Leita í fréttum mbl.is

Búbú og bloka, - og Bubur féll í höndur Hálfdáns Varðstjóra

sing.jpgBúbú ok bloka,
Bubur hrein í poka.
So lætur hann sem hann sofi
og surgar sig til boka.

Æi já, þeir fleygðu Bub, aumingja strákanganum, út úr húsi þarna á Skólivörðustígnum, en hann lét krók koma í mót bragði, mundaði gígju sína fimmstrengja og upphóf tómleik, með öskrum og gargi, á bröndóttri götunni. Þessi atburðarás leiddi til þess að lögreglan var kölluð til. Svo vel vildi til, að það var Hálfdán Varðstjóri sjálfur sem var á vakt og kom askvaðandi á vettvang og tók Bub, hafði endskipti á honum og lokaði hann inni í lögreglubifreiðinni. Gígjuna gjörði Hálfdán Varðstjóri að sjálfsögðu upptæka, en hann hefir í hyggju að gefa 12 ára frænda sínum hljóðfærið á sunnudaginn kemur.

Aungvum sögum fer enn af meðferð Hálfdáns Varðstjóra á Bubi, en víst er að hann fór með hinn handsamaða á lögreglustöðina; en þegar þangað er komið er aungrar miskunnar að vænta meir af hálfu hins tröllvaxna heljarmennis, Hálfdáni Varðstjóra. Maður sem var að koma úr yfirheyrsla rétt áðan út af ketti sem kom skottlaus heim, sagði að orgin og óhljóðin, sem bárust frá einum fangaklefanum, hefðu verið ógnvekjandi og þá ekki síður hinar einkennilegu stunur, sem líka bárust fram úr sama klefa. En hvað sem verða vill, þá verður fróðlegt að heyra sönginn í Bub þegar hann sleppur úr hinum réttvísu höndum Hálfdáns Varðstjóra. Búbú ok bloka ...


mbl.is Óvæntir Bubba-tónleikar á regnbogagötu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband