Leita í fréttum mbl.is

Ađ sönnu eru Dalvíkingar hinir verstu vágestir, en ţađ eru Surtseyingar líka

ingv51.jpgŢetta hafa veriđ Dalvíkingar, ţar skjöplast mér ekki, og ćtluđu ađ vađa inn í mitt grjóthruniđ eins og ţeir vćru ađ ganga undir sturtubunu í bađhúsi. Ţađ er sem kunngust er mála sannast, ađ Dalvíkingar ţykja mestu vágestir, hvar sem ţá ber niđur, og hryllilegt ađ laga til eftir ţá á ţeim stöđum sem ţeir hafa lagt allt í rúst. Ađ vísu eru Surtseyingar lítiđ skárri; ţeir henda bara salernispappírnum á gófiđ eftir ađ hafa gengiđ örna sinna í húsum manna.

Mađur nokkur, hrekklaus og alminnilegur, leigđi tveimur Dalvíkingum íbúđ sína í ţrjá daga. Eftir hina umsömdu ţrjá daga kom hann ađ húsi sínu eins og rjúkandi rúst, ţví ţar inni var umhorfs eins og í sorptunnu. Ţegar hann spurđist fyrir hjá nágrönnunum, kom fram, ađ ekki hefđu tveir menn ţar á ferđ, heldur á fjórđa tug Dalvíkinga, sem vóđu ţar út og inn og hlaupiđ síđan frá öllu án ţess svo mikiđ sem taka upp einn einasta brúkađan skeinipappír eftir sig. Síđan hefir aumingja mađurinn, sem leigđi íbúđina sína tveimur Dalvíkingum, veriđ í öngum sínum og ekki mönnum sinnandi. Ţađ síđasta sem af honum fréttist, ađ hann hefđi reynt ađ hengja sig í eldhúsinu, en fyrir tilviljun bar ţar ađ kunningja mannsins, sem náđu ađ skera vininn niđur áđur en hann hengdist ađ fullu.

dog5Svo segja rćtnar og illgjarnar tungur, ađ ţađ hefđi veriđ gustukarverk ađ hleypa helvískum Dalvíkingunum beint inn í grjóthruniđ og leyfa ţví ađ ćja ađeins og óa. Nú, ţeim valinkunna ţjóđsagnahundi, Snata, farnađist svo viđ húsmóđur sína, ţegar hún var ađ ganga undir klettasnös eftir ađ hafa rekiđ ćrnar á beitarfjöru, ađ hann velti grjóthnullungi fram af snösinni og beint í höfuđ húsmóđurinnar, sem ţá var orđin ekkja eftir Ólafa bónda, sem Snata tókst ađ hrinda fyrir björg, sćllar minningar. Ekkja Ólafs bónda leit upp um leiđ og hnullungurinn féll og fékk hann beint í andlitiđ; hún ţókti ljótt lík er hún var flutt á kviktrjánum heim, en Snati glotti ađ öllu saman, ţví hans vit er meira en fjölmenns hóps af Dalvíkingum og Surtseyingum.  


mbl.is Ferđamenn reknir í burtu af svćđinu
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband