Leita í fréttum mbl.is

Ástarsamband Moggans og VG

Föstudaginn 26. október s.l. bregður höfundur Staksteina Morgunblaðsins á leik og upphefur næsta kynlega lofgerðarrollu um Svandísi nokkra Svavarsdóttur sendiherra Gestssonar. Staksteinahöfundi er greinilega glatt í geði, því hann lætur sér ekki muna um að skáka Svandísi fram á kostnað Ingibjargar samfylkingarformanns og forsætisráðherraefnis. Ekki er nóg með, að Staksteinn vilji að Svandís verði fyrsti forsætisráðherra Íslands af kvenkyni, heldur fullyrðir hann, að margt bendi til, að þessi draumaprinsessa hans geti með skömmum fyrirvara tekið við embætti borgarstjóra í Reykjavík með stuðningi borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins!!!

Það var og.

Það skyldi þó ekki vera, að á bak við tjöldin sé hin efnilega vinstrigræna dóttir Svavars sendiherra, sem og aðrir í flokkseigendafélagi VG, í stöðugu daðri við ráðamenn Sjálfstæðisflokksins, ekki bara um meirihluta í borgarstjórn heldur og ríkisstjórnarsamstarf. Það hefur komið ýmsum, þar á meðal mér, býsna einkennilega fyrir sjónir, hve mikið dálæti hinir morgunblaðslærðu hafa á VG og  einstökum höfuðsnillingum þar á bæ. Þetta dálæti ætti a vera almennum félagsmönnum í VG heilmikið umhugsunarefni, því hér eru ekki á ferðinni beinlínis góð meðmæli með stjórnmálaflokki sem á tyllidögum hreykir sér af því að vera lengst til vinstri í íslenskum stjórnmálum. Ég þykist vita að Steingrími J. og Svandísi finnist moggahólið gott, enda eru þau, bæði tvö, ágætis framsóknarmenn og ekkert til vinstri umfram það.

Sú spurning gerist því æ áleitnari, hvort ekki sé tímabært fyrir raunverulega vinstrimenn, sósíalista, að endurskoða með opnum huga veru sína í flokki sem einokaður er af framsóknarliðinu í flokkseigendafélagi VG. Það er með öllu óraunhæft og óásættanlegt, að sósíalistar á Íslandi séu slík lítilmenni, að þeir geri sér að góðu eitthvert fáránlegt Grænt Kvenfélag af Framsóknartegund og styðji þessháttar óskapnað með ráðum og dáð.Má ég þá heldur biðja um einarða sósíalíska Alþýðufylkingu.     


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þórdís Bára Hannesdóttir

Dæmigert fyrir VG að vera alltaf á móti þegar eitthvað er gert af viti.  Svandís Svavarsdóttir hefur sýnt mikið pólítískt hugrekki og er í raun eina von VG að ná einhverjum áhrifum í íslensku samfélagi. Þá rísa upp allir kverúlantarnir og reyna að gera þeirra helstu von tortryggilega.  Er ekki komin tími til að menn hugsi sinn gang í VG.

Þórdís Bára Hannesdóttir, 2.11.2007 kl. 20:15

2 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Eina von VG að ná einhverjum áhrifum í íslensku samfélagi? En hvaða áhrifum? Mér er a.m.k. ekki ljóst hvaða áhrif það ættu að vera. Ég er einn þeirra sem hef, þrátt fyrir góðan vilja, ekki ennþá séð í hverju hið meinta pólitíska hugrekki Svandísar Sendiherradóttur er fólgið. Ef hún hefur sýnt eitthvert sérstakt hugrekki af þeirri tegund, má með sanni segja, að frjálshyggjuyrðlingarnir í borgartjórnarflokki Sjálfstæðisflokksins hafi sýnt sama hugrekki þegar þeir settu sig upp á móti útrásargjörningi Orkuveitunnar og afsögðu borgarstjóra sinn.

Það væri afbragð, Þórdís Bára, að þú útskýrir betur hvað þú átt við með því að segja, ,,að þá rísi upp allir kverúlantarnir og reyni að gera helstu von þeirra tortryggilega." Ef þú átt við að ég sé kverúlant skaltu gjöra svo vel að rökstyðja það svo eitthvert vit sé í. Eða eru kanske allir kverúlantar í þínum augum sem hafa skoðanir sem fara í bága við þínar skoðanair eða það sem þér finnst?    

Jóhannes Ragnarsson, 2.11.2007 kl. 23:26

3 Smámynd: Guðrún Þóra Hjaltadóttir

Moggin er nú ekkert heillagt málgagn. Mogganum er stjórnað af ýmsum sterkum stofnum. Það hljóta allir að vita sem að lesa blaðið. Ég verð að segja að mér finnst Svandís góð og hún þorir, það tel ég henni til hróss. Það að bendla henni stöðugt við föður sinn Jóhannes finnst mér hallærislegt. Við veljum ekki foreldra okkar, mér finnst asnalegt svona hjal, nema að þú sért svo mikill áhugamaður um ættfræði að þér finnist það þurfa að fylgja með. Þú ert vonandi hér á þínum foresendum en ekki foreldra þinna, eða hvað?

Guðrún Þóra Hjaltadóttir, 3.11.2007 kl. 00:32

4 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Að mér vitanalega, hefur Morgunblaðið aldrei verið heilagt umfram það að vera málgagn Sjálfstæðisflokksins. Hinsvegar hefur það orðið mér nokkurt umhugsunarefni hvernig á því stendur að Mogginn skuli standa í því að hampa VG með þeim hætti sem hann hefur gert. Getur það t.d. verið að VG sé fráleitt sá róttæki vnstriflokkur sem hann hefur stundum gefið sig út fyrir að vera? Er VG kannske, þegar allt kemur til alls, svo samdauna þeirri auðvaldspólitík sem hér grasserar, að sjálfstæðismenn líti á VG sem sjálfsagðan samstarfsflokk og þar sé góðra vopnabræðra að leita? Öðruvísi er varla hægt að skilja ítrekuð velþóknunarskrif Moggans í garð VG.

Um Svandísi Svavarsdóttur er það að segja, að hún er óaðskiljanlegur hluti af pólitísku æxli sem lengi hefur þjakað róttækasta hluta vinstrihreyfingar á Íslandi. Þetta pólitíska meinvarp, sem í daglegu tali er kallað flokkseigendafélagið eða flokkseigendaelítan, hefur sér það einkum til ágætis að líta á þá stjórnmálaflokka, sem það hefur plantað sér niður í, í það og það skiptið, sem einhverkonar hlutafélög sem það eigi óvéfengjalegan meirihluta í. Þannig var það í Alþýðubandalaginu og þannig er það í VG. Eitt það versta við þetta flokkseigendaæxli er, að þeir sem að því standa eru alls ekki það sem þeir segjast vera í pólitísku tilliti. Þetta lið gerir í því að láta að því liggja að það sé róttækt til vinstri, þó svo að flestir sem til þekkja viti að það er ekki róttækara en geltir fresskettir. Gott dæmi um svona róttækling er Svavar nokkur Gestsson, sem á árum áður hafði atvinnu af því að leika sósíalista, en hvarf svo til síns heima í flottræfilshátt utanríkisþjónustunnar fyrir atbeina Davíðs Oddssonar og Halldórs Ásgrímssonar.

Fyrir mér má óþverrahópurinn sem nýtur þess vafasama heiðurs að starfrækja flokkseigendafélag VG og áður Alþýðubandalagsins, stunda sína pólitík fyrir mér, en það á þá að gera það annarsstaðar en á vettvangi sósíalista, þar á þessi söfnuður ekki heima. 

Jóhannes Ragnarsson, 3.11.2007 kl. 09:35

5 Smámynd: halkatla

ég er hætt að skilja afturábak eða áfram í þessum stjórnmálum, hvað þá hægri vs vinstri

en Svandís og Steingrímur J mættu vera frá tunglinu eða al-qaiada, þau væru samt rosaleg krútt

ég er með eitthvað undarlegt fetish fyrir að sjá sjálfsstæðisflokkinn kúgaðann til hlýðni og þau hafa svo gott vald á því, en ég veit, það eru mikilvægari mál en það á borðinu

halkatla, 3.11.2007 kl. 10:49

6 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Það má vera, Anna Karen, að Steingrímur J. og Svandís séu ógurleg krútt, séð úr fjarlægð. En en svo ég vitni í þann gamla, góða Þórberg Þórðarson frá Hala í Suðursveit, þá lítur dæmið svona út:

En komirðu, karl minn nærri,

kynleg er menjagná.

Hún lyktar af ljótum svita

og lús skríður aftaná.   

Jóhannes Ragnarsson, 3.11.2007 kl. 12:23

7 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Ég vona að stofnfundur hins nýja vinstreflokks, Alþýðufylkingarinnar, verði frekar fyrr en síðar.

Jóhannes Ragnarsson, 3.11.2007 kl. 18:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband