Leita í fréttum mbl.is

,,Drottinn blessi heimiliđ"

prestur4Hvernig dettur fólki í hug ađ setja ţetta déskotans Alţingi núna og ekki nema hálfkosiđ til ţess. Sonalöguđ heimska er eins og ađ míga innanvert í stofugluggann heima hjá sér, yfir gluggakistuna, upp á vegg og á ,,Drottinn blessi heimiliđ". Densilegur fjandi sona háttarlag! Og ekki vantar tilstandiđ: Klökkur vćrđarklerkur, af sömu tegund og séra Atgeir p. Fjallabakssen, látinn mala yfir ţingskjátunum, án minnsta árangurs, og forsetanefnan kvödd til ađ setja ţingiđ, hálfmannađ, illamannađ og stórbilađ. Ţađ vćri yfirdrifiđ nóg ađ láta okkur hafa lítiđ stjórnarrassgat til ađ sýsla međ sameiginlega spillingu og grjóthalda kjaft ađ öđru leyti.

hundur4Og hvar í fjandanum er Búsáhaldabyltingin? Dauđ? Jú, hún andađist inn í Borgarahreyfinguna, Hreyfinguna, Pírataheimskuna og Framsóknarflokkinn. Auđvitađ. Hvernig gátum viđ eignast svona skelfilega lélega, óheiđarlega og vitgranna ţingmenn og ráđherra? Ţví er varla auđsvarađ. Og ţađ er nú svo. Ţá er öllu skemmtilegra ađ hugsa til fjárhundsins Snata, sem ennţá er ađ bak viđ fjöllin sjö. Hann gjörđist snemma vitur dýrbítur, allt úthugsađ hjá honum, líka ţegar hann myrti sinn herra, Ólaf bónda og hreppsnefndarmann; sá mátti nú hverfa fram af hengifluginu eins vondur og hann var.

Fyrir jólin í fyrra freistađist Snati til ađ vinna grimmdarverk á göglunum hennar Gýrfríđar gömlu í Skotakoti. Ţetta voru hvítir fuglar, stórir og hálsstuttir, geđvondir og leiđinlegir. Snati fór inn um gluggann hjá kvikindunum eftir ađ hafa brotiđ rúđuna međ járnstöng. Svo stökk hann inn og stútađi göglunum og át eitt ţeirra og ţókti ketiđ af ţví ekki gott. Gamla Gýrfríđur í Skotakoti ćrđist er hún kom ađ göglum sínum dauđum, en hún hafđi ćtlađ ţau til jólasteikur ţetta áriđ. Nú var sú fyrirćtlun úr sögunni og kerlingin bölvađi heil ósköp yfir myrtum fuglunum og bađ Sathan hirđa ţann er ţetta níđingsverk hafđi framiđ. En Sathan hafi í nógu öđru ađ snúast en ađ hlaupa eftir veiđiglöđum fjárhundi fyrir eina kerlingartuđru, sem ekkert er nema skapvonskan og heiftin. 



mbl.is Beint: Ţingsetning Alţingis
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband