Leita í fréttum mbl.is

Frú Ingveldur og Borgargagnið á Mímisknæpu í kvöld

ingv44.jpgSvo er að sjá á myndum af samkvæmi efri-millistéttarfémínísta á Mímisbar, að kerlingarkjökrin hafi í staupinu þó það sé einungis mánudagskveld í kvöld. Sennilega mun samkoman leysast upp í drykkjuþrugl, rifrildi og slagsmál þegar líður á og þá verða þjónarnir á Mímisbar að hringja í eignmenn hinna drykkjuóðu og árásargjörnu kvenna og biðja þá náðarsamlegast að sækja kerlingar sínar, annars verði lögreglan beðin um að hirða þær. Þó svo það megi undum sæta, að nokkur einasta manneskja skuli leggjast svo lágt að sinna kalli Sóleyjar Tomm Fílí Romm Bomm Bomm og storma til fundar við hana á alræmdri knæpu vestur á Melum, má til sanns vegar færa, að fáeinar fraukur af Sjálfstæðisflokknum hafi hrokkið fyrir borð í kosningunum á laugardag, allt remmilegar yfir- og efri-millistéttarskonnortur með reist spurð og doríur í eftirdragi. Auðvitað runnu þessar hrakfarir auðvaldssinnaðs kvennpénings frú Tomm svo ákaflega til rifja að hún tók sig upp frá Hollandi í einu hendingskasti til að boða vonsviknum íhaldskvinnum frelsunarguðfræði kvennaframboðs til sveitarstjórna.

Og ekki þekki ég bakhluta sæmdarkvennanna frú Ingveldar og Máríu Borgargagns rétt, ef nefdir bakhlutar sjást ekki á einni myndanna frá staupagleði yfir- og efri-millistéttarfémínísta á Mímisknæpunni. Enda hefi ég sannspurt, að fyrgreindar sæmdarkonur, frú Ingveldur og Máría Borgargagn, lögðu leið sína á Mímisbar í kvöld. Og ef mér bregst ekki því meir, þá munu þær stöllur láta hnúa og hnefa standa fram úr ermum og ekki mun örgrannt um einhverjir liggi í valnum að leikslokum með blóðug trýnin. Öll munum við greinilega eftir þegar frú Ingveldur sló heilan fund skartklæddra sjófstæðiskvenna niður fyrir að vera ósammála henni um tiltekna tegund af ilmvatni. Þær höfðu haft vel í staupinu það kvöld og frú Ingveldur haldið freyðandi hvatnigarávarp, en so lenti allt í uppnámi útaf því hvaða gerð af steinkvatni eiginkona forsætisráðherra notaði.

Þá hefir frú Ingveldi, sem kunnugt er, vegnað vel í hörðum leik við karlkynið. Oftlega hefir hún barist við viðsjárverð ómenni eins og Kolbein eiginmann sinn og Brynjar Vondulykt og ævinlega haft betur; má heita kraftaverk að hún hafi ekki gengið af þeim dauðum og bundið þá á afturlöppunum upp í snúrustaur. Eitt sinn, og það hefir gerst oftar, kom frú Ingveldur að eiginmanni sínum, Kolbeini Kolbeinssyni skrifstofustjóra og framsóknarmanni, í óleyfilegum og ósæmilegum ástarleik við Indriða Handreð, eiginmann Máríu Borgargagns. Skipti aungvum togum, að frú Ingveldur reif þessa andskotans ódáma upp á rassgatinu og slengdi þeim saman svo báðir lágu með buxurnar á hælunum í öngviti, - lengi. Þegar svínin rönkuðu við sér vóru þau ekki alveg af baki dottin, því þau kærðu frú Ingveldi fyrir grófa líkamsárás og morðtilraun til lögreglunnar. - Jæja, sagði Hálfdán varðstjóri og fleygði þeim báðum með fyrirlitlegu lostaglotti á vör inn í sama klefann og fór sjálfur á eftir þeim og læsti að sér. Eftir að Hálfdán hleypti þeim út minntust þeir aldrei harðsnúin fangbrögð og fantaskap frú Ingveldar, né kæru af nokkru tagi. 


mbl.is Hópur kvenna ræðir nýtt framboð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

Algjör snilld þessi samloka hjá þér...

coolcoolcoolcoollaughing

Sigurður Kristján Hjaltested, 31.10.2017 kl. 01:28

2 Smámynd: halkatla

Þessar sögur eru það besta við íslensk stjórnmál. Maður veit að Frú Ingveldur mun alltaf standa á sínu og aldrei bregðast. Öll hin líka.

halkatla, 31.10.2017 kl. 12:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband