Leita í fréttum mbl.is

Framsóknarmenn voru kosnir í öll embætti og bráðum verður bylting

xbJá, þetta var mikið framsóknarþing yfir höfuðsvörðum verkamanna. Framsóknarmenn vóru kosnir í öll embætti og Sigmundur Davíð hylltur sem heiðursverkamaður Íslands. Það er nú meiri ungmennafélagsandinn sem allt í einu hefir skotið sér niður í döpur hjörtu uppþornaðra framsóknarmanna, sem hafa sest að eins og hvurjar aðrar hvimleiðar boðflennur í höfuðvígi verkamanna, sem blessunarlega eru ekki til lengur, samkvæmt heimspekikenningu Bandaríkja-Sólveigar. Aaaammmm ...

Því ku hafa verið hvíslað á framsóknarþingi Starfsgreinasambandsins, sem lauk í dag, að nú væri í bígerð fjarska róttæk framsóknarbylting, sem glaðbeittir aðstandendur hennar fullyrða að muni valda aldahvörfum. En þegar spurt er í hvurju meint aldahvörf muni helst vera fólgin, verður ekkert um svör; gamli framsóknardólgurinn frá Akureyri, formaður Starfsgreinasambandsins, grettir sig og bara hlær, en varaformaður hans lætur sér nægja að endurtaka í sífellu þetta gubbulega ,,aaaammmm, aaaammmm, og svo snýr hún rassinum upp í vindinn og fer að kanna siggið í lófunum á sér.

En það er alltaf viðkunnanlegt þegar þingum lýkur í alsherjareindrægni og fornhippískri ást. Og hvað er þá betra en framsóknarmannabylting, sem miðar að því að frelsa sauðkindina og hleypa henni út og sópa aflaheimildunum yfir á fjórar stórar samherjaútgerðir. Ekki er að efa að allir framsóknarflokkarnir, að Pírataflokknum ekki undanskyldum, munu leggja hinni umbótakenndu byltingu lið; og vafalaust fylgja kjósendur með eins og vankaðir geldingar og byltingarstarfsemi Gunnars Smára mun að sjálfsögðu leysast upp með daufgerðu neistaflugi, líkt því þegar torfusnepli er kastað í örvæntingarfulla afturgöngu. Framsóknaríhöld allra landsfjórðunga Íslands sameinist!


mbl.is Sólveig Anna kjörin varaformaður SGS
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband