Leita í fréttum mbl.is

Spámenn svívirtir í sínu föðurlandi

skrattaskrifHelvítis hundspott eru þetta sem kjósa Sjálfstæðisflokkinn. Þeir mæta í kjörklefann á kjördag og gera sér lítið fyrir og strika yfir nafn fomanns Sjálfstæðisflokksins, eins og hann hefir nú fórnað sér fyrir fólkið í landinu af þessum einstaka dugnaði og fórnfýsi er vart á sinn líka í víðri veröld. En kjósendur eru vanþakklátar bykkjur, illgjarnir, heimskir og fólskir, og sjá sig skjaldan úr færi við að ata sína bestu menn auri og óþrifnaði úr launsátri. Hefir ekki Bjarni formaður ásamt Sigmundi Panamaprinsi tekið við Gamla Íslandi endurreistu út bölvuðum lúkunum á Steingrími og Jóhönnu og græjað upp fyrir okkur nýju góðæri og nýjum niðurskurði til heilsubótarmála? Og þessu svar kjósendur Sjálfstæðisflokksins með því að draga strik yfir nafn hins blessaða Bjarna á kjörseðlinum.

Vanþakklæti heimsins er niðurdrepandi og ósvífið, því að ,,heimsins ásýnd hún er ill og heimsins náttúra" eins og skáldið segir á völdum stað. Örfáum misserum áður áður en en kjósendur birtust með útstikunarblýhanta í kjörklefanum hafði þingflokkur Framsóknarflokksins, og síðar landsþing sama flokks, rekið hinn kraftaverkamanninn, Sigmund Dávíð, af höndum sér og varpað honum í boði gömlu Framsóknarmaddömunnar á haus ofan í dýki Framsóknarfjóshaugsins. Þjóð sem fer svona illilega með sína langbestu menn á fátt gott skilið, eiginlega bara ekki neitt. Það væri réttast að flytja þennan fjandans lýð upp á heiðar í einhverju fjarlægu landi og láta hann gleymast þar um aldur og ævi.


mbl.is Oftast strikað yfir nafn Bjarna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helgi Þór Gunnarsson

Vel mælt, en skil ég þig rétt í kaldhæðni?

Helgi Þór Gunnarsson, 30.10.2017 kl. 22:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband