Leita í fréttum mbl.is

Lauslæti og kynferðisvilla

foolÞað hvarflar að mér að Cindý þessi Crawford sé hin versta dræsa fyrir lauslætissakir og kynferðisvillu. Það dansar aungin sómakær kona uppi á borði fyrir karlinn sinn og hans félaga nema argvítugasrta meri. Og hvað gerir svo þessi dónafrauka á eftir með eiginmanni sínum og vinum hans? Hefst þá hroðalegt stóðlífi eða hvað? Ég er andskoti hræddur um það.

Svona kerlingu, og aðrar hennar líkar, á að loka inni á vitlausraspítala og hleypa þeim aldrei þaðan út aftur. Svona óþrifnaður getur nefnilega auðveldlega smitað frá sér og valdið miklum usla á heiðvirðum heimilum.

 


mbl.is Dansar uppi á borði fyrir manninn sinn og vini hans
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Ég get vottað það, því eftir að ég las þessa grein, er enga eirð í mér að finna.  Er að fara út í búð núna og kaupa mér borð sem þola myndi mín ófáu kíló.

Ingibjörg Friðriksdóttir, 13.5.2008 kl. 14:51

2 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Þú verður bara að passa þig á að detta ekki ofanaf borðinu, það gæti orðið þér skeinuhætt. Frænka mín datt einusinni í gólfið af svona borði og braut í sér sex rifbein og báða handleggina. En hún er nú líka bölvaður húðarjálkur.

Jóhannes Ragnarsson, 13.5.2008 kl. 21:33

3 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Ég er meira í ætt við stóðmerar.

Ingibjörg Friðriksdóttir, 13.5.2008 kl. 22:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband