Leita í fréttum mbl.is

Ölvaðir framsóknarmenn í slagsmálum

Þegar ég sá fyrirsögnina að meðfylgjandi frétt varð mér fyrst fyrir að halda að þar væri á ferðinni enn eitt birtingarformið á innanbúðarfangbrögðunum í Framsóknarfjósinu. En í því ágæta fjósi stunda menn handalögmál í flórnum, fullir jafnt sem ófullir. Svo kom á daginn að þarna hefðu bara ofurölvi njarðvíkingar að basla við að slást. Það þótti mér skítt. Þó er ekki öll nótt úti enn með að hinir kappsömu njarðvíkingar séu eftir allt saman góðir framsóknarmenn sem hafi lent í hári saman útaf sérlegum sparikosningafötum Björns Inga, búrsöxum hans og hnífapörum. Þó má vel vera að hinir druknu útnesjamenn hafi verið að slást út af kvenmanni - sem er svo sem ágætt útaf fyrir sig. Ég verð þó að viðurkenna að mér finnst fyrri tilgátan samt mun betri og sennilegri.
mbl.is Ofurölvi í slagsmálum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband