Leita í fréttum mbl.is

,,Komi nú allir hrafnar hér" ...

fool8Hún er geđug myndin sem fylgir ţessari frétt af ljóninu sem er ađ bryđja veiđimanninn sálugua í sig. En ţetta getur alltaf gerst og hefir gerst ađ fornu og nýju. Ađ minnsta kosti man ég vel eftir refaskyttunum sem enduđu í soltnum kjaftinum á melrökkunum. Stundum unnu refirnir og tófurnar svo vel af bráđ sinni ađ ekkert var eftir nema skósólarnir; bölvuđ kvikindin átu meira ađ segja nćrbuxurnar sem mennirnir vóru í. Nú, ţađ fannst ekki nema helmingurinn af Bjarna selaskyttu í fjörunni eftir ađ hann hugđist jaga seli á Fornuströnd. Selurinn sem Bjarni ćtlađi ađ veiđa komst nefnilega aftan ađ honum og át af honum skárri helminginn en skildi ţann ljótari eftir.

Ţarna í Afríku skilst mér ţađ hafi veriđ veiđţjófar sem leónin lögđu sér til munns og ekki annađ ađ sjá en ţeir hafi verđskuldar slík örlög. Mér er hins vegar ekki fullkunnugt hvort Vilhjálmi sáluga bónda og hundi hans hafi líkađ ađ enda sem fćđa hrafna, máva og melrakka. En svo fór ţó um síđir, ađ fyrrnefnd kvikindi gjörđu samblástur gegn Viljálmi og rakkanum Káti, rifu ţá á hol og átu ţá upp til agna. Reyndar drapst refurinn sem át leyndarlim Vilhjálms úr torkennilegri eitrun, en ţađ stendur víst öllum á sama um ţađ.

Ţó má nú međ ólíkindum telja söguna af ţví ţegar Krisján rjúpnaskytta lenti óforvandis í kjaftinum á veiđifulgum sínum. Honum varđ nefnileg á sú villa ađ leggja til atlögu viđ mannýgu rjúpunar norđur á Ströndum. Um leiđ og Kristján hleypti af fyrsta skotinu umkringdu rjúpurnar hann og drápu á minnsta samviskubits. Ţađ var víst sjón ađ sjá fyrir veslings björgunarsveitarmennina sem komu ađ rćflinum af honum Kristjáni og fluttu hann međ sér til byggđa. Svo fékk ţađ prest til ađ jarđsyngja ţađ sem eftir var af Kristjáni rjúpnaskyttu og sá náungi lét sér sćma ađ hefja líkrćđuna á ,,Óhrćsinu" eftir hann Jónas hérna úr Öxnadal, ,,Ein er upp til fjalla, yli húsa fjćr", og klikkti svo út međ Hjálmari frá Bólu: ,,komi nú allir hrafnar hér hans á leiđi ađ skíta."


mbl.is Ljón átu veiđiţjófa
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband