Leita í fréttum mbl.is

Styðja orðljóta götustráka

Það vekur vissulega furðu að gleðipinnarnir í SÚS skuli verja sínum merkilega tíma í að mótmæla því að einhverjir orðljótir glæfrapjakkar og götustrákar í Hvíta-Rússlandi séu teknir úr umferð. Eða eru SÚSarar meðmæltir því að rustafengnir óknyttadrengir fái að valsa um götur og gangstéttir hreytandi dónaskap og hávaða framaní saklausa vegfarendur? Ef svo er, má fastlega búast við að litlir, vansgreiddir prumphanar með þverslaufur fari að abbast uppá fólk í miðborg Reykjavíkur með kjaftsteytingi og skítaskap. Nær væri þeim andríku frjálshyggjupottormum í SÚS að glíma við að mótmæla pólitískum ráðningum í heimalandi sínu, einkavinavæðingu og botnlausri fjármálaspillingu.   


mbl.is SUS mótmælir handtökum í Hvíta-Rússlandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband