Leita í fréttum mbl.is

Kominn heim frá Prag - Fréttatilkynning

Þá er ég, ásamt 32. manna sendinefnd, kominn heim frá Prag, eftir að hafa keypt ráðandi hlut í í hinni virtu samsteypu, Prostitution Energy Limited. Kaupin gengu hratt og vel fyrir sig eftir að valinkunir sómamenn höfðu sannreynt eignir og vörubirgðir fyrirtækisins. Áætlað er að Prostitution Energy Limited setji upp útstöð á Íslandi fyrir áramót. Ekki er enn ákveðið hvar útstöðin verður staðsett, en verið er að kanna aðstæður í Vogum á Vansleysuströnd eða jafnvel á Hellu á Rangárvöllum. Þá koma Kirkjubæjarklaustur og Suðureyri við Súgandafjörð vel til greina. Ekki er að efa, að þetta útrásarverkefni verður mikil lyftistöng fyrir atvinnulífið og hagkerfið á Íslandi. En fljótt á litið mun starfsemi þess skila um 3000 störfum á ársgrundvelli í framtíðinni.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband