Leita í fréttum mbl.is

Sumarhúsaeigendur eru húðarselir og kláðagemlingar

Ég hef alltaf haft illan bifur á sumarhúsaeigendum og kemur þar af leiðandi ekki á óvart, að þeir verði uppvísir af þjófnaði á heitu vatni. Ég þekkti einu sinni sumarhúsaeiganda, sem var þessháttar húðarselur og kláðagenlingur, að hann vílaði ekki fyrir sér fara þjófshöndum um alla sumarhúsabyggðina þar sem hann hafði holað sínu húsi niður. Og hann lét ekki þar við sitja, heldur áreytti hann eiginmenn byggarinnar með því að fá konur þeirra til að gera ósæmilega hluti með sér. Að lokum fannst hann drukknaður í ánni, sem rennur þar um, með buxurnar á hælunum og þar með var gamanið búið. Það er því ekki nema von, að maður treysti sumarhúsaeigendum ekki nema rétt í tæpu meðallagi.
mbl.is Heitavatnsstuldur rannsakaður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband