Leita í fréttum mbl.is

Veggjatítlurnar Davíð og Hannes

Það hefur víst ekki farið fram hjá nokkrum manni á Íslandi, að fyrirferðamikilar veggjatítlur hafa verið að störfum í Reykjavík síðustu daga. Fremstir í veggjatítlubransanum undanfarið voru þeir kumpánar Davíð Oddsson og Hannes nokkur Hólmsteinn, sem siguðu fjálshyggjuæskunni í borgarstjórnarflokki Sjálfstæðisflokins á Vilhjálm Þorn Vilhjálmsson. Liður í þeirri ljómandi aðför var að senda frjálshyggjugríslíngana á fund Geirs Haaarde til að klaga þann arma þrjót Vilhjálm Þorn honum til aðvörunar. Það var aðeins eitt sem Davíð og Hannes virðast ekki hafa reiknað með, en það er sú nöturlega staðreynd, að allt í einu lá gjörvallur Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík í minnihlutasvaðinu, illa til reika, rifinn og tættur og þar með talin frjálhyggjuæskan, sem nú ráfar stefnulaus um í eðjunni, urrandi eins og grimmir tófuyrðlingar. Að sjálfsögðu liggur Vilhjálum Þorn hálfdauður í valnum með slitna brynju og sundað sverð. Í þeim sama val liggur líka Geir Haaarde, laskaður í bak og fyrir. Aftur á móti kvu Davíð og Hannes vera flúnir af vettvangi eins og sönnum hetjum sæmir. Já, það má með sanni segja, að helvískar veggjatítlurnar geta verið hinir verstu skaðræðisgripir. 
mbl.is Veggjatítlur útbreiddar í borginni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Egill Rúnar Sigurðsson

Heyr, heyr, tek undir þetta að heilum hug!

Egill Rúnar Sigurðsson, 13.10.2007 kl. 14:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband