ţeim hefir lagst góđur arđur hlutabréfa ţeirra og einnig ađ ţau hafi sem stjórnarmenn í glćsilegum hlutafélögum samţykkt arđ á arđ ofan, ţar á međal til ţeirra sjálfra. Og hvađ heldur nautheimskur villulýđurinn ađ frú Ingveldur og Kolbeinn geri viđ arđinn sem bćđi ţau sjálf og ađrir greiđa ţeim af kristilegri gjafmildi? Jú, ţađ heldur ađ ţau kaupi brennivín og eiturlyf til ađ halda sjálfum sér og vinum sínum draugfullum og vitlausum allar helgar og helst alla vikuna. Svona er nú hugsunarháttur hins nautheimska lýđs.

Sjálf segir frú Ingveldur ađ henni sé akkúrat andskotans sama hvađ óuppdreginn skríllinn heldur eđa segir um ţau hjónin og ađra arđgreiđsluţega. Hún ţekki sjálf fullt af slepjulegum kratakvikindum, sannkölluđum krataskitum, sem svíki linnulaust undan skatti og stundi alskyns loftfimleika í lágkúrulegum péníngaundanskotum jafnhliđa ţví ađ öskra og veina ,,spilling-spilling-spilling" allstađar sem ţeir komast ađ međ frasana sína ,,löglegt en siđlaust og spilling-spilling spilling." Til dćmis ţekki hún útbelgdann kratahöfđingja međ augun útúr hausnum af vandlćtingu sem hafi ekki viljađ heyra á annađ minnst ţegar hann var ađ byggja en ađ borga öllum iđnađarmönnunum svart. - Sá djöfull, sagđi frú Ingveldur, - lćtur ekki eđlislćga spillingar ónáttúru sína aftra sér frá ađ saka ađra um spillinu og glćpi, fyrir nú utan ađ eiga hlutabréf og taka viđ arđgreiđslum af ţeim međ gráđugu geđi.


mbl.is Skipti sér ekki af arđgreiđslum
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband