Leita í fréttum mbl.is

Þegar Kolbeinn kom heim með hvíttaðan leyndarliminn

kol50.jpgEinhverju sinni, þegar Kolbeinn Kolbeinsson skrifstofustjóri og framsóknarmaður kom skríðandi heim eftir svall, kom í ljós að skökullinn hans, sjálfur leyndarlimurinn, var gersamlega snjóhvítur. Frú Ingveldur hélt fyrst að þetta stafaði af blóðfalli frá limnum, svokölluðu tittlingsblóðfalli, og var komin á fremsta hlunn með að hringja á sjúkrabifreið til að flytja Kolbein undir læknishendur. En þegar betur var að gáð, kom í ljós að litarhaftið var ekki til komið af blóðþurrð í líffærinu, heldur var um að ræða hvíta málningu, sennilega fljótþornandi lakk. Ekki rak Kolbein minni til að hafa komist í kast við málningu eða önnur litarefni og allt var málið hið undarlegasta, eiginlega stórdularfullt.

Það varð því úr að frú Ingveldur hafði sig á stúfana til að kamst að því hvar Kolbeinn hefði verið að svalla og með hverjum. Og frú Ingveldur er þefvís eins og rándýr og rann fljótt á slóðina. Það kom upp úr dúrnum, að Máría Borgargagn og Maður hennar, Indriði Handreður, höfðu haft Kolbein ofurölvi á brott með sér af heldur vafasömu vertshúsi og eftir að hafa leikið sér að honum á ýmsan óviðurkvæmilegan hátt þá gerðu þau sér hægt um við og máluðu hinn fræga leyndarlim Kolbeins Kolbeinssonar snjóhvítan. Þegar Kolbeinn raknaði úr rotinu hjjá Borgargagninu og Handreðsbullunni fékk hann sér strax vel útilátinn afréttara og skeið að svo búnu heim til sín.

Eins og gefur að skilja sló þegar í stað í harða brýnu og handalögmála milli frú Ingveldar annarsvegar og Máríu og Indriða hinsvegar. Í þeirri orrustu fór flest allt í mask og mjöl á heimili Máríu Borgargagns og Indriða Handreðs og þau sjálf vóru líkust úthverfum hundsrössum í framan þegar frú Ingveldu yfirgaf vígvöllinn, bölvandi og ragnandi þrátt fyrir að hafa haft sigur í rimmunni. Heimkomin vóð frú Ingveldur að manni sínum með terpertínubrúsa í hendinni og hellti góðum slurk af innihaldi hans í kjöltu Kolbeins og þó burt lakkið af leyndarlimi hans. En Kolbeinn hrein og ýlfraði á meðan hreinsuninni stóð eins og verið væri að brenna hann á báli. Í margar, margar, vikur á eftir var Kolbeinn ákaflega fælinn og krypplaði sig saman ef honum þókti eitthvað ógna sér. 


mbl.is Skurðlæknar vara við typpahvíttunar-æði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband