Leita í fréttum mbl.is

Músin sem þegir meðan ránið fer fram

VargurinnAumast er þó hlutskipti Samfylkingarinnar, músarinnar sem þegir á meðan ranglæti er í frammi haft.

Allar líkur eru á að Samfylkingin grafi sig í fönn á meðan Sjálfstæðisflokkurinn gengur á milli bols og höfuðs á samfélagslegum rekstri Landspítalans og heilbrigðiskerfisins.

Ég geri ekki ráð fyrir að Össur Skarphéðinsson og hans loddaralið verði kalið á hjarta eftir þá einkavæðingu. Það er nefnilega að koma sífellt betur í ljós, með hverjum deginum sem líður, reyndar eins og mig grunaði frá upphafi, að málskrúð gáfnaljósanna um ,,nauðsynlega og langþráða sameiningu vinstrisinna og félagshyggjufólks" í Samfylkinguna, var og er innantómt froðusnakk hugsjónalausra tækifærissinna. Þvílíkir falshundar og skítapakk eru betur geymd, um aldur og ævi, á kafi í snjóskafli uppá reginjöklum í staðin fyrir að valsa um í gerilsneyddri sjálfumgleði og stunda  pólitískan subbuskap og spillingu við háborð íhaldsins með ráðherrastóla undir rassgatinu.   


mbl.is Gróf sig í fönn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Á meðan rassgatið er ljótara en andlitið, þá er eins gott að þeir sitji á rassgatinu. Je, hvað ég er mikill dóni.

Kiss My Ass

Ingibjörg Friðriksdóttir, 5.2.2008 kl. 21:48

2 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Æi fyrirgefðu, endilega fleygðu þessu útaf blogginu þínu og settu hjarta í staðin, eða stjörnu.

Ingibjörg Friðriksdóttir, 5.2.2008 kl. 21:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband