Leita í fréttum mbl.is

Hin grimma nútímakona

Þessa dagana fer sá rymtur bæ af bæ, að frú Ingveldur hafi í heyranda hljóði heitið við nafn Þorláks byskubs helga, að ganga í skrokk Kolbeins eiginmanns síns ef hún fái svo mikið sem minnsta grun um framhjáhaldsathæfi af hans hálf í einhverri mynd. Og hefur gott fólk og grandvar á orði að þeir hafi skjaldan heyrt önnur eins býsn í orðbragði höfð eftir úr munni jafn syndugrar konu.   Tilefni heitstrengingar frú Ingveldar er sögð vera, að Kolbeinn hafi fyrir skemmstu komið heim undir morgun eftir gifturíkt nætursvall, fullklæddur að öðru leyti en því að á vantaði nærbuxurnar. Og þó að Kolbeinn legði eið að og kallaði hymmneskar persónur sér vitnis og hjálpar að hann hefði gleymt að klæða sig í áðurnefnda brók áður en hann fór að heiman kom það ekki í veg fyrir að frú Ingveldur misþyrmdi honum á kvalarfullan hátt.   Eftir þá illu meðferð mun Kolbeinn hafa gengið á fund móður sinnar og kunngert henni að frú Ingveldur væri helvítis andskotans hlandmerartík, sem væri uppfull af smásmugulegri mannvonsku og óskiljanlegri kynrænni ónáttúru gagnvart þeim manni sem ætti að vera henni kærastur.    Hin aldrað móðir Kolbeins lagði spekingslega kollhúfur undir ræðu sonar síns og sagði síðan sem svo, að þarna væri þessum nútímakonum rétt lýst; þær væru ekkert nema ofstopinn,frekjan og snobbið. – Ekki fór ég svona að með hann pabba þinn meðan hann var fullnáttúraður, bætti hún við og það hýrnaði yfir hrukkóttu andlitinu. – Aldrei datt mér til hugar að leggja höndur á kallforsmánina þó hann væri eitthvað að snuðra í annarra kvenna klofum ef að ég fékk mitt. Honum var það svosem ekki ofgott aumingjanum svorna. En ef hann dirfðist að vanrækja mig bölvaður ódámurinn var mér að mæta, eins og þú manns Kolbeinn minn! Enn þetta er auðvitað orðið alt í lagi núna eftir að náttúran yfirgaf ha fyrir fullt og allt. Nú hugsar hann bara um pólitík og fótbolta og fer út að ganga með hundinn og svona ...     

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Níels A. Ársælsson.

Kolbeinn hefur greinilega átt réttsýna móður blessaður karlinn.

Meira fjandans skassið hún frú Ingveldur að vera að bera brigður á nærbuxnaleysi Kolbeins vinar okkar !

Níels A. Ársælsson., 19.1.2008 kl. 23:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband