Leita í fréttum mbl.is

Atvinnurekendur vilja verkföll, elska verkföll og hlakka til verkfalla

Capitalist_pig-690x580Fnuhh, ætlar þessi stúfur í heimdallsstuttbuxunum, Dóri Benjamín, að ljúga því að fólki að hann hlaki ekki til verkfallanna? Það sést bæði á glyrnunum í honum og nasavængjunum að hann ræður sér ekki fyrir verkfallskæti, hún hreint úr sagt leiftrar af honum og nebbalingurinn skiptir litum í sífellu af svokölluðum verkfallslosta, sem einungis hugsjónaverkfallsmenn hafa til að bera. Og á morgum sjáum við Halldór Benjamín steðja út á strætið með skilti á staung, þar sem á stendur ,,niður með helvítis fátæklingskommúnistana og niður með Stalín."

Nú, það liggur annars í augum úti, eins og oddvitafíflið sagði hér um árið, að það eru atvinnurekendur sem vilja verkföll, elska verkföll og hlakka til verkfalla, annars hefðu þeir gengið að sanngjörnum kröfum verkalýðsfélaga. En nei, samtök atvinnurekenda vildu verkföll og ekkert múður. Og nú fá þeir sín verkföll og munu skemmta sér vel, jafnvel má búast við að þeir hlaupi hálfberrassaðir út á götu og dansi og djöflist eins og brasilískar gelgjur á ketkveðjuhátíð í Ríó.

Auðvitað hlakkar alla til að sjá Halldór Benjamín í stríðsdansi úti á götu á bíkíní að fagna velheppnuðu verkfalli. Og vafalaust mun velmeinandi og góðgjarnir menn, eins og til dæmis Bjarniben, Hanez Holmestone og Þorsteinn Víglundar, stíga dansinn með stráknum og kitla hann kammó undir hökuna. Hátíð er í vændum hjá arðræningjasöfnuðinum og verkföllunum mun eflaust ljúka með stórbyltingu auðvaldsins og fangabúðum á Hornströndum. 


mbl.is Ekki við hæfi að hlakka til verkfalla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Heyrst hefur að hann stigi fínan menúett með Eflingargrýlunni á síðkvöldum við fiðluleik fjögurra blaða Smárans.

Þorsteinn Siglaugsson, 7.3.2019 kl. 18:42

2 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Já, hann kvað vera óttalegur tralli.

Jóhannes Ragnarsson, 7.3.2019 kl. 18:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband