Leita í fréttum mbl.is

Norđmenn gjöra ađför ađ frjálsu framtaki og nýfrjálshyggju

piss4_1127325.jpgHér hofum viđ dásamlegt dćmi frá Noregi um frjálst einkaframtak, nýfrjálshyggju og skapandi frumkvöđlastarf. Mađur verđur hrćrđur af ađ setja sér fyrir hugskotssjónir athafnasemi, útsjónarsemi og elju hinna norsku hjóna sem hafa haslađ sér völl í Sartor verslunarmiđstöđinni í Björgvin. Svo kom lögregluhelvítiđ, rammmarxíst, óţjóđlegt og skammarlegt, knúiđ áfram af öfundsýki og hóf afskipti af hinum vinnandi hjónum, sem hófu feril sinn međ tvćr höndur tómar, en vóru komin í góđar álnir, sona álíka og međalkvótagreifi á Íslandi. Nú er hún Snorrabúđ stekkur, hiđ opinbera lét sendisveina sína einkennisklćddar gjöra eignir hinna duglegu og góđu hjóna upptćkar en lokađi ţau sjálf inni einni af ţessum svínastíum sem ţađ kallar fangageymslur ţar í Norđvegi.

Sem betur fer er ástandiđ ekki jafn djöfullegt á Íslandi eins og hjá Nossurunum. Hér sá talin mestur mađur sem stoliđ hefir mestu á svínslegasta og lćvíslegasta hátt; slíkir menn eru taldir sosialistar, jafnađarmenn og félagshyggju- og samvinnumenn á Íslandi, ţví ţeir leggja saman krafta sína til ađ ráđa öllu, eiga allt og mega allt. Auđlindir, dómstóla, alţingi, ríkisstjórn og banka ásamt fjölmiđlum og fleira smálegu eiga ţessar kempur skuldlaust; og ţegar öfundsjúk misyndismenni kćra ţá fyrir eitthvađ lýkur soleiđis málum ađeins á einn veg: kćrandinn er gerđur ćrulaus, auralaus og settur í fangelsi viđ fyrsta tćkifćri. Í ţokkabót hafa Íslendingar bćtt ţeirri rós í hnappagatiđ sitt ađ gjörast Trumpistar, sem auđveldar ţeim mjög ađ rífa kjaft og halda fram stađleysum og heimskurugli eins og um heilagan sannleika sé ađ rćđa. Á Íslandi ráđa sannir Íslendingar ríkjum en ekki írski ţrćlalýđurinn, sem illu heilli fylgdu forfeđrum okkar til landsins á landnámsöld.

Ţađ er gott ađ búa á Íslandi og til marks um ţađ ţá hafa ţeir hleypt pestargemlingum međ kóvíđ nítjánda í stórum flugvélaförmum á landsmenn til ađ sýna ţeim hvađ Davíđ keypti öliđ og í leiđa ţeim fyrir sjónir hvur ţađ er sem rćđur Íslandi og á ţennan hrjóstruga hólma norđur í rassi. Á međan viđ höfum ţađ svona gott drepa frćndur okkar í Noregi allt heilbrigt framtak og samkeppni niđur međ bros á vör; ţeir munu uppskera eins og ţeir hafa sáđ til og ţađ mun fara herfilega fyrir ţeim áđur en lýkur. Meiri bölvađur niđurrifslýđurinn atarna fyrir austan haf.


mbl.is Stórtćkir búđaţjófar í Bergen
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband