Leita í fréttum mbl.is

Framsóknarjólatréð sem gubbaði

jólNeinei, þetta gefur akkúrat aungin fyrirheit eða góðar vonir um framhaldið eins og félagsmálaráðherra heldur fram. Núverandi félagsmálaráðherra, sem varð frægur fyrir að vera svo ofboðslega róttækur kommúnisti að hann varð að ganga í Framsóknarflokkinn, það munaði ekki nema hársbreidd að hann færi í þeim tímapunkti beint í Sjáfstæðisflokkinn, keypti fyrir ekki svo alls löngu hláleg, eiturgræn, framsóknarjakkaföt, sem hann síðan gubbaði á um borð í flugvél. Til er kjánahrollsmynd af drengtötrinu í framsóknarjúníforminu áður en hann ældi yfir það og satt best að segja falla ofskrautuðust jólatré í skuggan fyrir því fígúruverki.

Samkvæmt málsmetandi sjálfstæðisflokksmönnum eru glæpir nauðsynlegir fyrir heilbrigði kapítalísks þjóskipulags; undirboð, skattsvik, kennitöluflakk og önnur mafíuskyld starfsemi í atvinnurekstri eru ómissandi þing, að mati sjálfstæðishetjanna, sem þeir halda verndarhendi yfir og hafa lengi gert. Samfylking, Viðreisn, Framsókn, VG og Klausturflokkurinn og Píratakjánarnir eru náttúrlega að meira eða minna leyti sammála húsbændunum á Höfuðbólinu í þessu efnum, enda er þetta lið samdauna Íhaldinu í einu og öllu sem máli skiptir.

x19Til hvers er þá róttæka framsóknarjólatréð að láta gera skýrslu um glæpi svokallaðara atvinnurekenda? Ekki stendur til að gera eitthvað sem stoppar afbrotamennina af, svo mikið er víst. Tilgangur framsóknarjólarésins er aftur á móti þokkalega vel fallin til að slá ryki í augu almennings; sona peyjum þykir alveg sjálfsagt að nota pénínga þessa sama almennings til að kaupa einhverja hálaunaða labbakúta til að búa til skýrslu og tillögur um úrbætur gegn glæpum; það má jafnvel vera að jólatréð leggi fram lagafrumvarp um efnið, en það mun þá verða svo ískyggilega götótt að að allt verður sem fyrr hjá bófunum, enda eiga þeir framsóknarjólatréð og öll hin alþingishænsnin.


mbl.is „Gefur góða von um framhaldið“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband