Leita í fréttum mbl.is

Strangheiðarlegt fólk situr undir árásum skinhelgra hundingja

fokk1_1055728.jpgÞað er alkunna að þiggjendur arðgreiðsna, þ.e. hinar kapítalísku haugsugur, eru afar mótfallnar því að stjórnvöld skipti sér af gróðabralli þeirra. Þá eru og þekkt viðhorf bölsýnismanna og öfundarlýðs útí arðgreiðslur og þá menn sem þær ákveða. Auk þess eru til skítmenni sem láta sér sæma að hlægja að arðgreislum og því meir sem þær bera merki um örvita græðgi og smásálarhátt; fólk sem hlær að arðgreislum er ugglaust haldið sóðalegri geðveiki og hefði gott af að kynnast höggstokknum. Já ...

Miskunnarlausar rottur örlaganna hafa nú hagað hlutunum þannig að sæmdarhjónin frú Ingveldur og Kolbeinn eiginmaður hennar mega sitja undir bölvi og hótunum eða skensi og jafnvel athugasemdum af kynferðislegum toga vegna þess að þeim hefir lagst góður arður hlutabréfa þeirra og einnig að þau hafi sem stjórnarmenn í glæsilegum hlutafélögum samþykkt arð á arð ofan, þar á meðal til þeirra sjálfra. Og hvað heldur nautheimskur villulýðurinn að frú Ingveldur og Kolbeinn geri við arðinn sem bæði þau sjálf og aðrir greiða þeim af kristilegri gjafmildi? Jú, það heldur að þau kaupi brennivín og eiturlyf til að halda sjálfum sér og vinum sínum draugfullum og vitlausum allar helgar og helst alla vikuna. Svona er nú hugsunarháttur hins nautheimska lýðs.

Sjálf segir frú Ingveldur að henni sé akkúrat andskotans sama hvað óuppdreginn skríllinn heldur eða segir um þau hjónin og aðra arðgreiðsluþega. Hún þekki sjálf fullt af slepjulegum kratakvikindum, sannkölluðum krataskitum, sem svíki linnulaust undan skatti og stundi alskyns loftfimleika í lágkúrulegum péníngaundanskotum jafnhliða því að öskra og veina ,,spilling-spilling-spilling" allstaðar sem þeir komast að með frasana sína ,,löglegt en siðlaust og spilling-spilling spilling." Til dæmis þekki hún útbelgdann kratahöfðingja með augun útúr hausnum af vandlætingu sem hafi ekki viljað heyra á annað minnst þegar hann var að byggja en að borga öllum iðnaðarmönnunum svart. - Sá djöfull, sagði frú Ingveldur, - lætur ekki eðlislæga spillingar ónáttúru sína aftra sér frá að saka aðra um spillinu og glæpi, fyrir nú utan að eiga hlutabréf og taka við arðgreiðslum af þeim með gráðugu geði.


mbl.is Skipti sér ekki af arðgreiðslum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband