Leita í fréttum mbl.is

Í Bandaríkjunum flokka þeir orðið kóvíðinn sem kynsjúkdóm

kol27Nú eru þeir í Amríkunni farnir að flokka kóvíð nítjánda til kynsjúkdóma og verður að segjast alveg eins og er að það er ekki dónalegur selskapur fyrir kóvíðinn. Vísindamenn segja að rannsóknir hafi sýnt að helvískur kóvíðurinn smitist við kynmök og lostafenginn líkamana núning og leggja til að samræði verði bannað í Bandaríkjum norður Amríku ef sigur á að vinnast. Svo er kominn upp kóvíður á Alþingi og samkvæmt rannsóknum sérfræðingum vestan hafs bendir allt til þess að innan Alþingis hafi orðið bærði siðferðisbrestur og blygðunarsemisbrestur, sem auðvitað er mjög alvarleg mál.

Það liggur fyrir að heilu flokkarnir eru nú þegar undirlagðir og útsteyptir í kóvíð nítjánda og legorðssakir þingmanna svífa yfir hausamótunum á þeim eins og mannskæð óveðursský. Og brátt láta fémínístar til sín taka, fram úr hófi illgjarnir og Þórðarglaðir í senn, en þó ekki mjög Þórðargraðir, og brátt sökkur Alþingi eins og KSÍ. Þá verður gaman að lifa, Máría mín Borgargagn og frú Ingveldur. 

læknirNú verðum við að vera róleg og vona að Gottfreður Gottfreðsson læknir verði búinn að finna upp antíkóðvíðinn, sem hann hefir verið að blanda, og dæli belginn á þingliðinu fullan af af honum með stóru sprautunni sinni. En það fór illa fyrir gamla þinghananum í kjördæminu hans Gottfreðs. Því hagaði nefnilega sem sé þannig til, að gamli þingmaðurinn var veikur og blóðprufur sýndi of hátt hlut fall af framsóknarvírusum. Gottfreð læknir hugðist snara þessum óþægindabagga á klakk fyrir gamla þingkarlinn, sem reyndist svo kerling þegar allt kom til alls, og hugðist sprauta hann með framsóknarvírusbóluefni. Því miður hafði maskínuolía komist í bóluefnið og gamli þinghaninn varð alveg gal eftir að hafa móttekið læknisráð Gottfreðs. Olíufjandinn virtist laða fram einkenni hjá karlanganum, sem líkust meira mótortruflunum en venjulegri framsóknargeggjun. Það var farið með gamla manninn á vitfirringahælið, þar eð hann virtist ólæknandi, og þar er hann enn þann dag í dag og heldur alltaf að hann sé í þinginu.  


mbl.is Að minnsta kosti þrír þingmenn smitaðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband