Leita í fréttum mbl.is

Sosíalistinn Biden og fúleggin í 101 Reykjavík

au_vald_1061447.jpgOfan á aðra harmleiki er allt útbíað í kóvíði nítjánda baktéríuvírusum í Hvíta húsinu. Þetta er orðið þessháttar pestabæli að sóttvarnaryfirvöld þar í landi eru komnir á fremsta hlunn með að kveikja í kofanum og brenna hann til ösku. Á síðustu dögum Trumbs skríða starfsmenn hans dauðveikir um gólf og vita ekki sitt rjúkandi ráð fremur er rottur og mýs sem hafa verið ruglaðar til helvítis með hátíðnihljóðum. 

Þetta er allt voðalegt og bölvað og óhamingjan lekur af öllum veggjum hins hvíta húss. Bráðum verður Trumb sjálfur borinn út í böndum, varanlega geggjaður og galinn af kóðvíðum nítjánda. Þeir segja hann verði ekki hengdur, en innan um fólk fær hann ekki að valsa meir. Það er komið nóg af slíkum munaði vestra. Einn úr starfsliði forsetans fékk kóvíðinn nítjánda í rassboruna og sturlaðist; það veit aunginn hvað varð um þann dreng í raun og veru.

En mest er þó hlægilegt þegar íslensk trúðsfífl tala um Joe Biden sem vinstrimann, sosialist, og Démókrataflokkinn sem sosialistaflokk. Ekki er öll vitleysan eins, en þetta er þó með því alheimskulegasta sem 101 sosibullikollurnar í Reykjavík og á Akureyri hafa látið frá sér. Sannleikurinn er ólygnastur og hann segir að Biden sé trúlega þó nokkuð hægrisinnaðri en Trumb. En það er aulunum í 101 Reykjavík fyrirmunað að sjá. Að þessi fúlegg á hinum hrjóstruga poletiska akri skuli láta hafa eftir sér lofræður um stríðsæsingagamlingjann og framsóknartítuna Biden og kynna hann til leiks sem ægilega heilsteyptan sósíalista ber ömurlegt vitni um firringu og andlega örbirgð þessara vesalinga.   

  


mbl.is Fleiri kórónuveirusmit í Hvíta húsinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband