Leita í fréttum mbl.is

Svandís og VG hækka leikskólagjöld, þvert ofan í gefin loforð

Ég veit ekki hvort það kemur á óvart þó nýr meirihluti í Rekjavíkurborg hækki leikskólagjöld um 2,5% frá og með 1. janúar 2008. Á hinn bóginn man ég ekki betur en VG, með Svandísi súperpúmu í broddi fylkingar, hafi lofað borgarbúum gjaldfrjálsum leikskóla. Og raunar hélt ég að það væri stefna flokksins. En svo bregðast krosstré sem aðrir raftar. Gjaldfrjálsi leikskólinn Svandísar og VG er greinilega fyrir bí og nú öslar súperpúman á 2,5 mílna ferð í gagnstæða átt, burt frá gjaldfrjálsa leikskólanum, án þess að barnaeigendur geti rönd ið reist. Það er því ekki nema von, að Stakteinar Moggans beri róttæka vinstrihöfðingjann Svandísi Svavarsdóttur á hödum sér með lofsöng og skjalli. 
mbl.is Leikskólagjöld hækka um 2,5%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Pási

Það er ekki verið að gera leikskólann sem slíkan eitthvað dýrari, þetta kemur eingöngu til vegna þess að matur á Íslandi í dag kostar meiri pening en hann gerði í gær, það kemur borgarstjórnarflokkunum lítið við, síðast þegar ég gáði var það á könnu ríkisvaldsins.
Ég las líka eitthvað um meiri gæði í matnum, það er nú ekkert hægt að kvarta yfir því þó börnin fái betri mat í leikskólanum. Því er lítið við þessari hækkun að gera, en meirihluti leikskólaráðs hefur það þó í sér að vilja taka peningin sem þetta kostar beint úr borgarsjóði en ekki úr vasa foreldra, á ekki von á öðru en það verði samþykkt.

Pási, 9.11.2007 kl. 08:02

2 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Hvað sem öðru líður, gengur þessi hækkun þvert gegn stefnu VG og athyglisvert, svo ekki sé meira sagt, að borgarstjórnarapparat VG skuli ekki hafa komið í veg fyrir þessa hækkun.

Jóhannes Ragnarsson, 9.11.2007 kl. 12:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband