Leita í fréttum mbl.is

Meistarinn viđ kolaofninn og Gvöndur Mýrasprćkur

au_vald_1061447.jpgEkki veit ég hvađ hann Gvöndur litli Mýrasprćkur er ađ gera međ ađ vćflast af ástćđulausu inn í ríkisstjórn međ frú Andersen, Samherja-Stjána, Ásmundi Einari og Bjarna Ben. Og ekki byrjađi piltur gćfulega, ađ minnsta kosti ekki ađ ráđi. Hann hóf mál sitt á einhverju dularfullu kolefnismáli. Og margur mađurinn hugsađi međ sér, ţegar hann hlýddi á orđspeki háttvirts ráđherra: hvurn fjandann er drengurinn ađ ţvađra um? Ćtli hann viti ţađ sjálfur? En svo fór ađ renna ljós upp fyrir einum og einum. Jú, Gvöndur litli Mýrasprćkur var ađ tala um kolabrennsluverksmiđjuna á Bakka, afkvćmi sjálfs leiđtoga síns, Steingrím Johohohođ Sigfússonar. Hann Steingrímur, skohh, hann kann nú manna best ađ breyta grćnu í svart; og hann er meira ađ segja svo snjall ađ hann getur, eins og ekki neitt, breytt fagurlega grasgrćnum lit í kolasvartan. Ţar fyrir utan kann meistarinn ađ baula hrađar en ađrir menn, án ţess nokkur fái raunverulegan botn í óhljóđin.

Ekki batnađi erindiđ ţegar piltkorniđ fór ađ röfla um eitthvert einstćtt tćkifćri sem skapist ţegar andstćđ öfl í pólitík mćtist viđ sjálft ríkisstjórnarborđiđ! Međ leyfi: hvađa andstćđu öfl hafa mćtst viđ áminnst borđskrifli? Mig rekur ekki minni til ađ meint öfl viđ ríkisstjórnarborđiđ séu andstćđ hverju öđru. Sussu-nei. Aldeilis ekki. Allt eru ţetta harđkapítalískir flokkar í grunninn, leikararnir í keimlíkum grímubúningum og undir illa ţefjandi yfirhöfnunum slćr sama gamla kransćđastíflađa samtryggingarhjart, ţetta sama hjarta og flökti undir bringubeininu á Pétri Ţríhrossi og Júel J. Júel fyrir 100 árum eđa svo.

djöfsi3Ja, hann átti aldeilis erindiđ í rćđustól Alţingis undir liđnum ,,stefnurćđa forsćtisráđherra" hann Gvöndur litli Mýrasprćkur og mun ţađ erindi lifa međ ţjóđinni svo lengi sem land stendur. Já. Á međan andlegur fađir og velgjörđamađur Gvöndar skarar í eldinn í kolaofninum á Bakka fćr Gvönd ađ sitja viđ fótskör hans og fćgja skófatnađ meistarans upp úr kolakyki, ţví meistarinn ţarf gljáfćgđa, támjóa stígvélaskó til ađ sparka í sósíalista og annan slíkan neikvćđan og öfundsjúkan götulýđ og fiskikellingar. 


mbl.is Ekki afgirt virki ţar sem allt er bannađ
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband