Leita í fréttum mbl.is

Nú hefir útlitið aldrei verið svartara, og þó ...

drunk7Jæja, svo þeir eru þá farnir að handtaka íslenska skipstjóra á erlendri grund! Aldrei gerðist soleiðis hér fyrr meir þegar skipstjórar vóru skipstjórar. Mér skilst að þessum kapteini hafi verið varpað í dýflissu hjá blámönnum, - fyrr má nú vera niðurlægingin. Hann má þakka fyrir, pilturinn atarna, verða ekki úrbeinaður og etinn áður en yfir líkur. Að vera íslenskur skipstjóri og vera handtekinn og fangelsaður langt suður í Afríku jafnast á við ekki minni atburð en þegar Jésús vinur okkar var leiddur með krossinn á bakinu upp alla Hausaskeljahæð.

So á náttúrlega eftir að koma í ljós hvort okkar dyggðum prýddi kapteinn er ekki, í óförum sínum, jafn saklaus og Frelsarinn, því ef svo er, þá gæti farið í verra, af því að saklausir menn fara alltaf flatt á sona handtöku og réttarhöldunum sem þeim fylgja. Og ef hugsað er út í hve margir sárasaklausir menn hafa mátt axla kross sinn eða paufast upp á pallinn undir snörunni, nú eða fá sér sæti í rafurmagnsstólnum, þá verður að segjast að útlitið er svart.

piss2_1125491.jpgEn það er ómögulegt að ljúka þessum pistli öðruvísi en að hæla Katrínu Jakobsdóttur, telpunni sem neitar því ekki á opinberum vettvangi að hún sé sosialist, en játar því ekki heldur. Hún Katrín hefir staðið sig svo ógn vel í Samherjamálinu, fórnað sér í hvurn björgunarleiðangurinn af öðrum. Hún hefir í fyrsta lagi varið Stjánajúl eins og bálgrimm búrtík og glefsað í allar áttir; í öðru lagi hefir hún lagst í bullandi vörn fyrir alla Samherjana, hvort sem þeir heita Þorsteinn, Stjáni, Steingrímur eða LÍÚ; í þrija lagi hefir hún lagt líf, limi og æru undir til að verja panamaprinsinn sinn, hann Bjarnaben. Slíka stórfórnir eins einstaklings fyrir meðbræðrum sínum og systrum kallar, að mati víðsýnustu og færustu manna, tafarlaust á dýrlingsnafnbót, - sánkti Katrín af Háskólalóðinni hjómar alveg undur hátíðlega og heilagleikinn leynir sér ekki þegar henni er ekið um stræti borgarinnar í nýja Banzinum, skohh.  


mbl.is Íslenskur skipstjóri handtekinn í Namibíu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það var líka "getulaus" lögreglumaður sem "handtók" konuna sína.......

Jóhann Elíasson, 21.11.2019 kl. 23:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband